Morgunblaðið - 06.12.1989, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 1989
21
Þróunarsamvinnustofnun:
Þarf 100 milljónir til að geta
sinnt brýnustu verkefhum
Fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir að stofhunin fái 64 milljónir
Þróunarsamvinnustofnun er úthlutað 64 milljónum króna í fjárlaga-
frumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 1990 og telur Björn Dagbjarts-
son forstöðumaður stofnunarinnar að það dugi varla til að sinna þeim
verkefnum sem hún hefúr skuldbundið sig til að sinna. Hann segir að
stofhunina vanti í það minnsta 30-35 milljónir króna til viðbótar til að
geta sett skip sitt, Feng RE, í skyldubundna viðgerð og sent það síðan
til Namibíu þar sem til stóð að aðstoða heimamenn við uppbyggingu
fiskveiða í samvinnu við Norðmenn.
Gert var ráð fyrir að skipið yrði
yfirfarið strax eftir jólin og síðan
átti að senda það að ströndum
Namibíu og Angóla. Norðmenn
hafa ákveðið að senda sitt rann-
sóknarskip af stað í janúar. Fyrst
Nemendur við Háskóla íslands
gefa kennurum einkunnir:
Ekki nema allt gott
um reglurnar að segja
- segir Logi Jónsson, fulltrúi Fé-
lags háskólakennara hjá BHMR
„Hvorki félagsfundur né sfjóm
félagsins hafa ályktað neitt um
þetta, en út frá mínum sjónar-
hóli held ég sé ekki nema allt
gott um þetta að segja," sagði
Logi Jónsson, fulltrúi Félags há-
skólakennara í Iaunamálaráði
Steftit að Jiví
að slíta SIM
Selfossi.
Á fundi Samtaka íslenskra
matjurtaframleiðenda, SlM,
sem haldinn var á Selfossi
síðastliðinn mánudag, var
samþykkt að stefna að því að
slita samtökunum.
Einnig var ákveðið að skipa
skilanefnd til að skipta íjármun-
um samtakanna milli kröfuhafa.
Samtökin skulda 30—40 milljón-
ir en eignir þess nema 12—15
milljónum. I skilanefnd SIM eiga
sæti lögfræðingur og endurskoð-
andi samtakanna ásamt einum
fulltrúa frá landbúnaðarráðu-
neyti.
Þegar gerð hafa verið skil á
málum samtakanna verður boð-
að til fundar til að leggja þau
endanlega niður.
Sig. Jóns.
BHMR, aðspurður um þær nýju
reglur sem háskólaráð hefúr sett
um einkunargjafir nemenda til
handa kennurum sínum að lokn-
um námsskeiðum.
„Það er gott að fá viðbrögð nem-
enda gagnvart því sem maður legg-
ur fyrir þá og það stuðlar að því
að menn geti betrumbætt þá fyrir-
lestra sem þeir flytja eða það efni
sem þeir leggja fyrir nemendur,"
sagði Logi.
Hann sagði að sér fyndist það
sjálfsagt að það væri tekið tillit til
þessa þáttar í starfi háskólakennara
þegar hæfni þeirra til að flytjast á
milli stöðuheita væri metin. „Eina
hættan sem ég sé er sú að menn
fari að mýkja upp námsskeiðin og
slaka á faglegum kröfum í von um
að fá betri einkunir hjá nemendum,
en mér fínnst það mjög fjarlægur
möguleiki," sagði Logi Jónsson enn-
fremur.
Vmf. Hlíf í Hafnarfirði:
Bygging félags-
legra íbúða til
að auka atvinnu
TALA atvinnulausra á félags-
svæði verkamannafélagsins
Hlífar í Hafiiarfírði 1. desember
síðastliðinn var 160 og fór ört
hækkandi að því er fram kemur
í fréttatilkynningu frá félaginu.
Lýst er yfir miklum áhyggjum
vegna þessarar þróunar og gerir
félagið það að tillögu sinni að
stjórnvöld geri átak í byggingu fé-
lagslegs húsnæðis í bænum til þess
að laga atvinnuástandið. Lagt er
til bygging 200 leigu- og eignarí-
búða, en hátt í 200 óafgreiddar
umsóknir liggi hjá stjórn verka-
mannabústaða. Byggingarfram-
kvæmdirnar verði fjármagnaðar
með sérstöku framlagi úr ríkissjóði
á svipaðan hátt og framkvæmda-
nefndaríbúðirnar í Breiðholti á
sínum tíma og hafi framkvæmdirn-
ar ekki áhrif til minnkunar fram-
lags Byggingasjóðs verkamanna til
verkamannabústaðakerfisins í
Hafnarfirði.
/ « • * t
skammdeginu
fara fram hafrannsóknir til að
ákvarða veiðiþol fískistofnanna, en
síðan hefjast tilraunaveiðar þar sem
meðal annars á að notast við reynsl-
una frá Grænhöfðaeyjum þar sem
Fengur RE var einnig notaður.
Verður íbúum Namibíu kennt að
nota ný veiðarfæri og þeir þjálfaðir
í vinnubrögðum, því Namibíumenn
hafa ekki nýtt fiskimið sín sjálfír
hingað til.
Björn sagði að það væri óðs
manns æði að senda skipið af stað
og geta svo ekki rekið það þegar
það kemur á leiðarenda. Engin leið
væri að gera það nema fjárveiting-
in verði hækkuð um 30-35 milljónir
króna. Þróunarsamvinnustofnun
fór fram á 123 milljónir króna til
þess að geta sinnt þessu verkefni
og ýmsum öðrum. Stofnunin hefur
skuldbundið sig með skriflegum
samningum að sinna ýmsum verk-
efnum í Afríku og á Grænhöfðaeyj-
um, en enginn samningur hefur
hins vegar verið undirritaður um
verkefnið í Namibíu.
„Ástæðan fyrir því að við ætluð-
um að hefja þetta verkefni í
Namibíu byggist á því að forsætis-
ráðherra íslands fékk bréf frá
Namibíu þar sem farið var fram á
stuðning Islendinga og Norðmanna
við uppbyggingu fískveiða og rann-
sóknir á fískistofnum við landið.
Þessari beiðni var ekki illa tekið
og það er slæmt að þurfa að ganga
á bak orða sinna. Ég hef þá trú
að þetta verði leiðrétt," sagði Björn.
Þess má geta að íslendingar
greiða innan við 0,1% af þjóðartekj-
um til þróunaraðstoðar, en ná-
grannaþjóðirnar greiða yfirleitt um
1% af þjóðartekjum. Björn sagði
að ef staðið væri við það sem Al-
þingi og ríkisstjórnir hafa alltaf
ætlað sér að veita til þróunaraðstoð-
ar væri um 12-1400 milljónir að
ræða. Ef íslendingar greiddu álíka
hlutfall af þjóðartekjum og ná-
grannaþjóðirnar væru veittar ár-
lega 18-1900 milljónir til þessara
mála.
Morgunblaðið/Þorkell
Smái kolinn „trimmaður" hjá Hólmaröst.
Mikil sandkola-
veiði í Garðssj’ó
TVEIR bátar, Haíorn og Arnar, báðir frá Kefiavík, hafa undan-
farna daga fiskað vel af sandkola í snurvoð í Garðssjó. Þeir
hafa fengið um 6 tonn daglega. Kolinn er fluttur ísaður utan
til Hollands á fostu verði og er skilaverð fyrir stærri kolann
slægðan 34 krónur, en fyrir þaiin minni „trimmaðan" fást 50
krónur á hvert kíló. Það er Seifúr hf, sem sér um útflutninginn.
Bátamir fengu undanþágu hjá
sjávarútvegsráðuneytinu til til-
raunaveiða frá og með siðasta
fimmtudegi til síðastliðins mánu-
dags, en leyfið hefur nú verið
framlengt til 20. desember. Áður
höfðu þessar veiðar verið leyfðar
í tilraunaskyni í sumar, en þeim
hætt aftur vegna þess hve mikið
af öðrum fisktegundum veiddust
með kolanum. Örn Erlingsson,
útgerðarmaður Hafarnarins,
sagði í samtali við Morgunblaðið,
að sjávarútvegsráðherra hefði
sýnt útgerð þessara báta mikinn
skilning. Mikilvægt væri að geta
nýtt þennan annars daufa tíma
til veiða á vannýttum fiskitegund-
um eins og sandkolanum. Þetta
væri verðlaus fískur hér heima,
en gott skilaverð fengist fyrir
hann með þessu móti. Nóg væri
af kolanum í Garðssjónum og
fengist ekkert af öðrum fiskteg-
undum með honum nú.
Gert er að stærri kolanum um
borð og hann ísaður í kör til út-
flutnings í gámum. Smærri kol-
ann koma bátarnir með óaðgerðan
að landi. Hann er svo trimmaður
eins og kallað er í Hólmaröst við
Fiskislóð. Þessi verkun felst í því,
að kolinn er hausaður og slóg-
dreginn, uggarnir klipptir af hon-
um og dökka hliðin síðan roðflett.
Að því loknu er fiskurinn ísaður
og fluttur utan í körum. Ytra fer
hann ýmist beint á neytendamark-
að, eða er- lausfrystur og dreift
þannig.
HÓTEL ÍSLAND
Rmmtudaginn 7. des.
Kl. 22.00
. Miðaverð 1.250,- .
U
Cí"
ik JíJUJSJ J j1
Xforsau \
/ I \
I tt.* 1
\ Misu )
\ SNORRABRAUT 29 /
\ (WIO UUGAVÍC) /
og í Gramminu, Laugavegi 17