Morgunblaðið - 06.12.1989, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓl l IJÍmiWkudagúr
6. DESEMBER 1989
KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ
Bo Johansson gefur
svar á næstunni
FORSVARSMENN Knattspyrnusambands íslands ræddu ígær
við sænska þjálfarann Bo Johansson um landsliðsþjálfarastarfið,
sem er óskipað. „Þetta voru gagnlegar viðræður. Bo Johansson
gefur okkur svar á næstunni um það, hvort hann vilji ganga til
samningaviðræðna, en við eigum eftir að ræða við fleiri þjálfara
og hann veit það," sagði Eggert Magnússon, formaður KSÍ, við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
Johansson kom til landsins í gær
og átti að fara aftur út í morg-
un. í samtali við Morgunblaðið
sagðist hann vera mjög ánægður
með að fá tækifæri til að ræða við
KSÍ um starfið. „Mér líst vel á ís-
land, þó ég hafi ekki fylgst_ með
knattspyrnunni hér á landi. Ég er
opinn fyrir öllu, en þetta eru fyrst
og fremst viðræður á breiðum
grundvelli og engar ákvarðanir
teknar.“
Að sögn Eggerts er á þessu stigi
málsins verið að ræða um að ráða
þjálfara til tveggja ára og hug-
myndin er að hann verði meira eða
minna á landinu og í nánu sam-
bandi við leikmenn og þjálfara.
„Við viljum annað fyrirkomulag en
var hjá Held, vera með þjálfara á
staðnum þannig að leikmenn hér
heima viti og finni að með þeim sé
fylgst og þeir hafi að einhveiju að
keppa. Við ræddum meðal annars
um að landsliðsþjálfari yrði með
þjálfaranámskeið og þannig í
tengslum við félögm og var Johans-
son mjög áhugasamur fyrir slíku —
sagði það bestu leiðina til að kynn-
ast hlutaðeigandi.“
Eggert sagði að þeir hefðu rætt
lauslega um starfið án skuldbind-
inga. ,Næsta skref er að senda
honum allar upplýsingar í einum
pakka ásamt nánari útlistun á þeim
kvöðum og skyldum, sem við óskum
eftir, og eftir það ákveður hann
hvort hann vilji halda nánari við-
ræðum áfram.“
Morgunblaöið/Júlíus
Bo Johansson til vinstri, ásamt Eggert Magnússyni, nýkjömum formanni
Knattspymusambands íslands í gær.
KNATTSPYRNA / NOREGUR
Teitur leggur áherslu á
að fá Kristinn til Brann
Kristinn R. Jónsson.
Teitur Þórðarson þjálfari
norska 1. deildarliðsins
Brann segist leggja mikla áherslu
á að fá Kristinn R. Jónsson, mið-
vallarleikmann úr Fram, til liðs
við félagið. „Já, ég geri það og
er búinn að segja stjómarmönnum
félagsins það,“ sagði hann í sam-
tali við Morgunblaðiðí gærkvölíli.
„Þeir hafa verið að skoða málið
og það kemur í ljós eftir nokkra
daga hvað gerist. Hvort þeir
treysta sér, fjárhagslega, til að
fá hann hingað," sagði Teitur.
Leyfilegt er að nota Jfjóra leik-
menn í hveiju liði í Noregi, og
fyrir eru þrír — þar af er einn
landsliðsmaðurinn Ólafur, bróðir
Teits, sem kunnugt er.
Kristinn sagði í gærkvöldi að
færi hann til norska liðsins, vildi
hann semja til tveggja ára.
T
KNATTSPYRNA / UEFA-BIKARINN
Stuttgart slegið út
STUTTGART, sem léktil úrslita
í Evrópukeppni félagsliða á
síðasta keppnistímabili, féll úr
keppninni í gærkvöldi. Liðið
náði aðeins 1:1 jafntefli á
heimavelli gegn belgíska liðinu
Antwerpen, en Belgarnir unnu
fyrri leikinn í 3. umferð 1:0.
KNATTSPYRNA
Reglu
um rang-
stöðu
breytt
Alþjóða knattspymusambandið,
FIFA, ætlar að leggja til á
ársþinginu á Italíu í júní á næsta
ári að reglum um rangstöðu verði
breytt; leikmanni verði heimilt að
standa samsíða næst aftasta mót-
heija á vallarhelmingi vamarliðs,
þegar knötturinn er sendur til hans.
Hingað til hefur sóknarmaður talist
rangstæður í þessu tilviki, ef hann
er samsíða eða nær endalínu en
næst aftasti varnarmaður [mark-
maðurinn getur þess vegna verið í
skógarferð og telst ekki með ef
tveir samherjar eru nær endalínu].
Verði tillagan samþykkt tekur
nýja reglan gildi í júlí á næsta ári
í leikjum á vegum FIFA.
Stuttgart lék vægast sagt illa
og saknaði óneitanlega Ás-
geirs Sigurvinssonar og Buchwald,
sem eru meiddir. Pað vantaði
■■■■■■ stjórnanda á miðj-
FráJóni una og ha.us í vöm-
Halldóri ina; Basualdo átti
ðSSSÍ •"?■«“ *« ‘
miðjunm og var
skipt út af á 65. mínútu, Gaudino
og Rasmussen voru seinir frammi
og komust lítt áfram gegn sterkri
vörn Antwerpen.
Stuttgart var meira með knöttinn
í fyrri hálfleik án þes að skapa sér
umtalsverð færi, en Allgöwer skaut
rétt yfir úr aukaspymu af 20 m
færi á síðustu mínútu hálfleiksins.
Gestimir byijuðu mjög rólega
eftir hlé, en eftir að Frontzeck hafði
skorað fyrir Stuttgart á 51. mínútu,
komust þeir meira inn í leikinn og
jöfnuðu skömmu síðar. Broeckaert
skoraði með skalla eftir sendingu
frá Þjóðveijanum Lehnhoff, besta
manni leiksins.
Heimamenn reyndu árangurs-
laust að bæta við, en þrátt fyrir
nokkur færi í lokin, urðu mörkin
ekki fleiri og Stuttgart þar með úr
leik.
KNATTSPYRNA /DOMARAR
Guðmundur
lékk hæstu
einkunn
Guðmundur Haraldsson
GUÐMUNDUR Haraldsson,
milliríkjadómari í knatt-
spyrnu, fékk 9,9 í einkunn hjá
eftirlitsdómara FIFAfyrir
frammistöðuna í leik Belgíu
og Lúxemborgar í undan-
keppni Heimsmeistarakeppn-
innar í knattspyrnu, sem fram
fór á Heysel-leikvanginum í
Brússel 25. október s.l.
Þetta kom fram í máli Ellerts
B. Schram, er hann flutti
skýrslu fráfarandi stjórnar KSÍ á
ársþingi sambandsins um helgina.
Hann sagði ennfrémur að íslensk-
ir dómai-ar hefðu skilað 20 störf-
um erlendis á árinu og staðið sig
mjög vel.
Eftirlitsdómarinn gaf Guð-
mundi mjög góða dóma fyrir alla
þætti í umræddum leik og sagði
viðureignina hafa verið erfiða, en
yfirleitt fá dómarar betri með-
mæli eftir því sem leikimir teljast
léttari viðfangs.
Guðmundur dæmdi þijá leiki í
undankeppninni að þessu sinni og
stóð sig sérstaklega vel. Hann
byijaði á Ieik Wales gegn Finn-
landi og fékk þá 9,0 í einkunn.
Næst var það Skotland gegn Kýp-
ur og þá fékk hann 9,5 og nú 9,9.
■■■*■» «■«■»»» »■»«■* - »
ÍÞRÚmR
FOLK
■ AGANEFND Handknattleiks-
sambandsins kom saman í gær, og
fjallaði þá m.a. um greinargerð
Rögnvalds Erlingssonar, dómara,
vegna aðsúgs sem að honum var
gerður eftir leik Víkings og HK á
laugardaginn. Nefndarmenn töldu
málið ekki heyra undir nefndina og:
vísaði því til stjórnar HSÍ.
■ TÍU mínútna hlé var gert á
stjómarfundi hjá enska knatt-
spymufélaginu Manchester Un-
ited í gær vegna sprengjuhótunar!
Lögreglu barst hótunin, dreif alla
út af fundi en engin fannst sprengj-
an.
■ ÞÓ MÁ segja að púður hafi
verið í fyrrnefndum fundi; árlegum
fundi hluthafa í félaginu. Þess var
krafist á fundinum að gamla hetjan
Bobby Charlton, einn kunnasti
leikmaður félagsins og enska
landsliðsins fyrr og síðar, taki við
af Martin Edwards sem stjórnar-
formaður. Ekki var það þó ákveðilpi
■ MICHAEL Mair, besti bmn-
maður ítala, meiddist í gær á hné
á æfingú og verður að fara í upp-
skurð. Svo gæti farið að hann
missti af öllum heimsbikarnum í
vetur.
■ VRENI Schneider var í gær
kjörin íþróttakona ársins í Sviss
af þarlendum íþróttafréttamönnum.
Hún sigraði í heimsbikarkeppninni
á skíðum á sl. vetri. Þetta er annað
árið í röð sem Schneider hlýtur
þennan eftirsótta titil.
P TONY Rominger var kjörinn
Iþróttamaður ársins í í karlaflokkj
í Sviss fyrir yfirstandandi ár. 52
er hjólreiðamaður og sigraði í Tour
of Lombareiy-keppninni. Fjögurra
manna bobsleðasveit Svisslendinga,
sem varð heimsmeistari var kjörið
lið ársins.
■ ARNÓR Guðjohnsen leikur á
miðjunni um helgina, þegar And-
erlecht mætir Beveren og ætti það
að styrkja leik liðsins. Arnór hefur
verið í bakvarðar-
stöðunni, en lands-
liðsmaðurinn Griin
hefur náð sér -yif
meiðslum og kemur
á ný inn í liðið ásamt Nilis, sem
einnig hefur verið meiddur.
■ ANTWERPEN hefur keypt
Danann Per Frimann, sem fór til
Bröndby í fyrra eftir að hafa leikið
með Anderlecht í sjö ár. Hann
telst ekki útlendingur í Belgíu, þar
sem hann hefur leikið í meira*«i
. firopi
Frá
Bjarna
Markússyni
iBelgíu