Morgunblaðið - 14.07.1989, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1989
29
IÞINGHLEI
„Heildarúttekt á fæðu-
venjum þjóðarinnaru
Opinber manneldis- o g neyzlustefha
Þorramatur. Samræmist hann og það sem honum heyrir til
þingsályktun um opinbera manneldis- og neyzluste&iu?
„Alþingi ályktar að leitast
skuli við á árunum 1990-2000
að ná fi-am meginmarkmiðum
í þeirri manneldis- og neyzlu-
stefiiu sem heilbrigðisráðuneyt-
ið og Manneldisráð hafa lagt
drög að og felur m.a. í sér eftir-
farandi:
* Að fæðuval sé fjölbreytt og
kjarngott.
* Að neyzla hvers einstaklings
miði að því að viðhalda æski-
legri líkamsþyngd.
* Að neyzla kolvetna sé aukin,
einkum úr grófu korni, kart-
öflum, grænmeti og ávöxtum,
en sykurneyzla minnki til
muna.
* Að hvíta (protein) verði
áfram rífleg í fæðu landsmanna.
* Að dregið verði úr neyzlu
fitu, einkum mettuðum fituefii-
um.
* Að takmarka saltnotkun og
neyzlu saltmetis."
I
Ofanskráð er upphaf á yfirlýs-
ingu [þingsályktunar] Alþingis
frá 19. maí sl. um manneidis- og
neyzlustefnu 1990-2000.
Heilbrigði til sálar og líkama
er dýrmætasta eign hvers ein-
staklings. Enginn vafi er á því
að hver einstaklingur hefur ríku-
leg áhrif á eigið heiisufar með
lífsmáta sínum. Hoilt fæði, nægi-
leg hreyfing, ómengað umhverfi,
ánægja í starfi og jákvætt lífsvið-
horf ráða trúlega mestu um heill
og hamingju einstáklingsins, með
og ásamt fjölskylduaðstæðum.
Það er því ekki út í hött að
löggjafinn móti manneldis- og
neyzlustefnu, ef ekki er gengið
of nærri sjálfsákvörðunarrétti
fólks. Sá galli er hinsvegar á gjöf
Njarðar að skoðanir hafa verið,
eru og verða trúlega skiptar um
hollustu sumra fæðutegunda.
Nýjar og breyttar niðurstöður líta
dagsins ljós svo að segja ár hvert.
Þá falla skoðanir heldur ekki í
einn farveg um það, hve víðtæk
neyzlustýring stjórnvaida eigi að
vera, t.d. með sköttum í vöru-
verði, hömlum á innflutningi, nið-
urgreiðslum o.s.frv.
Flestir eru hinsvegar sammála
um að „fæðuval eigi að vera fjöl-
breytt og kjarngott". Sem og að
fræðsla um holiustu og næringar-
gildi tegunda eigi að vera öllum
tiltæk og framboð matvæla nægt.
Sem og að sjálfsákvörðunarréttur
fólks til að móta eigin neyzluvenj-
ur verði virtur sem kostur er.
II
I ályktun Alþingis eru tíundað-
ar „aðgerðir" til að ná tilgreindum
markmiðum. Þar segir m.a. efnis-
lega:
1) Innlend framleiðsla matvæla
sem og innflutningur falli að sett-
um manneldismarkmiðum, m.a.
um sykur- og fituinnihald;
2) Tekið verði mið af þessum
markmiðum við ákvörðun tolla og
skatta í verði matvæla, sem og
við ákvörðun um niðurgreiðslur á
vöruverði; 3) Fræðsla um mat-
reiðslu, manneldis- og neyzlumál
í grunn- og framhaldsskólum
verði aukin, sem og nám í mat-
vælaiðn, heimilisfræðum og fyrir
starfsfólk mötuneyta og veitinga-
húsa; 4) Nemendur í grunn- og
framhaldsskólum eigi kost á hollu
fæði í skólunum; 5) Almenn
fræðsla um tengsl fæðu, líkam-
legrar hreyfingar og heilbrigðis
verði aukin; 6) Dregið verði úr
neyzlu tóbaks, áfengis og hvers
konar vímuefna; 7) Strangt eftir-
lit verði haft með matvælum með
tilliti til smithættu, aukefna og
hættulegra aðskotaefna; 8) Heil-
brigðisráðherra „láti fara fram
neyzlukönnun sem feli í sér heild-
arúttekt á fæðuvenjum þjóðarinn-
ar. Þar komi fram m.a. hlutdeild
einstakra matvara í daglegri fæðu
fólks og magn einstakra næring-
arefna . . .“; 9) Efldar verði inn-
lendar rannsóknir á matvæium,
næringu og heilsu; 10)„Stefnan í
manneldis^óg neyzlumálum verði
endurskoðuð með hliðsjón af nýrri
þekkingu á hveijum tíma.“
III
í þessari viljayfirlýsingu Al-
þingis bindur fjárveitingavaldið
sér allnokkurn útgjaldaauka, ef
hugur fylgir máli,- sem ekki er
ástæða til að efast um.
í fyrsta lagi gerir þingsályktun-
in ráð fyrir aukinni fræðslu,
margvíslegri, í grunn-, framhalds-
og sérskólum, auk upplýsinga-
miðlunar til almennings.
I annan stað gerir hún ráð fyr-
ir því að hollt fæði verði á boðstól-
um bæði í grunn- og framhalds-
skólum.
I þriðja lagi gerir stefnumörk-
unin ráð fyrir könnun á neyzlu-
venjum landsmanna, auknum
rannsóknum, hertu eftirliti, niður-
greiðslum í vöruverði o.s.frv.
Alyktunin snertir og tekjuöflun
ríkissjóðs: tolla og skatta og sölu-
hagnað af ATVR.
Ekki hefði komið að sök þó
fylgt hefði tillögu sem þessar
áætlun um áhrif hennar á tekjur
og gjöld ríkissjóðs á -tímabilinu.
Sama gildir raunar um áhrif á
innlenda matvælaframleiðslu, svo
sem búvörur hvers konar og
markaðsstöðu þeirra.
IV
Fróðlegt verður að sjá hvað
kemur út úr neyzlukönnun —
„heildarúttekt á fæðuvenjum
STEFÁN FRIÐBJARNARSON
þjóðarinnar" —, sem væntanlega
verður fyrsta skref stjórnvalda í
framhaldi af samþykkt Alþingis
um manneldis- og neyzlustefnu.
Slíka stefnu verður raunar að
byggja á marktækum niðurstöð-
um.
Það er af hinu góða að beina
neyzluvenjum fólks — með
fræðslu og upplýsingum — inn á
hollari brautir, þar eð samsetning
daglegrar fæðu hefur ríkuleg
áhrif á heilsufar okkar. En máske
skiptir það ekki síður máli í hvers
konar hugarástandi við neytum
fæðunnar. Og girnilegur matur
gleður hugann, ekkert síður en
bragðlauka, sem forsjónin hefur
gefið okkur í einhverjum tilgangi.
Matmálstimi þarf að vera gleði-
stund, ekki hið gagnstæða.
Átta nýútskrifaðir tannlæknar, frá vinstri: Hólmfríður Guðmundsdóttir, Hilmar
Guðmundsson, Gunnar Torfason, Hafsteinn Eggertsson, Þórður Birgisson, Sigríður
Rósa Víðisdóttir, Berglind Jóhannsdóttir og Guðrún Gunnarsdóttir.
Átta nýir tannlæknar
ÁTTA tannlæknar, sem brautskráðust
frá Tannlæknadeild Háskóla íslands i
júni sl., gengu í Tannlæknafélag Islands
þann 23. júní. Við það tækifæri undirrit-
uðu þeir félagsheit TFÍ.
Fjói'ir hinna ungu tannlækna hafa þegar
hafið störf á landsbyggðinni en hinir fjórir
starfa í Reykjavík.
Wélagslíf
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 og 19533.
Helgarferðir Ferðafélags-
ins 14.-16. júlí
1) Snæfellsnes - Elliðahamrar
- Berserkjahraun
Gengið þvert yfir Snæfellsnesið
skammt vestan við veginn um
Kerlingarskarð. Þarna er fjall-
garðurinn mun lægri en víðast
annars staðar. Lagt verður af
stað í gönguna frá Syðra-Lága-
felli. Gist í svefnpokaplássi.
Fararstjóri: Jóhanna Magnús-
dóttir.
2) Landmannalaugar. Gist (
sæluhúsi FÍ í Laugum. Göngu-
ferðir um nágrennið með farar-
stjóra. Fararstjóri: Magnús Guð-
laugsson.
3) Þórsmörk. Gist í Skagfjörðs-
skála/Langadal. Gönguferðir
með fararstjóra.
4) Hveravellir. Gist í sæluhúsi
Fl’ á Hveravöllum. Eftir erfiðan
vetur er sumarið loksins komið
á Hveravöllum.
Uþplýsingar og farmiðasala á
skrifstofu FÍ, Öldugötu 3.
Ferðafélag (slands.
UÍJ Útivist
Útivist
Laugardagur 15. júlí kl.os.oo
Hekla. Ekið verður að Skjól-
kvium og gengið upp norðaust-
uröxl fjallsins. Gangan tekur 7-8
klst. Verð 1.700,- kr.
Sunnudagur 16. júlí
Kl. 08.00 Einsdagsferð í Þórs-
mörk. Stansað 3-4 klst. í Mörk-
inni. Ferð einnig fyrir sumardval-
argesti. Verð 1,500,-kr.
Kl. 13.00 Tóarstígur. Ný göngu-
leið. Leiðin liggur um gróðurvinj-
ar i Afstapahrauni. Skoðaðar
mannvistarleyfar, jarðfall,
gróskumikill gróður. Göngunni
lýkur um Seltóarstíg og Bruna-
veg.
Munið miðvikudagsferðir f
Þórsmörk. Brottför í ferðirnar
frá BSÍ, bensinsölu.
Kynnið ykkur sumarleyfisferðir
Utivistar, t.d. hálendishringur
22.-29. júli. Aðeins nokkur sæti
laus. Sjáumst.
Útivist, ferðafélag.
ikfllj Útivist
Helgarferðir 14.-16. júlí:
1. Þórsmörk - Goðaland. Gist
í Básum. Skipulagðar göngu-
ferðir við allra hæfi.
2. Skógar - Fimmvörðuháls -
Básar. Gist í Básum. Gengið frá
Skógum yfir Fimmvörðuháls i
Bása á laugardag.
Uppl. og farm. á skrifst. Grófinni
1, simar 14606 og 23732.
Sjáumst! ......
Útivist.
TIL SÖLU
FUNDIR - MANNFA GNAÐUR
Niðjamót
Niðjamót Guðbjargar og Árna frá Bæ, Aust-
ur-Barðastrandarsýslu, verður haldið á tjald-
svæðinu við Bjarkarlund dagana 22. og 23.
júlí. Mætum öll.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í símum:
91-76697 Sigurður, 98-34324 Ólína,
98-34165 Kristjana.
Sumarbústaðaland
við Apavatn
Til sölu einn hektari fallegt sumarbústaða-
land við Apavatn. Búið að leggja veg, girða
og gróðursetja mikið af trjáplöntum.
Upplýsingar hjá:
S.G. einingahúsum,
Selfossi, sími 98-22277.
ÝMISLEGT
Sumarhúsalóðir í Kjós
Til leigu eru örfáar sumarhúsalóðir á skipu-
lögðu landsvæði, sem er í fallegu landslagi
við eða í námunda við Meðalfellsvatn, um
45 km frá Reykjavík. Verð við allra hæfi.
Upplýsingar í dag og næstu daga í síma
667007.