Morgunblaðið - 17.06.1989, Page 28
YDDA F5.34/SIA
LYFTU
ÞÉR UPP
OG
OPNAÐU
PILSNER
Sgits
...að sjálfsögðu!
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1.7'. JÚNL1989
Evrópskur landbúnaður:
Brýna hnífana í baráttunni við
niðurgreiðslu- og styrkjasvikin
Áætlað er að 180 milljarðar ísl. kr. séu sviknir út árlega
Brussel. Reuter.
INNI í frystigeymslunni, þar sem gaddurinn er 18 gráður á celsíus,
er stundum erfitt að gera greinarmun á lifur, niðursneiddu kjúkl-
ingakjöti og úrvalsnautakjöti. Þetta kunna samviskulausir útflytj-
endur vel að meta þegar þeir fara fram á niðurgreiðslur frá Evrópu-
bandalaginu. Því meira, sem þeir ljúga til um gæðin, því meira fá
þeir í sinn vasa. Til eru líka þeir, sem fá styrk út á olífuviðarlundi,
sem hvergi eru til nema í þeirra eigin höfði, og aðrir aka hveitifor-
munum fram og til baka yfir landamæri ríkjanna til að hagnast á
þeim sérstöku gjaldeyrisreglum, sem gilda um landbúnaðarvörur.
Endurskoðunarrétturinn, sem
hefur eftirlit með fjármálum EB,
gaf nýlega út mikla skýrslu þar
sem vakin er athygli á þessum stór-
kostlegu svikum. Hans Helmut
Wachter, formaður réttarins, segir,
að ógjömingur sé að áætla ná-
kvæmlega hve mikil þau eru en
hann hallast að því, að þau séu
ekki minni en skattsvikin eða um
10% af öllu fé, sem til landbúnaðar-
ins fer.
Þriðjungur allra útgjalda Evr-
ópubandalagsins fer til landbúnað-
arins, 30 milljarðar dollara, og
samkvæmt því er þremur milljörð-
um dollara, nærri 180 milljörðum
ísl. kr., stolið árlega. Hefur nú ver-
ið skipuð sérstök sveit til að berj-
ast við svikahrappana og er það
ekki síst að frumkvæði Margaret
Thatcher, forsætisráðherra Bret-
lands, en hún hefur verið í farar-
broddi í baráttunni gegn spilling-
unni, sem breskur þingmaður kall-
aði -einu sinni „mestu glæpastarf-
semi í Evrópu“. John MacGregor,
landbúnaðarráðherra Bretlands,
hefur líka tekið sér Cato gamla til
fyrirmyndar að því leyti, að hann
fer aldrei svo til fundar við starfs-
bræður sína innan EB, að hann
eggi þá ekki lögeggjan í þessu
stríði.
Framkvæmdastjórn EB bendir
hins vegar á, að sökin liggi fyrst
og fremst hjá ríkisstjómum aðildar-
landanna og Jacques Delors, for-
seti framkvæmdastjórnarinnar,
segist gmna Thatcher um græsku,
að hún hamri á þessu máli til að
herða landa sína í andstöðunni við
samræmt peningakerfi og yfirlýs-
inguna um félagsleg réttindi. Þá
em Bretar heldur ekki barnanna
bestir þegar kemur að landbúnað-
arsvikunum.
Gert út á niðurgreiðslur
Endurskoðunarrétturinn hefur
ráðist einna harðast á „græna“
gjaldeyriskerfið innan EB en það
felst í því, að verðið á landbúnaðar-
vömnni er ákveðið í ECU, evrópsku
mynteiningunni, sem síðan er unnt
að skipta í gjaldeyri á mjög hag-
stæðum kjömm. Þegar farið er
með vömna úr einu landinu í annað
er hún skattlögð eða niðurgreidd
til að jafna verðmun milli landa og
á þetta fyrirkomulag leika menn.
Er vömnni þá smyglað yfir „hag-
stæð“ landamæri og síðan flutt
löglega til baka og niðurgreiðslun-
um stungið í vasann.
Á þessu verður hins vegar mikil
breyting 1992 þegar öll gæsla á
landamæmm innan EB verður lögð
niður og þar með skattheimta og
niðurgreiðslur á þeim vettvangi.
Segist Hans Helmut Wachter von-
ast til, að þá verði unnt að nýta
landamæraverði og tollheimtu-
menn við að telja sauðfé og olífu-
tré og fylgjast betur með útflutn-
ingi til landa utan Evrópubanda-
lagsins.
RETTIJ SlMARGRÆJUR^íAR
Sölnsýning ■ Sl.iplit.llí 33, virt hliðina á Tónabíói
V
r
v
r
v
r
\.
r
Opið virka daga frá kl. 11 til 18 og um helgar 13 til 18
a/pen kreuzer
Vinsælustu tjaldvagnarnir í Evrópu, enda
sterkir og ríkulega útbúnir. í þeim er m.a.
3ja hellna gaseldavél. Vaskur úr ryðfríu stáli.
Eldhúsborð. Eldhússkápar. Læst öryggishólf.
Matborð. Hnífaparaskúffa. Gluggatjöld. For-
tjald. Sóltjald. Stór dekk 13“. Varadekk.
Rúmgott farangursrými. Mjög meðfærilegur
og tjaldað á um 5 mínútum.
IIA HJÓLHÝSI
12 feta hjólhýsi sterkt og vel einangrað með
23 til 50 mm polystrol. Gluggar úr tvöföldu
lituðu akrylgleri. Rafkerfi 220 og 12 volt.
Eldhús með stálvaski og tveggja hellna elda-
vél og rennandi vatni. Dempari á beisli.
Neyðar- og stöðuhemlar. Vindufjöðrun á
hjólum, 13“ dekk. Svefnpláss fyrir 4-5. Fáan-
leg með fortjaldi. Verð kr. 324.000,- og kr.
372.900,- með ísskáp og hitakerfi.
KOOLATRON® KÆLIBOX
Frá stærsta framleiðanda heims á þessu
sviði. Ætluð til innstungu í vindlingakveikj-
ara og með straumbreyti fyrir 220 volt.
Straumnotkun frá aðeins 2,5 amper. Nauð-
synleg fyrir matinn og ölið á ferðalögum,
hvar sem er. Rúmmál 7 til 34 lítrar. Breytt
með einu handtaki í hitabox. Örfá eftir á
lager. Verð frá kr. 7.480,- Sendum í póst-
kröfu.
BERGLAND HF.
Sölusýning í Skipholti 33, sími 678990
Skrifstofa í Skipholti 25, sími 629990
y
J
"\
y
N
J