Morgunblaðið - 17.06.1989, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 17.06.1989, Blaðsíða 24
24 e80f ivm .Ví SUOA05IAOUAJ QISAJHMUOHOM MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ T989 .... Hvalveiðar heflast á sunnudaginn HVALVEIÐAR hcfjast á sunnudag, síðasta sumar vísindaveiðanna. Alls verður leyfilegt að veiða 68 langreyðar, en meiri veiði var fyrir- huguð, veiði á 10 sandreyðum og alls 80 langreyðum. Við upphaf vísindaáætlunarinnar var fyrirhuguð veiði á 80 langreyðum og 40 sandreyðum hvert sumar. Öll umsvif við veiðarnar verða svipuð nú og á síðustu hvalvertíð en þessi gæti orðið styttri. Veiðarn- ar verða stundaðar á tveimur hval- bátum, Hval 8 og Hval 9. 30 manns verða á bátunum. í hvalstöðinni í Hvalfirði verða nálægt 100 manns og 30 til 40 í frystihúsi Hvals hf í Hafnarfírði. Eggert ísaksson, skrifstofustjóri Hvals hf, sagði í samtali við Morg- unblaðið, að þó veiða mætti færri hvali, þyrfti svipaðan fjölda starfs- manna. Menn gætu ekkert verið að dunda sér við vinnsluna. Hvalinn þyrfti að vinna strax og hann bær- ist að landi svo hann skemmdist ekki. Því yrði svipaður fyöldi fólks í vinnu við veiðar og vinnslu og á síðasta ári. Fundur Seðlabanka, banka og sparisjóða á mánudag: Rætt um útlánsvexti og og skiptikjarareikninga FUNDUR með fulltrúum Seðlabanka, banka og sparisjóða verður á mánudag, og er búist við að eftir hann liggi fyrir endanlegar tillög- ur um hvernig raunvextir á útlánum verða lækkaðir. Einnig hvem- ig skiptikjarareiknum verður breytt, en ríkisstjórnin vill afnema þá frá og með næstu áramótum. Undirnefnd þessara aðila leitar að lausn á því máli. Rætt er um að lækka raunvexti útlána í 6% í tveimur áföngum, en næsti vaxtabreytingardagur er 21. júní. Ljóst er einnig að breytingar verði á' skiptikjarareikningunum en að þeir verði ekki afnumdir með öllu. M.a. er rætt um að verðtrygg- ing gildi ef reikningar eru ekki hreyfðir í 6 mánuði en annars gildi nafnvextir. Einnig er rætt um að lengja viðmiðunartímabil þessara reikninga úr 6 mánuðum í 1 ár. Kröfur um afnám skiptikjara- reiknganna hefur mætt mikilli and- stöðu banka og sparisjóða. Baldvin Tryggvason sparisjóðsstjóri Spari- sjóðs Reykjavíkur og nágrennis sagði við Morgunblaðið, að þetta væru þeir reikningar sem fólkið í landinu hefur treyst á, enda væri meira en helmingur heildarinnlána á þessum reikningum. „Forsenda fyrir lækkun útláns- vaxta er lækkun innlánsvaxta. Það er útilokað, ef fara á að lækka út- lánsvexti, að fara að hreyfa við því kerfi sem fólkið treystir best á. Það er að sjálfsögðu alltaf hægt að end- urskoða og laga þessa reiknigna, en vandi banka og sparisjóða, sem sagt er að stafi af skiptikjarareikn- ingum, stafar af bráðabirgðalögun- um 1988. Þá var bannað að lána verðtryggð lán til skemmri tíma en tveggja ára. Þá minnka verðtryggð- ar eignir banka og sparisjóða, sem leiðir örugglega til hækkandi nafn- vaxta á óverðtryggðu hliðinni," sagði Baldvin. Verðlagsstofhun: Kreditkort taki auglýsinga- stefiiu sína til athugunar Stigsmunur á auglýsingum Visa og Eurocard VERÐLAGSSTOFNUN hefúr komist að þeirri niðurstöðu að í auglýs- ingum fyrir Eurocard kreditkort sé vegið að Visa-íslandi á ótil- hlýðilegan hátt og fer stofnunin íram á að fyrirtækið taki auglýsinga- stefiiu sína til athugunar og forðist auglýsingar af þessu tagi. Visa- ísland hafði kært auglýsingarnar til stoftiunarinnar. í tilkynningu frá Verðlags- stofnun segir að hún telji æskilegt að greiðslukortafyrirtækin aug- lýsi gæði og eðli þjónustu sinnar frekar en að beina spjótum sínum hvort að öðru. í því sambandi vekur stofnunin athygli á Visa ísland hafí einnig auglýst á þann hátt að aðeins sé lítill stigsmunur á þeim og auglýsingum fyrir Eurocard. Stofnunin tekur þó ekki afstöðu til þeirra auglýsinga þar sem kæra hefur ekki borist þeirra vegna. Landssamband smábátaeigenda: Grásleppukarlar hvattir til þess að taka upp netin Meira hefiir aflazt en talið er að hægt sé að selja MEIRA en 12.000 tunnur af grásleppuhrognum hafa nú aflazt á vertíðinni, sem stendur til 20. júlí. Það er um 1.000 tunnum meira en talið er að seljanlegt sé. Landssamband smábátaeigenda hefúr varað grásleppukarla við frekari veiðum, enda geti aukinn afli leitt af sér undirboð og verðlækkanir. Samkvæmt upplýsingum Arnar Pálssonar, framkvæmdastjóra LS, hefur sambandið margsinnis varað menn við því að veiða ekki meira, en þeir hafi trygga sölu fyrir. Flest- ir hafa fylgt þeim fyrirmælum og tekið upp netin þegar veiðin hefur náð þeim mörkum, þrátt fyrir það að í mörgum tilfellum hafi verið um mokveiði að ræða. Örn segir að þvi miður hafi einhveijir ekki farið að þessum tilmælum og haldið veiðum áfram. Það geti haft í för með sér mikinn þrýsting frá þeim sjálfum til verðlækkunar til að auka sölu. Verðlækkun sé hins vegar ekki á döfinni. í frétt frá sambandinu segir að helztu rökin gegn verðlækkun séu eftirfarandi: „Umtalsverðir ijármunir eru í húfi. 100 marka verðlækkun á 12.000 tunnum svari til 33,8 rnillj- óna króna tekjutaps. Samskiptum við þá erlendu aðila, sem gert hafa samninga á þessari vertíð upp á tæpar 5.000 tunnur á 1.100 mörk, væri stefnt í voða. ísland myndi tapa því frum- kvæði í verðlagningu á grásleppu- hrognum sem það hefur haft. ísland myndi glata því trausti, sem byggt hefur verið upp á und- anförnum árum að hér séu litlar sveiflur á verði grásleppuhrogna. Öll veiði á þessu ári umfram það, sem hægt er að selja, mun hafa áhrif á verðlagningu og fyrir- fram sölu á næstu vertíð. Það skal því enn og aftur ítrekað að þeir grásleppumenn, sem enn eru að veiðum og ekki hafa örugga trygg- ingu fyrir sölu, eru beðnir um að taka upp netin og hætta.“ 21 nemandi útskrifaður frá Tónlistarskólanum Tónlistarskólanum í Reykjavík var slitið þriðjudaginn 30. maí sl. við hátíðlega athöfn í Háteigs- kirkju. Skólastjórinn, Jón Nor- dal, fiutti ræðu og afhenti loka- prófsnemendum skírteini sín. Að þessu sinni útskrifaðist 21 nemandi frá skólanum og 4 luku prófi úr tveimur deildum. Loka- prófsnemar skiptust þannig milli deilda: 6 luku tónmenntakennaraprófi, 6 burtfararprófi tónfræðadeildar, þar af einn jafnframt burtfararprófi í sellóleik, 2 strengjakennaraprófi, annar þeirra einnig einleikaraprófi á fíðlu og hinn burtfararprófí á víólu, 2 blásarakennaraprófi, þar af einn jafnframt einleikaraprófi á flautu, 1 lauk burtfararprófi á flautu, 1 píanókennaraprófi, 1 gítarkennaraprófi, 1 einleikaraprófí á fagott og 1 einsöngvaraprófi. Um 40 tónleikar voru haldnir á vegum skólans bæði innan hans og utan. Einnig voru Ijölmörg nám- skeið haldin af innlendum og er- lendum gestum, nemendum og kennurum til gagns og ánægju. (Fréttatilkynning) Lokaprófsnemar frá Tónlistarskólanum í Reykjavík vorið 1989, V erðlagsstofiiun: Auglýsingar Miklagarðs taldar bijóta í bága við verðlagslög AUGLÝSINGAR frá verslun Miklagarðs við Sund um „happadaga“, sem birst hafa í Morgunblaðinu síðastliðna tvo föstudaga, eru taldar brjóta i bága við verðlagslög, en í auglýsingunum hefúr komið fram að heppnir viðskiptavinir verslunarinnar ættu von á veglegum vinn- ingum. Neytendamáladeild Verðlagsstoftiunar telur auglýsingarnar vera ótvírætt lagabrot, og hefúr borið fram kvartanir við Miklagarð vegna þeirra. Sólveig Guðmundsdóttir, hjá neytendamáladeild Verðlagsstofn- unar, sagði að auglýsingar Mikla- garðs brytu í bága við þá grein verðlagslaga þar sem meðal annars segir að óheimilt sé að örva sölu á vöru með því að úthluta vinningum með hlutkesti í formi verðlaunasam- keppni eða á annan hliðstæðan hátt þar sem tilviljun ræður hver niður- staðan verður. í auglýsingum Miklagarðs segir að allar innkaupa- körfur verslunarinnar séu númerað- ar, og happadagana séu tvisvar á klukkustund dregin út númer, og handhafar þeirra karfa fái vinning. Sólveig sagði að haft hefði verið samráð við Miklagarð eftir að fyrri auglýsingin birtist, en Verðlags- stofnun beri að reyna að ná sáttum í málum af þessu tagi. „Við fórum fram á að látið yrði af þessum aug- lýsingum, en þeim var hins vegar haldið áfram á heldur hvimleiðan hátt. Þess vegna verður haft sam- band við Miklagarð á nýjan leik þar sem fyrri kröfur verða ítrekaðar, en ennþá hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort lögð verður fram kæra vegna auglýsinganna," sagði Sólveig. Snævar Guðmundsson, fjármála- stjóri Miklagarðs, segist ekki telja umræddar auglýsingar vera frá- brugðnar útvarpsauglýsingum frá ýmsum fyrirtækjum, þar sem við- skiptavinum væri heitið allskonar fríðindum gegn ákveðnum skilyrð- um, og látnar hefðu verið afskipta- lausar hingað til. „Það getur vel verið að samkvæmt lögum séu aug- lýsingar af þessu tagi ekki heimil- ar, en þetta hefur viðgengist í þjóð- félaginu hingað til og enginn hefur skipt sér af því.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.