Morgunblaðið - 06.12.1989, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 1989
móðir, vár hún snjöll í matreiðslu
og veitingum svo að öllum leið vel,
^em sóttu þau heim og þessa nutum
við hjónin oft.
Ingibjörg fylgdi manni sínum
ávallt á ferðum til að styrkja hann
og aðstoða hvort sem það voru at-
vinnuferðir ^ða ferðir \til að hvíla
sig frá daglegu amstri ienda kunni
Sigurður vel að meta það.
- Eiginmaður, börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn Ingi-
bjargar nutu óskiptrar ástar og
óþreytandi umhyggju hennar. Þau
þurftu þess oft með og sakna þess
nú að þessi hlífðarskjöldur, þeirra
sterka stoð og aðhlynning er brost-
in. Það, sem hægt var að halla sér
að þegar eitthvað bjátaði á er horf-
ið, en trúin hjálpar þeim, sem henn-
ar njóta. Við hittumst öll bak við
móðuna miklu í glaðværð og gagn-
kvæmum skilningi með þróun
lífsins.
Guð blessi alla syrgjendur og
minningu Ingibjargar.
Friðgeir Grímsson
Kveðja frá barnabörnum
Okkur langar í örfáum orðum
að minnast ástkærrar ömmu okkar,
Ingibjargar Ingimundardóttur sem
lést þann 26. nóvember síðastliðinn;
Margar minningar leita á hugann
á tímamótum sem þessum og sökn-
uðurinn er sár, en vitneskjan um
það að hún verður alltaf með okk-
ur, og að hvíldin var henni kærkom-
in eftir erfið veikindi er okkur hugg-
un.
Amma á Gullteig eða Inga amma
eins og við kölluðum hana var mjög
heilsteypt og ósérhlífin manneskja
og sjálfri sér samkvæm í einu og
öllu. Hún var mjög heimakær og
lét sér annt um fjölskyldu sína og
heimili. Alltaf var jafn gott að koma
til hennar. Við minnumst hennar
sem þeirrar konu sem alltaf var til
staðar þegar á þurfti að halda, hlý
og gefandi, og hefðum svo sannar-
lega viljað hafa hana lengur hjá
okkur.
Fyrir hönd fjölskyldunnar viljum
við gjarnan þakka læknum og
hjúkrunarfólki á deild A-4 á Borg-
arspítalanum fyrir þá góðu umönn-
un sem amma fékk þann tíma sem
hún lá þar, og að lokum langar
okkur til að kveðja elsku ömmu
okkar með þessum ljóðlínum sem
okkur finnst eiga svo vel við hana:
Héðan skal halda
heimili sitt kveður
heimilis prýðin í hinzta sinn.
Síðasta sinn
sárt er að skilja,
en heimvon góð í himininn. .
(Vald. Briem)
Kalli, Svala, Kristín, Andrea,
Oli, Svenni, Róbert og
Þórey.
I dag kveðjum við Ingibjörgu
Ingimundardóttur. Um langt árabil
hefur Inga, eins og hún var ávallt
kölluð, og maður hennar, Sigurður
Sveinbjörnsson, verið í hópi, sem
hefur árlega farið til laxveiða, okk-
ur öllum til mikillar ánægju og
hressingar. Reyndar voru Inga og
Sigurður upphafsmenn að þessum
ferðum og hafa alla tíð verið kjöl-
festan í þessum veiðihópi. Inga og
Sigurður voru skemmtilegir félag-
ar, en nú verður Ingu saknað úr
þessum hópi.
Við viljum hér þakka löng og
ánægjuleg kynni, en munum ekki
tíunda hér hið mikla starf sem Inga
hefur innt af hendi sem húsmóðir
á myndarlegu heimili og sem uppal-
andi fleiri kynslóða.
Inga var nett kona og kvik í
hreyfingum og jafnan fylgdi hún
Sigurði fast við veiðarnar. Margs
er að minnast frá þessum ferðum
okkar, sem jafnan fylgdu vorkom-
unni, og marga áttum við dýrðar-
daga við Miðfjarðará, þegar nóttin
er björt og laxinn bjartur, nú síðast
um Jónsmessuna í vor. Gott var að
; eiga Ingu og Sigurð að veiðifélög-
um, þau voru bæði hress og ung í
anda, og eins þó að aldur tæki að
færast yfir.
Oft var glatt á hjalla þegar heim
var komið að kveldi og afrek dags-
ins rædd. Við munum Ingu sem var
svo kankvís og elskuleg og lagði
39
alltaf gott til mála, og við munum
hin snöggu tilsvör Sigurðar, sem
mörg lifa meðal okkar félaganna.
Oft kom það fyrir að setið var nokk-
uð lengi fram eftir eins og gengur,
en Sigurður er mikill kappsmaður
við veiðar sem og annað sem hann
gengur til, hann fer ekki til veiða
bara til að horfa á blómin og hlusta
á fuglasönginn, og þegar honum
þótti mál að ganga til hvílu, stóð
hann upp og kallaði „Inga mín“ og
var þá gengið til náða að safna
kröftum fyrir nýjan veiðidág. Nú
hefur Inga hlotið að svara 'öðru
kalli.
Blessuð sé minning Ingu.
Veiðifélagar
BILASTÆÐASJOÐUR REYKJAVIKUR
Vesturoata 7 - bílastæðahús
Enn eru til föst mánaðarkortsstæöi.
Verð kr. 4.000.- á ntánuði.
Afgreiðsla korta er í varðskýli stæðisvarðar á Bakkastæði.
Gatnamálastjóri.
HUÓMPLATA
EFNI
PLÖTUNNAR:
Hlið 1:
1. Skósmiðadansinn
2. Fingrapolki
Karl gekk út um morguntíma
3. Kubbadansinn / Byggingadansinn
4. Vals
Það er leikur að læra
fcf væri ég söngvari
5. I skóginum stóð kofi einn
6. Upp ó fjall
7. Litlu andarungrnir
8. Það búa litlir dvergar
9. Tvö skref til hægri
10. Systkinadansinn
1 1. Klappfinale
12. Bangsadansinn
13. Kanntu brauð að baka?
Skottís/Tatjana)
Hlið 2:
1. Polki
Sigga litla systir mín
Afi minn fór ó honum Rauð
Afi minn og amma mín
Fljúga hvítu fiðrildin
2. Hans og Gréta (Hansemann)
3. Mallebrok
4. Svensk maskerade
5. Vínarkrus
6. Óli skans
7. Á hörpunnar óma (Enskur vals)
8. Komdu niður (Samba)
9. Snjókarlinn (Cha cha)
10. Fugladansinn
1 1. Lo Bostella
boksins er hljómplatan komin með 24 vinsælum óg sígildbm barnaleikjum og dönsum. Flest laganna eru líf-
lega sungin af hóp úr Kór Snælandsskóla. Við mörg laganna eru þekktir dansar og þroskandi leikir sem
allir ættu að kunna. Þessi skemmtilega plata hentar þess vegna einkar vel til danskennslu ekki síður en að
vera ómissandi í barnaafmælum og hvarsem börn eru annars vegar. Hún er því kærkomin eign allra barna.
Platan er unnin í góðri samvinnu við Hermann Ragnar og fleiri danskennara sem hafa séð til þess að hljóm-
fall laganna sé vel við hæfi barna. Allir með í dansinn — góða skemmtun!
SÍGILDAR KASSETTUR OG HUÓMPLÖTUR
I
VINSÆLA JÓLAPLATAN
JÓLABALLIÐ:
Þessi sígilda barnaplata er nú afturfóanleg fyrir
jólin. Hún hefur að geyma öll jólalögin sem
sungin eru við jólatréð með hinu sígilda formi
jólaballsins eins og við þekkjum það. Þessi
plata ætti að vera til ó öllum heimilum.
4LLIR >V1EÐ
Ómissandi gleðigjafar í veislurnar
og partýin:
Kassetturnar ALLIR MEÐ og ALLIR
MEÐ AFTUR, hvor um sig með 32
vinsælustu sönglögin — og allir geta
sungið með.
Verðskrá:
Allir með .............kr. 8-99.-
Allir með aftur kr 899.-
Jólaballið ............kr. 1.199,-
Barnadansar kr. ‘1.399.-
Við greiðum sendingarkostnaðinn!
Fyrir börn og annað gott tólk í hinum dreifðu byggðum landsins bjóðum við póst-
kröfusendingar kaupandanum að kostnaðarlausu. Fæst á plötu og kassettu.
Pöntunarsíminn er 91 - 678 150.
ALFA BETA ÚTGÁFAN — ALLIR MEÐ, Skeifunni 19, 108 Reykjavik.