Morgunblaðið - 03.11.1989, Blaðsíða 29
MORGUNRIAÐIÐ FÖSfUDAGUR :i. NÓVEIÍIBÉÚ 1989
24 i
Minning:
Valgerður
Þórm undsdóttir
Fædd 21. september 1905
Dáin 25. október 1989
Tengdamóðir mín, Valgerður
Þórmundsdóttir, lést í Reykjavík
25. október sl. Hvíldin var henni
lausn frá þungbærum veikindum,
sem höfðu hijáð hana undanfarin
ár. Hún var fædd í Langholti í
Bæjarsveit 21. september 1905.
Foreldrar hennar voru hjónin Ólöf
Helga Guðbrandsdóttir og Þór-
mundur Vigfússon. Þau höfðu þá
tveimur árum fyrr, ung og efna-
laus, tekið jörðina á leigu og hafið
búskap. Bæði voru þau aðflutt í
Borgai-fjörð af Suðurlandi. Foreldr-
ar Ölafar bjuggu lengst í Miðdal í
Laugardal og ólst hún þar upp.
Þórmundur var frá Efri-Reykjum í
Biskupstungum. Hann varð
snemma að sjá fyrir sér, braust til
náms og varð búfræðingur frá
Hvanneyri 1899. Hagur Ólafar og
Þórmundar blómgaðsit í Langholti
og fór svo að þau höfðu bolmagn
til að kaupa höfuðbólið Bæ í sömu
sveit árið 1929. Þá þótti ekki síður
tíðindum sæta að þau hjón eignuð-
ust 14 börn og síðast þríbura. Af
þeim komust 11 til fullorðinsára.
Af þeim systkinum eru nú fimm á
lífi.
Valgerður ólst upp í Langholti í
glöðum systkinahóp á mannmörgu
sveitaheimili í fögru héraði. Ólöf
og Þórmundur vildu undirbúa börn
sín sem best fyrir lífsbaráttuna.
Fóru Valgerður og systur hennar
fleiri til náms í Kvennaskólann á
Blönduósi. Kom það nám í góðar
þarfir síðar meir.
Hinn 26. mars 1932 giftist Val-
gerður Sigurbirni L. Knudsen frá
Stykkishólmi. Þau fluttust í hina
nýbyggðu verkamannabústaði við
Hringbraut og bjuggu þar um ára-
bil. í stríðslok réðust þau í það stór-
virki ásamt fleirum að reisa íbúðar-
hús við Mávahlíð í Reykjavík. Þar
bjuggu þau lengi og síðan ævinlega
í Hlíðunum, enda kunni Valgerður
vel við sig þar og þekkti marga í
hverfinu.
Valgerður missti mann sinn í
maí 1972 og höfðu þau þá verið í
farsælu hjónabandi í rétt 40 ár.
Sigurbjörn lést á 64. aldursári og
var fráfall hans Valgerði mjög
þungbært og reyndar öllum, sem
til hans þekktu. Hann hafði þá
nærfellt í hálfa öld starfað vð verk-
smiðjurnar á Barnónsstíg 2 og látið
sig verkalýðsmál miklu skipta. Val-
gerður var alla tíð félagslynd og
starfaði í ýmsum félögum m.a.
Borgfirðingafélaginu í Reykjavík,
þar sem hún hélt sambandi við
gamla sveitunga sína. Einnig var
hún virk í Húsmæðrafélagi Reykja-
víkur. Valgerður var einstaklega
lagin við allan saumaskap. Oft
undraðist ég hve skærin léku í
höndum hennar, þegar hún sneið
glæsilega kjóla, sem hún saumaði
svo af mikilli list. Þá skreytti hún
gjarnan með perlum, pífum eða
slaufum og bætti gjarnan við hand-
saumaðri rós, sem henni einni var
lagið.
Valgerður var mjög vinnusöm og
henni féll sjaldan verk úr hendi.
Hún starfaði lengi utan heimilis,
lengst hjá Sláturfélagi Suðurlands.
Hún var raunsæ og hispurslaus
kona og vildi hag hinna vinnandi
stétta sem mestan.
Valgerður var lánsöm kona og
átti góða ævi, þar til heilsan brast.
Hún eignaðist ágætan mann og
gott heimili. Áttu þau hjón þijú
börn. Þau eru: Hulda, fædd 30.
júní 1932, Unnur, fædd 4. júní
1939 og Gylfi, fæddur 13. nóvem-
ber 1944.
Það var rétt tekið að hausta í
lífi Valgerður, þegar ég kynntist
henni fyrir rúmum tuttugu árum.
Hún reyndist mér ávallt vel og tók
mér sem sinni eigin dóttur. Guð
blessi minningu hennar. Ég vil að
lokum kveðja Valgerði með eftirfar-
andi erindi úr kvæði Stephans G.
Stephanssonar, Við verkalok:
En þegar hinst er allur dagur úti
og uppgerð skil,
og hvað sem kaupið veröld kann að virða,
sem vann ég tiL
í slíkri ró ég kysi mér að kveða
eins kiökkan brag
og rétta heimi að siðstu sáttarhendi
um sólarlag.
Guðrún Kristjónsdóttir
Útför föður míns og stjúpföður okkar,
GUÐMUNDAR PÉTURSSONAR,
Laufási,
Stokkseyri,
fer fram frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn 4. nóvember kl. 14.00.
Pétur Guðmundsson,
Ingibjörg Helgadóttir,
Vilbogi Magnússon.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur samúð,
vinarhug og hjálp vegna andláts og jarðarfarar
GRÍMS SIGURBJÖRNSSONAR
á Björgum í Ljósavatnshreppi.
Hlöðver Þ. Hlöðversson, Ásta Pétursdóttir,
Guðrún Sigurbjörnsdóttir, Brynjólfur Jónsson,
Sigurður Sigurbjörnsson,
Lovísa Sigurbjörnsdóttir, Ingólfur Hallsson,
Ásgerður Sigurbjörnsdóttir, Haraldur Magnússon,
Jón Sigurbjörnsson, Hanna Lísbet Jónmundsdóttir
og aðrir vandamenn.
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
^ • J ; jj 5
' . sÁ-'O ' ' ^ ^ • % •/ * 'S yr •+" v-- r-tí^r ’ ? Z'% yi