Morgunblaðið - 03.11.1989, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖÍ-5TUDAGUR 3. NÓVENÍIBfeR' 1989
•25
Slippstöðin á Akureyri:
Fjármálaráðherra fer
með meirihlutaeign
Áhrifamenn í ríkissljórninni vilja skipasmíðaiðnaðinn
feigan, sagði ráðherra Hagstofunnar
Júlíus Sólnes ráðherra Hagstoíúnnar lét að því liggja í utandag-
skrárumræðu í Sameinuðu þingi í gær að Halldór Asgrímsson sjávar-
útvegsráðherra væri talsmaður þeirra viðhorfa innan ríkisstjórnar
Steingríms Hermannssonar sem stefndu íslenzkum skipasmíðaiðnaði
til heljar. Þessum ummælum mótmælti Stefán Guðmundsson (F-Nv)
harðlega, en þingmenn stjórnarandstöðu töldu ummæli Hagstofu-
ráðherra hafa leitt í ljós alvarlegan ágreining í ríkisstjórninni.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson
(F-Ne) kvaddi sér hljóðs utan dag-
skrár í Sameinuðu þingi í gær í til-
efni af því að Slippstöðin á Akur-
eyri hefur neyðst til að segja upp
öllum starfsmönnum sínum, 220
talsins. Hann sagði skipasmíðaiðn-
aðinn í heild í sömu heljargreipum
verkefnaskortsins. Jóhannes Geir
krafði Olaf Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra, sem fer með meiri-
hlutaeign ríkisins í Slippstöðunni,
sagna um, hver myndu verða við-
brögð ríkisstjómarinnar. Er ríkis-
stjórnin fús til að beina viðskiptum
Skipaútgerðar ríkisins sem og
rekstraraðila í strandsiglingum inn-
anlands, sem njóta beinna og
óbeinna ríkisstyrkja, til innlends
skipasmíðaiðnaðar?
Olafúr Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra sagði vanda Slipp-
stöðvarinnar einkum rekja rætur til
ákvörðunar um smíði á skipi, sem
enginn kaupandi var að. Iðnaðar-
ráðherra hafi nú skipað nefnd til
að markaðssetja skipið. Ráðherra
sagði Skipaútgerð ríkisins njóta
verulegra ríkissjóðsstyrkja. Ef ekki
yrði leitað hagstæðustu leiða í
Kynningarrit um íslenzkar bókmenntir:
Viðrar sjónarmið þröngs
hóps og eins útgáfufélag's
- sagði Halldór Blöndal í þingræðu
tungu (Arts and Culture in Ice-
land - Literature) kom til um-
fjöllunar í fyrirspurnatíma Al-
þingis í gær. Halldór Blöndal
(S-Ne) gagnrýndi menntamála-
ráðherra fyrir það, hvern veg
væri að þessu riti staðið, en það
dragi dám af sljómmálaskoðun-
um ráðherrans, sjónarmiðum
þröngs hóps og eins útgáfufé-
lags (Máls og menningar).
Kynningarrit um íslenzkar
bókmenntir, sem menntamála-
ráðherra hefúr gefið út á enskri
Innlendar skipa-
smíðar:
Lántöku-
nýsmíði með útboðum þýddi það
aðeins enn hærri ríkissjóðsstyrki.
Tilboð erlendis frá í Vestmanna-
eyjafeiju væru og mun hagstæðari
en innlend.
Engu að síður hlýtur ríkisstjórnin
að leita allra leiða til að leysa vanda
skipasmíðaiðnaðarin, sagði ráð-
herra. Vandi hans væri tekinn í arf
frá fyrri ríkisstjórnum, ekki sízt
Sjálfstæðisflokknum. Það hefðu og
verið sjálfstæðismenn í forystu
Slippstöðvarinnar sem ráðið hafi
ferð um nýsmíði skips án þess að
tryggja kaupanda fyrirfram.
Halldór Blöndal (S-Ne) minnti
á að nk. mánudag færi fram, að
hans beiðni, utandagskrárumræða
um atvinnuástand í landinu. Þá
gæfízt betri kostur til að fara vel
ofan í saumana á vanda íslenzks
skipasmíðaiðnaðar og málfiutning
fjármálaráðherra. Asakanir ráð-
herra á hendur Sjálfstæðisflokkn-
um, vegna stöðu mála undir verk-
stjórn núverandi ríkisstjórnar, væru
nánast skálkaskjól. Ef Slippstöðin
hefði ekki farið út í nýsmíði á sinni
tíð þá hefði blasað við sá kostur
einn að senda á þriðja hundrað
manns í atvinnuléysið. Stærsti
eignaraðilinn, ríkið, ber að sínum
hluta ábyrgð gagnvart starfsmönn-
um Slippstöðvarinnar.
Júlíus Sólnes ráðherra Hag-
stofú fullyrti að skipasmíðaiðnaður-
inn væri samkeppnisfær við erlend-
an%
Arni Gunnarsson (A-Ne) sagði
að móta yrði heildarstefnu í málefn-
um skipasmíðaiðnaðarins og þar
yrði ríkisstjórnin að hafa forystu.
Bátar í slipp
Málmfríður Sigurðardóttir
(SK-Ne) sagði skipasmíðaiðnaðinn
eiga við þrenns konar vanda að
etja: verkefnaskort, háan lánsfjár-
kostnað og skilningsleysi stjórn-
valda. Eg lýsi ábyrgð á hendur
stjórnvöldum, sem eru að tefla at-
vinnuöryggi hundruða einstaklinga
í tvísýnu; setja heimili viðkomandi
út á Guð og gaddinn, sagði þing-
maðurinn.
Skúli Alexandersson (Abl-Vl)
sagði það rangt hjá ráðherra að
hnýta vanda Slippstöðvarinnar við
smíði eins skips. Vandinn væri einn
og samur hjá skipasmíðastöðvum
um land allt.
Kristín Einarsdóttir (SK-Rvk)
sagði að viðhorfsbreytingar væri
þörf, ekki aðeins hjá stjórnvöldum
heldur ekki síður hjá útveginum, til
íslenzks skipasmíðaiðnaðar,
Stefán Guðmundsson (F-Nv)
sagði að sú þróun, sem nú væri
orðin, hafi verið fyrirséð. Hann
rakti efnisatriði þingsályktunar um
skipasmíðaiðnaðinn frá liðnu vori.
Þar hafi ríkisstjórninni verið falið
að leita ráða til lausnar á vanda
þessarar atvinnugreinar.
Stefán Valgeirsson (SJF-Ne)
sagði að frelsið væri að drepa at-
vinnulífið, fijálsir vextir, fijáls út-
boð og fijáls innflutningur.
Ingi Björn Albertsson (FH-
VI) vitnaði til orða Júlíusar Sólnes
í viðtali við Dag á Akureyri:
„ Málefni skipasmíðaiðnaðarins
hafa ekki verið rædd í ríkisstjórn-
inni síðan Borgaraflokkurinn gerð-
ist aðili að henni. Það er engu líkara
erj að áhrifamenn í ríkisstjórninni
ætli sér að láta þennan iðnað logn-
ast út af og telji það jákvætt“.
Hveijir eru þessir aðilar innan
ríkisstjórnarinnar spurði Ingi Björn.
Hagstofuráðherra skuldar Alþingi
og þjóðinni svör við þeirri spurn-
ingu,
Fjöldi þingmanna tók til máls í
umræðunni, þó hér verði ekki leng-
ur rakið. Júlíus Sólnes Hagstofu-
ráðherra sagði í svari við fyrir-
spurn Inga Björns, að viðhorf sjáv-
arútvegsins væru þau að hag-
kvæmara væri að beina nýsmíði út
fyrir landsteina. Sjávarútvegsráð-
herra væri talsmaður sjávarútvegs-
ins í ríkisstjórninni. Stefán Guð-
mundsson (F-Nv) mótmælti harð-
lega ummælum Hagstofuráðherra
sem röngum og ómaklegum. Hann
sagði sjávarútvegsráðherra haíV
fullan skilning á vanda skipasmíða-
iðnaðarins. Stjórnarandstöðuþing-
menn sögðu hinsvegar að ummæli
Hagstofuráðherra opinberuðu al-
varlegan ágreining í ríkisstjórn
Steingríms Hermannssonar í þessu
mikilvæga máli.
Sameiginleg’ verkefiii ríkis og sveitarfélaga:
Kostnaðarhlutur ríkissjóðs
ekki í fjárlagafrumvarpi
Reglugerðir væntanlegar eftir hálfan mánuð
Svavar Gestsson menntamálaráðherra sagði í þingræðu sl.
fimmtudag að reglugerð um kostnaðaruppgör milli ríkissjóðs og
sveitarfélaga vegna áfallinna skuldbindinga rkissjóðs við byggingu
dagvistarheimila, grunnskóla, íþróttamannvirkja og félagsheimila
(samkvæmt lögum um verkaskiptingu nr. 87/1989) yrði gefin út
um miðjan þennan mánuð. Jóhanna Sigurðardóttir félagsinálaráð-
herra upplýsti jafnframt að reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfé-
laga (lög nr. 91/1989, liti dagsins Ijós um svipað leiti. Ráðherrarin-
ir vóru að svara fyrirspurn frá Birgi ísl. Gunnai*ssyni (S-Rvk) um
þetta efni.
gjald end-
urgreiðist
„Gjald af erlendum lánum, sem
tekin voru til skipasmíða hér
landi samkvæmt lögum nr.
10/1988 um ráðstafanir í ríkis-
fjármálum, sbr. lög nr. 101/1988
og nr. 51/1989, skulu endur-
greiðast úr ríkissjóði þegar í
stað. Þannig hljóðar fyrri grein
frumvarps Halldórs Blöndals (S-
Ne) sem lagt var fram á Alþingi
í gær.
I greinargerð segir að á sama
tíma og erlendar skipasmíðastöðvar
nutu opinbers stuðnings með bein-
um og óbeinum hætti hafi íslenzk-
um skipasmíðastöðvum verið gert
að greiða sérstakt lántökugjald af
erlendum lánum vegna skipasmíða
hér innanlands. Þetta hafi skekkt
enn frekar samkeppnisstöðu þeirra.
Mál sé að linni og gjaldið tafarlaust
endurgreitt.
Það kemur ekki á óvart, sagði
þingmaðurinn, að kynningarritið
tíundar Rauða penna og Tímarit
máls og menningar, en nefnir ekki
Skírni, Vöku, Helgafell eða Nýtt
Helgafell. Hvorki Guðmundur Dan-
íelsson né Indriði G. Þorsteinsson,
sem eru heiðurslaunarithöfundar
samkvæmt ákvörðun Alþingis, eru
nefndir til sögunnar. Ekki er
minnzt einu orði á Kristján Karls-
son, sem er mikilhæfur ljóðasmiður
og hefur í raun fært út landhelgi
íslenzka ljóðsins á líðandi áratug.
Svavar Gestsson, menntamála-
ráðherra, sagði, að ráðuneytið hefði
ekki ritskoðað efnisatriði höfunda
kynningarritsins. Þetta væri lítið
kver, 32 bls., og skáldatal þess
hvergi nærri tæmandi. Þar væri
ekki minnzt á marga róttæka höf-
unda, svo sem Jóhannes úr Kötlum,
Stein Steinarr o.fl. Hann vísaði á
bug ásökunum um pólitísk sjónar-
mið við útgáfu ritsins.
Þórhildur Þorleifsdóttir (SK-
Rvk) sagði það vekja andstyggð
sína þegar þingmaður og ráðherra
dragi listamenn í flokkspólitíska
dilka.
Birgir ísleifúr Gunnarsson
(S-Rvk) átaldi hve síðbúnar þessar
reglugerðir væru, en seinagangur
við samningu þeirra hefði valdið
sveitarstjórnarmönnum ýmsum
vanda. Hann sagði að hér væri um
mikla fjármuni að tefla og fprðu
gegni, að ekki væri að finna í frum-
varpi fjármálaráðherra að fjárlög-
um komandi árs eina einustu krónu
til að standa við skuldbindingar við
sveitarfélögin.
Svavar Gestsson menntíunála-
ráðherra sagði að hér væri um að
ræða rúmlega 350 mannvirki og
að heildarskuldir ríkisins þeirra
vegna næmu trúlega 1,2 milljörðum
króna, þar af 800 m.kr. vegna
grunnskóla, 155 m.kr. vegna dag-
vistarstofnana, 230 m.kr. vegna
íþróttamannvirkja og 60 m.kr.
vegna félagsheimila. Ráðherra
sagði það flókið mál að semja reglu-
gerð af þessu tagi, en hún væri
væntanleg um miðjan mánuðinn.
Hann staðfesti að útgjöld vegna
uppgjörs við sveitarfélögin væru
ekki enn komin inn í fjárlagatillög-
ur.
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra sagði að reglugerð
um Jöfnunarsjóðinn hefði verið sex
mánuði í athugun hjá Sambandi
’ísi. sveitarfélaga. Verið væri að
kanna ábendingar sambandsins um
breytingar. Fullbúin reglugerð yrði
væntanlega undirrituð eftir u.þ.b.
hálfan mánuð.
Starfsmaður í
félagsmiðstöð
Starfsmaður óskast í félagsmiðstöðina
Garðalund. Fullt starf. Vaktavinna.
Upplýsingar í síma 41451.
Forstöðumaður.
Vélstjóri
- stýrimaður
2. stýrimann og 1. vélstjóra vantar á ísfisk-
togara frá Austfjörðum.
Upplýsingar í síma 97-81818 á skrifstofutíma.
Pizzugerðarmaður
óskast nú þegar.
Upplýsingar í símum 685670 og 20150.