Morgunblaðið - 01.08.1989, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 1989
33
ÆRk fiMB BMi I
■ w ■ Bwi ■■ ■■
Tónlistarkennarar
Laus er staða við Tónlistarskóla Vestmanna-
eyja. Kennslugreinar: Píanó, fiðla og kjarna-
greinar.
Upplýsingar í símum 98-12551 og 98-12396.
Skólastjóri.
fjjp
Grunnskólinn
á ísafirði
Kennara vantar við Grunnskólann á ísafirði.
Meðal kennslugreina: Sérkennsla, danska,
íþróttir, smíðar og heimilisfræði.
Upplýsingar gefur formaður skólanefndar,
Smári Haraldsson, í áíma 94-4017.
Umboðsmaður
Óskum eftir að komast í samband við ein-
stakling eða fyrirtæki sem gæti séð um sölu
og dreifingu á sælgætisvörum okkar á eftir-
töldum landssvæðum: Suðurnesjum, Vest-
fjörðum, Norðurvesturlandi, Austfjörðum.
Vinsamlegast leggið inn umsókn til auglýs-
ingadeildar Mbl. fyrir 10. ágúst merkta:
„S - 13326“.
CLfLJi
Ræstingar
Óskum að ráða fólk til ræstingastarfa frá kl.
15.00 á daginn. Vinnutími 3-4 klukkustundir.
Upplýsingar á staðnum hjá verkstjóra.
Brauð hf.,
Skeifunni 19.
Siglufjörður
Blaðbera vantar á Hólaveg frá 1. ágúst.
Upplýsingar í síma 96-71489.
fMtogmifrlðMfr
Kennarar
Kennara vantar að Skólabúðunum á Reykjum
í Hrútafirði.
Líffræðimenntun æskileg. Fjölbreytt starf.
Mikil útivera.
Upplýsingar hjá skólastjóra í síma 95-10001.
Sjúkraþjálfarar
Heilsuhæli N.L.F.Í. (H.N.L.F.Í.), Hveragerði,
óskar að ráða einn sjúkraþjálfara í fullt starf
frá 1. september nk. og annan frá 1. desem-
ber nk.
Umsóknir með upplýsingum um námsferil
og fyrri störf.sendist til Heilsuhælis, N.L.F.Í.,
810 Hveragerði, merktar: „Sjúkraþjálfarar"
fyrir 20. ágúst 1989.
Endurskipulagning meðferðarþátta á
H.N.L.F.I. stendur nú yfir og sjúkraþjálfarar
munu gegna mikilvægu hlutverki í framtíðar-
starfinu.
Við bjóðum uppá fjölbreytt starf við einstakl-
ings- og hópmeðferðir innan og utan húss
með sjálfstæðri ábyrgð.
Okkur vantar áhugasama sjúkraþjálfara með
frískar hugmyndir um þróun sjúkraþjálfunar
á stað sem H.N.L.F.Í.
Helstu meðferðarsvið eru: Endurhæfing of-
fitusjúklinga, gigtsjúklinga, krabbameins-
sjúklinga, og bæklunarsjúklinga (þ.m.t.
íþróttalækningar og endurhæfing fatlaðra).
Sérfræðingar á ofangreindum sviðum eru
nú starfandi á H.N.L.F.Í.
Upplýsingar gefur Gísli Einarsson, endur-
hæfingalæknir, í síma 98-30300.
Bókaverslun
Óskum að ráða starfskraft í bóka- og rit-
fangaverslun frá kl. 13-18.
Upplýsingar um aldur og fyrri störf sendist
auglýsingadeild Mbl. merktar:„B-8125“ fyrir
5. ágúst.
Matráðskona
Matráðskona óskast til sumarafleysinga í
mötuneyti fyrir um 20 manns hjá fyrirtæki í
Garðabæ.
Nánari upplýsingar í síma 52850 milli kl. 9
og 12.
Atvinna óskast
Matreiðslumeistari óskar eftir starfi í heima-
vistarskóla. Hef reynslu.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„M - 7378“.
Vélaverkstæði -
framkvæmdastjóri
Okkur hefur verið falið að ráða yfirmann á
vélaverkstæði úti á landi.
Hér er um að ræða daglega stjórnun verk-
stæðisins, öflun verkefna, framkvæma
tæknilegan undirbúning og sinna tæknilegri
ráðgjöf á staðnum.
Óskað er eftir manni með tæknimenntun eða
vélstjóramenntun og nokkra reynslu á þessu
sviði.
Vinnuaðstaða er mjög góð og verkstæðið er
í uppbyggingu.
Umsóknir, er tilgreina nafn, aldur, menntun
og fyrri störf sendist undirrituðum sem fyrst
eða eigi síðar en 15. ágúst nk.
Hvati
Smiðsbúð 12,
210, Garðabæ,
sími 641799.
Rekstrarráögjöf
Kostnaöarettirlit
Hönnun — Þróun
Útboö — Tilboö
Viöhaldskerfi
Verkskipulagning
HUSNÆÐIOSKAST
Til leigu óskast
3ja-4ra herb. íb. fyrir einstakling. Aðeins góð
eign kemur til greina. Fyrirframgreiðsla ef
óskað er. Leigutími minnst eitt ár.
Upplýsingar í síma 14556 á skrifstofutíma.
Handknattleikssamband íslands
íbúð óskast til leigu
Handknattleikssamband íslands óskar eftir
3ja-4ra herb. íb. á leigu tímabilið 1. sept.
1989 til 1. mars 1990. Til greina kemur að
íbúðin sé búin húsgögnum.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu Hand-
knattleikssambands íslands í síma 685422.
ATVINNUHUSNÆÐI
Til leigu ívaxandi hverfi
300 fm fallega innréttað atvinnuhúsnæði til
leigu á góðum stað í Ármúla. Mjög hentugt
fyrir ýmiss konar skrifstofu- og þjónustustarf-
semi. Húsnæðið er til leigu frá 1. ágúst nk.
Upplýsingar á skrifstofutíma í símum 685466
og 39879.
HUSNÆÐIIBOÐI
Akureyrarbær
Félagslegar
kaupleiguíbúðir
Akureyrarbær auglýsir lausar til umsóknar
fimm íbúðir, þriggja og fjögurra herbergja, í
fjölbýlishúsi í Helgamagrastræti 53, á kjörum
félagslegra kaupleiguíbúða (sbr. lög um Hús-
næðisstofnun ríkisins, nr. 86/88,85 - 101
gr.) íbúðirnar verða væntanlega fullbúnar í
mars 1990.
Skilyrði fyrir úthlutun eru söm og gilda um
verkamannabústaði:
Að eiga lögheimili á Akureyri.
Að eiga ekki íbúð eða samsvarandi eign
fyrir.
Að meðaltekjur undanfarinna þriggja ára
hafi ekki farið yfir tiltekið hámark, skv. vott-
orði frá skattstjóra.
Umsóknareyðublöð ásamt upplýsingabækl-
ingi um félagsleg kaupleigukjör fást á Félags-
málastofnun, Hafnarstræti 104, 3. hæð, sími
25880. Þeir sem leggja vilja inn umsókn eru
beðnir að mæta þar til viðtals. Viðtalstíma
skal panta í síma 25880.
Umsóknarfrestur er til 31. ágúst.
Félagsmálastjóri.
TIL SÖLU
Snyrtivöruverslun til sölu
Þeir, sem hafa áhuga, sendi nöfn og símanúm-
er á auglýsingadeild Mbl. merkt: „Snyrtivöru-
verslun - 692“ fyrir 10. ágúst.
TILKYNNINGAR
Lokað
Nuddstofa mín verður lokuð frá 1. ágúst
1. september vegna sumarleyfa.
Eðvald Hinriksson, sjúkraþjálfari.
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir júnímánuð
1989, hafi hann ekki verið greiddur í síðasta
lagi 2. ágúst.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti
fyrir hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga
uns þau eru orðin 20%, en síðan reiknast
dráttarvextir til viðbótar fyrir hvern byrjaðan
mánuð, talið frá og með 16. ágúst.
Fjármálaráðuneytið.