Morgunblaðið - 19.05.1989, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1989
Menntamálaráðherra og HÍK vilja að kennslu verði haldið áfram:
Tökum ekki við fyrirskip-
unum frá skólastj órnendum
- segir Wincie Jóhannsdóttir formaðurHÍK
Menntamálaráðuneytið og Hið íslenzka kennarafélag eru sammála
um að bæta þurfi nemendum í framhaldsskólunum upp kennsluna, sem
þeir hafa misst niður í verkfalli kennara, annað hvort í vor eða í
haust. Þetta kemur fram í yfirlýsingu, sem Svavar Gestsson mennta-
málaráðherra og Wincie Jóhannsdóttir, formaður HÍK, sendu frá sér
í gær. Þar segir að þetta eigi jafiit við um áfanga- og bekkjaskóla, þar
á meðal Verzlunarskólann. „Aðilar eru sammála um að nemendur verði
hvorki brautskráðir né færðir milli bekkjardeilda eða áfanga án náms-
mats frá kennurum. Nánari ákvarðanir um skólalok verði teknar í
fiillu samráði við kennara i hverjum skóla á báðum skólastigum,“ segir
í yfirlýsingunni.
Samkvæmt yfirlýsingunni á að
gera grunnskólakennurum í HÍK
kleift að tryggja nemendum sínum
kennslu eða námsmat, sambærilegt
við það sem aðrir nemendur hafa
fengið. Nemendur, sem ljúki grunn-
skóla í vor, geti ekki hafið nám í
framhaldsskóla án þess að hafa feng-
ið vitnisburð eða einkunnir í öllum
námsgreinum. Loks er í yfirlýsing-
unni kveðið á um að ráðuneytið og
kennarar standi saman að starfshópi
sem fáist við einstök neyðartilfelli.
Wincie Jóhannsdóttir, formaður
HÍK, sagði á fundi kennara í MH í
gær að kennarar teldu starf sitt mik-
ilvægt, og að þess vegna ætluðu
þeir ekki að stuðla að „gervilausn-
um“ með því að gefin yrðu út „verð-
laus prófskírteini", eins og formaður-
inn orðaði það.
„Það er skoðun stjómar og fuli-
trúaráðs HÍK að það skipti miklu
máli að nemendur fái kennslu," sagði
Wincie. „Við viljum vara við þeirri
taugaveiklun, sem hefur gætt hjá
ýmsum skólastjómendum um leið og
ljóst er að deilunni er lokið." Wincie
sagði að það hefðu verið kennurum
í verkfalli mikil vonbrigði að ekkert
hefði heyrzt frá skólameisturum, sem
hefði stutt málstað verkfallsmanna.
Bæði hefði verið beðið um slíkan
stuðning og framlög í verkfallssjóð
HÍK frá Skólameistarafélaginu.
„Ég held að það hjálpi okkur ekki
mikið, nú þegar við förum aftur inn
í skólana, að vera að fara að vinna
með taugaveikluðum mönnum, sem
fundu ekki hjá sér neina þörf til þess
að styðja okkur,“ sagði Wincie.
Wincie sagði að á kennarafundum,
sem vom í sumum skólum í gær og
em víða boðaðir í dag, ættu kennar-
ar að leggja áherzlu á faglegt og
ábyrgt mat á stöðunni enda legðu
þeir meira upp úr hinu faglega en
skólastjómendur. „Þegar við fömm
á fyrsta kennarafundinn emm við
I DAGkl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.16 í gær)
VEÐURHORFUR í DAG, 19. MAÍ
SPÁ:S- og suðaustanátt, víðast kaldi eða stinningskaldi. Rigning
og súld um allt land og hiti á bilinu 4-7 stig.
TAKN:
Heiðskírt
/, Norðan, 4 vindstig:
*' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
f ;* / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
-| 0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
V Skúrir
*
V El
— Þoka
== Þokumóða
’, ’ Súld
OQ Mistur
—J- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐURVÍÐA UMHE/M kl. 12:00 í gœr að ísl. tíma hltl voftur Akureyri 4 alskýjað Reykjavlk 6 skýjafi
Bergen 9 rfgnlng
Helsinki 18 léttskýjað
Kaupmannah. 16 léttskýjað
Narssarssuaq 7 skýjað
Nuuk +1 snjókoma
Osló 16 skýjað
Stokkhólmur 17 léttskýjað
Þórshöfn 8 léttskýjað
Algarve 23 heiðskýrt
Amsterdam 23 mistur
Barcelona 21 léttskýjað
Berlfn 22 léttskýjað
Chicago 17 mistur
Foneyjar 20 rigning
Fraokfurt 24 léttskýjað
Glasgow 15 rignlng
Hamborg 20 skýjað
Las Palmas 24 skýjað
London 22 skýjað
Los Angeles 15 alskýjað
Lúxemborg 22 léttskýjað
Madrfd 27 skýjað
Malaga 25 léttskýjað
Mallorca 23 léttskýjað
Montreal 17 heiðskfrt
New York 17 mistur
Orlando 24 mlstur
Parfs 26 léttskýjað
Róm 18 skruggur
Vín 21 léttskýjað
Washington 18 léttskýjað
Winnipea 13 heiðskfrt
ekki að fara að taka við fyrirskipun-
um, heldur til að leggja mat á þær
hugmyndir, sem skólastjómendur
hafa, og til að leggja í púkk okkar
hugmyndir," sagði Wincie.
Wincie benti á að í samkomulagi
kennara og fjármálaráðuneytis væri
beinlínis gert ráð fyrir því, að auka-
greiðslur giltu meðan verið væri að
ganga frá skólaárinu, hvenær svo
sem það væri gert. Þess vegna væri
ef til vill hægt að hliðra til á næsta
skólaári og kenna og prófa í haust
án þess að kennarar þyrftu að vinna
á venjulegum kauptaxta. „Það væri
þá kannski hægt að komast hjá því
að jafnmargir nemendur dyttu út úr
þessu, eins og lítur út fyrir núna,“
sagði Wincie.
Hún sagðist telja eðlilegt að taka
bæði tillit til þess, sem nemendur
vildu og þess, sem þeim væri fyrir
beztu, en það væri tvennt ólíkt eins
og kennarar vissu vel. „Nemendur
lifa það af að lenda í svolitium hrakn-
ingum. Það er sárt, en það grær,“
sagði Wincie.
Á fundinum komu fram spuming-
ar um það, hvort samninganefnd HIK
hefði eitthvert samráð haft við nem-
endur og hvort nemendur myndu
yfirleitt mæta í skólann, þótt kennar-
ar vildu halda uppi kennslu. Gunn-
laugur Ástgeirsson, samninganefnd-
armaður, sagði samninganefndina
hafa haft öðru að sinna undanfarna
daga. Hún hefði enga skoðun á því,
hvort nemendur kæmu í skólann eða
ekki, enda væri það þeirra eigið
mál. „Við bjóðumst til að þjónusta
þessa nemendur, og reynum að
mæta faglegum kröfum," sagði
Gunnlaugur.
Félagsfundur náttúrufræðinga:
Launahækkan-
ir metnar 16%
Á FJÖLMENNUM félagsfundi í
Félagi íslenskra náttúrufræðinga,
sem hófst um hálfri klukkustund
eftir undirritun samninganna var
tillaga um frestun verkfalls sam-
þykkt með örfáum mótatkvæðum.
Ólafur Karvel Pálsson fiskifræð-
ingur, sem leiddi samninganefnd
félagsins sfðustu dagana f fjarverú
formannsins, Unnar Stejngríms-
dóttur, gerði grein fyrir samn-
ingnum lið fyrir lið. I máli hans
kom fram það mat að f samningn-
um fælist 16% hækkun launa fram
til 1. mai 1990. Þá kom fram að
hver verkfallsmanna fær 20 þús-
und króna greiðslu í „striðsskaða-
bætur" og ríkissjóður leggur
10-15 miljónir f sérstakan sjóð sem
skiptist milli þeirra BHMR manna
sem unnu á bak- eða útkallsvökt-
um meðan á verkfalli stóð.
Búnaðarfélag Islands og
Reykjavíkurborg gerðu samhljóða
samning við náttúrufræðinga f sinni
þjónustu en ekki hefur verið gengið
frá samningum við fjóra náttúru-
fræðinga sem starfa á Landakoti.
Félagið mun taka endanlega afstöðu
til samninganna á sérstaklega boðuð-
um félagsfundi einhvern næstu daga.
Auk 3,35% hækkunar á taxta frá
1. maí kom fram í máli Ólafs K.
Pálssonar að vægi breytinga á pró-
faldursmörkum og llfaldursviðmiðun
væri um 2,5% að meðaltali en þýddi
4-5% hækkun til þess hluta félags-
manna sem nyti strax góðs af. Þá
hækkuðu laun um 6,3% vegna 1,5%
áfangahækkana 1. september, 1.
nóvember, 1. janúar og 1. maí.
Hækkunaráhrif 6.500 króna orlofs-
uppbótar 1. júní væru 0,7% og áhrif
hækkunar desemberuppbótar voru
metin 0,3%. Hann sagði að hækkun-
in til 1. maí næstkomandi væri met-
in 16% en 11% á samningstíma
BSRB.
í máli sínu lét Ólafur K. Pálsson
í (jós ánægju með að í 1. grein samn-
ingsins væri kveðið á um að endur-
skoðun launakerfis skyldi hafa það
að markmiði að háskólamenntaðir
ríkisstarfsmenn njóti sambærilegra
kjara og menn sem gegna hliðstæð-
um stðrfum eða hafa sömu eða svip-
aða menntun, sérhæfni og ábyrgð
en taka ekki laun samkvæmt launa-
kerfi ríkisins. Hins vegar greindi
hann frá því að mikið hefði verið
þrefað um það ákvæði sömu greinar
að gæta skyldi þess við endurskoðun-
ina að valda ekki röskun á „hinu
almenna launakerfi í landinu". Þá
sagði hann mikilvægt að hafa fengið
inn í samninginn ákvæði um hálfs
launaflokks hækkun til hvers BHMR
manns hvern þann mánuð sem álit
sérstakrar endurskoðunarnefndar á
starfskjörum dregst fram yfir 1. júlí
1990 og sagði að með þessu hefði
BHMR fengið ( hendur svipu til að
knýja ríkissjóð til að efna sinn hluta
samningsins.
Ólafur sagði Ijóst að lengra yrði
ekki komist í samfloti BHMR-félaga.
Hann lauk máli sínu með því að segja
að þótt hann- væri ekki yfir sig hrif-
inn af samningnum væri hér á ferð
tilraun sem væri þess virði að gera.
Ekki væri fyrirsjáanlegt að frekari
barátta skilaði árangri í samræmi
við fyrirhöfn og að samninganefnd
félagsins mælti einróma með sam-
þykkt félagsins.
Fimm náttúrufræðingar tóku til
máls um samninginn og mælti aðeins
einn þeirra gegn samþykkt hans.
Aðrir báru lof á samninganefnd og
forystumenn félagsins og þótt enginn
teldi samninginn beinlínis hagstæðan
kom fram í máli manna að rétt væri
að láta á reyna fram til hvemig sam-
starf við ríkið yrði um endurskoðun
launakerfisins. Yrði það ekki sem
skyldi mætti segja samningnum upp
frá 1. október 1990.
Kennarar
fá auka-
greiðslur
SAMHLIÐA því að skrifað var
undir kjarasamninga BHMR og
ríkisins í gær undirrituðu fjár-
málaráðherra og formaður HÍK
samkomulag um aukagreiðslur til
kennara. Það gerir ráð fyrir kenn-
arar fái greitt aukalega fyrir alla
vinnu, sem tengist lokum skólaárs-
ins og menntamálaráðuneytið fer
fram á og kennarar taka að sér
eftir að kennslu- og próftímabili
yfirstandandi skólaárs er lokið.
í samkomulaginu segir að aðilar
séu sammála um að kennslu- og próf-
vikúm teljist lokið 25. maí í þeim
skólum þar sem kennslutímabil hófst
1. september á síðasta ári. Um vinnu,
sem innt er af hendi eftir þann tíma
gildir að aukakennsla verður greidd
sem yfirvinna samkvæmt reglum um
kennslu í öldungadeildum, enda verði
kennslu háttað með svipuðum hætti
og þar. Þá verði vinna við námsmat,
útskrift og önnur störf, sem tengjast
lokum skólaársins, greidd í yfirvinnu.
Loks verði greitt að lágmarki fyrir
átta stunda vinnu hvern dag, sem
starfsmaður er kallaður til vinnu, „á
kennarafund, til prófyfirsetu eða
bara til að taka til í skápnum sínum,“
eins og Eggert Lárusson, samninga-
maður HIK, orðaði það er hann
skýrði samkomulagið á fundi HÍK.
Hvað varðar störf kennara á tíma-
bilinu til og með 25. maí á að reikna
60% álag á allar kennslustundir allt
að þeim tímafjölda, sem er á stunda-
skrá annarinnar og greiða þann tíma-
fjölda sem yfirvinnu, enda verði til-
högun kennslunnar svipuð og í öld-
ungadeildum. Allar aðrar kennslu-
stundir eiga að greiðast sem yfir-
vinna, og verði prófdögum fjölgað
frá úpphaflegri áætlun, á að greiða
viðkomandi kennara fjórar yfirvinnu-
stundir aukalega fyrir hvern við-
bótarprófdag.