Morgunblaðið - 23.12.1989, Blaðsíða 1
48 SIÐUR B
II
STOFNAÐ 1913
294. tbl. 77. árg.
LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Ceausescu-fjölskyldunni velt úr sessi í Rúmeníu:
Barist í miðborg Búkarest
þegar fólkið fagnar frelsi
Ovíst um örlög Ceausescu-hjónanna en sonur þeirra hand-
tekinn — Þjóðarráð lýðræðisaflanna tekið við stjórninni —
Oryggissveitunum skipað að leggja niður vopn en beijast
áft-am — Fjöldagrafir fínnast í Thnisoara*
Búkarest. Reuter.
HUNDRUÐ óbreyttra Rúmena féllu er öryggissveitir Nicolaes Ceau-
sescus einræðisherra í Rúmeníu, sem rutt var úr valdastóli í gfær,
skutu án afláts á óbreytta borgara í miðborg Búkarest, höfúðborg
landsins, I gærkvöldi. Fylgismenn Ceauseseus börðust við hersveitir,
sem gengið höfðu til liðs við almenning, um forsetahöllina og aðal-
stöðvar kommúnistaílokksins og skutu þá á mannfjölda, sem fagnaði
byltingunni. Hermdu frégnir að lík lægju sem hráviði á götum og
gangstéttum miðborgarinnar. Ekki var ljóst seint í gærkvöldi hvar
Ceausescu og Elena kona hans voru niðurkomin, en þau voru á
flótta undan fólkinu. Vangaveltur voru ýmist um að þau hefðust við
í bækistöðvum frúarinnar 75 km frá Búkarest eða væru komin úr
landi. Sonur þeirra Nicu var hins vegar handtekinn. Seint í gær-
kvöldi bárust þær fregnir að öryggissveitir, sem haldið höfðu til í
forsetahöllinni, hefðu gefist upp eftir mjög harða bardaga og að
herinn hefði öll völd við aðalstöðvar flokksins. Einnig að bardagar
lægju niðri í miðborg Búkjrest en hörð átök væru milli stuðnings-
manna Ceausesco og hersveita við byggingar rúmenska sjónvarpsins
og í borgunum Sibiu, Brasov, Cluj, Craiova, Resita og Tirgu Mures.
Að sögn erlendra sendifulltrúa í
Búkarest ríkti upplausn og stjórn-
leysi í Rúmeníu og fréttir þaðan
voru nokkuð á reiki í gær. fYétta-
stofan Agerpres sagði að ráðherrar
rúmensku stjórnarinnar hefðu sagt
af sér eftir flótta Ceausescus og
Reuter
„Sameining“
íBranden-
borgarhliði
Vestur- og Austur-Þjóðveijar
„sameinuðust" í gær undir
Brandenborgarhliði, sem verið
hefur tákn fyrir skiptingu
Þýskalands. Helmut Kohl,
kanslari Vestur-Þýskalands, og
Hans Modrow, forsætisráð-
herra Austur-Þýskalands,
gengu saman að hiiðinu og
lýstu því yfir, að það væri öllum
opið. „Berlín er enn skipt en
það er ekkert, sem skilur leng-
ur að borgarbúa,“ sagði Walter
Momper, borgarstjóri Vestur-
Berlínar.
við hefði tekið svonefnt Þjóðarráð
lýðræðisaflanna er í sætu yfirmenn
úr hernum, stúdentaleiðtogar og
menntamenn. Leiðtogi þess væri
Corneliu Manescu, fyrrum utanrík-
isráðherra, sem sendur var í útlegð
innanlands eftir að hann gagnrýndi
harðstjórn Ceausescus í mars sl.
Nefndin hefur m.a. heitið fijálsum
kosningum í apríl nk. og afnámi
ritskoðunar. Einnig ætlar hún að
fella orðin lýðveldi sósíalista úr
nafni landsins.
Stjórnarandstæðingar náðu sjón-
varpsstöðinni í Búkarest á sitt vald
í gærmorgun og þaðan var hvatt
til uppreisnar gegn stjórn Ceaus-
escus. Yfirmenn hersins komu
stuttu seinna í sjónvarpssal og
hvöttu hermenn til að beina byssum
sínum frá fólkinu en ganga þess í
stað til liðs við það. Yfirmaður her-
aflans, Stefan Gusa, lýsti yfir því
í beinni útsendingu að hinar ill-
ræmdu sérsveitir innanríkisráðu-
neytisins, Securitatis, sem í raun
hafa verið öryggissveitir hins ill-
ræmda einræðisherra, Ceausescus,
hefðu verið lagðar niður.
Að sögn sjónvarpsins urðu harðir
bardagar við forsetahöllina í Búkar-
est og aðalstöðvar kommúnista-
flokksins. Hlutar beggja bygging-
anna hefðu staðið í ljósum logutn
í gærkvöldi. Hersveitir umkringdu
sjónvarpsstöðina til að veija hana
áhlaupi öryggissveitanna og þús-
undir borgara mynduðu lifandi vegg
um hana. Hins vegar komust örygg-
issveitirnar að byggingu útvarpsins
og héldu uppi skothríð á hana í
gærkvöldi. Utvarpið hvatti fólk til
að hverfa úr miðborginni til þess
að het'inn gæti brotið öryggissveit-
irnar á bak aftur.
Um 150.000 íbúar borgarinnar
Timisoara fögnuðu falli Ceausescu
í gær og syrgðu jafnframt a.m.k.
4.600 manns sem hermenn og ör-
yggissveitir felldu í uppreisn sem
braustþar út sl. sunnudag; Fundist
hafa fjöldagrafir með líkum hinna
látnu og sýndi rúmenska sjónvarpið
myndir frá þeim í gærkvöldi. Pól-
vetji sem varð vitni að árás hersins
í Timisoara sl. sunnudag sagðist
hafa séð hermenn skjóta á börn sem
andófsmenn röðuðu upp á milli sín
og þeirra. „Þeir skutu ekki upp í
loftið, heldur beint á börnin. Þetta
var morð, algjör slátrun," sagði
hann. Átökin í borginni hófust eftir
handtöku prestsins Laszlos Tekes,
sem er af ungverskum ættum.
Rúmenska sjónvarpið sagði í gær-
kvöldi að hann væri heill á húfi og
hefði sungið messu í gær. Las sjón-
varpið upp áskorun frá honum til
fólksins um að gefast ekki upp í
frelsisbaráttu sinni.
Sovéska þingið fagnaði í gær-
kvöldi falli Ceausescus og sam-
þykkti að tillögu Míkhaíls Gor-
batsjovs, Sovétleiðtoga, sérstaka
stuðningsyfirlýsingu við lýðræðis-
öflin í 'Rúmeníu.
Sjá ennfremur frásagnir af at-
burðunum í Rúmeníu og for-
ystugrein á bls. 18 og 20-21.
Reuter
Nicu Ceausescu, sonur hins fallna Rúmeníuforseta, í sal rúmenska
sjónvarpsins í gærkvöldi. Hermt er að hann sé nú geymdur í kjall-
ara sjónvarpsins og að öryggissveitir ntuni gera allt til þess að
bjarga honuin og jafnvel ráðast á sjónvarpshúsið.
Yiðbrögðin við falli Ceausescus:
„Skelfílegri martröð
í Rúmeníu er lokið“
London. Reuter.
ÞJÓÐHÖFÐINGJAR og þjóðarleiðtogar um allan heim fognuðu
í gær falli Nicolaes Ceausescus Rúmeníuforseta þótt á sama tíma
væru fréttir um, að hersveitir hollar honum berðust enn. Margar-
et Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, sagði, að bundinn hefði
verið endi á blóðuga ógnarstjórn og bar lof á hetjulund rúmen-
skrar alþýðu. „Rúmenar eru frjálsir, öll Evrópa varpar öndinni
léttara," sagði Francois Mitterrand Frakklandsforseti og Mario
Soares, forseti Portúgals, mælti fyrir munn flestra þegar hann
sagði: „Skelfilegri martröð í Rúmeniu er lokið.“
„Minnumst þessa hugrakka
fólks, sem vildi ekki gefast upp
fyi’ir blóði drifinni ógnarstjórn-
inni,“ sagði Thatcher, en skömmu
áður en fréttist af falli Ceausescus
hafði Elísabet Englandsdrottning
svipt hann orðu, sem hann var
sæmdur 1978, og það sama gerði
einnig Ólafur Noregskonungur.
Utanríkisráðherrar Evrópubanda-
lagsins voru á fundi í París um
ástandið í Rúmeníu þegar þeim
bárust tíðindin um fall Ceausesus
og var þá dagskránni breytt og
farið að ræða um hugsanlega
hjálp við Rúmena. Sagði í sam-
þykkt ráðherranna, að EB og
heimsbyggðin öll yrðu að bregðast
skjótt við til hjáipar á þessari
ögurstund í sögu rúmensku þjóð-
arinnar. Þá ætlar Alþjóða Rauði
krossinn að senda lyf og önnur
hjálpargögn til landsins.
„Nú er kommúnisminn liðinn
undir lok,“ sagði rúmenska leik-
skáldið Eugene Ionesco í París og
rúmenskir útlagar víða urn lönd
grétu af g'leði þegar þeir heyrðu
tíðindin. „í gær var Rúmenía
myrkur heimur þar sem enginn
brosti,“ sagði útlaginn og ballett-
höfundurinn Gigi Cacuileánu. „I
dag ræddi ég við móður mína og
hún sagði, að fólk væri hlæjandi
á almannafæri. Það er krafta-
verk.“
Um alla Austur-Evrópu hafa
þjóðarleiðtogar og aðrir frammá-
menn óskað Rúmenum til ham-
ingju með að vera lausir við mar-
tröðina en talsmaður Sovétstjórn-
at'innar kvaðst vona, að þrátt fyr-
ir örlagaríka atburði bæru Rúm-
enar gæfu til að koma í veg fyrir
upplausn í landi sínu. Marlin Fitz-
water, talsmaður Bandaríkja-
stjórnar, sagði, að „hræðilegu al-
ræðisoki" hefði verið lyft af Rúm-
enum og Hans-Dietrich Genscher,
utanríkisráðherra Vestur-Þýska-
lands, sagði, að Rúmenar liefðu
sigrað fulltrúa mannfyrirlitning-
arinnar.
„Á þessu herrans át'i 1989 hef-
ur frelsisgyðjan farið sigurför um
Evrópu," sagði Genscher.