Morgunblaðið - 06.12.1989, Page 1
56 SIÐUR B/C
279. tbl. 77. árg.
MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 1989
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Fyrrum ráðamenn Austur-Þýskalands settir í stofiifangelsi:
Sovétmenn hafna áætlun
um sameiningu Þýskalands
Allir yfírmenn öryggislögreglunnar segja af sér vegna harðrar gagnrýni
Framlágir austur-þýskir
öryggislögreglumenn sitja
aðgerðarlausir meðan
óbreyttir borgarar og Ijós-
myndarar snúa öllu við í
höfuðstöðvum lögreglunn-
ar í Leipzig í fyrrakvöld.
Stjórnarandstæðingar
lögðu bygginguna undir
sig er þeir leituðu að skjöl-
um er staðfesta eiga spill-
ingu helstu leiðtoga lands-
ins og embættismanna.
Austur-Berlín. Reuter.
EDÚARD'Shevardnadze hafnaði í gær alfarið áætlun Helmuts Kohls
kanslara Vestur-Þýskalands sem lögð var firam fyrir viku um samein-
ingu þýsku ríkjanna. Hans-Dietrich Genscher utanríkisráðherra kom
til Moskvu í gær til viðræðna við þarlenda ráðamenn. Að loknum þriggja
klukkustunda fimdi sagði Shevardnadze að sumir liðir sameiningar-
hugmynda Kohls væru íhlutun í innanríkismál Austur-Þýskalands.
Sovéska fréttastofan Tass hafði
eftir Shevardnadze að sameining-
aráætlunin myndi auka óróann í
Mið-Evrópu nú þegar stöðugleika
væri þörf. Haft er eftir ráðherranum
að krafa Kohls um að gerðar yrðu
óafturkræfar breytingar á efnahags-
og stjórnkerfi Austur-Þýskalands,
þar sem völdin yrðu tekin af komm-
únistaflokknum jafngiitu því að
kanslarinn væri að gefa fyrirskipan-
ir um innanríkismál annars ríkis.
Atburðarásin er nú hröð í Austur-
Þýskalandi. Tilkynnt var í gær að
ýmsir fyrrum ráðamenn landsins
fengju ekki að yfirgefa glæsileg
híbýli sín í Wandlitz-hverfi í Austur-
Berlín af ótta við að þeir flýðu ella
land. Meðal þeirra sem þannig er
haldið í hálfgerðu stofufangelsi eru
Erich Honecker, æðsti leiðtogi lands-
ins í 18 ár, Giinter Mittag, fyrrum
æðsti yfirmaður efnahagsmála, og
Joachim Herrmann, sem stjórnaði
áróðursmálum.
Gunter Wendland, ríkissaksóknari
Austur-Þýskalands, sagði af sér í
gær vegna ásakana um að hann
hefði ekki tekið spillingu valdhafa
nógu föstum tökum. Frásagnir af
óhófi og spillingu ráðamanna lands-
ins hafa dunið yfir undanfarnar tvær
vikur og þótti almenningi ríkissak-
sóknarinn bregðast hægt við frétt-
unum. Var honum meðal annars
kennt um að Alexander Schalk-
Golodkowski sem áður fór með ut-
anríkisviðskiptamál skyldi sleppa úr
landi.
Allir yfirmenn austur-þýsku ör-
yggislögreglunnar sögðu af sér í gær
vegna harðrar gagnrýni fyrir að láta
undir höfuð leggjast að grafa upp
spillingu, eins og austur-þýska
fréttastofan ADN orðaði það. Her-
deildir verkamanna voru einnig lagð-
ar niður í gær en þar var um nokk-
urs konar einkaher kommúnista-
flokksins að ræða. Að sögn Reuters-
fréttastofunnar fer miðstjórnarvald
nú óðum þverrandi í Austur-Þýska-
landi svo nálgast stjórnleysi.
Wolfgang Vogel, kunnasti lög-
maður Austur-Þýskalands, var
handtekinn í gær sakaður um mútu-
þægni. Vogel var náinn samstarfs-
maður Honeckers og átti oft ríkan
þátt í samningum milli austurs og
. vesturs um skipti á leyniþjónustu-
mönnum.
Höfðað hefur verið mál á hendur
114 fyrrum háttsettum embættis-
mönnum fyrir valdníðslu og spill-
ingu. Fyrirtækjum í eigu kommún-
istaflokksins sem tóku áttu í gjald-
eyrisviðskiptum hefur verið lokað á
meðan rannsókn fer fram og banka-
reikningum fyrrum flokksleiðtoga
hefur verið lokað. Utanríkisvið-
skiptadeild flokksins er nú líkt við
mafíu. í Leipzig og víðar í landinu
aðstoðar almenningur yfirvöld við
að fara yfir leyniskýrslur öryggislög-
reglunnar. Hugmyndir eru uppi um
að stofna borgararáð víðs vegar um
landið til að sjá um rannsókn á fjör-
utíu ára valdatíð kommúnista. Neyð-
arnefnd sú sem falin var stjórn
landsins á sunnudag eftir að öll for-
ystan sagði af sér hefur mælst til
þess að almenningur sýni sjálfstjórn
í „nornaveiðunum" ella væri
„skrílræði" á ferð.
Tilkynnt var í gær að Helmut
Kohl kanslari Vestur-Þýskalands
héldi til Austur-Berlínar 19. desem-
ber nk. til viðræðna við Hans
Reuter
Modrow forsætisráðherra landsins.
Vestur-þýsk stjórnvöld hafa ákveðið
að stofna sjóð til að auðvelda Aust-
ur-Þjóðveijum ferðalög ög innkaup
í Vestur-Þýskalandi. í staðinn er
aflétt öllum hömlum á ferðum-Vest-
ur-Þjóðveija til Austur-Þýskalands
og þurfa þeir nú t.d. ekki að skipta
25 vestur-þýskum mörkum í aust-
ur-þýsk í hvert skipti sem farið er
austur yfir landamærin.
Tékkóslóvakía:
Kommúnistar í minni-
hluta í liéraðsstjórn
Prag. Reuter.
LEIÐTOGAR kommúnistaflokks Tékkóslóvakíu féllust í gær á kröf-
ur Borgaravettvangs, samtaka tékkneskra umbótasinna, um að
fúlltrúar flokksins yrðu í minnihluta í héraðsstjórn tékkneska hluta
landsins. Er litið á það sem mikinn sigur fyrir samtökin.
Reuter
Tékkneskir stúdentar mótmæla við forsætisráðuneytið í Prag. I for-
grunni sést hluti þriggja inetra hás múrs sem þeir reistu umhverfis
bygginguna úr þúsundum pappakassa.
Frantisek Pitra verður áfram-
forsætisráðherra í héraðsstjórninni
og sjö flokksmenn til viðbótar eiga
þar sæti. Níu manna meirihluta
stjómarinnar mynda hins vegar
fimm óháðir ráðherrar, tveir úr
Sósíalistaflokknum og tveir úr
Þjóðarflokknum.
Umbótasinnar hafa einnig kraf-
ist þess að kommúnistum verði
fækkað í ríkisstjórn Ladislavs Ad-
amecs, forsætisráðherra Tékkósló-
vakíu. Hefur honum verið veittur
frestur fram að helgi til að verða
við kröfum þeirra ellegar verður
efnt til allsheijarverkfalls í landinu
næstkomandi mánudag.
Tugþúsundir stúdenta efndu til
mótmæla í miðborg Prag í gær og
kröfðust breytinga á stjórn Ad-
amecs. Reistu þeir þriggja metra
háan múr úr þúsundum pappa-
kassa umhverfis forsætisráðuneyt-
ið og sögðu stjórn Adamecs best
geymda bak við múra sem enginn
kæmist yfir nema fuglinn fljúgandi
því hún ætti engan hljómgrunn hjá
almenningi.
Helstu leiðtogar Borgaravett-
vangs með skáldið Vaclav Havel í
broddi fylkingar áttu nær klukku-
stundar fund með Adamec í gær.
Neituðu þeir að ræða við blaða-
menn en gáfu til kynna að hart
hefði verið deilt. Hermdu heimildir
að Adamec hefði boðið þeim svo-
nefnda „pólska“ lausn á deilunni
um stjórn landsins, þ.e. að komm-
únistaflokkurinn héldi embætti
forseta en stjóriTarandstaðan fengi
forsætisráðherra í nýrri stjórn.
Hefði hann gefið Vaclav og félög-
um frest til dagsins í dag að svara
tilboðinu. Sátu þeir á neyðarfundi
í gærkvöldi þar sem ijallað var um
það.
Adamec skipaði nýja stjórn sl.
sunnudag og setti hann kommún-
ista yfir 16 ráðuneyti af 21. Mikil
óánægja braust út þar sem hann
dreifði völdum ekki meira og efndi
stjórnarandstaðan til fjölmennra
mótmæla um land allt í gær og
fyrradag.
Thateher
hlaut 314 at-
kvæðiaf374
London. Reuter.
MARGARET Thatcher, forsæt-
isráðherra Bretlands, vann yfir-
burðasigur á Sir AnthonyMeyer
í leiðtogakjöri breska Ihalds-
flokksins í gærkvöldi. Sagðist
hún fagna eindregnum stuðn-
ingi sem hún sagði úrslitin sýna.
Ýmsir flokksmenn sögðu þau
tæpast nógu afgerandi og útilok-
uðu ekki að þau yrðu til þess
að hún fengi alvöru mótfram-
bjóðanda síðar.
Thateher hlaut atkvæði 314
þingmanna af 374 en Sir Anthony
33. Fjarverandi voru 24 þingmenn
og þrír skiluðu auðu. Ýmsir flokks-
leiðtogar töldu að telja yrði þessi
27 atkvæði gegn Thatcher. Úrslitin
þykja ekki nógu afgerandi fyrir
hana og hlaut hún færri atkvæði
en helstu stuðningsmenn hennar
höfðu vonast til að féllu henni í
skaut. Ekki hefur áður komið
framboð gegn henni frá því hún
tók við leiðtogastarfi af Edward
Heath, fyrrum forsætisráðherra,
1975.