Morgunblaðið - 17.11.1989, Blaðsíða 40
MORGIJXBLAUII) FÖiSTUQAQm 17-. NÓVEMBER )989-
40
Sálarstríð
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Regnboginn
Hin konan — Another Woman
Leikstjóri og handritshöfundur
Woody Allen. Aðalleikendur Gene
Rowlands, Mia Farrow, Gene
Hackman, Ian Holm, Sandy Denn-
is. Bandarísk. Orion 1988.
Rowlands leikur konu sem telur
sig hafa stjórn á hlutunum en kemst
á snoðir um annað er hún fer að
fara ofaní saumana á sínum máliim
eftir að hlusta á samræður í næsta
herbergi milli sálfræðings og konu,
(Farrow), sem á ýmsan hátt virðist
svipað á komið með. En yfirborðið
er slétt og fellt. Rowlands, sem er
háskólaprófessor, og læknirinn mað-
ur hennar (Holm), eru dæmigert
millistéttarfólk í New York. Bæði
velættuð og vel á sig komin. En til-
vera þeirra svo dæmalaust innantóm
þrátt fyrir óperu- og leikhúsferðir,
endalaus matarboð og vitsmunalegar
samræður. Það stefnir því í uppgjör
Rowlands við umhverfi sitt.
Enn dregur Allen áhorfendur niðúr
í svartnætti og sálarstríð hugarsmíða
sinna, á köflum svo minnir á sænsk
vandamálaverk. Hin konan telst því
ekki skemmtimynd, drungalegar per-
sónur dragnast með enn drungalegri
vandamál í dapurlegu umhverfi. Það
er fjandakornið ekki ljósan punkt að
finna. En í grámyglunni allri má þó
greina góða spretti hjá handrits-
höfundinum Allen, samtölin bragð-
mikil á köflum og þá bregður fyrir
því gamalkunna, oft meinlega skop-
skyni sem var meginstoð og beinið í
nefi Allens á meðan hann var að
bijóta sér leið til heimsfrægðar frá
því að grínast og þenja klarinett á
annarsflokks búlum í New York.
Enda saknar maður þess Allens sem
gerði snilldarverkin Annie Hall, Man-
hattan, Broadway Danny Rose,
Hanna og systur hennar, ofl., ofl.,
eftir að hafa barið þessi vitsmunalegu
leiðindi augum.
Að venju er leikhópurinn framúr-
skarandi, enda aðal myndarinnar og
Allen missir aldrei tökin á leikendum
sínum. Rowlands ber myndina uppi
í þunglamalegu meginhlutverkinu
sem hún skilar af aðdáunarverðu inn-
sæi. Síðan kemur hópur valinkunnra
leikara, þá á ég við Leikara með stór-
um staf, til sögunnar, flestir í litlum
en þó veigamiklum hlutverkum;
Farrow, Dennis, Yulin, Hackman,
Plimpton og hinn sérkennilegi Breti
Ian Holm, sem smellur inní New
York intelligensíuna. Og fleiri mætti
nefna. Tæknivinna öll með ágætum,
kvikmyndatakan í sérflokki að-venju,
enda enginn annar en Nykvist við
stjórnvölinn. Vel leikin, áhugaverð
leiðindi.
• Er hollenskt?
• Er í grænum umbúóum?
• Veróur kynnt x Casablanca í kvöld?
• Bragóast vel og rennur ljúft?
MIÐAVERÐ (m mat) 3600 kr. Húsið opnar kl. 19
KOSTABOÐ: Aðgöngumiði með mat og gisting í eina
nótt i tveggja manna herbergi með morgunmat 5150 á mann
(Gildir jafnt fyrir borgarbúa sem aöra landsmenn )
Pontunarsimi: Virka daga ira kl 9-17. s 29900
Foslud oglaugard eftirkl 17. s 20221
DANSLEJKLJR 2130-03
EINSDÆMI
sérum fjöriö
Miöaverö 750
mi4 rni ri^rjTj
BILLIARD
P00L
Það er fátt
skemmtilegra
en það.
Bjóðum upp á 17 borð,
þaraf 4ra borða sal
fyrirstærri hópa.
Aðaukitölvuspil,
„jukebox" o.fl.
Komdu og
láttu sjá big!
Billiardstofan,
Hverfisgötu 46,
sími 27913.
Opið alla daga
frákl. 11.00-23.30
nema sunnudaga
frákL 14.00-23.30.
Hin qeysivinsæli
dúett
„Við“
leika fyrir gesti Ölvers
í kvöld.
Opið frá kl. 11.30-15.Ö0
og 18.00-03.00.
Aðgangurókeyps.
I
Júlíus Saga Bessi Kjartan
Brjánsson Jónsdóttir Bjarnason Bjargmundsson
Sameinaði grínflokkurinn
sýnir
DÉ LÓNLÍ BLÚ BOJS
Hljómsveitin Sjöund
frá Vestmannaeyjum ásamt söngkonunni
Gígju Sigurðardóttur
RÚNARS JÚLÍUSSONAR
Hljómsveit Stefáns P.
MÁNASALUR
Fimm ogsjö rétta matseðill íokkar
stórglæsilega sal á 3. hœð
óll föstudags- og laugardagskvöld.
Opnum kl. 19 fyrir matargesti.
Marg rómaður matseðill -
Borðapantanir í síma 29098.
— Á næstunni —
Satitci
Næstu sýningar:
Laugardagskvöldið 18. nóvember,
föstudagskvöldið 24. nóvember,
laugardagskv. 25. nóvember
Sami miði gildir á allar hæðir!
^Stuðm^uppsve^u