Morgunblaðið - 17.06.1989, Blaðsíða 27
27
MOKGUNBIAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 1989
Fyrsta vika Palme-réttarhaldanna:
Yonbrigði fyrir ákæruvaldið
Stokkliólmi. Frá Kristínu Valdimarsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
Þessi vika hefur ekki verið vika ákæruvaldsins í Pabne-réttarhöldun-
um. Auk Lisbet Palme voru átta vitni kölluð fyrir réttinn að ósk
saksóknara . Fjögur þessara vitna áttu að sýna að hinn ákærði
Christer Pettersson hefði ekki Qarvistarsönnun morðkvöldið. Hin
Qögur áttu að staðfesta að Pettersson hefði verið andsnúinn Olof
Palme.
Meiri hiuti vitnanna er úr undir-
heimum Stokkhólms. Með einni
undantekningu missti fólkið minnið,
þegar það hafði fengið sér sæti í
vitnastúkunni. í návist Petterssons
man þetta fólk ekki mikið. Sagt er
að Pettersson horfi framan í vitnin
og reyni að ná sambandi við þau.
Og hann er þekktur fyrir annað en
blíðlegt augnaráð.
Þegar þetta undirheimafólk og
félagar Petterssons er komið út úr
réttarsalnum getur stundum losnað
um málbeinið hjá því. Við frétta-
menn hafa tvö þessara vitna þá
gefið í skyn að þau vilji ekki eiga
þátt í því að Pettersson verði dæmd-
ur fyrir morðið á forsætisráðherran-
um.
Eigandi klúbbsins Oxen, þar sem
Pettersson segist hafa eytt morð-
kvöldinu, hafði viku áður en hann
vitnaði, lýst nákvæmlega skotvopni
sem hafði horfíð frá heimili hans
um það leyti sem morðið á Palme
átti sér stað. í réttinum sagðist
hann ekki hafa munað þetta rétt.
Fyrrverandi sambýliskona Pett-
erssons var fáorð í byijun og viður-
kenndi aðspurð að það væri erfitt
að vitna gegn honum í réttarsaln-
um. Þegar ákærandinn las upphátt
hvað hún hafði sagt í yfirheyrslum
gat hún kannast við hluta af því
sem hún hafði sagt þar. Til dæmis
viðurkenndi hún að sér hefði strax
dottið í hug að Petterson væri morð-
ingi Palme og ennfremur að hefði
Lisbet séð augu Petterssons þá
myndi hún ekki gleyma þeim fyrst
um sinn.
Eitt öruggt og minnugt vitni
fengu ákærendur þó. Eldri kona
lýsti skilmerkilega hvemig Petters-
son hafði hrópað ókvæðisorð um
Palme á lestarstöðinni í Sollentuna.
„Væri ekki búið að skjóta Palme,
þá ætti maður (eða ,,ég“) að gera
það einu sinni enn“, hafði Petters-
son m.a. æpt.
Eftir þessa viku hefur Pettersson
því fjarvistarsönnun ef trúa á því
sem vitnin hafa sagt í réttinum.
Það er hins vegar ljóst að hann
hefur ekki alltaf elskað Palme jafn-
mikið og hann sjálfur segir.
Lisbet Palme hefur samt kannski
valdið ákæruvaldinu mestum von-
brigðum í vikunni. Núna hefur hún
þó gengist inn á að mæta nk. mánu-
dag. Þegar forsætisráðherrann var
myrtur vissu ráðamenn ekki hvem-
ig átti að bregðast við. Lögreglan
gerði hver mistökin á fætur öðrum.
Það skýrist alltaf betur að ráða-
menn vita ekki heldur hvemig á
að meðhöndla ekkju forsætisráð-
herrans.
Lisbet Palme virðist vera komin
upp í eitthvert hásæti. Hún kemst
ekki niður og enginn nær upp til
hennar. Þeim sem ekki líkar við
hana segja að hún hafi sjálf komið
sér upp I þetta hásæti með því að
taka sér ýmis forréttindi. Þeir kalla
hana „landsekkjuna".
Lisbet Palme
Aðrir segja að henni hafi verið
ýtt upp í þessa stöðu og að þar
hafi Hans Holmér fyrram lögreglu-
stjóri riðið á vaðið með þvi að koma
alltaf öðravísi fram við hana en
önnur vitni.
Þeir, sem þekkja til Palmefjöl-
skyldunnar, segja að Lisbet hafi
ýmsar ástæður til að vera bitur.
Þeir segja ennfremur að henni fínn-
ist erfitt að þurfa ein að bera aðal-
ábyrgðina á því að Pettersson verði
hugsanlega dæmdur fyrir morðið á
forsætisráðherra Svíþjóðar.
Arne Treholt
Noregur:
Arne Treholt
veldur deilum
Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara
Morgunblaðsins.
Njósnarinn Arne Treholt er
enn fær um að valda deilum
meðal norskra stjórnmálamanna.
Nú er um það rifist hveijum sé
að kenna, að hann gat árum sam-
an selt Sovétmönnum norsk ríkis-
leyndarmál.
Þingmenn borgaraflokkanna
gagnrýna Verkamannaflokkinn
fyrir að hafa hlaðið undir Treholt
innan flokks og í utanríkisþjón-
ustunni á sama tíma og öryggislög-
reglan varaði flokksforystuna við
nánum tengslum hans við sovéska
sendiráðsmenn. Verkamannaflokk-
urinn og Sósíalíski vinstriflokkurinn
svara fyrir sig með því að benda
á, að það hafi verið ríkisstjóm borg-
araflokkanna, sem leyfði Treholt
að setjast í háskóla hersins árið
1982 þótt hann væri þá grunaður
um njósnir.
Það, sem hleypti nýju lífi í Tre-
holt-deilurnar að þessu sinni, var,
að fyrrum flokksbróðir hans, Thor-
björn Berntsen, varaformaður
Verkamannaflokksins, tók málið
upp í Stórþinginu. Sagði hann, að
dómurinn yfir Treholt væri allt of
harður og bætti síðar við, að málið
ætti að taka upp aftur. Hafa marg-
ir brugðist ókvæða við þeim um-
mælum og segja, að Berntsen sé
að hlutast til um störf dómstólanna
í landinu.
Arne Treholt situr sem fyrr í Ila-
fangelsinu fyrir utan Ósló og er
hans vel gætt. Helgarleyfi hefur
hann ekkert fengið og fær trúlega
ekki og konuna sína, sem er aðeins
tvítug að aldri, fær hann aðeins að
finna í viðurvist fangavarða.
ERLENT
HH'%
MADDAMA, KERLING, FROKEN, FRU
VEISTU HVERT ÞÚ STEFNIR NÚ?
KVENNALISTAKONUR Á FERÐ
ALMENNIR FUNDIR, VINNUSTAÐAHEIMSÓKNIR,
ÚTIMARKAÐIR.
VESTFIRÐIR
NORÐURLAND VESTRA
SUÐURLAND
Kristín Halldórsdóttir og
Þórhildur Þorleifsdóttir
Kristín Einarsdóttir og
Málmfríður Sigurðardóttir.
Danfríður Skarphéðinsdóttir og
Guðrún Agnarsdóttir.
21. JÚNÍ, MIÐVIKUDAGUR Patreksfjörður. 23. JÚNÍ, FÖSTUDAGUR Hvammstangi - Laugabakki. 21. JÚNÍ, MIÐVIKUDAGUR Hveragerði - Þorlákshöfn.
22. JÚNÍ, FIMMTUDAGUR Tálknafjörður - Bíldudalur - Þingeyri. 24. JÚNÍ, LAUGARDAGUR Skagaströnd - Blönduós 22. JÚNÍ, FIMMTUDAGUR Stokkseyri - Eyrarbakki - Selfoss.
23. JÚNÍ, FÖSTUDAGUR Bolungarvík - Suðureyri. 25. JÚNÍ, SUNNUDAGUR Varmahlíð - Sauðárkrókur. 23. JÚNÍ, FÖSTUDAGUR Hella - Hvolsvöllur.
24. JÚNÍ, LAUGARDAGUR ísafjörður. 26. JÚNÍ, MÁNUDAGUR Sauðárkrókur. 24. JÚNÍ, LAUGARDAGUR Vík.
25. júní-30. júní verða Kvennalistakonur á ferð
um Norðurland eystra, Vesturland og Austfirði.
Sjá nánar í götuauglýsingum - Geymið auglýsinguna