Morgunblaðið - 17.11.1989, Page 1
64 SIÐUR B/C
263. tbl. 77. árg.
FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Hart deilt á Sten Andersson:
Eru Svíar sammála
innlimun Eistlands?
Slokkhólmi. Reutér.
OLL spjót standa nú á Sten Andersson, utanríkisráðherra Svíþjóð-
ar, og er hann sakaður um að hafa lagt blessun sína yfír innlimun
Eistlands í Sovétríkin. Andersson var í Eistlandi í síðustu viku og
sagði þá, að Svíar teldu ekki, að Eystrasaltsríkin væru hersetin
af Sovétmönnum.
Suður Afríka:
Aðskilnað-
arstefiiaá
nndanhaldi
FORSETI Suður-Afríku,
F.W. de Klerk, skýrði frá
því í gær að framvegis yrði
hvergi um að ræða lög*
bundinn kynþáttaaðskilnað,
apartheid, á baðströndum
og ennfremur, að 36 ára
gamall lagabálkur um að-
skilnað á ýmsum afþreying-
arstöðum yrði fljótlega af-
numinn. Eru þessi lög
ásamt öðrum einn af horn-
steinum aðskilnaðarstefn-
unnar í Suður-Afríku. De
Klerk hefur sagt, að nýir
tímar séu að renna upp í
landinu og hann hefur boðið
leiðtogum blökkunianna til
viðræðna um aukna þátt-
töku þeirra í stjórn lands-
ins. Þá kvaðst hann í gær
mundu skýra frá frekari
umbótum þegar þingið
kemur saman í febrúar.
Börnin á myndinni fögnuðu
tíðindunum með því að
hlaupa niður á strönd enda
er nú ekkert að marka skil-
tið þar sem segir, að aðeins
hvítir menn megi baða sig
í sjónum.
Hans Modrow forsætisráðherra
tókst í gær að koma saman sam-
steypustjórn kommúnistaflokksins
og fjögurra smáflokka, sem hingað
til hafa verið meðreiðarsveinar
kommúnista en leggja nú áherslu á
að vera sjálfstæðir. Flokkarnir fjór-
ir, fijálslyndir demókratar, kristileg-
ir démókratar, þjóðlegir demókratar
og bændaflokksmenn, fá 11 ráð-
herraembætti af 27 en ekki var vit-
að hvernig þeim yrði skipt á milli
flokkanna. Formenn allra flokkanna
samþykktu í gær tillögur, sem
Modrow mun leggja fyrir þingið í
dag, og þýða í raun, að hið komm-
úníska stjórnkerfi, sem verið hefur
í landinu allt frá stríðslokum, verði
lagt af.
í tillögunum er kveðið á um sam-
starf við vestræn fyrirtæki; að lítil
fyrirtæki verði í einkaeigu og þeim
ívilnað í sköttum og með aðgangi
að erlendum gjaldeyri; að ríkisfyrir-
tækin verði gerð sjálfstæð og opin-
berar niðurgreiðslur, fimmtungur
ríkisútgjalda, teknar til endurskoð-
unar. Þá eru boðuð ný lög um fé-
laga-, funda- og fjölmiðlafrelsi; að
skilið verði á milli löggjafar-, fram-
kvæmda- og dómsvalds; að lögfræð-
ingar og dómarar verði óháðir og
sérstakur stjórnarskrárdómstól!
skipaður. Þá á að skera niður um-
svif öryggislögreglunnar.
Modrow vill einnig fækka ríkis-
starfsmönnum verulega og flytja þá
til framleiðslugreinanna og hann vill,
að hlutur kvenna á þingi og í stjórn
verði tryggður með lögum. Þá eiga
þau sjúkrahús, sem hafa aðeins ver-
ið fyrir hina útvöldu stétt, að vera
opin almenningi og allt menntakerf-
ið á að endurskoða.
Reuter -
í tillögunum segir, að skilgreina
skuli stefnu Austur-Þýskalands í
her- og varnarmálum að nýju; gefa
nýliðum í hernum kost á að gegna
borgaralegri þegnskyldu; leggja
fram nýjar tillögur um afvopnun í
Evrópu og síðast en ekki síst er lagt
til, að samskiptin við Vestur-Þýska-
land verði stóraukin á öllum sviðum.
Haft er eftir háttsettum heimilda-
mönnum í Austur-Þýskalandi, að
fyrirhugaðar breytingar séu miklu
Bengt Wester-
berg, formaður
Fijálslynda
flokksins, segir, að
ummæli utanríkis-
ráðherrans séu
„óskiljanleg og
óviðunandi" en
Andersson heldur
því fram, að hann
hafí aðeins verið
að ítreka stefnu
sænskra stjórnvalda um langan ald-
ur. Stjórnarandstaðan og ýmis
sænsk dagblöð láta sér ekki þá
skýringu nægja og segja, að And-
ersson hafi gerst sekur um aula-
hátt og tillitsleysi á þeim tíma þeg-
ar Eystrasaltslöndin krefjast meira
sjálfstæðis frá Moskvu.
Árið 1941 urðu Svíar til þess
fyrstir þjóða að viðurkenna innlim-
un Eystrasaltsríkjanna í Sovétríkin
en langflestar ríkisstjórnir á Vest-
urlöndum hafa aldrei gert það.
Westerberg sagði í viðtali við
ríkisútvarpið, að eitt væri að viður-
róttækari en nokkurn hafi órað fyrir
en búist er við, að samsteypustjórnin
sitji fram á næsta haust og verði
þá efnt til kosninga í landinu.
Austur-þýska fréttastofan ADN
sagði frá því í gær, að Egon Krenz,
formaður kommúnistaflokksins,
hefði skýrt Erich Honecker, fyrrum
leiðtoga, Margot, konu hans, Erich
Mielke, fyrrum yfirmanni öryggis-
lögreglunnar, og 24 öðrum svo frá,
að nærveru þeirra væri ekki lengur
óskað í þingflokki kommúnista.
kenna eitthvert ástand á
stríðstímum en annað að halda fram
sömu skoðun þegar mikilvægar
breytingar væru að eiga sér stað.
Hreinsanir
í Búlgaríu
Sofía. Reuter.
PETAR Mladenov, nýr leið-
togi búlgarska kommúnista-
ílokksins, vék í gær úr emb-
ætti 10 samstarfsmönnum
Todors Zhivkovs, fyrrum
leiðtoga. Er talið víst, að
hreinsanirnar séu fyrir fyrir-
boði einhverra umbóta í
Búlgaríu í anda þeirra, sem
orðið hafa í Sovétríkjunum.
Á fundi miðstjórnar búlg-
arska kommúnistaflokksins var
ákveðið, að fimm félagar í
stjórnmálaráðinu og fimm í
miðstjórninni skyldu láta af
störfum en meðal þeirra síðar-
nefndu var Vladimir Zhivkov,
37 ára gamall sonur Todors
Zhivkovs, sem lét völdin í hend-
ur Mladenov fyrir viku.
Vestrænir stjórnarerindrek-
ar segja, að hinir burtreknu séu
allir harðlínumenn og hreinsan-
irnar það róttækar, að Mlad-
enov hljóti að hafa haft sam-
þykki Sovétmanna fyrir þeim.
Þá segja þeir einnig, að útilok-
að sé annað en að einhveijar
umbætur komi í kjölfarið.
Litháun-
um ekki
umsnúið
Moskvu. Reuter.
LEIÐTOGAR kommúnista í Lit-
háen voru í gær á skyndifundi
með sovéska stjórnmálaráðinu
en að honum loknum kváðust
þeir jafn ákveðnir og áður í að
stofha óháðan konunúnistaflokk.
- Fundurinn var haldinn að frum-
kvæði Míkhaíls Gorbatsjovs, forseta
Sovétríkjanna, en Sovétstjórnin
hefur miklar áhyggjur af þróuninni
í Litháen og öðrum Eystrasaltsríkj-
um. Talið er fullvíst, að Iitháíski
kommúnistaflokkurinn muni sam-
þykkja á þingi sínu 19. desember
nk. að segja skilið við sovéska móð-
urflokkinn og ef honum helst það
uppi munu kommúnistaflokkarnir í
hinum Eystrasaltsríkjunum tveimur
vafalaust fara að dæmi hans.
Róttækar breytingar boð-
aðar í Austur-Þýskalandi
Aukið frelsi á öllum sviðum og stór-
aukið samstarf við Vestur-Þjóðverja
Austur-Berlín, Bonn. Reuter.
NÝSKIPUÐ samsteypustjórn í Austur-Þýskalandi ætlar að leggja í dag
fyrir þingið tillögur, sem kollvarpa í raun og veru hinu kommúníska
þjóðskipulagi síðustu 40 ára. Er í þeim kveðið á um gagngerar breyt-
ingar á öllum sviðum þjóðlífsins, í eftiahagsmálum, stjórnmálum, stjórn-
kerfismálum, utanríkismálum og félagsmálum. Þá hefúr verið skýrt frá
því, að Erich Honecker, fyrrverandi leiðtoga kommúnistaflokksins, eig-
inkonu hans og 25 mönnum öðrum hafi verið vikið úr þingflokki komm-
únistaflokksins.
Reuter
Það má kallast tímanna tákn, að þessi ungmenni, vestur-þýsk og
bandarísk, klifruðu upp á Berlínarmúrinn í gær og fengu óáreitt að
bijóta úr honum vænt stykki.
Andersson