Morgunblaðið - 17.11.1989, Page 48
Kringlan 5
Sími
692500
E/NKAREIKNINGUR Þ/NN
í LANDSBANKANUM: .
FOSTUDAGUR 17. NOVEMBER 1989
VERÐ I LAUSASOLU 90 KR.
Landsfundur Alþýðubandalagsins:
Ráðherra gagn-
rýndi drögin að
nýrri stefhuskrá
STEINGRÍMUR Sigfusson, sam-
gönguráðherra, sagði á lands-
fundi Alþýðubandalagsins í gær-
kvöldi að hann hefði aldrei séð
drög að nýrri stefnuskrá flokks-
ins, sem liggur fyrir fundinum,
fyrr en hann fékk þau send með
öðrum landsfundargögnum.
Kjarvals-
flaska á
uppboði
Flöskuna á myndinni málaði
Jóhannes Kjarval einhvern
tímann á árabilinu 1948-49,
samkvæmt þeim heimildum
sem Morgunblaðið hefur aflað
sér. í kjölfarið mun hann hafa
málað nokkrar til viðbótar, sem
boðnar voru upp hjá Stúdenta-
félagi Reykjavíkur í fjáröflun-
arskyni. Þessi flaska verður á
uppboði hjá Klausturhólum í
byijun næsta mánaðar og mun
það vera í fyrsta skipti sem
svona flaska er seld á opinberu
uppboði. Flaskan hefur verið í
einkaeigu frá upphafi.
%
Morgunblaðið/RAX
Væri hann þó í framkvæmda-
stjórn, miðsljórn, þingflokki og
ráðherraliði flokksins.
Drögin voru unnin af nefnd sem
framkvæmdastjórnin skipaði til að
endurskoða stefnuskrána í kjölfar
síðasta landsfundar Alþýðubanda-
lagsins. Steingrímur sagðist setja
spurningamerki við þessi drög og
fara fram á að það væri gert skýrt
og ljóst hvað þarna væri á ferð-
inni, en ekki vitnað til þess sem
grundvallarplaggs um það sem
flokkurinn hafi viljað vera á undan-
förnum árum en ekki komið sér til
að gera.
Steingrímur hafnaði einnig til-
lögu félaga úr Birtingi um að Al-
þýðubandalagið gangi í Alþjóða-
samband jafnaðarmanna. Svavar
Gestsson, menntamálaráðherra,
hafði áður tekið í sama streng.
Sjá einnig frétt á blaðsíðu 4.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Ofankoma á Akureyri
Látlaus snjókoma var á Akureyri í gær og mikil hálka á götum
bæjarins og vegum í nágrenninu. Síðari hluta dags var færð víða
tekin að þyngjast, en stöllurnar á myndinni héldu þó sínu striki.
8 ára dreng-
ur varð fyr-
ir skólabíl á
Sauðárkróki
ALVARLEGT slys varð á Sauð-
árkróki í gær, er átta ára gam-
all drengur varð fyrir skólabíl.
Drengurinn var fluttur meðvit-
undarlaus með flugvél tií
Reykjavíkur í gærkvöldi mikið
slasaður, einkum á höfði og
síðu.
Tildrög slyssins voru þau, að
sögn Bjöms Mikaelssonar yfirlög-
regluþjóns, að bílnum var ekið eft-
ir Freyjugötu um fimmleytið. Þeg-
ar komið var móts við skólann, kom
hópur barna hlaupandi eftir
göngustíg. Drengurinn sem slasað-
ist virðist hafa verið fremstur í
hópnum og hafa lent framan á
bílnum, en virðist ekki hafa farið
undir hjólin.
30-40 börn voru í bílnum og
köstuðust til þegar ökumaðurinn
hemlaði, en meiddust ekki telj-
andi. Björn segir ekkert benda til
að bílnum hafi verið ekið óeðlilega
hratt. Engin vitni að slysinu höfðu
gefið sig fram í gærkvöldi.
Sjávarútvegsráðherra vissi ekki um olíukaupasamninginn fyrir undirritun:
Undirritun samnings um olíu-
kaup vekur furðu og hneykslan
- segir Kristján Ragnarsson formaður LÍÚ - Viðræður um freðfiskkaup hefjast á mánu-
dag og um reynsluna af viðskiptasamningi íslendinga og Sovétmanna á miðvikudag
HALLDÓR Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra sagði í samtali við
Morgunblaðið að það hefði komið honum á óvart að samningur um
kaup á olíu frá Sovétríkjunum skyldi hafa verið undirritaður á þriðju-
daginn. Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra sagði að undirritunin hefði
ekki átt að koma sjávarútvegsráðherra á óvart, þar sem hann hefði
vitað að samningar um kaup á olíu frá Sovétríkjunum væru gerðir
á þessum árstíma. Samningaviðræður við Sovétmenn um freðfisk-
kaup þeirra á næsta ári hefjast í Moskvu á mánudag.
Kristján Ragnarsson, formaður
Landssambands íslenskra útvegs-
manna, sagði á aðalfundi LIU í gær
að furðu og hneykslan vekti að við-
skiptaráðherra skyldi hafa undirrit-
að samning um kaup á olíu fyrir
57 milljónir Bandaríkjadala þegar
beðið væri eftir að sovésk stjórn-
völd samþykktu kaup á saltsíld fyr-
ir um 16 milljónir dala.
Halldór Ásgrímsson sagðist ekki
vilja leggja mat á það hvort eðlilegt
væri að skrifa undir samning um
kaup á olíu frá Sovétríkjunum áður
en sovésk stjórnvöld væru búin að
staðfesta samning um saltsíldar-
kaup héðan og sagðist ekki hafa
haft vitneskju um hann. „Það er
að sjálfsögðu alltaf matsatriði
hvernig standa skuli að þeim marg-
þættu samningum sem eru í þessum
*
Akvörðun byggingarnefiidar Þjóðleikhússins um breytingar aðalsal:
Hækkun á gólfi og einar svalir
Á FUNDI byggingarnefhdar Þjóðleikhússins i gær samþykkti
nefndin samhljóða breytingar og verkþætti sem framkvæmdir
verða í Þjóðleikhúsinu á næsta ári á því tímabili sem ákveðið
hefur verið að loka aðalsviði, frá 22. febrúar og fram að jólasýn-
ingu næsta ár. Gólf aðalsalar verður hækkað og efri og neðri
svalir sameinaðar í einar svalir, en veggir, loft, stúkur og fleira
verður ýmist óbreytt eða fært í upprunalegt horf. Reiknað er
með að framkvæmdir á næsta ári kosti um 350 millj. kr.
Fyrsti áfanginn kostar sam-
kvæmt áætlun liðíega 500 millj.
kr. á verðlagi septembermánaðar,
en þar er um að ræða lagfæring-
ar og viðhald á aðalsal, allri að-
stöðu fyrir leikhúsgesti á göngum
og í hliðarsölum og anddyri og
einnig í Þjóðleikhúskjallara. Á
næsta ári er áætlað að ljúka við
aðalsal og Kristalssalarhæð auk
3. hæðar. Einnig verður byijað á
byggingu tækjaklefa neðanjarðar
austan við leikhúsið. Bygging
lyftu fyrir hreyfihamlaða leikhús-
gesti og aðra sem þurfa að nota
slíka þjónustu verður byggð í
næstu lotu. Breytingarnar sem
hafa verið ákveðnar miðast við
að bæta verulega sjónlínur og
hljómburð í húsinu, en í frum-
teikningum Guðjóns heitins
Samúelssonar húsameistara, sem
Gólf í sal verður hækkað og svölum slegið saman í einar.
teiknaði húsið, var gert ráð fyrir
einum svölum eins og nú hefur
verið ákveðið að gera.
Sjá ennfremur á bls.
20.
viðskiptum," sagði Halldór.
Sovéski sendiherrann í Reykjavík
gekk á fund Jóns Sigurðssonar við-
skiptaráðherra í gær. „Sendiherr-
ann vísaði til ráðuneytis utanríkis-
viðskipta í Sovétríkjunum, sem telur
að báðir aðilar muni sýna skynsam-
legan og gagnkvæman áhuga á að
leysa þetta mál, sem er nú hjá sov-
éskri ráðherranefnd, og ég er von-
góður um að það leysist á næstu
dögum," sagði Jón.
Hann sagði að athuga þyrfti
mjög gaumgæfilega hvort rétt væri
að gefa olíuviðskipti Islendinga
fijáls. „Nú hefur það reyndar verið
svo að olíufélögin hafa flutt inn frá
öðrum löndum þegar ástæða hefur
gefist til þess. Állt þetta mun koma
til athugunar fram til þess að gert
verður nýtt samkomulag við Sov-
étríkin að liðnum gildistíma þess
samkomulags, sem hefur verið í
gildi fyrir árin 1986 til 1990. Yfir-
litsviðræður um reynsluna af við-
skiptasamningi þjóðanna og fram-
kvæmd hans í ár og í fyrra hefjast
í Moskvu 22. þessa mánaðar og ég
vona að botn verði fenginn í síldar-
sölumálið fyrir þann tíma.
Annars vegar er gerður samning-
ur við olíufyrirtæki um olíukaup og
hins vegar fiskinnflutningsfyrirtæki
um fiskkaup og milli þeirra er ekk-
ert stjórnskipulegt samband í Sov-
étríkjunum um einstakar ákvarðan-
ir. Það verða náttúrulega ennþá
minni tengsl á milli einstakra við-
skiptasamninga, eða kaupsamn-
inga, heldur en áður var vegna
þess að nú er sovéska hliðin marg-
skipt,“ sagði Jón Sigurðsson.