Morgunblaðið - 17.06.1989, Qupperneq 4
0801 ÍHUL .TI aUOAaflADUA.1 QIGAJayiIJpHOM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JUNI 1989
Morgunblaðið/Bjami
Séra Guðmundur Þorsteinsson og Ásta Bjamadóttir eiginkona
hans.
Sr. Guðmundur Þorsteins-
son kjörinn dómprófastur
SR. GUÐMUNDUR Þorsteins-
son í Árbæjarsókn hefur verið
tilnefndur dómprófastur í
Reykjavík og tekur hann við
embætti af séra Ólafí Skúlasyni
1. júlí næstkomandi.
Atkvæði voru talin á Biskups-
skrifstofu í gær og tók 21 af 22
þjónandi prestum í Reykjavík þátt
í útnefningunni. Allir sóknar-
prestar í Reykjavík voru í kjöri.
Sr. Guðmundur hlaut 18 atkvæði
en þrír fengu eitt atkvæði hver,
Sr. Árni Bergur Sigurbjömsson
Ásprestakalli, Sr. Amgrímur
Jónsson Háteigsprestakalli og
Tómas Sveinsson Háteigspre-
stakalli.
Kaupfélag Hvammsfiarðar gjaldþrota:
Neikvæð eiginfjár-
staða upp á 70 millj.
STJÓRN Kaupfélags HvammsQarðar í Búðardal hefiir farið fram á
það við sýslumanninn í Dalasýslu, að bú Kaupfélagsins verði tekið
til gjaldþrotaskipta. Fyrirtækið fékk greiðslustöðvun til eins mánað-
ar í mars, en hún var ekki framlengd. Að sögn Ólafs Sveinssonar,
kaupfélagsstjóra, hefur reksturinn gengið illa lengi, ekki síst vegna
mikils {jármagnskostnaðar og vanefhda ríkisins á ákvæðum búvöm--
laganna fi-á árinu 1985. Segist hann telja, að neikvæð eiginQárstaða
kaupfélagsins sé nú um 70 milljónir króna.
félagsins sagði Rúnar það mál enn
óljóst en myndi skýrast eftir helg-
ína.
Ólafur segir, að rekstur kaup-
félagsins hafi gengið mjög illa
síðustu 10 árin. Gífurleg uppbygg-
ing hefði farið fram á skömmum
tíma og fyrirtækið hefði þá stofnað
til mikilla skulda. Þegar verðtrygg-
ing og raunvextir hefðu komið til
sögunnar hefði þessi rekstur ekki
staðið undir fjármagnskostnaðin-
um. Einnig hefði rekstrarumhverfi
kaupfélagsins verið erfitt undan-
farin ár meðal annars vegna fram-
kvæmdar búvörulaganna frá 1985
og vanefnda ríkisins á fjármögnun
búfjárafurða.
IÍEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 17. JUNt
YFIRLIT í GÆR: Yfir Bretlandseyjum er 1.027 mb hæð og 1.006
mb smálægð yfir Norðausturlandi þokast norðaustur. Um 900 km
suð-suðvestur af Reykjanesi er 987 mb lægð á hreyfingu norð-
norðaustur, og mun líklega fara norður yfir vestanvert landið á
morgun. Fremur hlýtt verður áfram.
SPÁ: Sunnan- eða suðvestan stinningskaldi sunnanlands en aust-
an- eða norðaustan kaldi víðast hvar fyrri hluta dags en skúrir
suðvestanlands og fer að létta til norðanlands og austan undir
kvöldið. Hiti 10-15 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Suðvestanátt, sums stað-
ar nokkuð hvöss, einkum á mánudag. Skúrir og 7-10 stiga hiti um
sunnan- og vestanvert landið, en bjart veöur og 10-15 stiga hiti
norðaustanlands.
TÁKN:
x, Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
-] 0 Hitastig:
10 gráður á Celsius
stefnu og fjaðrirnar •
Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður V Skúrir
er 2 vindstig. *
V Él
Léttskýjað / / / / / / / Rigning zn Þoka
/ / / Þokumóða
Hálfskýjað * / * Súld
/ * / * Slydda oo Mistur
Skýjað / * /
* * * 4 Skafrenningur
Alskýjað * * * * Snjókoma * * * K Þrumuveður
w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 10 alskýjað Reykjavík 12 úrkoma
Bergen 17 skýjað
Helsinki 21 léttskýjað
Kaupmannah. 21 léttskýjað
Narssarssuaq 10 skýjað
Nuuk 2 skýjað
Ósló 24 léttskýjað
Stokkhólmur 15 alskýjað
Þórshöfn 12skýjað
Algarve vantar
Amsterdam 22 hálfskýjað
Barcelona 26 mistur
Berlín 19 skýjað
Chicago 12 alskýjað
Feneyjar 22 hálfskýjað
Frankfurt 22 léttskýjað
Glasgow 19 skýjað
Hamborg 21 léttskýjað
Las Palmas 26 léttskýjað
London 26 léttskýjað
Los Angeles 17 þokumóða
Lúxemborg 24 hálfskýjað
Madríd 29 skýjað
Malaga alskýjað
Mallorca heiðskírt
Montreal 14 alskýjað
New York 17 þoka
Orlando 26 skýjað
París vantar
Róm vantar
Vín 20 skýjað
Washington 23 alskýjað
Winnipeg vantar
Kaupfélag Hvammsfjarðar rekur
nú almenna verslun, verslun með
varning fyrir bændur og bakarí.
Þar til á síðasta ári rak það einnig
sláturhús og kjötfrystihús, en í
september var þær rekstrareining-
ar seldar hlutafélagi. Um þessar
mundir starfa 25 til 27 manns hjá
kaupfélaginu.
Rúnar Guðjónsson sýslumaður
Mýra-og Borgarfjarðarsýslu hefur
verið skipaður skiptaráðandi þrota-
búsins. Hann hélt til Búðardals í
gærdag og úrskurðaði kaupfélagið
formlega gjaldþrota. Auk þess réð
hann Svein Sveinsson hdl bústjóra.
Aðspurður um áhuga heima-
manna á að taka yfir rekstur kaup-
Dalasýsla;
Stofiia heima-
menn verslun?
Búðardal.
Undirbúningsfundur til
stofnunar verslunarreksturs
var haldinn sunnudaginn 12.
júní.
Fundinn sótti áhugafólk um
þróun byggðar í sýslunni. Hlut-
afjárloforð voru frá 11 aðilum
sem vilja sameinast um að reka
hér verslunarþjónustufyrir-
tæki.
Fyrirhugað er að reyna að
fá húsnæði Kaupfélags
Hvammsfjarðar. Stofnfundur-
inn verður haldinn innan nokk-
urra daga og gengið frá öllum
formsatriðum. „ . ..
- Knstjana
Tryggingar Olís
metnar 215 milljónir
MATSMENN þeir sem borgar-
fógeti skipaði til að leggja mat á
tryggingar Olís í kyrrsetning-
arkörfu Landsbankans hafa lokið
störfum. Komust þeir að þeirri
niðurstöðu að tryggingamar
nægðu fyrir 215 milljónum króna
af438 milljón króna kröfii Lands-
bankans.
Málflutningi í málinu var fram
haldið í gærdag. Valtýr Sigurðsson
borgarfógeti sagði að eftir að gögn
matsmannanna hefðu verið lögð
fram hefði Landsbankinn óskað eft-
ir að frekari málflutningi yrði fre-
stað fram á þriðjudag og varð Val-
týr við þeirri ósk.
Athugasemd vegna
aðalfundar SS
- eftir Jón H. Bergs
í viðtali við Steinþór Skúla-
son, núverandi forstjóra SS, í
Morgunblaðinu vegna aðalfiind-
ar Sláturfélags Suðurlands, er
sagt, að mikið tap hefði verið á
rekstri fyrirtækisins undir hans
stjórn á sl. stárfsári og „við sölu
og uppgjör á ýmsum deildum
félagsins hefði komið fram leynt
tap, þar sem ekki hefði fengist
fullt verð fyrir birgðir til dæm-
is“.
í nýútgefinni ársskýrslu fyrir-
tækisins segir hins vegar að rekja
megi „slæma afkomu ársins til
óhagstæðra ytri skilyrða rekstrar,
verðbólgu, hárra raunvaxta, verð-
stöðvunar og söluskatts á mat-
væli, sem dró úr kaupmætti".
Einnig mætti rekja slæma afkomu
til hárra fjármagnsgjalda og af-
skrifta á útistandandi viðskiptakr-
öfum viðskiptavina og dótturfé-
lags.
Vegna starfa minna fyrir Slátur-
félagið og vegna þeirra forstöðu-
manna og starfsmanna fyrirtækis-
ins, sem ábyrgir hafa verið fyrir
birgðahaldi mótmæli ég tilhæfu-
lausum aðdróttunum, sem felast í
órökstuddum fullyrðingum Stein-
þórs Skúlasonar. Hið sanna er, að
ógætileg meðferð ýmissa eigna
fyrirtækisins, svo sem útsölur á
vörum verslananna, jafnvel á tó-
baki, og veiting mikilla afslátta til
annarra verslana og einstaklinga,
ásamt ógætilegri útlánastefnu
nýrra stjórnenda á sl. starfsári,
hefur leitt af sér óþörf rekstrartöp.
Ársreikningur fyrirtækisins
1987 var ekki samþykktur af þá-
verandi forstjóra, heldur staðfestur
af stjórn fyrirtækisins, en af endur-
skoðun er það að segja að félags-
kjörnir endurskoðendur hafa jafn-
an starfað tvo til þijá mánuði á
ári hveiju við endurskoðun bók-
halds fyrirtækisins, yfirfarið fylgi-
skjöl þess, borið saman við bækur
þess og sjóði og ekkert fundið at-
hugavert.
Hafa ársreikningar fyrirtækis-
ins jafnan verið áritaðir af þeim.
Ársreikningar Sláturfélagsins hafa
ætíð verði samdir af löggiltum
endurskoðendum eftir bókhaldi
fyrirtækisins og verið áritaðir af
þeim, en sama endurskoðunar-
skrifstofan hefur gegnt þessu hlut-
verki í áratugi og gerir enn.
Höfundur er fyrrverandi forsijóri
Sláturfélags Suðurlands.
Sovétríkin:
Þakka Lyfja-
verslun og
Flugleiðum
Eftirfarandi fréttatilkynn-
ing hefur borist Morgun-
blaðinu frá sovéska sendiráð-
inu í Reykjavík:
Sendiráð Sovétríkjanna á ís-
landi vill koma á framfæri inni-
legum þökkum til Lyfjaverslun-
ar ríkisins og Flugleiða fyrir
þá hjálp, sem þessi fyrirtæki
verttu við kaup og flutning lyfja
til þeirra, sem slösuðust í járn-
brautarslysinu við borgina Ufa
í Sovétríkjunum.