Morgunblaðið - 01.08.1989, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 1989
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
T!L FÖSTUDAGS
Hjálpræði er ekki að
fínna á öðrum stjörnum
Til Velvakanda.
Ýmsir haf leikið sér að því að
snúa útúr grein minni sem birtist
í Morgunblaðinu hinn 14. júlí. Það
læt ég mér í léttu rúmi liggja því
ég hef Biblíuna að bakhjarli, þar
sem hver og einn getur lesið sann-
leikann. Enn er bent til stjarnana
og hrópað að þar sé hjálpræðið að
finna og lausn allra vandamála.
Bent út í dauðan geiminn, út í auðn-
ina og eyðimörkina.
En ég segi, maður líttu þér nær.
Hjáipræði er ekki að finna á öðrum
stjörnum. Biblían er sá viskubrunn-
ur er kristnir menn hafa ausið af
um aldir og fundið þar hið eina
sanna hjálpræði. Við köllum okkur
kristna þjóð og það er okkar dýr-
mætasti þjóðararfur. í Biblíunni er
að finna allan þann sannleik sem
mönnum er ætlaður og reynslan
sýnir að ekki leiðir til góðs að reyna
að fara út fyrir þann ramma.
Á þessari öld hefur gullkálfurinn
mikið verið dýrkaður í formi vísinda
en hafa vísindin léyst vandamál
okkar? Nei, og aftur nei, því fer
alveg víðsfjarri. Mengun og kjarn-
orkuvá ógnar nú heimsbyggðinni.
Margir hafa fyllst hroka vegna
þekkingar eða prófa og þykjast
hafnir yfír að tileinka sér hið heil-
aga orð og hugsa um það eitt að
skapa sér forréttindi. Afleiðingar
þessa sjást í samfélaginu. Aukin
tíðni glæpa og lausungar segir sína
sögu. Spádómar Bibiíunnar virðast
Baða sig
ekki fyrst
Til Velvakanda.
Ég vil taka undir með sundlaug-
argesti sem skrifaði í Velvakanda
þann 22.07 sl. um ónóga gæslu,
við annars hina ágætu Laugardals-
laug, varðandi það að hleypa fólki
ofan í laugina án þess að fylgst
væri nógu vel með að það baðaði
sig fyrst. Eins og sundlaugargestur
bendir á er það sérstaklega áber-
andi með útlendinga sem sækja
laugarnar, af hverju sem það svo
stafar. Vegna vinnu minnar er ég
oftast á ferðinni eftir kl. 4 á daginn
og þá eru laugin og pottarnir oft
orðin ansi óhrein og stundum eins
og klístur á laugarbörmunum.
(Varla er það sólarolía svona í sólar-
leysinu.) Og eitt enn. Hvenær koma
betri og fleiri sólarbekkir? Ég er
viss um að þeir væru fljótir að borga
sig ef ekki jafnvel skila hagnaði.
Óhress
Meira tón-
listarefhi
Kæri Velvakandi.
Við viljum taka undir þær mörgu
áskoranir þeirra sem hvatt hafa til
að sýnt verði meira sjónvarpsefni
með hinni frábæru hljómsveit U2.
Einnig hvetjum við sjónvarpið til
að endursýna þættina Smelli þar
sem hljómsveitin kemur fram. Þá
hvetjum við báðar
sjónvarpsstöðvarnar til að sýna sem
mest af góðu tónlistarefni.
HBJ og GR
vera að koma fram nú á þessum
dögúm.
Hið alvarlegasta er þó afneitun
syndarinnar. Við erum öll syndug
fyrir Guði og hljótum aðeins náð
fyrir Jesú Krist. Góðverk, hversu
mikil sem þau eru, gagna ekkert
og við erum jafn glötuð hversu
mikið gott sem við gerum ef við
beygjum ekki höfuð okkar fyrir
Kristi. Ef við tökum við honum
verða allar syndir okkar fyrirgefnar
samstundis, hversu stórar sem þær
eru, og við öðlumst eilíft samfélag
við Guð. En allt vill maðurinn frem-
ur en að viðurkenna synd sína.
Hann leitar hjálpræðis í alls konar
kenningum og vímu, leitar jafnvel
til annarra stjarna til að komast
hjá að þurfa að horfast í augu við
þetta.
Kristin kona
Skrímslið í Loch Ness
Til Velvakanda.
Skrímslið í Loch Ness er utaná
klettaveggjunum, ofan við miðju,
þar sem er snarbratt til botns eftir
því sem ég hef séð í kaffibolla. 70
miljónum sterlingspunda mun vera
heitið ef emhveijum tekst að veiða
skrímslið. Á Bretlandseyjum er talið
að Loch Ness-vatnið skili aldrei lfki
hafi maður fallið í vatnið og drukkn-
að. Hvers vegna? Vegna þess að
líkið fellur niður þverhnípið við
bakka vatnsins og þar er skrímslið
í Loch Ness.
Á meðfylgjandi pennateikningu
bendir örin á skrímslið þar sem það
heldur til í klettaveggnum.
Valdimar Bjarnfireðsson
Börn eiga aldrei að leika sér á og við akbrautir. Ekki má mikið útaf
bera til að þau gleymi sér og hlaupi á eftir bolta út á götu. Þannig
hafa mörg alvarleg slys á börnum orðið.
45
HÖGNI HREKKVÍSI
// \/eiT EKKI HVAE> BK pETTA - - •
EM þHTTA EP SJALPGÆFUR. pugl