Morgunblaðið - 17.11.1989, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTIJDAGUR ,17. NÓVEMBKR 19S9
21
Formaður SIA um Upplagseftirlit Verslunarráðsins:
Tími til kominn að _
kreQast þess að allir
Qölmiðlar eigi aðild
UPPLAGSEFTIRLIT Verslunarráðs íslands kynnti í gær á blaða-
mannafundi tölur um upplag og dreifíngu finim tímarita og fjögurra
bæja- og héraðsfréttablaða á tímabilinu maí til september. Einnig
voru kynntar tölur um seld eintök af Morgunblaðinu, sem voru að
jafhaði 49.349 á tímabilinu. A iundinum lét Halldór Guðmundsson for-
maður Sambands íslenskra auglýsingastofa það álit í ljós að innan
skamms mundu einstakar auglýsingastofur taka að beina því til við-
skiptavina sinna að auglýsa ekki í öðrum Ijölmiðlum en þeim sem
eiga aðild að upplagseftirlitinu eða veita aðrar staðfestar upplýsingar
um útbreiðslu sína.
Minning-
artónleik-
ar um Jón
Halldórsson
KARLAKÓRINN Fóstbræður
heldur minningartónleika laugar-
daginn 18. nóvember í tilefhi af
því að Jón Halldórsson, stofnandi
og fyrsti stjórnandi Ka'rlakórs
KFUM, sem nú er Karlakórinn
Fóstbræður, hefði orðið 100 ára
2. nóvember síðastliðinn. Tónleik-
arnir verða haldnir í Langholts-
kirkju og hefjast þeir kl. 15.
Dagskrá minningartónleikanna
hefst með því að formaður kórsins,
Björn Þorsteinsson, flytur ávarp, en
síðan mun kórinn syngja undir stjórn
Ragnars Björnssonar. Þá mun Jón
Þórarinsson flytja erindi um Jón
Halldórsson og störf hans að kór-
og tónlistarmálum. Valur Arnþórs-
son bankastjóri mun flytja ávarp frá
Framkvæmdum við fyrri áfanga
þjónustukjarnans er nú lokið, en í
honum eru m.a. borðsalur fyrir
70-80 manns, hár- og fótsnyrtistofa,
lítil verslun, aðstaða fyrir heimaþjón:
ustu og skrifstofur Sunnuhlíðar. í
seinni áfanga verða heitir pottar
ásamt bað- og búningsaðstöðii, sjú-
krabað og lítið þvottahús. Áætlað
er að hefja framkvæmdir við seinni
áfangann eftir áramót.
Með opnun dagdvalar fyrir aldr-
aða rætist langþráður draumur í
þjónustu við eldri borgara í Kópa-
vogi. I dagdvölinni verður lögð
áhersla á félagslega þjónustu við þá
aldraða sem búa í heimahúsum.
Þeir sem verða í dagdvölinni verða
Jón Halldórsson
Landsbanka íslands, en þar starfaði
Jón mestan hluta æfi sinnar. Að lok-
um syngur kórinn ásamt Gömlum
Fóstbræðrum nokkur lög undir
stjórn Jóns Þórarinssonar.
Eftir tónleikanna mun tónleika-
gestum boðið upp á kaffiveitingar í
Félagsheimili Fóstbræðra, og eru
velkomnir þangað allir velunnarar
kórsins og vinir Jóns Halldórssonar
sem heiðra vilja minningu hans.
sóttir heim á morgnana og ekið í
Sunnuhlíð, þar sem boðið verður
uppá fjölbreytilega tómstundavinnu
og félagslíf í björtu og rúmgóðu
húsnæði.
Það er markmið Sunnuhlíðarsam-
takanna að byggja upp þjónustu við
aldraða Kópavogsbúa. Þau reistu og
hafa nú rekið hjúkrunarheimili í
meira en 7 ár, en þar eru 54 sjúkra-
rúm og einnig vel tækjum búin
sjúkraþjálfun ásamt barnaheimili
fyrir börn starfsfólks. Þá hafa verið
byggðar á vegum samtakanna vern-
daðar þjónustuíbúðir og nú bætast
við þjónustukjarninn og dagdvöl fyr-
ir aldraða.
(Fréttatilkynning)
Halldór sagði að sambandinu
þætti tími til kominn að kreljast
þess að allir íjölmiðlar landsins ættu
aðild að þessu eftirliti. Sterkar radd-
ir væru uppi um að takmarka þátt-
töku í væntanlegri lesendakönnun
við þau tímarit sem ættu aðild að
upplagseftirlitinu. Fjölmiðlamarkað-
ur hérlendis hefði tekið miklum
breytingum undanfarið og væri mun
flóknari en áður og erfiðara að meta
útbreiðslu og áhrif íjölmiðla og aug-
lýsendur ættu kröfu á að fá frá íjöl-
miðlum nákvæmar upplýsingar um
hvað auglýsendur þeirra væru að
kaupa. Hann ságðist hafa heyrt
raddir um að éinstakar auglýsinga-
stofur hygðust innan tíðar, í sam-
ráði við viðskiptavini sína, taka upp
þann hátt að kaupa einungis auglýs-
ingar af þeim fjölmiðlum sem gang-
ist undir einhvers konar staðfesta
mælingu á útbreiðslu og áhrifum
miðia sinna. Kröfur um slíkt gerðust
stöðugt háværari jafnt meðal kaup-
enda auglýsinga og meðal aðstand-
enda auglýsingastofa.
Fram kom á fundinum að upp-
lagseftirlitið hefur undanfarið átt
viðræður við útgefendur DV um ein-
hvers konar þátttöku í upplagseftir-
litinu. Einnig kom fram að stórir
tímaritaútgefendur hefðu lýst yfir
vantrú á því að út úr tölum um
upplag væri unnt að lesa rétta mynd
af áhrifamætti miðilsins. Þijú dag-
blaðanna hafa í engu svarað boðum
um aðild að upplagseftirlitinu. Að
sögn Herberts Guðmundssonar upp-
lýsingafulltrúa Verslunarráðs hefur
starfsháttum eftirlitsins með tíma-
ritum hefði verið breytt að nokkru
leyti til að koma til móts við gagn-
rýnisraddirnar.
Morgunblaðið seldist að meðaltali
daglega í 49.349 eintökum á tímabil-
inu maí til september á þessu ári.
Það seldist í 50.382 á tímabilinu
mars til maí í ár og í 50.130 eintök-
um desember til febrúar. Morgun-
blaðið er eina dagblaðið sem á aðild
að upplagseftirlitinu en þjónusta
þess stendur öllum dagblöðunum til
boða. í fréttatilkynningu frá Versl-
unarráði segir' að tilgangur upplag-
seftirlitsins sé að marka heilbrigðan
grundvöll fyrir viðskiptasamkeppni
dagblaðanna og notkun auglýsenda
á þessum Ijölmiðlum.
Upplýsingar frá upplagseftirliti
dagblaða eru sendar út á þriggja
mánaða fresti til fjölmargra aðila.
Jafnframt er svarað innlendum og
erlendum fyrirspurnum um upplag
dagblaða annars vegar og annarra
blaða og tímarita hins vegar. Fimm
tímarit og tvö vikublöð nota sér einn-
ig þessa þjónustu í aðskildu eftirliti
með upplagi tímarita og vikublaða.
Mesta útbreiðslu tímarita sem
gangast undir upplagseftirlit hefur
Þjóðlíf. Fimm tölublöð þess komu
út á tímabilinu og voni þau að meðal-
tali prentuð í 13.600 eintökum. Þar
af var 10.833 eintökum dreift til
áskrifenda en 2.741 eintaki til lausa-
sölu. Eitt tölublað af Heilsurækt og
næringu kom út á tímabilinu. Það
var prentað í 10 þúsund eintökum
og dreift til 1.250 áskrifenda sam-
kvæmt upplýsingum útgefanda en
6.400 eintök fóru í lausasölu. Þtjú
tölublöð af Heimsmynd komu út á
tímabilinu. Þau voru að meðaltali
prentuð í 9.760 eintökum. 1.372 ein-
tök fóru til áskrifenda, samkvæmt
staðfestum upplýsingum upplagseft-
irlits en 8.333 var dreift í lausasölu.
Æskan kom íjórum sinnum út frá
maí til september,_ að meðaltali í
8.500 eintökum. Áskrifendur eru
7.319 en 300 eintök fóru í lausa-
sölu. Tímaritið Heilbrigðismál var
prentað í 8.280 eintökum og áskrif-
endur voru 7.255.
Hafnfirska fréttablaðið kom út sjö
sinnum á tímabilinu í 5.500 eintök-
um að meðaltali. Víkurfréttir á
Suðuenesjum komu út 22 sinnum í
5.500 eintökum að meðaltali. Isa-
íjarðarblöðin Bæjarins besta og
Vestfirska fréttablaðið komu hvort
um sig út 22 sinnum og var prentað
upplag beggja að meðaltali 3.600,
samkvæmt upplýsingum frá útgef-
endum.
Þjónustukjarni Sunnu-
hlíðar formlega opnaður
Þjónustukjarni og aðstaða til dagdvalar fyrir aldraða í Kópavogi,
sem reist hefur verið af Sunnuhlíðarsamtökunum, verður formlega
tekin í notkun I dag, fóstudaginn 17. nóvember.
Breytingar á leiðakerfí SVR:
Leiðir samein-
aðar o g lengdar
Ný hraðferð Lækjartorg - Keldnaholt
STJÓRN Strætisvagna Reykjavíkur hefiir ákveðið nokkrar breyt-
ingar á leiðakerfi vagnanna og taka þær gildi í desember þegar
nýja skiptistöðin í Mjóddinni í Breiðholti verður tekin í notkun.
Meðal breytinga má nefna að leið 1, Lækjartorg - Norðurmýri og
leið 16, Lækjartorg - Eiðsgrandi verða sameinaðar og leið 4,
Hagar - Sund verður Hagar - Mjódd. Þá verða leið 18, Breiðholt
- Árbær. og leið 19, Laugalækur - Álfabakki lagðar niður og boð-
ið upp á nýja hraðleið, leið 115, Lækjartorg - Keldnaholt.
Að sögn Sveins Björnssonar ar undir leiðarnúmeri 1 og heitir
forstjóra Strætisvagna Reykjavík- þá Hlíðar - Eiðsgrandi en aksturs-
ur, verða leiðir 1 og 16 sameinað- leið beggja núverandi leiða verður
nánast óbreytt. Leið 2, Grandi -
Vogar fer um Vesturgötu, Fram-
nesveg, Hringbraut, Ananaust og
Grandagarð að endastöð í Örfiris-
ey og sömu leið tii baka en á kvöld-
in og um helgar fer vagninn ekki
Iengra en að Grandagarði 2.
Leið 3, Nes - Háaleiti mun fara
af Öldugötu yfir á Hringbraut um
Hofsvallagötu og Túngötu og leið
4, Hagar - Mjódd mun aka úr
vesturbænum að nýju skiptistöð-
inni í Breiðholti. Núverandi enda-
stöð er við Holtaveg en eftir breyt-
inguna mun vagninn haldi áfram
Skútuvog, Reykjanesbraut,
Stekkjarbakka að skiptistöðinni í
Mjóddinni á suðurleið og um Súð-
arvog og Skútuvog á norðurleið.
Við lengingu leiðarinnar þarf að
fjölga vögnum á þessari leið úr
flórum í fimm. Þetta fyrirkomulag
gildir frá mánudegi til föstudags
milli kl. 07 til 19 en á kvöldin og
um helgar verður akstrinum hag-
að eins og hann er nú.
Nokkur breyting er á leið 15A
og mun einn vagn ganga á klukk-
utíma fresti frá Keldnaholti um
Lokinhamra á leið að og frá
Hlemmi. Á kvöldin og um helgar
verður settur inn auka vagn og
ekið á hálftíma fresti á Lækjartorg
um Hlemm eins og nú er gert,
með endastöð við Fjallkonuveg -
Gagnveg. Leið 15B ekur óbreytta
leið að öðru leyti en því að árdeg-
is eftir að hann hefur ekið um
Borgarmýri ekur hann áfram
Vesturlandsveg og inn í Grafar-
vogsbyggðina austan frá um
Gagnveg á leið að Hlemmi eða
rangsælis en síðdegis er sama leið
ekin réttsælis.
Endastöð leiðar 15C Grafarvog-
ur - Breiðholt flyst frá Álftahólum
i skiptistöðina i Mjódd. Síðdegis
breytist áætlun vagnsins til þess
að hann nýtist betur fólki í lok
vinnudags. í fyrstu ferðum að
morgni er ekið eins og leið 18
gerir í dag en eftir kl. 07 hefst
reglulegur akstur og er þá í fyrstu
ferð ekið um Austurberg - Vestur-
berg vegna Fjölbrautarskólans.
Ný hraðleið 115 Lækjartorg -
Keldnaholt mun aka á klukkutíma
fresti og verða viðkomustaðir vest-
an Elliðaáa nánast þeir sömu og
á leið 100. Með því móti myndast
tengsl við Landspítala og Háskól-
ann.
Ráðgert hafði verið að breyta
ferðum um Árbæjarhverfi en
vegna takmarkaðs vagnakosts er
ekki hægt að koma upp tengingu
milli Seláss og skiptistöðvar í
Mjódd. Af því leiðir að fresta verð-
ur fyíirhuguðum breytingum á
akstri vagnanna um hverfið.