Morgunblaðið - 03.12.1989, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 03.12.1989, Blaðsíða 11
MORGUHBLAÐIÐ ,SUNNUDAGUR 3, DESEMBEjl 19,89 , • %Jlr ANDAÐAR BÆKUR - lifandi efni Birgir Sigurðsson segir sögu síldarævintýranna miklu - Stefán Jónsson lýsir lífsgleði á tréfæti - Ljóðabækur - Sígildar barnabækur - Minningar tveggja kvenna - Heimsbókmenntir á íslensku - Sögur eftir Guðberg Bergsson, Svövu Jakobsdóttur og Birgi Sigurðsson Birgir Sigurðsson SVARTUR SJÓR AF SÍLD Síldarœvintýrin miklu á sjó og landi Síldarárin eru sveipuö ævintýraljóma. Síldin var nefnd silfur hafsins, gull Islands. Hún var óútreiknanleg kenjaskepna. Hún gerði menn að milljónerum og beiningamönnum, réð örlögum manna og efnahagslífi þjóðarinnar. Hér eru leiddir fram sildarspekúlantar, aflakóngar, sfldar- stúlkur, hásetar og verkamenn. Furðulegar uppákomur, stór- skemmtileg og spaugileg atvik, rómantík og fegurð, þrældómur og vonbrigði vefjast saman í lifandi og spennandi frásögn. Sfldarstemmingin sjálf til sjós og lands í öllu sínu veldi. Sigrún Eldjárn KUGGUR, MOSI OG MÆÐGURNAR Þriðja bókin um Kugg og vini hans. Núna bregða þau sér á skauta og vinda sér í kökubakstur með óvæntum afleiðingum. Dag nokkum er svo friðurinn á Þjóðminjasafn- inu rofinn þegar þau birtast þar í heimsókn. Rúmlega 40 litmyndir eftir höfundinn. Sól Hrafnsdóttir FEITI STRÁKURINN Einu sinni var stór og feitur strákur sem átti litla mömmu óg lítinn pabba. Strákurinn var sísvangur og alltaf þurfti mamma hans að vera að búa til mat. En græðgin kann ekki góðri lukku að stýra. Söguna samdi Sól þegar hún var 7 ára. Stefán Jónsson LÍFSGLEÐI Á TRÉFÆTI MEÐ BYSSU OG STÖNG Ævilangt hefur Stefán skoðað umhverfi sitt augum veiðimanns með öllu kviku og kyrru - í öllu starfi sínu hefur.hann athugað viðfangsefnin af sjónarhóli veiðimannsins og glímt við þau með aðferðum hans. Oðrum þræði er þetta lýsing ástríðunnar að veiða, sem er réttlæting þess að lifa - þrátt fyrir allt. En utan um þá sögu lykst önnur saga af sálarháska ungl- ings sem svipti hann lífsgleðinni um árabil, uns hann fann hana aftur. Þetta er margslungin saga - full af mannviti, hjartahlýju og óborganleg- um húmor. Annabel Craig - Cliff Rosney HEIMUR VÍSINDANNA Þessi litríka bók hefur að geyma ógrynni af hagnýt- um fróðleik um heim vísindanna. Hvaðan koma eldingarnar? Hvers vegna renna árnar niður í móti? Geta tölvur hugsað? ' Fjöldi litmynda gerir flókna hluti svo auðskilda að hvert bam getur notið bókarinnar. Ævintýri barnanna ÖSKUBUSKA - STÍG- VÉLAÐI KÖTTURINN - ALADDÍN OG TÖFRA- LAMPINN Sígild ævintýri sem börn hafa skemmt sér við kynslóð fram af kynslóð. Hér eru þau endursögð við hæfi yngstu barnanna. Þorsteinn skáld frá Hamri þýddi og endursagði. Ólafur Gunnarsson FALLEGI FLUG- HVALURINN Ævintýrið um litla hvalinn sem gat flogið um allan heim. Og þegar sólinni ofbauð vonska heimsins og ákvað að hætta að skína, þá flaug UtH flughvalurinn upp til hennar... Sagan kemur samtímis út á íslensku, dönsku, norsku og sænsku. „Frábært ævin- týri“ (Morgunblaðið). FORLAGIÐ ÆGISGÖTU 10, SÍMI 91-25188 1á • 1 R H |\A Birgir Svan Símonarson Á FALLASKIPTUM Ljóðaunnendum mun þykja fengur að þessari bók sem hefur að geyma úrval ljóða úr átta ljóða- bókum skáldsins frá árunum 1975-1988. Birgir Svan hefur fyrir löngu skipað sér í fremstu röð ljóðskálda sinnar kynslóð- ar fyrir skorinorð og listfeng ljóð sín. Jónas Þorbjamarson í JAÐRI BÆJARINS Fyrsta ljóðabók ungs skálds sem á liðnu ári hlaut fyrstu verðlaun í ljóðasamkeppni Morgun- blaðsins. Svo glæsilegt byrjandaverk sem þetta sætir vissulega tíðindum í íslenskum bókmennta- heimi. í senn fágaður og íhugull skáldskapur. Guðbergur Bergsson ÁSTIR SAMLYNDRA HJÓNA Sígilt skáldverk sem vakti umræður og deilur á sínum tíma. Margir töluðu um umbyltingar- bókmenntir og að með sögum sínum hefði Guðbergur skapað hlut- gengar heimsbókmenntir á íslensku. Endurútgáfa í kilju.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.