Morgunblaðið - 01.08.1989, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGUST 1989
Stj órnarflokkarnir;
Sætta sig ekki við skil-
yrði Borgaraflokksins
JÚLÍUS Sólnes, formaður Borgaraflokksins, segir að svartsýni for-
sætisráðherra á að samningar náist um stjórnarþátttöku flokksins,
hljóti að vera vísbending um að stjómarflokkarnir telji sig eiga er-
fitt með að uppfylla þau skilyrði, sem hann hafi sett fyrir stjórnar-
þátttöku.
Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra, sagði í samtali við
Morgunblaðið á föstudaginn, að
hann teldi að mörgu leyti fremur
ólíklegt að samkomuiag næðist við
Borgaraflokkinn um stjórnarþátt-
töku. Júlíus Sólnes segir að flokkur-
inn hafi sett ákveðin skilyrði fyrir
aðild sinni að ríkisstjórn. Síðan hafi
boltinn alfarið verið hjá ríkisstjórn-
inni og þessi ummæli Steingríms
hljóti að vera vísbending um að
núverandi stjómarflokkar telji sig
eiga erfitt með að uppfylla skilyrð-
in. Þar skipti krafan um afnám
matarskattsins sjálfsagt mestu.
Morgunblaðið/Ágúst Biöndal
Norsktskip dregið til Neskaupstaðar
Neskaupstað.
NORSKA strandgæsluskipið Stalbas kom til hafiiar á Neskaupstað
á sunnudagsmorgun með norskt loðnuveiðiskip í togi en það hafði
fengið snurpuvírinn í skrúfuna á miðunum norður af landinu. Áður
en skipin komu til hafnar á Neskaupstað höfðu þau legið í sólar-
hring við Langanes þar senr skipveijar reyndu að losa vírinn úr
skrúfu skipsins en án árangurs. Skipin héldu síðan suður til Seyðis-
Qarðar þar sem landað var um 300 lestum af loðnu. Síðan var haldið
til Neskaupstaðar þar sem köfiirum Stalbas tókst að losa vírinn.
Skipin héldu héðan síðdegis á sunnudag. Þess má geta að norska
strandgæsluskipið var áður íslenskur togari og hét þá Ólafur Jóhann-
esson og var gerður út frá Patreksfirði.
Gestir við setningu Hundadagahátíðar.
Hundadagahátíð hafín
Einleikstónleikar Davids Tutts í kvöld
Hundadagar ’89 hófiist á
sunnudag með hámessu í
Kristskirkju, sem helguð var
hátíðinni. Hún var síðan sett
við opnun sýningar á verkum
Kristjáns Daviðssonar í Lista-
safiii Siguijóns Ólafssonar að
viðstöddu fjölmenni. Um kvöld-
ið frumsýndi Alþýðuleikhúsið
leikritið Makbeð eftir Sha-
kespeare fyrir nær fiillu húsi í
íslensku óperunni.
Við opnunina á sýningu Kristj-
áns Davíðssonar fluttu Alfred Jol-
son biskup katólskra og Svavar
Gestsson menntamálaráðherra
ávörp. Biskup og prestar lágu á
bæn á sunnudag þar sem beðið
var fyrir hátíðinni, að því er Iriga
Bjamason leikstjóri sagði í sam-
tali_ við Morgunblaðið.
Á sýningu Kristjáns, sem er
opin frá 14-17 um helgar og 20-22
virka daga, eru andlitsmyndir
gerðar á tímabilinu frá 1943-
1989.
Á dagskrá Hundadaga í kvöld
kl. 20.30 eru einleikstónleikar
Kanadíska píanóleikarans Davids
Kristjáll David Tutt.
Davíðsson.
Tutts í Listasafni Siguijóns Ólafs-
sonar. David ætlar að leika Só-
nötu opus Posth Dv 960 eftir
Franz Schubert, L’Isle Joyeuse
eftir Claude Debussy, Sonette del
Petracha nr. 123 og Mephistow-
altz nr. 1 eftir Franz Liszt.
Það eru Tónlistarfélag Krists-
kirkju, Alþýðuleikhúsið og Lista-
safn Sigurjóns Ólafssonar sem
standa fyrir Hundadögum ’89 í
Reykjavík, en í tengslum við þá
eru meðal annars haldnir tónleik-
ar, myndlista- og leiksýningar.
Hundadagahátíð stendur yfir all-
an ágústmánuð.
Nýtt hörpudisks-
verð:
Heildar-
kvótinn
10% minni
en í fyrra
LÁGMARKSVERÐ á hörpudiski
til vinnslu hefur verið ákveðið
fyrir seinni hluta ársins. Verð
þetta hækkar í 20 krónur úr
17,30 krónum fyrir kílógrammið
af hörpudiski sem er 7 sentimetr-
ar á hæð eða meira, og aftur 1.
október í 21 krónu. Minni hörpu-
diskur hækkar svipað, úr 13
krónum í 15 krónur fyrir kílóið
og í 15,70 þann 1. október.
Hörpudisksveiðar heQast eftir
næstu helgi.
Að sögn Lárusar Jónssonar fram-
kvæmdastjóra Félags rækju- og
hörpudisksframleiðenda mun
hækkunin vera til komin vegna
gengisbreytinga frá því lágmarks-
verð var ákveðið síðast, auk þess
sem nú þykir hylla undir einhveija
verðhækkun á mörkuðum. Hörpu-
disksveiðar fara sem fyrr aðallega
fram á Breiðafirði, og skiptist kvóti
ársins svipað niður og undanfarin
ár. Heildarkvóti þessa árs er um
10% minni en kvóti síðasta árs, og
að sögn Ellerts Kristinssonar hjá
Sigurði Ágústssyni hf. í Stykkis-
hólmi er ekki ólíklegt að einhveijir
muni klára kvóta sinn í nóvember.
Verð hörpudisks á mörkuðum
erlendis hefur verið lágt undanfarin
misseri, og herma heimildir Morg-
unblaðsins að vinnslan standi í jám-
um við núverandi aðstæður. Heldur
munu vonir manna þó vera að
glæðast, og ekki er talið ólíklegt
að verð fari upp á við með haustinu.
Byggmgaframkvæmdir á
lokastigi á norðurstöðvunum
Menn frá bandaríska flughernum væntanlegir til að
koma upp fjarskiptabúnaði
Ratsjárstöðvar:
FRAMKVÆMDIR á vegum íslenskra aðalverktaka við ratsjárstöðvar
Atlantshafsbandalagsins á Bola- og Gunnólfsvíkuifyalli eru nú á Ioka-
stigi. Kúlur utan um ratsjár, sem komið verður fyrir nálægt áramót-
um 1990-91, eru næstum fiillfrágengnar og verið er að koma tækjum
fyrir í húsum við stöðvamar. Efhi í kúluhús á ratsjárstöðvum sunnan-
lands er á leið til landsins en tækjahús þar em að verða ’fokheld.
Verið er að reisa loftnet til fjarskipta við stöðvamar Qórar og von er
á mönnum frá bandaríska flughemum til að sefja upp fjarskiptabún-
að við norðurstöðvamar.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Svavar Gestsson menntamálaráðherra setur Norræna sálfræðing-
þingið í gærmorgun.
Norræna sálfræð-
ingaþingið sett
Frágangi kúluhúsanna á Gunn-
ólfsvíkur- og Bolafjalli lýkur á
næstu tveim vikum að sögn Andrés-
ar Andréssonar hjá íslenskum aðal-
verktökum ’ á Keflavíkurflugvelli.
Efniviður í ratsjárkúlur á Stokks-
nesi og Miðnesheiði er á leið til
Blómamiðstöðin hf., sölusamtök
blómaframleiðenda, stendur fyrir
verðlækkun á blómum sem á að
standa í að minnsta kosti tvo mán-
uði, eða þann tíma sem framboð
landsins. Ratsjár í kúlumar eru í
smíðum vestanhafs hjá fyrirtækinu
General Electrics og koma til lands-
ins eftir hálft annað ár. Ný ratsjá
verður sett upp í stöðinni á Miðnes-
heiði í desember 1990, á Stokks-
nesi í febrúar 1991 og skömmu
af biómum á markaðnum er mikið.
Söluátakið kallast „Blóm á betra
verði“, en Sigurður Moritzson sölu-
stjóri sagði að í sumum verslunum
gæti lækkunin verið allt að 40-50%.
síðar í norðurstöðvunum tveimur.
Nú eru 11 íslenskir tæknimenn
í þjálfun á Miðnesheiði vegna rat-
sjánna. Þá verða 36 tæk'nimenn
sendir vestur um haf á næsta ári
til að læra um nýju ratsjárnar hjá
General Electrics.
Við ratsjárstöðvamar norðantil á
landinu hafa þegar verið reist um
1400 fermetra hús undir tækjabún-
að eins og vararafstöðvar og fleira.
Þar sem færð getur orðið slæm á
fjöllin verður einnig viðleguaðstaða
fyrir starfsmenn stöðvanna í húsun-
um. Bygging tækjahúsa er á loka-
stigi á Miðnesheiði og Stokksnesi.
I athugun er að reisa íbúðir fyrir
tæknimenn á Bakkafirði og Bolung-
arvík í samvinnu við sveitarstjórnir.
Gert er ráð fyrir að fjórar íbúðir
verði byggðar á hvorum stað.
Starfsmenn ratsjárstöðvarinnar á
Stokksnesi hafa til umráða átta
íbúðir á Höfn á Hornarfirði. Við
hveija ratsjárstöð munu starfa
kringum fimmtán manns.
Ratsjárstofnun tekur við rekstri
stöðvanna fjögurra eftir ár. Að sögn
Jóns Böðvarssonar forstöðumanns
stofnunarinnar er von á sérfræðing-
um frá bandaríska flughemum fyr-
ir 11. ágúst til að setja upp fjar-
skiptatæki á Bolafjalli upp af Bol-
ungarvík og Gunnólfsvíkurfjalli á
Langanesi. Slíkur búnaður er fyrir
hendi á Miðnesheiði og Stokksnesi.
NORRÆNA sálfræðingaþingið
var sett í Háskólabíói klukkan
tíu í gærmorgun. Þingið er hald-
ið annað hvert ár til skiptis á
Norðurlöndunum. Síðast var sál-
fræðingaþingið haldið hér á
landi fyrir tíu árum. Yfir 300
sálfræðingar, frá öllum Norður-
löndunum, sitja þingið en því
lýkur 4. ágúst.
Á þinginu verða haldin 14 nám-
skeið og 5 fyrirlestrar. Fjórir fyrir-
lesaranna eru íslenskir. Meðal
umfjöllunarefna á námskeiðunum
eru sifjaspell, stórslysasálfræði,
fjölskyldumeðferðir o.fl. sem efst
er á baugi innan sálfræðinnar.
Að sögn Húgós Þórissonar, for-
manns Sálfræðingafélags íslands,
er þingið óvenju fjölmennt. Þingið
er hið 16. í röðinni en síðasta þing
var haldið í Helsingfors fyrir tveim-
ur árum.
Um 70 íslenskir sálfræðingar
sitja Norræna sálfræðingaþingið.
Leiðrétting
í frétt um útihátíðir um Verslun-
armannahelgi, sem birtist í blaðinu
síðastliðinn fimmtudag, var meðal
annars greint frá tónlistarhátíðinni
„Suðurlandsskjálfta”, sem haldin
verður í félagsheimilinu Árnesi á
Skeiðum i Arnessýslu. Mishermt
var að þar yrði sérstakur vínveit-
ingasalur. Áðstandendur hátíðar-
innar vilja að fram komi, að vín
verði aðeins veitt matargestum fyr-
ir dansleik.
Verðlækkun á blóm-
um vegna oflramboðs
ÍSLENSKIR blómaframleiðendur hafa lækkað heildsöluverð á blóm-
um um 25-30%, auk þess sem þeir hafa haft samráð við blómakaup-
menn um að þeir lækki smásöluverð. „Það kemur betur út fyrir fram-
leiðendur að lækka verðið á blómunum á meðan það er offramboð,
sagði Sigurður Moritzson, sölustjóri Blómamiðstöðvarinnar i samtali
við Morgunblaðið.