Morgunblaðið - 01.08.1989, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 1989
Reuter
Frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, ræðir við Jeanne
Sauve, yfirlandsstjóra Kanada, í Ottawa í gær.
Heimsókn forseta íslands til Kanada:
Ánægjuleg ferð og við-
tökur skínandi góðar
Ottawa. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morgunblaðsins.
VIGDÍS Finnbogadóttir, forseti íslands, kom í gær til Ottawa,
höfiiðborgar Kanada, eftir viðdvöl á Nýfitndnalandi og Nova Scot-
ia. í Ottawa hitti hún Jeanne Sauve, yfirlandstjóra Kanada, og
Brian Mulroney forsætisráðherra. Forsetinn ræddi við blaðamenn
í embættisbústað landstjórans. Sagði hún að ferðin hefði verið
ánægjuleg í alla staði og að viðtökur hefðu verið skínandi í Kanada
en heimsókn hennar hófst á laugardag í Nýfúndnalandi. Tilefni
heimsóknarinnar er m.a. það að í ár er í hundraðasta sinni haldið
upp á byggð íslendinga í Kanada.
Markverðast þótti Vigdísi Finn-
bogadóttur að ' skoða minjar í
L’Anse aux Meadows um komu
víkinga til Nýfundnalands. „Ég
vissi hvemig Kanada var saman
sett enda var ég að sjálfsögðu búin
að vinna heimavinnuna mína. En
förin til L’Anse aux Meadows kom
á óvart. Þar hefur verið gerð þjóð-
argersemi. Hvítir menn komu og
hittu indíána og þar lokaðist hring-
urinn. Allir kynstofnar jarðarinnar
höfðu þá komið saman,“ sagði for-
seti íslands.
Flugvél forsetans lenti á
Uplands-flugvelli í Ottawa klukkan
15.30 á staðartíma í gær. Þaðan
var haldið í lögreglufylgd að emb-
ættisbústað landstjórans. Þar var
Vigdísi gerð heiðursmóttaka að
hermannasið, þjóðsöngvar íslands
og Kanada voru leiknir og hleypt
af 21 fallbyssuskoti. Að móttök-
unni lokinni hélt forseti íslands á
fund landstjórans, Jeanne Sauve.
Ræddu þær horfur í friðarmálum
og sagði Vigdís að þeim hefði kom-
ið saman um að ólíklegt væri að
styijöld brytist út: „Það væri frá-
leitt að mannkynið tortímdi sjálfu
sér".
Eftir fundinn með yfirlandsstjór-
anum var haldin veisla sem Brian
Mulroney, forsætisráðherra
Kanada, var viðstaddur. Mulroney
sagði í samtali við Morgunblaðið
fyrir fundinn með Vigdísi að hann
hlakkaði til að hitta forseta ís-
lands. „Hún er óviðjafnanleg kona
og við höfum reynt að gera heim-
sókn hennar sem ánægjulegasta,"
sagði Mulroney. Sagðist hann
vænta þess að hápunktur heim-
sóknar forseta íslands yrði í íslend-
ingabyggðum Manitoba næsta
mánudag en þá verður íslendinga-
dagurinn haldinn hátíðlegur. í dag,
þriðjudag, heldur forseti íslands til
Toronto enjiaðan er förinni heitið
til byggða Islendinga.
Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra ræddi við John
Crosbie, utanríkisviðskiptaráð-
herra Kanada, í Halifax í Nova
Scotia en Crosbie stjórnaði gerð
fríverslunarsamnings Kandastjórn-
ar og Bandaríkjanna. Utanríkisráð-
herra ræddi einnig við forsætisráð-
herra Nýfundnalands, Clyde K.
Wells, og var samstarf í sjávarút-
vegsmálum og „ófrægingarherferð
grænfriðunga" á hendur fiskveiði-
þjóðum í Norður-Atlantshafi, eins
og utanríkisráðherra orðaði það,
helsta umræðuefnið. Jón Baldvin
sagði að þessar umræður hefðu
allar verið á upphafsstigi og því
væri ekki unnt að slá neinu föstu
um hvers eðlis samstarf á þessu
sviði yrði.
Hlutafjársjóður:
Átta fiskvinnslu-
hús fá 475 milljónir
STJÓRN HIutaQársjóðs Byggðastofnunar hefúr ákveðið að gefa átta
hlutafélögum í fískvinnslu kost á nýju hlutafé, samtals 475 milljónum
króna.
Hlutafélögin sem hér um ræðir
eru Meitillinn í Þorlákshöfn sem fær
119 milljónir króna, en það er hæsta
upphæðin sem boðin er. Hraðfrysti-
hús Grundarfjarðar fær 52 milljón-
ir, Fiskvinnslan Bfldudal fær 65
milljónir, Fáfnir á Þingeyri 52 millj-
ónir, Hraðfrystihús Ólafsfjarðar 95
milljónir, Hraðfrystihús Stöðvar-
Qarðar 36 milljónir, Búlandstindur
á Djúpavogi 60 milljónir og Hrað-
frystihús Stokkseyrar fær 96 millj-
ónir króna.
í frétt frá Hlutaijársjóði um þetta
mál segir að ákvörðun þessi sé
bundin þeim skilyrðum að verðlagn-
ing eldra hlutafjár verði viðunandi
að dómi stjómar sjóðsins. Einnig
geri félögin að öðru leyti ráðstafan-
ir til að uppfylla skilyrði reglugerð-
ar sjóðsins þar sem á það kann að
skorta. Sala hlutdeildarskírteina
vegna þessara úthlutana hefur ver-
ið tryggð.
Mörg stærstu hrað-
frystihúsin eru lokuð
Spara kvóta til síðari hluta ársins
LOKANIR vegna sumarleyfa eru almennt meiri hjá frystihúsum í
landinu nú en undanfarin ár. Bæði loka fleiri hús en áður og jafúframt
er almennt lokað í lengri tíma. Höfúðorsök sumarlokananna er sú, að
fyrirtækin vilja spara kvóta til síðari hluta ársins. Lokanirnar valda
ekki uppsögnum starfsfólks en sums staðar draga þær úr sumarvinnu
skólafólks.
Meðal frystihúsa sem loka nú
vegna sumarleyfa em Útgerðarfélag
Akureyringa, Þormóður rammi á
Siglufirði, Ishúsfélag Bolungarvíkur,
Norðurtanginn á ísafirði, Hólanes á
Skagaströnd, Hraðfrystihús Þór-
kötlustaða, Hraðfrystihús Eskifjarð-
ar, Síldarvinnslan á Neskaupstað,
Haraldur Böðvarsson & co. og
Heimaskagi á Akranesi. Enn fremur
munu öll frystihúsin í Vestmannaeyj-
um loka um eða upp úr næstu helgi.
„Sumarlokanir em mun almennari
nú en á undanfömum áram,“ segir
Amar Sigurmundsson, formaður
Samtaka fiskvinnslustöðva. „Þar
veldur mestu, að menn sjá ekki fram
á að kvótinn endist út árið og loka
þess vegna nú og leggja skipunum
jafnvel líka. Auðvitað spila hinir
langvinnu rekstrarörðugleikar fyrir-
tækjanna líka inn í þetta,“ segir
Arnar.
Ámi Benediktsson, formaður Fé-
lags sambandsfrystihúsa hefur sömu
sögu að segja. Hann segir að færst
hafi í vöxt á síðustu ámm, að frysti-
hús lokuðu í einhvern tíma yfir sum-
arið; yfirleitt þá í eina til tvær vik-
ur. „Mér virðist að það sé talsvert
meira um þetta í ár og að húsunum
sé nú lokað lengur; eða í tvær til
þqár vikur,“ segir Árni.
Arnar Sigurmundsson segir" að
ekki hafi verið gripið til neinna upp-
sagna vegna lokananna, heldur hafí
fólki verið tilkynnt með löngum fyrir-
vara, að húsunum yrði lokað á þess-
um tíma, þannig að það hafi getað
gert ráðstafanir til að taka sér sum-
arleyfi þá.
Hlutafélag í Bolungarvík
kaupir loðnuskipið Júpíter
EINAR Guðfinnsson hf. á Bolung-
arvík og Lárus Grímsson skip-
stjóri hafa keypt hlut í loðnuskip-
inu Júpíter af Hrólfi Gunnarssyni
útgerðarmanni í Reykjavík og
hafa þessir þrír aðilar stofnað
hlutafélag um rekstur skipsins.
Einar Guðfinnsson hf. og Hrólfúr
Gunnarsson eiga nú jafnstóran
hlut í skipinu eða 47,5% og Lárus
Grímsson 5%. Skipið verður skráð
og gert út frá Bolungarvík og mun
Lárus Grímsson verða skipstjóri
þess. Einar K. Guðfinnsson, út-
gerðarstjóri hjá Einari Guðfinns-
syni hf., vildi ekki segja hvert
kaupverð hvors hlutar hefði verið
í samtali við Morgunblaðið í gær.
Júpítel er 800 tonna loðnuskip.
Loðnukvóti þess er 23 þúsund tonn
en það hefur einnig 150 tonna
Met í sól-
arleysi
NÝTT sólarleysismet var sett í
Reykjavík í gær. Þar með er þessi
júlímánuður sá sólarminnsti í
Reykjavík frá upphafi mælinga
árið 1923. Sól mældist aðeins í 77
klukkustundir en fyrra met er frá
árinu 1955, 81 klukkustund.
Sjö sólarstundir mældust í
Reykjavík I gær. Hefði sólar notið
fjórar stundir til viðbótar hefði metið
frá 1955 staðið. Flestar sólarstundir
í Reykjavík mældust I júlímánuði
1970, 286. Meðalsólarstundir í júlí-
mánuði era hinsvegar 181 klukku-
stund.
Agdestein
varð Norður-
landameistari
SIMEN Agdestein frá Noregi varð
Norðurlandameistari í skák í gær,
en Margeir Pétursson varð í 2.-4.
sæti ásamt Bent Larsen frá Dan-
mörku og Jouni Yijölá frá Finn-
landi. Fyrstu tvö sætin gáfú rétt
til keppni á millisvæðamótinu og
verða þremenningamir að heyja
aukakeppni um 2. sæti. Ekki hefúr
verið ákveðið hvenær sú keppni
fer fram.
Agdestein endaði með % vinning.
Margeir Pétursson gerði jafntefli í
tveimur síðustu skákum sínum, við
Harry Schiissler frá Svíþjóð og Curt
Hansen frá Danmörku og endaði
með 814 vinning. Helgi Ólafsson gerði
sömuleiðis jafntefli í síðustu skákum
sínum, þar á meðal við Agdestein,
og endaði í 5.-6. sæti með 8 vinninga
ásamt Hansen.
Jón L. Árnason tapaði fyrir Heikki
Westerinen frá Finnlandi í síðustu
umferð mótsins og endaði í 13. sæti
með 3/2 vinning.
rækjukvóta, tæplega 100 tonna bol-
fiskkvóta og 1000 tonna síldarkvóta.
„Það er okkur mikið fagnaðarefni
að Júpíter skuli nú bætast í flota
Bolvíkinga," sagði Einar K. Guð-
fínnsson. ,
Að sögn Einars K. Guðfinnssonar
mun Júpíter fara á veiðar fljótlega
og verða á rækjuveiðum fram eftir
hausti. Láras Grímsson, skipstjóri á
Júpíter, var áður skipstjóri á loðnu-
skipinu Hafrúnu sem gert var út frá
Bölungarvík. Síðustu ár hefur hann
verið skipstjóri á Hilmi II frá
Reykjavík.
Júpíter hét áður Gerpir og var
síðutogari smíðaður árið 1957. Hrólf-
ur Gunnarsson útgerðarmaður keypti
skipið af Tryggva Ófeigssyni og
breytti því í loðnuskip árið 1979.
Grænfriðungar boða blaðamannafiind:
Búist við yfirlýsingu um
firestun herferðarinnar
TVEIR forustumenn grænfriðunga halda blaðamannaiúnd á Islandi í
dag og er búist við að þeir tilkynni að herferð gegn sjávarafúrðum
íslendinga í Bandaríkjunum 0g I Evrópu verði frestað á meðan engar
hvalveiðar verða stundaðar hér á landi.
Campbell Plowden, sem stjómað Þetta hefur ekki fengist staðfest,
hefur herferð grænfriðunga í Banda-
ríkjunum, og Peter Melchett fram-
kvæmdastjóri Greenpeace í Bret-
landi, munu halda blaðamannafund
á Hótel Borg klukkan 10 í dag. Til-
efni fundarins hefur ekki verið gefið
upp, en búist er við að þar verði því
lýst yfir að herferðinni verði hætt.
en þegar Jakoþ Lagercrantz svæðis-
stjóri grænfriðunga á Norðurlöndum
var spurður hvort það væri ekki rök-
rétt að álykta að herferðinni yrði
frestað, nú þegar hvalveiðum í
vísindaskyni væri lokið, sagði hann
að svo væri.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Þegar pakkinn var opnaður að lokinni röntgenmyndatöku komu
í Ijós spænskar kennslubækur.
„Varúð — bréfsprengja“:
Landhelgisgæslan
opnar bókasendingu
Sprengjusérfræðingar Land-
helgisgæslunnar voru í gær
kvaddir til að kanna innihald
pakka sem talið var að gæti
innihaldið sprengju. Sá ótti
reyndist ástæðulaus.
í pakkanum var bók sem starfs-
maður háskólans hafði pantað frá
mexíkóskri bókaútgáfu. Þegar
pakkinn kom til viðtakanda veitti
hann því athygli að „Varúð —
bréfsprengja“ hafði verið skrifað
á pakkann á ensku. Sprengjusér-
fræðingamir voru fengnir á stað-
inn. Þeir röntgenmynduðu pakk-
ann í Vatnsmýrinni og kom þá í
ljós að þar var ekkert athugavert
að finna, aðeins umbeðnar
kennslubækur í spænsku.
Að sögn sprengjusérfræðings
Landhelgisgæslunnar er talið að
áletrunininni hafi verið bætt á
pakkann einhvers staðar á leið
hans frá Mexíkó.