Morgunblaðið - 06.12.1989, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 1989
Stiörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Tvíburinn
Hinn dæmigerði Tvíburi
(21.-20. júní) hefur hraða,
athafnasama og lipra hugs-
un. Hann er forvitinn og vill
fá svör við hverri spurningu
svo fljótt sem auðið er. Ef
það reynist erfitt að ná fram
svari eða tekur langan tíma
að fá niðurstöðu, er hætt við
að hann missi áhugann og
snúi sér að öðrum verkefn-
um. Það er mikilvægt fyrir
Tvíburann að fást við ijöl-
breytt húglæg viðfangsefni,
en hann þarf jafnframt að
gefa sér tíma fyrir hvert
mál, annars er hætt við að
hann nýti ekki andlega hæfi-
leika sína sem skyldi.
Hann skrapp
Tvíburinn hefur ánægju af
þvi að ferðast og skoða sig
um. Hann þarf sífellt að
skreppa hingað og þangað
og verður fljótt leiður ef um
mikla og langvarandi vana-
bindingu er að ræða. Honum
er í sjálfu sér sama hvort
eitthvað sé langvarandi eða
taki stuttan tíma, svo fram-
arlega sem það er spennandi
meðan á því stendur. Það
fellur honum ekki vel að
vinna undir stjóm annarra,
heldur þarf hann að ráða
tíma sínum sjálfur.
Spurningaleikir
Hann hefur gaman af leikj-
um og þá sértaklega þeim
sem tengjast notkun hugans,
' svo sem spumingaleikjum og
gátum. Margs konar orðatil-
tæki eru honum oft hugleik-
in. Líkamleg fimi og eirðar-
leysi era einnig meðal al-
gengra einkenna. Tvíburinn
er að öllu jöfnu léttur í lund
og stríðinn og hefur gaman
af því að segja brandara og
skjóta léttum athugasemd-
um á náungann.
Ný viðfangsefni
Tvíburinn er fljótur að skipta
skapi, en eyðir ekki miklum
tíma í það að vera þungur
og sorgmæddur. Ef hann fær
að takast á við ný og
skemmtileg viðfangsefni, er
hann fljótur að skipta skapi
og verða iéttur í lund. Það
má segja að leiðindi, eða ein-
hæft lífsmynstur, sé helsti
óvinur Tvíburans.
Heimsóknir
Tvíburinn hefur oft mikla
ánægju af bókum og lestri,
eða því að horfa á sjónvarp.
Hann fær einnig mikið út
úr því að tala við aðra og
gengur oft vei að læra í
gegnum umræðu. Hann lað-
ast oft að fólki sem er vel
gefið eða veit margt og getur
kennt honum eitthvað nýtt.
Hann á til að fara í heim-
sóknir og tala klukkutímum
saman við það fólk sem vek-
ur áhuga hans. Aðalatriði
fyrir Tvíburann er að hugsun
hans sé vakandi og að stöð-
ugt berist til hans nýjar upp-
lýsingar.
Vormaður
Vorið er árstíð Tvíburans og
í skapi er hann vormaður.
Hann horfír á jákvæðar hlið-
ar tilverunnar, vill ræða alit
milli himins og jarðar, segja
sögur, fara úr einu í annað
og eiga notalegar stundir
með góðum vinum. Kyrr-
staða, andleg þyngsli, for-
dómar og einhæfur sjón-
deildarhringur era fjarn
skapgerð hans og upplagi. Á
vorin burstum við rykið af
spariskónum og föram í
heimsókn til vina okkar og
kunningja. Við ferðumst um
landið og njótum lífsins í
góðra vina.hópi..
GARPUR
GRETTIR
BRENDA STARR
FERDINAND
SMAFOLK
Föst regla, kaupandinn gæti sín.
I 5UPP05E THAT WA5 ONE
OF THE FIR5T THIN65 VOU
LEAR.NEP IN LAW 5CH00L...
Ég býst við að það hafi verið eitt
það fyrsta sem þú lærðir í lagaskól-
NO, I LEARNEP IT IOHEN
THE HANDLE FELL OFF
THI5CHEAP BRIEFCA5E!
Nei, ég lærði það þegar handfangið
datt af þessari bannsettu tösku!
r
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
„Grís aldarinnar,“ sagði Páll
Valdimarsson og gat ekki leynt
kátínu sinni, svo augljóslega
hafði hann fengið happdrættis-
vinninginn en ekki andstæðing-
arnir. Þetta var á spilakvöldi
BR á dögunum.
Austur gefur; NS á hættu.
Norður
♦ G53
¥Á10652
♦ KD104
+ 4
Vestur
♦ ÁG104
▼ 743
♦ G9752
♦ 5
Austur
♦ K972
▼ G98
♦ 83
+ G1082
Suður
+ D8
▼ KD
♦ Á6
+ ÁKD9763
Páll og Magnús Ólafsson voru
með spil NS og komust alla leið
í sex grönd. Sagnirnar tilheyra
ekki sögunni, en þær virðast
hafa verið nógu sannfærandi til
að hindra útspil í spaða. Vestur
kom út með lítinn tígul, sem
Páll drap heima á ás og bjó sig
undir að taka 13 slagi.
En laufiegan setti strik í
reikninginn. Vestur notaði strax
tækifærið og kallaði í spaða, svo
vonlaust var að gefa slag á lauf
og treysta aftur á hjálp varaar-
innar. Páll tók því hjartahjónin,
spilaði tígli galvaskur og svínaði
tíu blinds! Þegar rauðu litirnir
gáfu 10 slagi var spilið í húsi.
Ekki kannski grís aldarinnar,
en spilið hlýtur a.m.k. tilnefn-
ingu sem grís kvöldsins.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Þessi stutta skák var tefld í
C-flokki á haustmóti TR, sem var
að ljúka: Hvítt: Ingólfúr Gísla-
son, (1.645), Svart: Veturliði Þ.
Stefánsson (1.620). Frönsk vöm.
1. e4 - e6, 2. d4 - d5, 3. Rc3
- Rf6, 4. Bg5 - Be7, 5. e5 -
Rfd7, 6. H4!? (Aljechin-Chatard-
árásin) 6. - Bxg5, 7. hxg5 -
Dxg5, 8. Rh3 - De7, 9. Rf4 -
g6, 10. Bd3 - Rf8, 11. Dd2 -
Bd7?? (Eftir 11. - Rbd7 ætti
hvítur enn eftir að sýna fram á
réttmæti peðsfómarinnar.)
12. Rcxd5! - exd5, 13. Rxd5 -
Dd8, 14. Rf6+ - DxfS (Svartur
verður að láta drottninguna fyrir
tvo riddara, því eftir 14. - Ke7,
15. Db4 - c5, 16. Dxc5 er hann
mát.) 15. exf6 og svartur gafst
upp. Svo sem fram hefur komið
hér urðu þeir Björgvin Jónsson
og Sigurður Daði Sigfússon efstir
í A-flokki. Úrslit í öðrum flokkum:
B-flokkur: 1-2. Ólafur B. Þórsson
og Snorri Karlsson 7 v. af 11
mögulegum. 3. Eggert ísólfsson
6 v.
C-flokkur: 1-2. Hrannar Baldurs-
son og Ragnar Fjaiar Sævarsson
8 v. 3. Kristján Eðvarðsson 7 v.
D-flokkur: 1. Einar K. Einarsson
10 v. 2. Ólafur J. Einarsson 7 v.
E-flokkur (opinn): 1. Árni H.
Kristjánsson 9 v.
Unglingaflokkur: 1. Helgi Áss
Grétarsson 9 v. af 9, 2-3. Hlíðar
Þór Hreinsson og Flóki Ingvars-
son 6 v. Hraðskákmeistari TR
varð Jóhannes Ágústsson.