Morgunblaðið - 01.08.1989, Page 20

Morgunblaðið - 01.08.1989, Page 20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÖJUDAdtJkÍ lí KGUS’t lfc&'5 20 íran: Rafsanjani kjörinn forseti Teheran. Reuter. ALI AKBAR Hashemi Rafsanjani, forseti íranska þingsins, var kjör- inn forseti írans á fóstudag og fékk nær 95% atkvæða. Um 16 miljónir af alls 24 milljónum at- kvæðisbærra Irana tóku þátt í kosningunum, eða innan við 70%. Einnig var samþykkt að stórauka völd forsetans sem nú fær fram- kvæmdavald í sínar hendur. Forseti mun annast sjálfur yfirum- sjón með áætlanagerð og fjárlögum og verður æðsti yfirmaður hersins. Ákveðið var með hvaða hætti skyldi framvegis vera leyft að gera breytingar á stjórnarskránni en tekið fram að ekki mætti breyta ákvæðum um grundvallaratriði stjórnskipunar- innar, sem byggðust á lýðveldis- skipulagi, íslömskum lögum og fyrir- mælum shíta-trúflokksins. Líbanon: "MJ'Mi;"", ■' ------L" U> # 1'^ ^ "’í»*" ■ í . (X ' s ''' ' '< '* Innfæddir og aðflutt- ir berjast í Svíþjóð Reuter Myndbandið sem líbönsku mannræningjarnir sendu frá sér í gær sýnir^ William Higgins hengdan með hendur bundnar fyrir aftan bak. Israelskir sérfræðingar telja hugsanlegt að Higgins hafí verið tekinn af lífí fyrir löngu, jafhvel í febrúar á síðasta ári. Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara TIL ÁTAKA kom milli innfæddra Svía og aðfluttra á nokkrum stöð- uin í landinu um helgina, einkum í Eskilstuna, Filipstad og Lesjö- fors. Fjöldi manna skreiddist af vigvellinum með brotin nef, sumir með ljóta skurði eftir glerbrot, aðrir fátækari að tönnum. Oaldarflokkar svonefndra „skalla“ blönduðu sér í átökin í Eskilstuna og óttast lögregluyfirvöld að til frek- ari og alvarlegri slagsmála muni koma, jafnvel mannvíga. Alvarleg- ustu átökin urðu aðfaranótt sunnu- dags en þá voru tugir manna plástr- aðir á sjúkrahúsum borgarinnar. Nokkrir menn komu með slasaðan innflytjanda sem þeir sögðu að hefði skorið innfæddan Svía í bakið með brotinni flösku er tii rifrildis kom. Hópur fólks réðst þá á árásarmann- Morgunblaðsins. TT. inn, sparkaði í hann svo að hann nefbrotnaði og hlaut aðra áverka. í Eskilstuna eru fjölmennar búðir flóttamanna auk þess sem þar búa innflytjendur frá ýmsum löndum. í nágrannabænum Strængnæs eru einnig flóttamannabúðir og um helg- ar fer íjöldi íbúa þeirra á skemmti- staði í Eskilstuna eða heldur til í almenningsgörðum. í Lesjöfors og Filipstad varð að kalla allt tiltækt lögreglulið út þar sem innfæddir Svíar og aðfluttir slógust með plönk- um og hnífum, auk þess sem 13 bensínsprengjur voru gerðar upp- tækar. Þær munu hafa verið ætlaðar innflytjendum. Öfgasamtök kveðast hafa tekið bandarískan gísl af lífi Beirút, Jerúsalem, London. Reuter, Daily Telegraph. SAMTÖK líbanskra öfgamanna kváðust í gær hafa tekið af lífi banda- rískan gísl í Beirút í Líbanon. Á hádegi í gær rann út frestur sá sem samtökin höfðu gefið yfirvöldum í ísrael til að sleppa úr haldi leiðtoga líbönsku Hizbollah-samtakanna sem ísraelskir hermenn rændu í Suður- Líbanon á fostudag. Höfðu samtökin lýst yfir því að bandariski gíslinn, Wiliiam Higgins, undirofursti í landgönguliði Bandaríkjahers, yrði að öðrum kosti tekinn af lífi. Mannræningjarnir, sem nefna sig „Samtök hinna kúguðu í heiminum“ og hliðhollir eru írönum, skýrðu al- þjóðlegri fréttastofu í Beirút frá því að Higgins hefði verið tekinn af lífi. Með tilkynningunni, sem barst um klukkan 14 að ísl. tíma, fylgdi mynd- bandssnælda sem sýndi Higgins hengdan með hendur bundnar fyrir aftan bak. Sagði í yfirlýsingu sam- takanna að með þessu hefði bæði Bandaríkjamönnum og Israelum ver- ið refsað fyrir ránið á leiðtoga Hiz- bollah-samtakanna, Abdel Karim Obeid. Rétt eftir að frestur mannræningj- anna rann út í gær kváðust yfirvöld í ísrael vera reiðubúin til að láta PÖNTUNAR- LISTJNN I NAUÐSYN Á HVERJU HEIMILI Abdel Karim Obeid og aðra fanga af trúflokki shíta lausa gegn því að líbönsku öfgamennirnir slepptu öllum erlendum gíslum og þremur ísraelsk- um hermönnum úr haldi. Þessu boði ísraelsstjórnar svöruðu mannrænin- gjarnir ekki og skömmu síðar barst tilkynningin þar sem skýrt var frá því að Higgins hefði verið tekinn af lífi. Aðstoðarutanríkisráðherra ísra- els, Benjamin Netanyahu, sagði í gær að tilkynning samtakanna breytti engu. „Við höfum engar sannanir fyrir því að hún eigi við rök að styðj- ast,“ sagði hann en fjölmargir ísrael- skir sérfræðingar telja líklegt að ódæðismennirnir hafi ekki tekið Higgins af lífi í gær heldur löngu fyrr. Netanyahu lagði áherslu á að ísraelar væru enn reiðubúnir til að skipta á Hizbollah-leiðtoganum og erlendu gíslunum og bætti við að yfirvöldum væri einkum umhugað um að fá ísraelsku hermennina leysta úr haldi. William Higgins var rænt í febrú- ar á síðasta ári en hann stjórnaði þá sveitum á vegum Sameinuðu þjóð- anna sem fylgjast áttu með því að vopnahlé stríðandi fylkinga yrði hald- ið í Suður-Líbanon. Heimildarmenn innan ísraelsku leyniþjónustunnar fullyrða að Abdel Karim Obeid hafi staðið að baki ráninu. ísraelsk sér- sveit rændi Obeid og tveimur aðstoð- annönnum hans á föstudag í síðustu viku og töldu fréttaskýrendur til- ganginn þann að ná fram fangaskipt- um. Obeid hefur hins vegar ævinlega haldið því fram að hann sé ekki tengdur Hizbollah-samtökum þó svo hann hafi ávallt viðurkennt, m.a. í viðtali við fréttaritara breska dag- blaðsins The Daily Telegraph árið 1985, að hann sé hlynntur skipulögð- um hermdarverkum gegn ísraelum. Talið er að líbönsk hryðjuverka- samtök hafi 21 erlendan ríkisborgara á valdi sínu í Líbanon, níu Banda- ríkjamenn, fjóra Breta, þijá írani, tvo Vestur-Þjóðveija, ítala og einn mann af frönskum og líbönskum ættum. írönunum var rænt í júií árið 1982 en síðast létu líbanskir mannræningj- ar til sín taka í maímánuði á þessu ári er Vestur-Þjóðveijarnir voru teknir í gíslingu í Suður-Líbanon þar sem þeir voru við hjálparstörf. Barist við skógarelda Slökkviliðsmaður í Kali- forníu-ríki snýr sér undan vegna mikils hita frá brenn- andi tijám í nágrenni Meadow Lake. Ekkert hefiir gengið í baráttunni við skógareldana í ríkinu og hafa mörg hús og önnur mannvirki orðið þeim að bráð. Miklir skógareldar hafa geisað í miðri Kaliforníu, austurhluta Oregon-ríkis, í Washington-ríki og Idaho undanfarna daga og eyðilagt um 280 ferkílómetra skógar. Meirihóttar vetrartíska .. 1000 BLAÐSÍÐUR AF ÓTRÚLECU VÖRUÚRVALI Verð kr. 190,- ón bgj. PONTUNAR LISTINN Sími 52866 Friðarráðstefiia 1 París: Víetnam vill uppræta lið Rauðu khmeranna París. Reuter. FULLTRÚI Víetnama á fjölþjóðlegri ráðsteíhu um frið í Kambódíu, sem haldin er í París, krafðist þess í gær að skæruliðahreyfing kommún- ista, Rauðu khmerarnir, yrði upprætt og leiðtogunum refsað fyrir meint þjóðarmorð í valdatíð skæruliðanna 1975 -1979. Rauðu khmerarn- ir eru þá sagðir hafa drepið á aðra milljón óbreyttra borgara. Víetnam- ar komu á laggirnar leppstjórn eftir innrás í landið í árslok 1978 og hafa haft fjölmennt herlið í landinu til að styðja við bakið á henni. Þeir hafa heitið því að síðustu hermenn þeirra hverfi úr landinu í sept- ember. Khieu Samphan, talsmaður Rauðu khmeranna, sakaði Víetnama um að reyna að útrýma þjóðinni í Kambódíu. Stjórnmálaskýrendur álíta að yfirlýsingar deiluaðila í gær hafi gert nær útilokað að samningar takist að þessu sinni um samsteypu- stjórn deiluaðila í Kambódíu og fijálsar kosningar síðar. Khmeramir eru sterkasta skæru- liðahreyfingin sem barist hefur gegn stjórn Huns Sens í höfuðborg Kambódíu, Pnom Penh, en hinar tvær eru hreyfing Sihanouks fursta, fyrrum leiðtoga landsins, og hópur undir forystu fyrrum forsætisráð- herra landsins, Son Sann. Víet- namski ut.anríkisráðherrann, Nguyen Co Thach, hóf umræðurnar í gær og sagði: „Uppræta verður þjóðar- morðingja Pol Pot-stjórnarinnar [khmeranna] algeriega, á sama hátt og fasistastjórnirnar í Þýskalandi og Ítalíu og stjórn stríðsæsingamann- anna í Japan eftir heimsstyijöldina síðari.“ Hann sagði að banna bæri khmerunum vopnaburð og alla pólitíska starfsemi. Kínveijar styðja khmerana með vopnasendingum og Sihanouk, sem er í forsvari fyrir andstæðinga leppstjórnarinnar í Pnom Penh, krafðist þess að khmer- arnir yrðu hafðir með í ráðum til að tryggja væntanlega samninga. Vesturveldin hafa verið treg til að veita khmerunum brautargengi og í gær sagði James Baker, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, að stjórn hans myndi aðeins sætta sig við að þeir ættu aðild að samsteypustjóm Kambódíu með því skilyrði að Pol Pot og aðrir alræmdir forsprakkar skæruliðanna kæmust aldrei oftar til neinna áhrifa. Qian Qíen, utanríkisráðherra Kína, lýsti því yfir á ráðstefnunni að Kínveijar myndu ekki hætta vopna- stuðningi við Rauðu khmerana fyrr en aðild þeirra að bráðbirgðastjórn- inni hefði verið tryggð. Parísarráð- stefnan á að standa fram í septem- ber og sitja fulltrúar 19 þjóða hana, þ. á m. Bandaríkjanna, Sovétríkjanna og Kína, auk deiluaðilanna fjögurra í Kaiílbódíu. Flestir utanríkisráð- herrarnir yfirgáfu ráðstefnuna í gær og fram í september munu sérfræð- ingar málsaðila reyna að ná sam- komulagi. Borist hafa fregnir af hörðum bardögum við landamæri Tælands og Kambódíu og saka skæruliðar „víetnamskar árásarsveitir“ um að ráðast með fallbyssuskothríð og eld- flaugum á tælenskt land og drepa jafnt Tælendinga sem kambódíska flóttamenn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.