Morgunblaðið - 17.11.1989, Síða 5
MQffGyNBLAÐIÐ KÖSTlfTM(;L'K 17. NÓVEMBER 1.989
5
Uppsagnir yfirvofandi
ef ekki semst í Moskvu
Frá síldarsöltun á Seyðisfirði.
GUNNAR Flóvens, formaður
Síldarútvegsnefhdar ríkisins sem
staddur er í Moskvu, sagði í gær
í samtali við Morgunblaðið að
enn væri eftir að staðfesta samn-
ing Síldarútvegsnefndar og sov-
éska fyrirtækisins Sovrybflot um
kaup Sovétmanna á 150.000
tunnum af saltsíld. Að öðru leyti
vildi hann ekki tjá sig um fram-
vindu mála.Ófremdarástand er
að myndast á síldarsöltunarstöð-
um og er víða farið að huga að
uppsögnum starfsfólks, eins og
fram kemur í samtölum við verk-
stjóra víðs vegar um landið. Ná-
ist samningar ekki við Sovét-
menn fara mikil verðmæti í súg-
inn og er sennilegt að um 200
miljónir króna liggi bara í um-
búðakostnaði, þ.e. tunnum, á
síldarsöltunarstöðum landsins.
Sigfinnur Mikaelsson, fram-
kvæmdastjóri og eigandi Stranda-
síldar á Seyðisfirði, sagði að hann
byggist við því að þurfa að segja
upp 20-30 manns um helgina verði
samningurinn við Sovétmenn ekki
staðfestur fyrir þann tíma. Hann
sagði að atvinnuástand á Seyðis-
firði væri afleitt, frystihús gjald-
þrota, sfMarvertíðin virtist ætla að
bregðast og loðnuveiði sömuleiðis
þannig að miklir erfiðleikar blöstu
við Seyðfirðingum. Hann var harð-
orður í garð ráðamanna þjóðarinnar
og sagði að þéir virtust halda að
ijármunir yrðu til í bönkum lands-
ins. „Þeir gera sér ekki grein fyrir
því að sjávarútvegur er slagæð
þessarar þjóðar og eru skeytingar-
lausir um þessi mál.“
„Ég hef einfaldlega ekki efni á
því að greiða á milli 500-800.000
krónur í vinnulaun í hverri viku.
Það hefur þegar verið saltað upp í
samninga á Evrópumörkuðum en
okkur vantar stórsíld,“ sagði Sig-
finnur.
Viðar Elíasson, verkstjóri
Vinnslustöðvarinnar í Vestmanna-
eyjum tók í sama streng. „Það er
búið að ráða fólk í síldarsöltun en
það er ekkert fyrir það að gera.
Ef ekkert gerist innan tveggja daga
neyðumst við til að segja upp fólki.“
Hann benti hins vegar á að það
gæti orðið bagalegt fyrir fyrirtæki
að segja upp starfsfólki og samn-
ingum við báta ef síðan semdist við
Sovétmenn. „Við gætum liðið fyrir
það síðar,“ sagði Viðar.
Eitthvað færra aðkofnufólk er við
síldarsöltun úti á landi en undan-
gengin ár. Sigfinnur sagði þó að
10 aðkomumenn væru hjá Stranda-
síld og hefðu þeir búist við miklum
uppgripum. Það hefði hins vegar
algjörlega brugðist og mætti að-
komufólk jafnvel búast við upp-
sögnum um helgina.
Kristján Ragnarsson, verkstjóri
Skinneyjar hf. á Höfn, sagði að
ekkert aðkomufólk væri við síldar-
söltun á Hornafirði og taldi hann
að ekki kæmi til uppsagna fyrr en
í síðustu lög. „Við erum búnir að
salta upp í okkar hluta á Norður-
landamarkaði, alls 3.100 tunnur.
Við höfum líka flakað í 430 tunnur
á Þýskalandsmarkað. Að öðru leyti
hefur hefur vinna hér stöðvast.
Beðið eftir að samningar takist við
Sovétmenn."
Ekki verra ástand í 25 ár
Eitthvað hefur fundist af stórri
síld í Seyðisfirði en erfitt hefur ver-
ið að veiða hana, að sögn Búa Þórs
Birgissonar, verkstjóra hjá síldar-
söltun Hraðfrystihúss Eskiijarðar.
Búi Þór kvaðst ekki muna eftir
öðru eins ástandi frá því 1964.
„Málum væri þokkalega komið af
samningar hefðu náðst við Sovét-
menn. Millisíldin sem verið er að
veiða hæfir vel á Sovétmarkað. Nú
eru bátar að landa 100-130 tonnum
af síld og af því fara um 40 tonn
til vinnslu en afgangurinn í
bræðslu," sagði Búi Þór.
Sömu sögu er að segja frá Vest-
mannaeyjum, þar bíða menn í of-
væni eftir að samningar við Sovét-
menn verði staðfestir en söltun hef-
ur að mestu lagst af. I Vinnslustöð-
inni hf. er verið að heilfrysta síld á
Evrópumarkað og edikleggja
síldarflök á Þýskalandsmarkað. Að
sögn Viðars hefur þegar verið salt-
að í 2.000 tunnur hjá Vinnslustöð-
inni á Evrópumarkað en nú héldu
menn að sér höndum.
Viðar Elíasson sagði að færra
aðkomufólk væri í síldarsöltun í ár
en undangengin ár og taldi að það
stafaði af meira framboði á vinnu-
markaðnum. „Við ráðum alltaf
fleira starfsfólk á álágstímum, nú
hefur hins vegar enginn álagstími
komið. Ég trúi samt ekki öðru en
að samningar náist. Ég held að
Sovétmenn kaupi síld þótt það verði
kannski eitthvað minna magn en
ráð var gert fyrir,“ sagði hann.
Þá var það á mönnum að heyra
að almenn gremja væri vegna
samnings um olíukaup á næsta ári
sem gerðir hafa verið við Sovét-
menn. Taldi Kristján Ragnarsson á
Höfn að betra hefði verið að bíða
með þá samninga þar til sildar-
samningurinn við Sovétmenn hefði
verið staðfestur.
LJOSRITAR
Það allra nýjasta í Ijósritun.
Einn mest seldi Ijósriti í
heiminum í dag.
Yfir 70 íslenskir skólar nota Mita.
Verð og gæði við allra hœfi.
FJOLRITAR ^
Gjörbylting ífjölritun.
Stórminnkar kostnað við fjölföldun.
Einfaldur, áreiðanlegur
og hreinlegur fjölriti.
„Prentsmiðja“ á ótrúlegu verði.
7Æai\l Guttormsson - Fjölval hf,
Armúla 23, pósthólf 8895,128 Reykjavík, simar 82788,688650, telefax 91-35821, kt. 410169-0109