Morgunblaðið - 20.06.1989, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 1.989
7
Borgarsjóður Reykjavíkur;
Tekjur voru 924 millj-
ónir umfram áætlun
TEKJUR borgarsjóðs Reykjavíkur voru á árinu 1988 924 milljonum
króna hærri en gert hafði verið ráð fyrir í fjárhagsáætlun borgarinn-
ar. Þar munar mestu um útsvör, sem fóru 628.800.000 kr. fram úr
áætlun. Rekstrargjöld borgarinnar árið 1988 voru 579.800.000 krón-
um hærri heldur gert var ráð fyrir í fjárhagsáætluninni.
I fjárhagsáætlun Reykjavíkur-
borgar fyrir árið 1988 var gert ráð
fyrir að tekjur yrðu 7.507,3 milljón-
ir króna. Bókfærðar tekjur reyndust
samkvæmt ársreikningi vera
8.431,4 milljónir króna, eða
924.100.000 kr. umfram áætlun.
Þama munaði mest um útsvörin,
sem skiluðu 628,8 milljónum meira
en gert hafði verið ráð fyrir. Einnig
skiluðu aðstöðugjöld 96,5 milljónum
króna meira til borgarinnar en
áætlað hafði verið, gatnagerðar-
gjöld og bensínfé 77 milljónum,
vaxta- og verðbótatekjur 71 milljón
og dráttarvextir af opinbemm
gjöldum um 50 milljónum króna.
Rekstrargjöld borgarinnar árið
1988 vom einnig hærri en gert var
ráð fyrir í fjárhagsáætlun. Þar var
gert ráð fyrir að þau yrðu 5.546,9
milljónir króna, en þau urðu 6.225,7
milljónir, eða 579,8 milljónir um-
fram áætlun. Hreinir launaliðir voru
170 milljónum króna hærri en gert
var ráð fyrir, framlag til Sjúkra-
samlags Reykjavíkur var 136 millj-
ónir umfram áætlun, gatna- og
holræsaframkvæmdir 121 milljón,
framlög til fræðslumála 95,4 millj-
ónir og vaxtagjöld og óviss útgjöld
vom um 59 milljónir umfram áætl-
un.
Ráðgert var að veija 1.861,4
milljónum króna til eignabreytinga
á árinu 1988. Sú fjárhæð varð
2.205,7 milljónir króna, eða 344,3
milljónir umfram áætlun.
Arsreikningur Reykjavíkurborg-
ar og stofnana hennar var lagður
fram til fyrri umræðu í borgarstjórn
á fundi hennar þann 15. júní síðast-
liðinn. Síðari umræða fer fram 6.
júlí næstkomandi.
Spænsku konungs-
hjónin fara til Eyja
JUAN Carlos Spánarkonungur og Sofia Spánardrottning munu m.a.
fara til Vestmannaeyja í þriggja daga opinberri heimsókn þeirra til
Islands, sem hefst 5. juli nk.
Að sögn Kornelíusar Sigmunds-
sonar, forsetaritara, lendir flugvél
konungshjónanna á Keflavíkurflug-
velli kl. 11 fyrir hádegi miðvikudag-
inn 5. júlí. Konungshjónin fara fyrst
að Bessastöðum þar sem þau snæða
hádegisverð með forseta íslands,
Vigdísi Finnbogadóttur. Eftir há-
degi ræðir Jón Baldvin Hannibals-
son, utanríkisráðherra, við utanrík-
isráðherra Spánar, Francisco Fern-
andez Ordonez. Að kvöldi fyrsta
heimsóknardags býður forseti ís-
lands til kvöldverðar til heiðurs
spænsku konungshjónunum á Hótel
Sögu.
A öðrum degi heimsóknarinnar
verður flogið til Vestmannaeyja.
Farið verður í skoðunarferð um
eyna og sjávarútvegsfyrirtæki
skoðuð. Sama dag býður Davíð
Oddsson, borgarstjóri, konungs-
hjónunum til hádegisverðar á
Kjarvalsstöðum. Að honum loknum
skoða þau Stofnun Áma Magnús-
sonar. Síðdegis taka konungshjónin
á móti Spánveijum búsettum á ís-
landi á Hótel Sögu og um kvöldið
halda þau kvöldverðarboð til heið-
urs forseta íslands á Hótel Loftleið-
um.
Síðasta dag heimsóknarinnar
verður Juan Carlos og Sofiu boðið
til Þingavalla og mun Steingrímur
Hermannsson, forsætisráðherra,
halda hádegisverðarboð til heiðurs
þeim á Hotel Valhöll. Frá Þingvöll-
um verður ekið beint að Leifsstöð
en konungshjónin halda af landi
brott síðdegis þann 7. júlí.
Hinar þekktu ítölsku Guzzini búsáhalda- og
gjafavörur fást nú í miklu úrvali og fallegum sumarlitum.
HAGKAUP — Skeifunni og Kringlunni.
Rómuð ítölsk hönnun
^ guzzini
Kannt þú nýja símanúmerlð?
Steindór Sendibílar
t
SSSSSUr
so I
þar finna alhr,
ungir ^jAsitt hsefi
eitthvað við sn _
Brottför briði
Austurstræti 17 - Sími 622200
Brottför þriðjudaga:
Bókunaryfirlit 16. júní
20. júní-uppselt
27. júní-4sæti laus
4. og 11.júlí-uppselt
18. og 25. júlí- laus sæti
1.ágúst-8sætilaus
8. og 15. ágúst- uppselt
Laust í aðrar brottfarir
Gististaðir:
Benal Beach, Castillo de Vigia, Timor
Sol, Aloha Puerto Sol, Las Palomas Sol,
SKILABOÐ
FRÁ BEMMA
Ég kem til Torremolinos frískur
og fjörugur 4. júlí og í guðanna
bænum verið þið þá komin á svæð-
ið svo við getum byrjað strax á
einhveiju skemmtilegu.
Við verðum alltaf vakandi
hjáVERÖLD.
Hlakka tíl aó sjáykkur.
Med ofboóslegri sólarkveóju,