Morgunblaðið - 14.07.1989, Side 34
34
félk f
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1989
COSPER
Eig'uni við ekki heldur að vera hér?
Gömul reiðtygi.
Við muniim sakna
ykkar mikið
Morgunblaðið/Ámi Sæberg.
Ágfústa Sigíúsdóttir var lylgdarmaður Soffíu Spánardrottningar
á Islandi.
Agústa Sigfúsdóttir var sér-
legur fylgdarmaður Soffíu
Spánardrottningar á meðan á
heimsókn konungshjónanna stóð
í síðustu viku. Blaðamaður hitti
Ágústu að máli og spjallaði við
hana um heimsóknina.
„Mér þótti það mikill heiður
þegar Vigdís Finnbogadóttir
hafði samband við mig og bað
mig um að taka starfið að mér,“
segir Ágústa. „Þessir dagar hafa
verið alveg ógleymanlegir. Kon-
ungshjónin eru afar viðkunnan-
leg og dagskráin gekk eins og
best verður á kosið.“
Alþýðleg framkoma Soffíu
Spánardrottningar í heimsókn-
inni kom mörgum á óvart. Ég
spyr Ágústu hvernig Soffía hafi
komið henni fyrir sjónir. „Soffía
er afskaplega elskuleg kona,“
segir Ágústa. „Yfir henni er
ákveðin reisn en um leið er hún
hlý og athugul. Hún hefur áhuga
á blómum og dýrum og er mik-
ill barnavinur. Konungurinn hef-
ur önnur áhugamál. Hann er
hestamaður og stundar siglingar
og veiðar. Auk þess hefur hann
mikinn áhuga á viðskiptum og
spurðist fyrir um viðskipti milli
landanna tveggja. Bæði eru
hjónin gamansöm og elskuleg í
viðmóti. Sem dæmi um það má
nefna að eftir móttöku sem kon-
ungshjónin héldu settustþau nið-
ur með nánasta fylgdarliði sínu
og við ræddum frjálslega um
ýmislegt sem ekki hafði gefist
tækifæri til að tala um.
Þegar konungshjónin fara í
formlegar heimsóknir til annarra
landa er ávallt með þeim mikið
fylgdarlið. Dagskráin er í föstum
skorðum og henni er sjaldnast
hægt að hnika. Það var þó gert
fyrsta dag heimsóknarinnar þeg-
ar Soffía drottning lét í ljós ósk
um að fara í verslunarleiðangur.
„Það var frí þetta síðdegi og
stóð ekki til að gera neitt. Þá
langaði Soffíu skyndilega að fara
í Kringluna og versla. Auðvitað
var ekkert því til fyrirstöðu. Ég
er ekki viss um að allir hafl átt-
að sig á því hver þarna var á
ferð,“ segir Ágústa. „Ég talaði
við konu sem var að versla í
Pennanum og áttaði sig ekki á
því að drottningin stóð við hliðina
á henni fyrr en hún af tilviljun
leit upp. Eg held að Soffiu hafi
fundist þetta skemmtilegt og
ólíkt því sem hún á að venjast."
Sjötíu manns voru í fylgd með
konungshjónunum. Þar af voru
30 blaðamenn. Sumir gera ekki
annað allan ársins hring en að
fylgjast með konungshjónunum.
Meðal þeirra sem eru í fylgdar-
liði konungs er 83 ára gamall
markgreifi, siðameistari hallar-
innar, og eiginkona hans. „Þau
fylgja konungi hvert sem hann
fer,“ segir Ágústa. „Hjónin voru
alltaf nærri konungshjónunum
og fylgdust gaumgæfilega með
því sem var að gerast. í einni
móttökunni tók ég eftir að siða-
meistarinn benti konungi á að
nú væri kominn tími til að draga
sig í hlé. Það var greinilegt að
hann tók hlutverk sitt alvar-
lega.“
Ágústa segir að konungs-
þjónin hafi ekki kvartað yfir
véðrinu á Islandi og bæði létu
þau í ljós ósk um að koma aftur
til íslands í einkaheimsókn.
Það var mikið um að vera í
Leifsstöð þegar þau kvöddu.
„Kveðjustundin var ekki eins
formleg og móttakan í upphafi
heimsóknarinnar," segir Ágústa.
„Konungshjónin voru búin að
eignast vini á Islandi sem þeim
þótti erfitt að kveðja. Ég man
sérstaklega eftir kveðjuorðum
Soffíu: „Við munum sakna ykkar
mikið.“
LANDKYNNING
Baðstofa við
Kyrrahafið
Seattle. Frá Valgerði P. Hafstað fréttaritara Morgunblaðsins.
Islendingafélag Seattle-borgar
fagnaði þjóðhátíð að þessu sinni
með því að opna formlega íslenskan
sal í Norræna safni borgarinnar.
Gerðist það við hátíðlega athöfn að
viðstöddum u.þ.b. 30 boðsgestum.
í salnum kennir margra grasa.
Þar er m.a. baðstofa sem mun vera
eftirlíking annarrar á Þjóðminja-
safni íslands. Þá þelqa reiðtygi og
gömul íslensk verkfæri heilan vegg
í salnum. Einnig eru íslenskar bæk'-
ur til sýnis og veggspjöld með lands-
lagsmyndum frá íslandi. Veggina
prýða þar að auki gamlar ljósmynd-
ir af íslenskum landnemum í Wash-
ingtonrylki.
Að sögn safnvarðarins, Marianne
Forsblad, er ráðgert að útbúa vegg-
spjöld í salinn þar sem saga íslend-
inga í Washingtonríki verður sögð
í máli og myndum. Afkomendur
íslendinga í fylkinu eru nú u.þ.b.
600 manns en í íslendingafélaginu
eru u.þ.b. 600 manns. Formaður
félagsins er Edward Palmason.
Marianne Forsblad við opnun sýningarinnar.
Úr baðstofúnni.
Soffía er mikill dýravinur.
SPÁNARDROTTNING