Morgunblaðið - 17.11.1989, Page 47
MORGUNBLAÐIð IÞROI IIRFÖSTUDAGUfi 17.,J4ÓV,EMBER 1989
47
GETRAUNIR /1X2
lón H. Magnússon
Jón
kannar
aðstæður
Jón Hjaltalín Magnússon,
formaður HSÍ, kom til Brat-
islava í gær — hálftíma fyrir
leik. Hann fer til Gottwaldó í
dag til að kanna aðstæður, en
leikir íslands í riðlakeppni HM,
sem hefst 28. febrúar, fara þar
fram.
Leikstaður verður skoðaður
og einnig dvalarstaður íslenska
liðsins, en ljóst er að eftir reynsl-
una hér við Bratislava (í
Stupava) munu forráðamenn
óska eftir betri stað. Bogdan
vill ekki að leikmenn sínir verði
settir í einangrun uppi í sveit.
Það tekur tvo tíma að aka til
Gottwaldo, sem er 70.000
manna borg, frá Bratislava, þar
sem leikirnir í milliriðlinum fara
fram á HM.
ÚRSLIT
Handknattleikur
3. deiid karla:
Fyikir — Fram b................ 14-29
KRb-UMFA........................19:30
2. deild kvenna:
Selfoss —ÍR.....................25:20
Körfuknattleikur
1. deild karla .
UMSB-ÍS..........................77#
Lokastaða 1. riðils
Lokastaðan í 1. riðli Evrðpuriðils heims-
meistarakeppninnar i knattspymu var röng
í blaðinu í gær. Hér birtist staðan eins og
hún átti að vera:
Rúmenía..............6 4 1 1 10: 5 9
Ðanmörk..............6 3 2 1 15: 6 8
Grikkland............6 1 2 3 3:15 4
Búlgaria...:.........6 114 6: 8 3
■Rúmenía fer í úrslitakeppnina á ítaliu
næsta sumar'.
- sagði Bogdan landsliðsþjálfari
eftir slæman leik og tap gegn
úrvalsliði Hvíta Rússlands
„ÞAÐ hefur komið í Ijós hérna tvo síðustu dagana að landsliðs-
mennirnir eru ekki í nægilega góðri æfingu. Alla samæfingu
vantar að auki,“ sagði Bogdan landsliðsþjálfari eftir sjö marka
tap gegn úrvalsliði Hvíta Rússlands, 29:22, í Bratislava ígær.
Hann vildi ekki svekkja sig á því að ræða meira um þennan leik.
Þorgiis Óttar tók í sama streng. „Það pirrar menn að geta ekki
stillt upp okkar sterkasta liði — við höfum ekki verið með fullskip-
að lið síðan í París,“ sagði fyrirliðinn.
Fljótlega kom í ljós að baráttu-
neistann vantaði í íslenska
landsliðið. Varnárleikurinn var
slakur og markvarslan eftir því —
sóknarleikurinn
SigmundurÓ. ekki nærri _ nógu
Steinarsson yfirvegaður. Á sama
skrifar frá tíma og markvörður
Tékkoslovakiu Hvíta Rússlands
varði 16 skot varði Guðmundur
Hrafkelsson ekki nema fjögur skot,
þar sem ísland vann boltann.
Jafnt var á öllum tölunum upp í
4:4, en þá skildu leiðir. íslending-
amir skomðu ekki mark í átta
mínútur, Sovétmennirnir nýttu sér
það, komust í 9:4 og voru yfir,
15:11, í leikhléi.
Þeir héldu áfram að auka við
forskot sitt í seinni hálfleik og var
munurinn mest níu mörk, 26:17,
en lokatölur urðu 29:22, sem fyrr
segir.
Leikmennirnir vom ekki nógu
einbeittir. Þeir misnotuðu fimm
vítaköst; Óskar Ármannsson skaut
framhjá, Sigurður Gunnarsson lét
verja tvö vítaskot frá sér og Júlíus
Jónasson og Héðinn Gilsson, sem
var tekinn úr umferð nær allan
tímann, sem hann var inná, létu
vetja sitt kastið hvor. Sóknamýt-
ingin var aðeins 44%. Bestu leik-
menn íslenska liðsins vom Þorgils
Óttar Mathiesen og Bjarki Sigurðs-
son. Liðið var skipað sömu mönnum
og í fyrrakvöld, sem töpuðu fyrir b
liði Tékkóslóvakíu.
Mörkin: Þorgils Óttar Mathiesen
6, Bjarki Sigurðsson 5, Héðinn Gils-
son 5, Óskar Ármannsson 3/2, Jak-
ob Sigurðsson 1, Sigurður Bjama-
son 1 og Júlíus Jónasson 1/1.
Guðmundur Hrafnkelsson var í
markinu nær allan leikinn og varði
átta skot, þar af fjögur, er knöttur-
inn fór aftur til mótheijanna.
SigmundurÓ.
Steinarsson
skrifarfrá
Bratislava
ÍHémR
FOLX
■ BJARKI Sigurðsson hélt upp
á 22 ára afmælisdag sinn í gær
með því að vera útnefndur besti
leikmaður íslenska liðsins og fékk
postulínsskál að
launum.
■ BJARKI fékk
ekki ijómatertu í
gær, en aftur á móti
var leikmönnum íslenska liðsins
boðið upp á hádegisverð, sem að-
eins þrír borðuðu! Verður ekki ann-
að sagt en að leikmenn séu vægast
mjög óhressir með matinn — hafa
ekki fengið almennilegt að borða
allan tímann.
■ ÞRÍR leikmenn íslenska liðsins
yfirgáfu hópinn kl. fjögur í nótt sem
leið. Þorgils Óttar hélt heim á leið,
Geir Sveinsson til Spánar og Jú-
líus Jónasson til Frakklands.
■ BÚNINGUR Hvíta Rússlands
vakti athygli í gær. Leikmennimir
léku í rauðum treyjum og appelsínu-
gulum buxum.
■ TÉKKAR a og b léku skrípa-
leik í gær, þar sem a-liðið vann
30:21. Leikmenn liðanna tóku ekk-
ert á í vörn.
I JÓN Hjaltalín Magnússon var
ekki yfir sig ánægður eftir leikinn.
Hann sagði að alla baráttu hefði
vantað í vömina. Leikmennirnir
hefðu ekki verið nógu vakandi til
að tala saman.
■ JÚGÓSLA VÍA átti upphaflega
að vera með í mótinu, en hætti við
og kom Hvíta Rússland í staðinn.
H TÉKKINN sem er að.stoðar-
maður hjá íslenska liðinu; nuddari,
handklæðavörður og vatnsberi, auk
þess að að sjá um að útvega samlok-
ur og gos, heitir Vládimir Binka.
Hann var nuddari tékkneska lands-
liðsins 1988 en hleypur nú um allt
í íslenska landsliðsbúningnum.
mwR
FOLK
Þorgils Óttar Mathiesen, fyrirliði, stóð sig vel í gær og gerði sex mörk.
Hann verður ekki með gegn Tekkum í dag — hélt áleiðis heim í nótt.
Spámaður
vikunnar:
Sextíu krónur
urðu að milljónum
Tveir tipparar höfðu ástæðu til að brosa breitt, er úrslitin lágu fyrir
urn síðustu helgi. Báðir keyptu einfaldan seðil fyrir 60 krónur að
morgin laugardags og stóðu uppi með tæpar þijár milljónir hvor að kvöldi
— fengu 2.928.088 krónur í vinning fyrir 12 rétta leiki. 30 raðir komu
fram með 11 réttum og fékk hver röð 49.327 krónur í sinn hlut.
Sjónvarpsieikur QPR og Liverpool fór illa með marga tippara, en að
þessu sinni verður sýnt beint frá Vestur-Þýskalandi, Gladbach — Uerding-
en, sem er einmitt fyrsti leikurinn á seðlinum.
Hópurinn SOS er enn efstur í hópleiknum með 102 stig. Sílenos er í
öðru sæti með 100 stig. í fjölmiðlakeppninni er Bylgjan efst með 58 stig,
en Alþýðublaðið er næst með 57 stig. Guðni Bergsson, spámaður Morgun-
blaðsins, var með sjö rétta.
1X 2 1 ■■■■■■■■ 2 1X 1 1 2 1 1 2 # lll Morgunblaðið > Q UUILUJl C c *> «o ‘O ]a Dagur Ríkisútvarpið Bylgjan CVJ «o :0 5) Stjarnan «o 16 (0 JD 3 «o -Q. < C cu ‘55 >* -Q «o ‘O X Samtals
1 X 2
Gladbach — Uerdingen 1 1 1 1 2 2 1 2 1 1 1 8 O 3
Arsenal —QPR 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 11 0 0
A. Villa — Coventry 1 1 X 2 1 1 1 1 1 1 1 9 1 1
Chelsea — South'ton X 1 1 1 1 X 1 1 X 1 X 7 4 0
C. Palace —Tottenham 2 2 2 2 2 2 2 2 2 X 2 0 1 10
Derby — Sheff. Wed. 1 1 1 1 1 1 1 X 1 1 1 10 1 0
Everton — Wimbledon 1 1 X 1 1 1 1 X 1 .1 1 9 2 0
Luton — Man. Utd. 1 2 2 2 2 X 2 2 2 X 2 1 2 8
Man. City — Nott. For. X X X 2 2 2 2 2 2 X X 0 5 6
1X 2 1X Norwich — Charlton 1 1 1 1 1 1 1 X 1 1 1 10 1 0
Portsmouth — WBA 1 1 X 1 X X 1 X X 1 2 5 5 1
Wolves — Blackburn 1 1 X X 1 1 1 X X 1 X 6 5 0
■ NORMAN Whiteside, miðvall-
arleikmaður hjá Everton, hefur
verið skorinn vegna meiðsla í hásin
og verður frá í a.m.k. mánuð. Mike
Newell, aðal markaskorari Ever-
ton, meiddist í leik B-landsliði Eng-
lands gegn Ítalíu á þriðjudag og
verður varla með um helgina.
■ SEPP Piontek hefur ákveðið
að halda áfram sem landsliðsþjálf-
ari Dana í knattspymu, þrátt fyrir
yfirlýsingar á hinn veginn eftir tap-^-
ið gegn Rúmenum í fyrradag.
Hann verður með liðið næstu fjögur
ár. Þetta var tilkynnt í flugvélinni
á leið frá Rúmeníu til Danmerk-
ur, eftir leikinn á miðvikudag.
Guðmundur
Torfason
Guðmundur Torfason,
landsliðsmaður í knatt-
spymu og leikmaður með St.
Mirren, gerir ráð fyrir óvænt-
um úrslitum. „Ray Wilkins
skorar í sínum fyrsta leik með
QPR og tryggir liðinu sigur.
Manchester United hefur allt-
af verið mitt lið,“ sagði Guð-
mundur um leið og hann spáði
Luton sigri.
„Mér sýnist að baráttan
verði fyrst og fremst á milli
Arsenal og Liverpool — hin
liðin halda þetta ekki út. Hér
í Skotlandi verður þetta
hníflafnt, en Rangers er með
stöðugasta liðið. Við stefnum
enn á að tryggja okkur sæti í
Evrópukeppninni," sagði mið-
heijinn, sem er markahæstur
hjá St. Mirren með sjö mörk
(þar af eitt í bikar).
KN ATTSP YRNUÞ JÁLF ARIÓSKASI
Knattspyrnufélagið Huginn á Seyðisfirði óskar
eftir að ráða knattspyrnuþjálfara fyrir næsta
keppnistímabil.
Upplýsingar í síma 97-21541 eftir kl. 19.00 (Sig-
urður).
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
„Alla samæfingu vantar“