Morgunblaðið - 01.08.1989, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDÁÖUR 1. ÁGÚST 1989
37
unni heim. Augasteinninn, Sigríður
dóttir hennar, veiktist hastarlega í
október 1984 og lést eftir stutta
legu.
Þegar ég minnist Jórunnar
frænku minnar frá fyrri tíð þá
finnst mér ævinlega eins og nafn
hennar hafi verið tengt gleði og
fögnuði. Þegar hún kom í heimsókn
til Reykjavíkur árin sem hún var
búsett á Akureyri, þá var glatt á
hjalla hjá Norðmannssystkinahópn-
um og hún hrókur alls fagnaðar.
Hún spilaði og söng og lífsgleðin
streymdi frá henni. Hún hafði ein-
staklega þýtt viðmót og það fylgdi
henni alla ævi og einnig fallega
brosið hennar. Hún kvartaði aldrei
í raunum sínum á efri árum, en
eftir að Sigríður dóttir hennar lést
var eins og lífsviljinn hyrfi. Katrín
Viðar, elsta systir hennar, lést fyrir
þremur mánuðum og nú kveðúr sú
síðasta af Norðmannssystkinunum.
Þau voru öll í hópi ötulustu braut-
ryðjenda á sviði tónlistar og dans-
listar hér á landi og lögðu stóran
skerf til eflingar þessara listgreina
meðal þjóðarinnar.
Að lokum vil ég þakka sérstak-
lega þeim sem best önnuðust Jór-
unni hin síðari ár, og gerðu henni
að mestu leyti kleift að búa þar sem
hún þráði helst að fá að vera þar
til yfir lyki, en það var á hennar
hlýlega heimili sem geymdi dýr-
mætar minningar frá liðinni ævi.
Sigurður, dóttursonur hennar, sem
mest hafði notið umhyggju ömmu
sinnar, reyndist henni einstaklega
vel og guð blessi hann fyrir það.
Kristín, dóttir Ástu Norðmann, var
henni afar hjálpleg og einnig Marta
Guðbrandsdóttir, sem bjó á efri
hæðinni á Skeggjagötu 10 og fylgd-
ist grannt með Jórunni af einstakri
velvild. Og Eva, elsta dóttir Geirs,
hafði ævinlega gott samband við
ömmu sína.
Þegar ég heimsótti hana síðast
fyrri part sumars var hún heima,
en rúmliggjandi. Hún fagnaði mér
með sömu hlýju og ævinlega. Ég
spurði hana hvort hún gæti ekki
hugsað sér að klæðast og koma
með mér heim dálitla stund, þá
svaraði hún brosandi, „ekki núna,
elskan, bráðum". Þá spurði ég hana
hvort hún léki stundum á hljóð-
færið, þá svaraði hún með sama
brosinu, „ekki núna en ég ætla að
fara að æfa mig aftur bráðum“.
Nú er elsku Jórunn vafalaust komin
í fögnuð í ástvinahópi og án efa er
hún sest við hljóðfærið glöð og
sæl. Guð blessi minningu yndislegr-
ar frænku.
Þuríður Pálsdóttir
HVERAGERÐI
OPNUNARTÍMAR MAÍ-SEPT.
ALLA VIRKA DAGA KL. 13-19
ALLAR HELGAR OG
FRÍDAGA KL. 12-20
Kveðjuorð:
Guðlaugur Stefáns-
son, Vestmannaeyjum
Fæddur 12. ágúst 1916
Dáinn 22. júlí 1989
Hinn 28. júlí kvöddum við vinir
og vandamenn Guðlaug Stefánsson.
Hann lést hinn 22. þ.m. eftir erfið
veikindi.
Guðlaugur fæddist 12. ágúst
1916 í Vestmannaeyjum, og ólst
þar upp við gott atlæti. Hann gift-
ist 31. maí 1941 Laufeyju Eyvinds-
dóttur sem einnig var Vestmanney-
ingur, og eignuðust þau tvær dæt-
ur, Ingu og Guðfinnu. Laufey lést
hinn 1. desember 1987, þar missti
Guðlaugur og öll íjölskyldan mikið.
Hann var maður athafna og
bjartsýni, í mörg ár stundaði hann
umfangsmikla útgerð með bræðr-
um sínum og fjölskyldu, einnig átti
hann og rak fram undir það síðasta
heildsölufyrirtæki, sem einnig
tengdist útgerð. I gegnum störf sín
og í ýmsum félögum í Eyjum kynnt-
ist hann fjölda fólks og var vin-
margur maður. Skap hans var létt
og áhugi hans á atvinnulífi lifandi,
og eitt er víst, að margur maðurinn
hefur komið á skrifstofuna hjá
Gulla í Gerði um dagana.
Fjölskyldu sinni var hann traust-
ur og hlýr, og vildi öllum gera gott,
gjafmildi hans og rausn voru lítil
takmörk sett.
Við sem tengdumst Guðlaugi
Ijölskylduböndum áttum alltaf
traustan vin þar sem hann var, og
hjá honum og hans konu öruggt
skjól. Fyrir það ber að þakka.
Ég minnist sérstaklega bjartra
sumarkvölda í Eyjum fyrir mörgum
árum, þegar telpuhnokki dundaði
sér við garðyrkjustörf með honum
en gróðurinn ilmaði og allt var í
blóma. Þá var mörgum frækornum
sáð, bæði í mold og sál.
Guðlaugur átti við mikla van-
heilsu að stríða sín síðustu ár, en
lífsvilji hans var sterkur og ekki
gefist upp fyrr en yfir lauk. I þess-
um veikindum sínum naut hann
umönnunar dætra sinna og síðast
starfsfólks Sjúkrahússins í Eyjum.
Fyrir hönd fjölskyldu minnar allr-
ar, kveð ég Guðlaug í dag með
þakklæti í huga og sendi dætrum
hans og þeirra íjölskyldum samúð-
arkveðjur.
Mér himneskt ljós í hjarta sín
í hvert sinn, er ég græt,
því drottinn telur tárin min
ég trúi og huggast læt.
(höf. Kristján Jónss.)
Eygló Þorsteinsdóttir
+
Ólafur K. Einarsson
fyrrverandi verkstjóri hjá Vita- og hafnamálastofnun,
verður jarðsunginn frá Garðakirkju miðvikudaginn 2. ágúst kl. 1 5.
Aðstandendur.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
INGILAUG TEITSDÓTTIR,
Tungu,
verður jarðsungin frá Breiðabólstað í Fljótshlið föstudaginn 4.
ágúst kl. 14.00.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Móðir mín, tengdamóðir og amma,
KARA ÁSLAUG HELGADÓTTIR,
Frakkastíg 7, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 3. ágúst kl.
13.30.
Ingibjörg Jónsdóttir, Sigurður Kristjánsson,
Ásiaug Sigurðardóttir,
Sigrún Sigurðardóttir,
Jón Sigurðsson.
ELDRI BORGARAR!
Styttið skammdegið og komið með okkur í sólskin og
hlýju til Portúgals í
vetur. Læknisþjónusta á staðnum.
Fararstjóri:
Jóhanna G. Möller, söngkona.
Upplýsingar í síma 628181.
EVRÓPUFERÐIR,
Klapparstíg 25, Reykjavfk.
i
„Hjá ÓS fást sterkar og fallegar
hellur tíl að gera hvers kyns stéttir og
bflastæði. Ég mæli með hellunum frá
ÓS og byggi þau meðmæli á
reynslunni. Þær eru framleiddar úr
öldu hráefhi og góðir kantar gera það
verkum að allar línur verða reglulegar.
Hellunum er pakkað í plast og þeim
ekið heim í hlað. f fáum orðum sagt:
Gæðavara og góð þjónusta.“
Markús Guðjónsson,
skrúðgarðyrkjumeistari,
eigandi Garðavals.
i
l
i
j