Morgunblaðið - 21.12.1989, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 1989
Fiskveiðar og fíármál
Dé Longhi djúp-
steikingarpotturinn
er byltingarkennd
nýjung
Vvrð aðcins kr.
10.990,-
staðgreitt
Hallandi karfa, sem snýst
meðan ó steikingu stendur:
• jafnari steiking
• notar aðeins 1,2 Itr. af olíu
í stað 3ja Itr. í venjulegum"
pottum
• styttri steikingartíma
• 50% orkusparnaður
—50%—
(DeLonghi)
Dé Longhi er fallegur
fyrirferbarlítill ogfljótur
iFOnix
HÁTÚNI 6A SÍMI (91)24420
eftir Gunnar
Tómasson
í grein Þorvaldar Gylfasonar,
„Stjórn fiskveiða er ekki einkamál
útvegsmanna“ (Morgunblaðið, 29.
nóvember), var sett fram rökstudd
gagnrýni á ríkjandi fiskveiðistefnu
íslenskra stjórnvalda og bent á ein-
faldar leiðir til úrlausnar.
Hitt er svo annað mál, eins og
Þorvaldur benti á, „að enginn
stjómmálaflokkur í landinu hefur
enn sem komið er séð sér hag í því
að hefja baráttu fyrir hagkvæmustu
aðferð, sem völ er á við stjórn fisk-
veiða“.
Lánleysi landsfeðra á vettvangi
lífsbjargar þjóðarinnar verður vart
betur lýst — aðall stjórnmálastarf-
semi í Austur-Evrópu var til
skamms tíma sá, að stefnumótun
skyldi taka mið af „flokkshag" en
þjóðarhagur mætti fara lönd og leið.
Þótt góðir menn telji að „þorsk-
stofninn við landið sé í alvarlegri
útrýmingarhættu", eins og kemur
fram í grein Þorvaldar, þá sér eng-
in merki slíks á þurru landi —
a.m.k. verður slíkt ekki ráðið af
íslenskri vaxta- og peningastefnu.
„Veit ekki hvað vextir eru“
Við fyrstu sýn kann ýmsum að
virðast sem Eggert Haukdal al-
þingismaður hafi tekið of djúpt í
árinni, er hann valdi þessa fyrirsögn
á Morgunblaðsgrein fyrr á árinu,
þar sem hann gagnrýndi vaxta-
stefnu Seðlabanka Islands.
Höfundur er hins vegar sammála
Eggert Haukdal um kjama málsins
og telur hávaxtastefnu íslenskra
stjórnvalda hafa um árabil strítt
gegn raunhæfri fiskveiðistjómun.
Vandinn er sá, að vaxtakröfur
umfram arðgjöf fjármagns í sjávar-
útvegi skerða eiginfjárstöðu fyrir-
KASTAR ÞU PENINGUM I RUSLIÐ?
Tilvalin jólagjöf
Verð kr. 3.200
Láttu dósapressuna spara
þér tíma og fyrirhöfn.
• Fyrirferð dósanna
minnkar 5-6 falt
• Margfalt færri ferðir
• Skilagjald greitt í
beinhörðum peningum*
Pantið í síma 626311,
GRIP umboðs- og heildverslun
* Ath! Endurvinnslan hf. greiðir fyrir pressaðar dósir, en
sjálfvirkir dnsamóttakarar taka ekki við beim.
Söluaðilar Byggt & Búiö, Kringlunni
Hamborg hf. Laugavegi og Hafnarstræti.
TIL SOLU
Þessi Coles 40/45 t. bílkrani árg. ’76 er til
sölu. Kraninn þarfnast viðgerðar. Tilvalin
kaup fyrir aðila, sem hafa aðstöðu til við-
gerða. Gott staðgreiðsluverð eða skuldabréf
til lengri tíma.
Upplýsingar á skrifstofu S.H. verktaka,
Stapahrauni 4, Hafnarfirði, sími 652221.
tækja og neyða þau til skuldsetn-
ingar við banka- og sjóðakerfið —
í grein sinni vék Þorvaldur að þess-
ari hlið málsins.
„Sumir hafa haldið því fram, að
sala veiðileyfa komi ekki til greina
vegna þess, að hún myndi færa
veiðileyfin í hendur þeirra fyrir-
tækja og einstaklinga sem eiga
greiðastan aðgang að bankakerfinu
gegnum stjómmálasambönd."
Menn hafa hér lög að mæla —
hávaxtastefna, sem býður heim tap-
rekstri í sjávarútvegi, úthýsir þar
með eðlilegum viðskiptasjónarmið-
um við lánafyrirgreiðslu banka og
sjóða gagnvart þeim fyrirtækjum,
sem hlut eiga að máli.
Raunhæf úrlausn myndi vega að
rótum vandans — aðlögun vaxta-
stefnu að arðgjöf fjármagns í sjáv-
arútvegi er augljós forsenda nauð-
synlegra umbóta í fiskveiðistjórn.
„Ný greinargerð
Seðlabanka“
Þar er hins vegar við ramman
reip að draga — yfirstjóm íslenskra
peningamála lætur alla gagnrýni á
hávaxtastefnu síðustu ára sem vind
um eyru þjóta og er ekki til viðtals
um skynsamlega nýbreytni á því
sviði.
A blaðamannafundi forsætisráð-
herra um miðjan september sl. kom
fram að Seðlabanki íslands hefur
einfaldlega neitað ríkisstjórn um
umsögn varðandi breytta skipan
útlánastjórnar í bankakerfinu, sem
myndi stórlækka allan vaxtakostn-
að.
Seðlabankastjóri sagði gagnrýni
forsætisráðherra ekki vera svara-
verða — fyrr á árinu hafði aðstoð-
arseðlabankastjóri sett ofan í við
forsætisráðhema á opinberum fundi
vegna þess, sem hann sagði vera
„rugl“ á sviði efnahagsmála.
A fullveldisdaginn 1. desember
sl. flutti Morgunblaðið frétt af
„nýrri greinargerð" Seðlabanka ís-
lands um vaxtamál — bankinn „tel-
ur að enginn vafi leiki á því að
raunvextir hér á landi séu nú að
jafnaði lægri en [víðast erlendis].
Vitræn umræða um íslensk
vaxtamál verður ekki byggð á
„rugli“ um „raunvexti" — ef seðla-
bankamenn eru á öðru máli, þá
býður höfundur þeim að svara opin-
berlega gagnrýni hans- á nýlega
„greinargerð" embættismanna um
málið.
Nokkrum dögum áður hafði Guð-
mundur J. Guðmundsson gengið af
fundi ASÍ — „sagði hann að umræð-
ur um vaxtamál hefðu gengið svo
fram af sér að hann hefði ekki
mátt sitja undir þeim lengur“, að
sögn Morgunblaðsins 28. nóvem-
ber.
„Það er vaxtakostnaður sem er
Gabriele
100
§§ §||
r 7J\ TRIUMPHADtER
Ritvélar
í úrvali
Verö frá kr. 17.900,-stgr
EinarJ. Skúlason hf.
Grensásvegi 10, sími 686933
Gunnar Tómasson
„Og hvaðan kemur
verðbólgan? Vaxta-
kostnaður atvinnulífs
umfram arðgjöf fjár-
magns hefiir magnað
verðbólgn á Islandi um
árabil — Seðlabanki ís-
lands hefiir leyft við-
skiptabönkum að fjár-
mag-na slíkan umfram-
kostnað með seðla-
prentun.“
að sliga almenning og fyrirtækin í
landinu og ASI kemur þetta ekki
við,“ sagði Guðmundur til útskýr-
ingar.
Hverjar eru staðreyndir málsins?
Vextir og verðbólga
í greinargerð embættismanna,
sem áður var vikið að, er að finna
„upplýsingar" um hlutfall vaxta-
kostnaðar miðað við aðrar hag-
stærðir — ef þar væri ekki hallað
réttu máli, þá væri augljóst, að
Guðmundur „veit ekki hvað vextir
eru“.
Tafla 1. Vaxtagjöld atvinnu-
rekstrar, 1985-1988
1985 1986 1987 1988
Hlutfall af veltu 1,3% 2,7% 2,3% 3,7%
Hlutfall af veigum
þáttatekjum 4,3% 8,7% 8,9% 11,0%
Til samanburðar
Hlutfall launa af
vergum þáttat. 64,0% 63,8% 71,1% 72,7%
Hlutfall vaxta
aflaunum 6,7% 13,6% 9,7% 15,1%
Á enskri tungu flokkast „upplýs-
ingar“ af þessu tagi undir síðasta
lið þess, sem kallast „lies, damned
lies, and statistics“ — tæpitungu-
laust kallast þetta „rugl“.
Seðlabankamenn gefa sér þá for-
sendu, að kostnaður vegna nafn-
vaxta sé frábrugðinn öllum öðrum
kostnaði atvinnulífs — í hugarheimi
þeirra hafa 35% nafnvextir ekkert
að gera með 25% verðbólgu síðustu
tveggja ára.
Viðskiptaráðherra tók undir
þetta sjónarmið í grein í Morgun-
blaðinu í janúar 1988 — „Háum
vöxtum fylgir vissulega vandi,“
sagði hann þar, „en hið eiginlega
vandamál er verðbólgan.“
Og hvaðan kemur verðbólgan?
Vaxtakostnaður atvinnulífs um-
fram arðgjöf fjármagns hefur
magnað verðbólgu á Islandi um
árabil — Seðlabanki íslands hefur
leyft viðskiptabönkum að fjár,-
magna slíkan umframkostnað með
seðlaprentun.
„Rugl“ um raunvexti breytir ekki
einföldum staðreyndum málsins —
á tímabilinu 1986-1989 mun þjóð-
arframleiðsla aukast um 12%
samtímis því sem nýsköpun kaup-
máttar f mynd útlána lánakerfisins
mun jafngilda 135%.
Verðbólga er rökrétt afleiðing
slíkrar útlánaþenslu — vaxtakostn-
aður umfram arðgjöf fjármagns í
atvinnulífi þjóðarinnar er beinn
verðbólguvaldur þegar bankakerfi
fjármagnar hann með nýsköpun
kaupmáttar.
Yfirstjórn íslenskra peningamála
kýs að loka augunum lyrir þessari'
einföldu staðreynd — hvers vegna?
Vaxtabyrði lántakenda
Viðskiptaráðherra gagnrýndi í
Morgunblaðsgrein sinni í janúar
1988 málflutning þeirra, sem telja
„að háir vextir væru í þann veg að
leggja atvinnulíf landsmanna í rúst
og knésetja heimilin í Iandinu“.
Staðreyndir málsins benda til
þess, að þeir hinir sömu hafi haft
eitthvað til síns máls — bylgja gjald-
þrota atvinnufyrirtækja og heimila,
sem gengið hefur yfir síðan þessi
orð voru rituð, er enn ekki öll.
Háir vextir eru „að leggja at-
vinnulíf landsmanna í rúst og kné-
setja heimilin í landinu" — seðla-
prentun lánakerfis vegna vaxta-
kostnaðar hefur mildað dauðagrip
hávaxtastefnu á vettvangi atvinnu-
lífs á kostnað verðbólgunnar.
Höfundur hefur gert eftirfarandi
töflu um hlutfall vaxtakostnaðar
miðað við þjóðarframleiðslu árin
1985-1989 — útreikninginn má
endurbæta, en vandinn er ótvírætt
af þeirri stærðargráðu, sem hér
kemur fram.
Tafla 2. Vextir og þjóðarfram-
leiðsla, 1985-1989 (í milljörðum
króna)
Á ársgrundvelli í árslok
„Spá“
1985 1986 1987 1988 1989
Vaxtakostn. 65 62 60 109 148
lnnl. lán 37 43 48 79 83
Erllán 28 19 12 30 65
íjóðarframl. 152 188 245 305 333
Hlutfall V/Þ 43% 33% .24% 36% 44%
Hvert steftiir?
Af gögnum málsins má m.a. ráða
eftirfarandi um þróun síðustu ára
og horfur á komandi tíð:
ÞQRLAKS SAGA HELGA
Þegar Jóhannes Póll II pófi
kom hingað til lands í júní
sl., kom út ný útgófa af
Þorlóks sögu helga, Skól-
holtsbiskups, búin til prent-
unar af Ásdísi Egilsdóttur,
bókmenntafræðingi, sem
skrifar formóla að bókinni.
ÞORLAKS SA6A HELGA ER KÆRKOMIN JOLAGJOF
Þorlákssiiður.