Morgunblaðið - 01.08.1989, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 1989
t
Móðir mín,
FANNEY MAGNÚSDÓTTIR
Drápuhlíð 44,
Reykjavík,
andaðist i Landspítalanum föstudaginn 28. þ.m.
Rúnar Matthíasson.
t
ÞORLEIFUR JÓHANN FILIPPUSSON
frá Halldórsstöðum á Vatnsleysuströnd
lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund þann 29. júlí.
Bálför hans verður gerð frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 3. ágúst
kl. 10.30 f.h.
Börn hins látna.
t
Eiginkona mín,
INGIBJÖRG STEINUNN JÓNSDÖTTIR,
áður til heimilis á Egilsgötu 30,
andaðist á Droplaugarstöðum 25. júlí sl.
Þórður Finnbogason.
t
JÓNA SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
Skipasundi 87,
Reykjavik,
lést á heimili sinu 21. júlí.
Jarðarförin fer fram á Hofi í Vopnafirði, miðvikudaginn 2. ágúst
kl. 14.00.
Foreldrar, systkini og fjölskyldur þeirra.
t
Mágkona mín og föðursystir okkar,
RAGNHILDUR PÁLSDÓTTIR,
Bólstaðarhlíð 42,
lést sunnudaginn 30. júlí.
Svanhvít Sigurðardóttir,
Katrm Gísladóttir,
Guðný Rósa Gfsladóttir.
t
Elsku drengurinn okkar og bróðir,
RAGNAR ÁGÚST SIGURÐSSON,
lést af slysförum sunnudaginn 30. júlí. Jarðarför auglýst síðar.
Kolbrún Ágústsdóttir,
Sigurður Ragnarsson,
Inga Stefánsdóttir,
Kristrún Funi,
Dagur.
t
Móðir mín, tengdamóðir og amma,
KRISTÍN SAMÚELSDÓTTIR,
Akraseli 33,
Reykjavik,
lést í Sjúkrahúsi Suðurlands, Selfossi, 29. júlí.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 4. ágúst kl. 10.30.
Kristin Daníelsdóttir,
Valur Guðmundsson,
Sigrún Valsdóttir,
Anna Dóra Valsdóttir.
t
Faðír okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÁGÚST JÓNSSON,
áður til heimilis á Langholtsvegi 47,
andaðist á Hrafnistu í Reykjavík föstudaginn 28. júlí.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Minning:
Jórunn Norðmann
fv. píanókennari
Fædd 19. október 1907
Dáin 23. júlí 1989
í dag verður til moldar borin
Jórunn Norðmann, fyrrverandi
píanókennari, sem lézt 23. f.m. södd
Íífdaga. Skammt varð á milli þeirra
systra, hennar og Katrínar Viðar
(f. Norðmann), sem lézt fyrir þrem-
ur mánuðum. Með fráfalli Jórunnar
eru öll Norðmanns-systkinin sjö
horfin af þessum heimi. Katrín var
elst en Jórunn yngst. Hér hafa því
orðið kaflaskipti í fjölskyldunni þar
sem ein kynslóðin hefur kvatt. Lát
Jórunnar kom ekki á óvart, og var
það líkn, þar sem þrautum hennar
var þá lokið.
Jórunn fæddist á Akureyri en
fluttist eins árs að aldri til
Reykjavíkur eftir að faðir hennar
lézt og þar ólst hún upp á menning-
arheimili móður sinnar í glaðværum
systkinahóp. Foreldrar hennar voru
Jón S. Norðmann kaupmaður á
Akureyri frá Barði í Fljótum og
Jórunn Einarsdóttir frá Hraunum í
Fljótum. Hún stundaði mennta-
skólanám í nokkur ár og nam píanó-
leik hjá systkinum sínum og síðar
hjá Róbert A. Ottósyni. Jafnframt
iðkaði hún íþróttir og náði frábær-
um árangri í fimleikum. Var hún
m.a. í fimleikaflokki Björns Jakobs-
sonar, sem fór í sýningarferð til
Noregs á þeim árum.
Ung giftist Jórunn Jóni Geirssyni
lsekni á Akureyri árið 1929 og áttu
þau saman tvö börn, Geir lækni og
Sigríði húsmóður, sem bæði létust
langt fyrir aldur fram. Geir lét eft-
ir sig fjögur böm, tvo syni og tvær
dætur, en Sigríður einn son. Þau
Jórunn og Jón bjuggu á Akureyri,
og stóð heimili þeirra í Aðalstræti
8 gestum og gangandi ávallt opið,
þar sem naut einstakrar gestrisni
og hlýju þeirra hjóna. Meðal annars
dvaldi undirritaður oft hjá þeim
hjónum við gott atlæti og svo var
með fjölmarga aðra úr fjölskyld-
unni, sem áttu þar vísan samastað,
og átti Jón ekki minni þátt í þeirri
gestrisni en Jórunn. En leiðir þeirra
skildu og slitu þau samvistir árið
1946, en þá fluttist Jórunn til
Reykjavíkur.
Jcrunn giftist í annað sinn árið
1951 Þorkeli Gíslasyni aðalbókara
og bjuggu þau á Skeggjagötu 10
hér í borg. Þau vom samrýnd og
heimakær og var hjónaband þeirra
gott, og til þeirra var ávallt gott
að koma, bæði hjónin glaðlynd og
gestrisin, hún lék á píanó en hann
málaði og liggja eftir hann mörg
falleg og vel unnin málverk. Þor-
kell reyndist bömum Jórunnar frá
fyrra hjónabandi sem besti faðir og
var mjög gott og náið samband
þeirra á milli. Þorkell lézt árið 1981.
Eftir lát hans bjó Jórunn lengst af
ein ef frá em taldar sjúkrahúsvistir
hennar og virtist hún una sér við
einvemna með þeirri húshjálp sem
henni var veitt. En mestrar hjálpar
og umönnunar naut hún hjá dóttur-
syni sínum Sigurði Sigurðssyni, sem
leit alltaf eftir með henni reglulega
og sýndi henni einstaka ástúð og
umhyggju, svo að aðdáunarvert
var. Síðustu árin þegar kraftar Jór-
unnar tóku að þverra var systur-
dóttir hennar, Kristín Egilsdóttir,
henni mikil stoð.
Jórunn var góður píanóleikari og
kenndi píanóleik um áratuga skeið,
og vom þeir orðnir margir nemend-
ur hennar þegar hún lét af kennslu-
störfum. Einnig lék hún áður fyrr
á píanó með söngvurum og kómm,
lengi vel með karlakómum Geysi á
Akureyri.
Jórann fór ekki varhluta af sorg
og mótlæti þessa heims, ekki hvað
sízt með missi barnanna sinna
beggja í blóma lífsins, en harm sinn
bar hún í hljóði. Þar var undravert
hvað þessi fíngerða og smávaxna
kona var í raun stór og sterk.
Ávallt var h‘ún glöð í bragði og með
bros á vör rétt eins og lífið léki við
hana. Og þegar ég kvaddi hana
síðast á sjúkrabeði nokkmm dögum
fyrir andlát hennar var hún enn
með sitt blíða bros og heiða svip.
Sannkölluð mannleg reisn.
Með söknuði og þakklátum huga
kveð ég elskulega móðursystur
mína. Hún reyndist mér og mínum
alla tíð frábærlega vel eins og þau
Norðmanns-systkinin öll. Ástvinum
hennar vottum við samúð okkar.
Blessuð sé minning Jómnnar
Norðmann. Hvíli hún í friði.
Jón Norðmann Pálsson
Elskuleg móðursystir mín, Jór-
unn Norðmann, píanókennari, and-
aðist í Reykjavík þann 23. þessa
mánaðar eftir langvarandi van-
heilsu.
Foreldrar Jómnnar vom þau Jón
Norðmann frá Barði i Fljótum,
kaupmaður á Akureyri, og kona
hans, Jómnn Einarsdóttir frá
Hraunum í Fljótum. Jórunn var
yngsta barn þeirra hjóna og var
aðeins nokkurra mánaða gömul
þegar faðir hennar lést. Þegar Jór-
un var ársgömul flutti móðir hennar
suður til Reykjavíkur með börnin
sín sex, og bjó íjölskyldan að
Kirkjustræti 4 sem þá hét Ásbyrgi.
Þar ólst Jómnn upp í glöðum systk-
inahópi, en þau systkin vom: Katrín
+
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
ANDRÉS B. ÓLAFSSON
bifvélavirkí,
Nökkvavogi 20,
Reykjavik,
sem andaðist á heimili sínu þriðjudaginn 25. júlí, verður jarðsung-
inn frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 4. ágúst kl. 13.30.
Þorgerður Guðmundsdóttir,
Ólafía Andrésdóttir,
Halldóra Andrésdóttir,
Guðmundur Andrésson,
Haukur Andrésson,
Valgerður Andrésdóttir,
Hörður Andrésson
Arni Guðbjörnsson,
Þorleifur Jónsson,
Rósa Svavarsdóttir,
Jónína Arnarsdóttir,
Jóhannes Sigurðsson,
og barnabörn.
gift Viðar, píanókennari, Jón píanó-
leikari, Kristín píanókennari, Oskar
kaupmaður og söngvari, Ásta dans-
kennari og svo Jórunn, sem einnig
var píanókennari.
Jómnn Yar frá unga aldri glað-
vær og tápmikil stúlka. Hún lærði
píanóleik af eldri systkinum sínum,
þeim Jóni og Katrínu, og reyndist
óvenju ötull nemandi. Hún varð fær
píanóleikari og ástundaði hljóðfærið
alla ævi. Hún endurmenntaði sig
sífellt á þessu sviði, og lék meðal
annars um árabil með Karlakórnum
Geysi á Akureyri. Jómnn var smá-
vaxin og fíngerð og var gædd létt-
leika og fimi eins og systur henn-
ar, þær Katrín Viðar, sem lék listir
á skautum betur en aðrar konur í
Reykjavík, og Ásta Norðmann, sem
var okkar fyrsta dansmær. Jórunn
var fimleikakona og þótti mjög
snjöll á því sviði.
Ung að ámm kynntist hún Jóni
Geirssyni, lækni, syni Geirs Sæ-
mundssonar vígslubiskups og konu
hans Sigríðar Jónsdóttur. Jón Geirs-
son var glæsilegur maður og þóttu
þau Jórann fallegt par og ákaflega
hamingjusöm. Jón Geirsson gerðist
læknir á Akureyri og bjuggu þau
hjón að Aðalstræti 8 þar í bæ. Þau
eignuðust tvö yndisleg börn, Geir
f. 1929 og Sigríði f. 1936.
Jórunn starfaði að tónlistinni af
fullum krafti þau ár sem hún var
læknisfrú á Akureyri. Hún spilaði
með kómm og einsöngvuram og
kenndi fjölda nemenda píanóleik.
Meðal nemenda hennar frá þessum
ámm var t.d. Guðrún Kristinsdótt-
ir, píanóleikari.
Heimili þeirra Jóns stóð ætíð
opið öllum úr Ijölskyldunni, og
ógleymanlegur er mér sumartíminn
er ég dvaldi hjá þeim sem barn.
Mér fannst eilíf gleði ríkja þar á
bæ. Bæði hjónin ljúf og glöð og
einstaklega hlý í viðmóti. En 1946
slitu þau samvistir og Jórunn flutt-
ist til Reykjavíkur með Sigríði dótt-
Ur sína, en Geir, sem var í mennta-
skóla, varð eftir á Akureyri hjá föð-
ur sínum. Þetta var mikið áfall, en
einkum tóku börnin þetta afar nærri
sér. Jórunn leitaði skjóls hjá Katrínu
systur sinni fyrst eftir að hún flutti
suður og vann um tíma á skrif-
stofu. Jón Geirsson kvæntist aftur
Ólöfu Ólafsdóttur, en lést langt um
aldur fram árið 1950.
Árið 1951 giftist Jómnn aftur
góðum manni, Þorkeli Gíslasyni,
aðalbókara. Þau stofnuðu fallegt
heimili á Skeggjagötu 10 í
Reykjavík og bjuggu þar æ síðan.
Jómnn tók aftur til við píanókennsl-
una, og víst er að þau hjón vom
samrýnd og Þorkell reyndist börn-'
um Jómnnar einstaklega vel. Þor-
kell var einnig mjög fær frístunda-
málari.
Geir, sá ljúfi drengur, sonur Jór-
unnar, varð læknir og kvæntist
Sonju Gísladóttur hjúkmnarfræð-
ingi og áttu þau ijögur börn, þau
Evu, Jón, Sturlu og Þóm. En þau
slitu samvistir og bjó Geir við van-
heilsu eftir það. Hann kvæntist aft-
ur Huldu Bergþórsdóttur, en lést
aðeins fertugur að aldri. Sigríður,
dóttir Jórunnar, giftist Sigurði Sig-
urðssyni lögfræðingi og áttu þau
einn son, Sigurð. Sigurður eigin-
maður Sigríðar barðist ungur í sex
ár við þann sjúkdóm sem oftast
hefur betur og lést aðeins 36 ára
gamall. Þetta vom þungar raunir
fyrir þær mægður og settu sín spor
á þær. Þorkell Gíslason féll frá árið
1981 og eftir það varð samband
þeirra mæðgna enn nánara. En
sorgin átti enn eftir að sækja Jór-
Birting af-
mælis og
minningar-
greina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.