Morgunblaðið - 03.11.1989, Side 5

Morgunblaðið - 03.11.1989, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUPAGUH 3. NÓVEMBER 1989 5 Fyrsta ijáraukalagafrumvarpið í 66 ár: Boðaður 5,5 milljarða rekstr- arhalli ríkissjóðs á þessu ári Gjöld hækki um 10,7% frá flárlögum og tekjur um 3,5% ÓLAFUR Ragnar Grímsson (jármálaráðherra Iagði í gær fyrir Al- þingi frumvarp til fjáraukalaga fyrir þetta ár. Er það í fyrsta sinn síðan 1923 að slíkt frumvarp er lagt fram fyrir yfírstandandi Qárlaga- ár. í frumvarpinu kemur fram að tekjur ríkissjóðs eru áætlaðar fara 2.683 milljónir króna fram úr fjárlögum og gjöld 8.153 milljónir, að frádregnum 650 milljóna króna niðurskurði. Tekjurnar fara 3,48% fram úr fjárlögum og gjöldin 10,66%. Sfærsti einstaki orsakaliður aukinna útgjalda er vegna breyttra verðforsendna, 3.105 miljónir króna. Ólafur Ragnar kynnti frumvarpið á blaðamannafundi í gær og rifjaði þá upp, að hann hefði lýst því yfir fyrr á þessu ári að frumvarp til fjáraukalaga yrði lagt fram á yfir- standandi ári. „Það er ætlun mín á meðan ég gegni þessu embætti að halda áfram á þessari braut og leggja á hveiju ári fjáraukalög fyrir yfirstandandi ár og ég vænti þess að aðrir fylgi þar á eftir,“ sagði Ólafur Ragnar. Utgjöld aukin um 8,8 milljarða í frumvarpinu er leitað samþykkis Alþingis fyrir auknum útgjöldum ríkissjóðs sem nemur 8.803 milljón- um króna. Ennfremur er leitað heim- ildar til að skera niður framlög um 650 milljónir, þar af 500 milljónir til Byggingarsjóðs ríkisins, þannig að niðurstöðutalan verði 8.153 millj- ónir í útgjaldaauka. Aukningin skiptist í höfuðatriðum þannig, að rekstrargjöld hækka um 2.343 millj- ónir, eða um 7,87% frá fjárlögum. Tilfærslur, það eru tryggingagreiðsl- ur, framlög og niðurgreiðslur, hækka um 4.457 milljónir króna, eða um 15,55%. Fjármagnsgjöld og vext- ir hækka um 820 milljónir, eða um 10,87%. Loks hækkar íjárfesting og viðhald um 533 milljónir, eða nálægt 5%. Fjármálaráðuneytið ber stærstan hluta útgjaldaaukans, alls um 4.603 milljónir króna, Þar af eru 3.105 milljónir vegna breyttra verðlags- forsendna, 800 milljónir vegna fyrir- sjáanlegs greiðsluhalla ríkisstofn- ana, 350 milljónir vegna skattkerfis- breytinga og 170 milljónir vegna geymdra fjáiveitinga frá 1988. Landbúnaðarráðuneytið fer 901 milljón króna fram úr íjárlögum. Þar vega þyngst uppbætur á útfluttar landbúnaðarafurðir, 520 milljónir króna og 67,6 milljónir eru vegna sauðfjárveikivarna. 73 milljónir eru vegna endurgreidds söluskatts í fisk- eldi og loðdýrtarækt. Samgönguráðuneytið fer 606 milljónum fram úr íjárlögum, þar af eru 555 miiljónir vegna Vegagerð- ar ríkisins. Á viðskiptaráðuneyti eru skráðar 807,5 milljónir, þar af 800 vegna niðurgreiðslna. Dóms- og kirkjumálaráðuneyti fer 19,1 milljón króna umfram fjárlög. Þar af eru 3 milljónir til löggæslu- merktar bæjarfógetanum í Vest- mannaeyjum. Tekjur auknar um 2,7 milljarða Samkvæmt frutnvarpinu aukast tekjur ríkissjóðs um 2.683 milljónir króna á árinu miðað við fjárlög, eða um 3,48%. Beinir skattar eiga að hækka um 600 milljónir, eða um 4,5%, óbeinir skattar um 802 milljón- ir, eða um 1,3%. Aðrar tekjur eiga að aukast um 1.281 milljón, eða um 31,5%. Mest munar þar um vaxta- tekjur sem aukast um 1.215 milljón- ir króna. Tekjur af óbeinum sköttum eru sundurliðaðar þannig í greinargerð, að innflutningsgjald af bílum verði 315 milljónum króna lægra en í fjár- lögum, vörugjald skili 450 milljónum minni tekjum, söluskattstekjur hækki um 970 milljónir frá fjárlög- um, skil ÁTVR verði 550 milljónum minni, tekjur af launatengdum gjöld- um verði 463 milljónum hærri og aðrir óbeinir skattar verði 684 millj- ónum hærri en í fjárlögum. Forsendur breyttust Breyttar forsendur eru í greinar- gerð sagðar skýra frávikin frá fjár- lögunum, sem fjáraukalagafrum- varpið boðar. Þijár höfuðástæður eru nefndar. Hin fyrsta að verð- forsendur íjárlaga hafi breyst veru- lega. í stað 13-14% verðhækkunar sé nú spáð 21-23% meðalhækkun verðlags á þessu ári. Fjárlagafrum- varp fyrir næsta ár byggir á 16% verðlagsbreytingum milli ára. Önnur höfuðástæðan er sögð ákvarðanir í tengslum við gerð kjarasamninga síðastliðið vor um að lækka og jafn- vel fella niður tiltekna skatta og ákvarðanir um að auka niðurgreiðsl- ur. Þriðja ástæðan er sögð ýmsar ákvarðanir um aukin útgjöld ríkis- sjóðs frá því fjárlög voru afgreidd, bæði með samþykktum Alþingis um viðbótarijármagn til vegamála og einnig hafí framlög til atvinnumála verið aukin. „Allt hefur þetta breytt forsend- um íjárlaganna þannig að nú eru horfur á um 4,8 milijarða króna rekstrarhalla á ríkissjóði í lok þessa árs. Þessi halli svarar til um það bil 1,5% af landsframleiðslu. Til saman- burðar má nefna að árið 1988 svar- aði hallinn á ríkissjóði til tæplega 3% af landsframleiðslu," segir í greinargerðinni. Heildarniðurstöður ijáraukalaga- frumvarpsins eru að halii á rekstri ríkissjóðs verði 5.470 milljónir króna. Fjárlög voru hins vegar sam- þykkt með 636 milljóna króna af- gangi, þannig að þegar árið er gert upp verður, samkvæmt áætlun frumvarpsins, halli ríkissjóðs 4.834 milljónir. í frumvarpinu er gert ráð fyrir að lántökur ríkissjóðs verði 11.669 milljónir króna, en það er 6.234 milljónum meira en í fjárlögum og hækkun um 114,7%. Innlend fjáröfl- un er þegar orðin um 7 milljarðar, samkvæmt greinargerðinni. Þessi áætlun á að standast Um þetta leyti í fyrra sagði Ólafur Ólafur Ragnar Grímsson Ragnar Grímsson fjármálaráðherra að stefndi í um þriggja milljarða króna halla á ríkissjóði það ár. I febrúar síðastliðnum kom í ljós að hallinn varð um 7 milljarðar. Ólafur var því spurður hvort líkur væru til að þessar áætlanir, sem nú eru kynntar í frumvarpi til ijáraukalaga, séu áreiðanlegri en hinar sem kynnt- ar voru í nóvember í fyrra. „Já, ég held að þær séu það tvímælalaust," sagði hann, „vegna þess að sú tekjuáætlun og sú útgjaldaáætlun sem unnin var fyrir fjárlögyfirstand- andi árs hefur í sjálfri sér reynst mjög traust. Það frumvarp til íjáraukalaga sem ég er hér að leggja fram, felur að stórum hluta í sér nýjar ákvarðanir sem teknar voru á þessu ári og inn í þetta frumvarp hafa verið teknár tillögur um ákvarðanir sem menn ætla sér að hrinda í framkvæmd á næstu tveim- ur mánuðum. Þannig að það eru ekki fyrirsjáanlegar neinar nýjar ákvarðanir sem því eiga að breyta." Hann sagði að Teynslan fyrstu tíu mánuði þessa árs bendi ekki til þess, að brestur sé í tekjuhliðinni, eins og verið hafi í fyrra. „í samdráttar- skeiðinu stóra sem var í fyrra, hrundi tekjuhliðin nánast frá einum mánuði til annars, en enn sem komið er hefur ekkert gerst í þeim efnum.“ HUÓMPLÖTUMARKAÐUR Á 2. hæó verslunormióstöóvarinnor v/Eióistorg (Hagkoupshúsinu) höfum vió opnaó stórkostlegon hljómplötumorkaó. Þor færó þú ollor hljómplötur (kass., CD) sem fáanlegar eru. Munurinn er baro sá oð verðiö er ollt oð 90% lægra en annors stoðar. Þoó er stór munur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.