Morgunblaðið - 06.12.1989, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. UESEMBER 1989
7
Landsbanki íslands:
Aukin cig’ii-
arhlutdeild
í Scandin-
avian Bank
EIGN ARHLUTDEILD Lands-
banka íslands í Scandinavian
Bank mun aukast úr 2,5% í 3,8%
eftir að bankinn verður gerður
að lokuðu hlutafélagi. Stjóm
Scandinavian Bank hefur
ákveðið að breyta um stefnu
og snúa sér enníirekar að við-
skiptum við Norðurlönd þannig
að bankinn verði þar leiðandi
viðskiptabanki. Með tilliti til
Evrópumarkaðarins og þeirra
breytinga sem verða á öllu
bankakerfinu í Evrópu þykir
rétt að aðalhluthafamir eigi
bankann einir vegna þess að
þannig þjóni hann hlutverki
sínu best.
Aðalhluthafar Scandinavian
Bank, auk Landsbankans, eru
Bergen Bank, Union Bank of Fin-
land, Skandinaviska Enskilda
Banken og Privatbanken. Þeir
eiga 64,5% af hlutafé bankans en
hafa nú gert tilboð í önnur hluta-
bréf. Markaðsverð á hlutabréfum
Landsbankans er um 3,3 milljónir
sterlingspunda en eftir þessa
breytingu mun verðmæti bréfanna
hækka í 3,8 milljónir vegna hagn-
aðar af eignasölu eða rúmar 370
milljónir króna.
Landsbankinn þarf ekki að
leggja fram fé til hlutabréfakaup-
anna þar sem þau verða fjármögn-
uð með eignasölu og uppstokkun
á starfsemi Scandinavian Bank
víða um heim.
Hagnaður af rekstri bankans
var á síðastliðnu ári 23,6 milljónir
sterlingspunda en búist er við að
2,6 milljóna tap verði á þessu ári.
Niðurstaða á efnahagsreikningi
er yfir 3 milljarðar punda og er
bankinn númer 15 í röðinni í Bret-
landi hvað stærð snertir. Starfs-
menn eru 1.240 talsins og útibú
eru víða um heim m.a. í New
York, Genf, Hong Kong, Sydney
og Mílanó.
Guðmundur G.
gegn Þjóðviljanum:
Ummæli
dæmd dauð
og ómerk
HÆSTIRÉTTUR hefur kveðið
upp dóm um að tilgreind um-
mæli í fyrirsögn og frétt á fors-
íðu Þjóðviljans, 7. janúar 1986
um tengsl Guðmundar G. Þór-
arinssonar við meint skattsvik
Þýsk-islenska skuli dauð og
ómerk. Borgardómur hafði
einnig dæmt ummælin dauð og
ómerk.
Þjóðviljanum er gert að birta
dómsorð og forsendur dóms
Hæstaréttar með áberandi hætti
í fyrsta eða öðru tölublaði eftir
birtingu dómsins.
Þáverandi ritstjórar Þjóðvilj-
ans, Arni Bergmann og Ossur
Skarphéðinsson, voru dæmdir til
að greiða Guðmundi G. Þórarins-
syni 100 þúsund króna miskabæt-
ur, 50 þúsund krónur til að kosta
birtingu dómsins í opinberum
blöðum og 150 þúsund krónur í
málskostnað.
arie
* sérVAbo^
i ðV^u
VCynn
Fjölbreytt landslag, gott veður allan
arsins hring, vinsamlegir íbuar
:':v
uppbyggð
m
U
fyrir alla þá sem vilja stytta skamm-
degið og hvfla sig á hryssingslegri
vetrartíð, skemmta sér og snæða
fjölbreyttan mat, lita hörundið, spila
golf og eiga góða daga á „Hamingju-
eyjunni". íslenskir fararstjórar á
Kanarfeyjum eru Auður og Rebekka.
BEINT DAGFLUG:
0^seW . 8/1 . 29/1 . fflSPi 12/3 . 2/4 . 16/4
Ferðaskrifstofurnar og
FLUGLEIDIR
Sími 690300