Morgunblaðið - 06.12.1989, Side 45
45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 1989
Þessir hringdu . . .
Hraðahindranir eina
vörnin
Móðir hringdi:
„Fyrir nokkru birtist grein í
Velvakanda þar sem látið er að
því liggja að hraðahindranir séu
óþarfar og komi að litlu haldi.
Ég er hins vegar þeirrar skoðunar
að þessar hindranir séu nánast
eina örugga leiðin til að draga
úr ökuhraða í íbúðahverfum. Vil
ég þakka borgaryfirvöldum fyrir
framtakið og styð ég það heils-
hugar að sem flestar hraðahindr-
anir verði gerðar í íbúðahverfum.
Það eru því miður ekki allir öku-
menn ábyrgð sinni vaxnir, það
sannast á hverri helgi þegar
drukknir ökumenn eru teknir tug-
um saman. Hraðahindranirnar
eru eina vörn barna okkar og ég
er sannfærð um að þær hafa
bjargað mörgum mannslífum nú
Þegar‘“ Læða
Hvít læða er í óskilum í Vestur-
-bænum. Upplýsingar í *síma
26043.
Svört og hvít læða sem gegnir
nafninu Steffí tapaðist frá Braga-
götu 27 sl. fimmtudag. Hún er
mjög gæf og var með merkta
hálsól. Vinsamlegast hringið í
síma 22590 ef hún hefur einhvers
staðar komið fram.
Veski
Svart seðalveski með skilríkjum
o. fl. tapaðist á Gauk á Stöng
hinn 25. nóvember. Finnandi er
vinsamlegast beðinn að hringja í
síma 666441.
Strætó hafi
forgang
Kæri Velvakandi.
Einkabíllinn hefur verið sá gull-
kálfur sem allir hafa dansað í kring-
um síðustu áratugi og er nú svo
komið að erfitt er að komast leiðar
sinnar í umferðarþvögunni. Þetta
kemur niður á farþegum strætis-
vagna því vagnarnir komast oft
ekki áfram í einkabílaþvögunni. Ég
hef tekið eftir því að venjulega er
bara einn maður i hveijum bíl og
nýtast þessi farartæki því illa.
Strætisvagnarnir ættu tvímæla-
Iaust að hafa forgang í umferðinni
fram yfir alla þessa einkabíla. Eins
tel ég að fjölga þurfí ferðum stræt-
isvagna og jafnvel bæta við ökuleið-
um. Þetta myndi verða til þess að
fleiri notuðu vagnana og við það
myndi umferðaröngþveitið minnka.
Borgari
Hjartans þakkir til allra þeirra fjölmörgu, sem
glöddu mig á nírœðisafmœli mínu þann 25.
nóvember sl.
Guð blessi vkkur öll.
Lilja Sveinbjörnsdóttir Schopka,
Fálkagötu 5.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem glöddu
mig með heimsóknum, gjöfum og skeytum á
80 ára afmœli mínu þann 26. nóvember sl.
Sérstakar þakkir fá börn og barnabörn fyrir
ógleymanlega veislu á Hótel Loftleiðum.
Guð blessi ykkur öll.
Pála K. Einarsdóttir
frá Hörgslandi á Síðu,
Framnesvegi 46, Reykjavík.
KARLMANNAFÖT
Nýir litir. Verð 9.990,-
Úlpur, peysur, skyrtur, stærðir 39-46.
Hattar, húfur, hanskar og fl.
ANDRÉS,
Skólavörðustíg 22a, s.: 18250.
Opið laugardaga til kl. 16.00
íwœwm.
Gl^MarieNo^
SKUSSSIÉ
SKUGGSJÁ
EKKI ER ALLT SEM SÝNIST. Theresa Charles.
Annabella hafði verið yfir sig ástfangin af Davíð, og var niðurbrotin, þegar
hann fór skyndilega til Ástralíu. En hún var viss um að hann myndi snúa
aftur til hennar, þó aðrir væru ekki á sama máli.
LYKILORÐIÐ. Else-Marie Nohr.
Mugo Hein bíður ásamt lítilli dótturdóttur sinni eftir móður litlu telpunnar.
En hún kemur ekki. Skelfingu lostinn sér gamli maðurinn að dóttur hans
er rænt. Litla telpan stendur einmana og yfirgefin. Mamma er horfin.
AUÐLIG OG ÓFRJÁLS. Barbara Cartland.
Til að bjarga föður sínum frá skuldafangelsi giftist Crisa Silas P. Vander-
hault. Nokkru síðar er Crisa orðin ekkja eftir einn af ríkustu mönnum í
Ameríku. En nú er hún eins og fangi í gylltu búri.
SVIKAVEFUR. Erik Nerlöe.
Elún hefur að því er virðist allt, sem hugurinn girnist. Hún hefur enga
ástæðu til að stela, en samt er það einmitt það sem hún gerir. Eða hvað?
Er einhver að reyna að koma rangri sök yfir á hana?
ENGINN SÁ ÞAÐ GERAST. Eva Steen.
Hún er daufdumb. Hún hefur búið hjá eldri systur sinni, frá þvi að foreldrar
þeirra fórust i bílslysi. Systirin hefur haldið vandlega leyndu fyrir yngri
systur sinni leyndarmálinu, sem foreldrar þeirra tóku með sér í gröfina.
SKUGGSJA - BOKABUÐ OLIVERS STEISS SF
C Mlwtaí
Erik Nerlöe
SVIKAVEFUR