Morgunblaðið - 06.12.1989, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 1989
íslenzkt varðskip til Norfolk
Flytur Kolfínnu Baldvinsdóttur, drottningn NATO-hátíðarinnar
Flórída. Frá Atla Steinarssyni fréttaritara Morgunblaðsins.
ISLENZKT varðskip siglir til Bandaríkjanna í vor og tekur þar m.a.
þátt í árlegri menningarhátíð aðildarríkja Atiantshafsbandalagsins.
Isiand verður í öndvegi meðal NATO-þjóðanna á þessari hátíð, en sá
heiður er veittur þjóðum til skiptis. Hápunktur hátíðarinnar er geysi-
mikil skrúðganga, þar sem „prinsessur“ þjóðanna sitja í fagurlega
skreyttum vögnum og síðastur fer vagn drottningarinnar, sem að
þessu sinni verður Kolfinna Baldvinsdóttir, dóttir Bryndísar Schram
og Jóns Baldvins Hannibalssonar utanríkisráðherra.
Sú hefð hefur skapast, að drottn-
ing hátíðarinnar hveiju sinrii, sigli
inn Chesapeak-flóann til Norfolk í
stafni herskips síns lands, og það
verður hlutverk islenzka varðskips-
ins að flytja Kolfinnu, drottningu
hátíðarinnar, þessa leið. Þessi hefð
verður því ekki rofin, né heldur sú
að dóttir háttsetts embættismanns
viðkomandi þjóðar sé í hásæti, því
í hlutverki drottninga hafa verið
dætur forseta, ráðherra eða sendi-
herra.
Auk þessa verkefnis mun áhöfn
varðskipsins heimsækja bandarísku
strandgæzluna og áhöfnin taka þar
þátt i einhveijum æfingum.
Hátíð Atlantshafsbandalagsríkj-
anna í Norfolk í apríl á hveiju vori
er mikil menningarhátíð, og er kast-
ljósinu fyrst og fremst beint að þeirri
VEÐUR
þjóð, sem er í öndvegi meðal þjóð-
anna hveiju sinni. Þetta verður því
íslenzk hátíð. Þangað kemur Kór
Oldutúnsskóla, en hann skipa 30
ungtingar sem syngja undir stjórn
Egils Friðleifssonar. Efnt verður til
sýningar á íslenskri myndlist og
verða sýnd 30 listaverk sem eru í
eigu Reykjavíkurborgar. Einnig
verður efnt til tízkusýningar á
íslenzkum fatnaði.
Nefndin sem skipuleggur þátt ís-
lands í menningarhátíðinni er einnig
að reyna að fá Jón Pál Sigmarsson
til að vera skrúðgöngustjóra og fara
fyrir hinni miklu skrúðgöngu sem
sterkasti maður heims.
Bæði kórinn og tízkusýningin
munu fara víðar um en aðeins til
Norfolk, og syngur kórinn m.a. í
Baltimore.
íslendingafélagið í Hampton
Roads í Virginíu undir forystu Stellu
Sigeirsdóttur Seifert hefur árum
saman axlað þunga byrði í sam-
bandi við þessa hátíð. Nú koma fleiri
aðilar til, m.a. íslenzk stjórnvöld. Sjö
manna nefnd undir forsæti Stefáns
Stefánssonar sendiráðsfulltrúa hefur
undirbúið þátt íslands í hátíðinni nú
og Verzlunarráð Norfolk-borgar
styrkir verulega ferð Öldutúnskórs-
ins til hátíðarinnar. Margir aðrir
aðilar veita gott liðsinni.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Höfúndar bókanna 10, sem tilnefningu hlutu í afmælisfagnaðinum i
gærkvöldi.
íslensku bókmenntaverðlaunin:
Tíu athyglisverðustu
bækurnar tilneftidar
TILKYNNT var á 100 ára af-
mælisfagnaði Félags íslenskra
bókaútgefenda á Hótel Sögu í
VEÐURHORFUR I DAG, 6. DESEMBER.
YFIRLIT í GÆR: Vestan- og suðvestanátt um allt land. Hvasst og
jafnvel stcirmur á annesjum norðanlands en annars staðar mun
hægara. Á Suðvestur- og Vesturlandi er súld og þoka og skúrir
viða norðanlands en léttskýjað á Austur- og Suðausturlandi. Hiti
4-16 stig.
SPÁ: Sunnan- og suðvestan gola og kaldi og þokusúld suðvestan-
lands en hæg breytileg átt og skýjað með köflum norðanlands og
austan. Áfram hlýtt í veðri.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Suðvestlæg átt í
landinu. Skýjað og súld og rigning með köflum sunnanlands og
vestan en léttskýjað á Noröur- og Austurlandi. Hætt við nætur-
frosti norðaustanlands en annars milt áfram.
TÁKN:
Heiðskírt
/ Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil f|öður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r # r * Slydda
r * r
* * * •
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
*
V El
= Þoka
rzr Þokumóða
’Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
P<^ Þrumuveður
w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 i gær að ísl. tíma hhi veður Akureyri 10 skýjað Reykjavík 8 rigning
Bergen 1 súld
Helsinki +5 heiðskirt
Kaupmannah. 4 skýjað
Narssarssuaq 10 skýjað
Nuuk 2 hálfskýjað
Ostó +2 skýjað
Stokkhólmur +1 léttskýjað
Þórshöfn 7 alskýjað
Algarve 17 alskýjað
Amsterdam 7 léttskýjað
Barcelona 14 léttskýjað
Berlín 3 skýjað
Chicago +2 alskýjað
Feneyjar 7 þokumóða
Frankfurt 3 þokumóða
Glasgow 1 þokuruðningur
Hamborg 1 þoka
Las Palmas 25 alskýjað
London 9 místur
Los Angeles 11 heiðsktrt
Lúxemborg 4 skýjað
Madrld 9 rigning
Malaga 16 rigning
Mallorca 16 skýjað
Montreal +19 léttskýjað
New York +4 léttskýjað
Orlando 4 léttskýjað
Pprís 4 þokumóða
Róm 10 rigning
Vín 3 mistur
Washlngton 1 alskýjað
Winnipeg +2 snjókoma
gærkvöld hvaða 10 bækur hefðu
verið valdar athyglisverðustu
bækur ársins en ein þeirra mun
hljóta íslensku bókmenntaverð-
launin sem veitt verða í fyrsta
skipti í byrjun næsta árs. Lið-
lega 50 bækur voru tilnefndar
til verðlaunanna.
Bækumar 10 eru þessar: Ég
heiti ísbjörg, ég er ljón, eftir
Vigdísi Grímsdóttur, Fransí biskví,
eftir Elínu Pálmadóttur, Fyrir-
heitna landið, eftir Einar Kárason,
Götuvísa gyðingsins, eftir Einar
Heimisson, • íslenzk orðsifjabók,
eftir Ásgeir Blöndal Magnússon,
Náttvíg, eftir Thor Vilhjálmsson,
Nú eru aðrir tímar, eftir Ingi-
björgu Haraldsdóttur, Snorri á
Húsafelli, eftir Þórunni Valdi-
marsdóttur, Undir eldfjalli, eftir
Svövu Jakobsdóttur og Yfir heiðan
morgun, eftir Stefán Hörð
Grímsson.
Tíu manna dómnefnd valdi
þessar 10 bækur sem þær athygl-
isverðustu úr hópi hinna sem til-
nefndar voru. Sú bók sem verð-
launin hlýtur verður valin af dóm-
nefnd fimm manna og með at-
kvæðum almennings.
íslensk fyrirtæki í Kenya:
Ráðgj afar fy r irtæki
undirbýr rafvæðingn
RÁÐGJAFARFYRIRTÆKIÐ Path á íslandi hf. hefúr tekið að sér
könnun á rafvæðingu fyrir raftnagnsveitur rikisins í Kenya. Fyrir-
tækið varð hlutskarpast í útboði á verkefninu og hefúr verið undir-
ritaður samningur um fyrsta hluta verksins.
Þessum verkþætti á að ljúka á
tæpum þremur mánuðum. Hann
felst í rannsóknum og könnun á
ýmsum vandamálum við dreifbýl-
israfvæðingu í Kenya. í síðari
hluta verkefnisins, sem ekki hefur
verið samið um, hefur Path hf.
tilgreint Rafmagnsveitur ríkisins
og Virki-Orkint hf. sem undirverk-
taka. Þróunarsamvinnustofnun
Kanada fjármagnar verkið.
Path á íslandi er rúmlega eins
árs. Ingi Þorsteinsson aðalræðis-
maður Islands í Kenya er stjórnar-
formaður. Annar íslendingur,
Gestur Gíslason jarðfræðingur,
vinnur við fyrirtækið. Fyrirtækið
er með ráðgjafaskrifstofur í Na-
irobi í Kenya og Dar es Salaam í
Tanzaníu. Path hf. og Virkir-
Orkint hf. vinna í sameiningu að
tveimur verkefnum við forkönnun
á notkun lághitajarðgufu í Kenya.
Suðureyri:
Starfsemi
hafíní
Freyju
VINNA hófst í fisknyöls-
verksmiðju Fiskiðjunnar
Freyju hf. á Suðureyri í
gærmorgun í kjölfar þess
að sýslumaður rauf innsigli
af fasteignum fyrirtækisins
í fyrradag.
Togari fyrirtækisins, Elín
Þörbjarnardóttir, kom til hafn-
ar um hádegisbilið í gær og
var landað úr honum 50 tonn-
um. Vinnsla hefst í frystihús-
inu í dag og býst Rannver
Eðvarðsson, skrifstofustjóri
Freyju, við að 40 manns fáist
til vinnu í vinnslusal.
Þjóðleikhúsið:
Starfsfólk-
ið í launa-
laust leyfi
SAMKOMULAG hefúr verið
gert við nokkuð stóran hóp
starfsfólks Þjóðleikhússins og
Þjóðleikhúskjallarans um að
það taki sér launalaust leyfi írá
1. mars þar til endurbótum á
húsinu er lokið, en ennþá hefúr
það ekki verið tímasett hvenær
það verður.
Um er að ræða yfir 60 manns,
sem flestir hefa verið í tímavinnu
í húsinu, við dyravörslu, afgreiðslu
í fatahengi, ræstingar og þess
háttar, að sögn Snævars Guð-
mundssonar, framkvæmdastjóra
Þjóðleikhússins. Hann sagði að
fólkið héldi öllum áunnum réttind-
um þegar það kæmi til starfa á
ný. Þá væri einnig ætlunin að
nota tækifærið vegna lokunarinn-
ar og gera skipulagsbreytingar á
starfsemi hússins.