Morgunblaðið - 23.12.1989, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1989
5
Glöddu gamla
fólkið meðjóla-
guðspjallinu
Selfossi.
BÖRN úr Barnaskóla Selfoss
fluttu jólaguðspjallið fyrir gamla
fólkið á sjúkradeildinni Ljósheim-
um eftir að þau höfðu lokið dag-
skrá litlu jólanna í skólanum. Um
var að ræða upplestur, leik og
söng. Þetta gerðu börnin að eigin
frumkvæði og ekki annað að sjá
en bæði þau og gamla fólkið nytu
flutningsins.
Sig. Jóns.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Verðlagsstofiiun veitir
aðhald og upplýsingar
„MÉR vitanlega stendur ekki til að setja vörur og þjónustu undir
verðlagsákvæði eða verðstöðvun," segir Georg Olafsson verðlags-
stjóri um fyrirkomulag sérstaks aðhalds í verðlagsmálum frá áramót-
um í tengslum við upptöku virðisaukaskatts í stað söluskatts.
Georg segir að hlutverk Verð-
lagsstofnunar yrði að fylgja því eft-
ir með aðhaldi og upplýsingamiðlun
að vörur og þjónusta lækkaði í verði
um áramót eftir því sem breytingar
á skattinum gæfu tilefni til. Nefndi
hann sem dæmi að virðisaukaskatt-
ur yrði endurgreiddur á mjólk,
kindakjötí, fiski og græmeti og
ættu þessar vörur því að lækka.
Einnig ætti ýmis þjónusta að lækka
í verði, til dæmis tryggingar og
líkamsrækt.
Ekki hefði verið rætt um að grípa
til breytinga á ákvörðunum við
verðlagningu, til dæmis með því að
setja vörur eða atvinnugreinar und-
ir verðlagsákvæði eða verðstöðvun.
Heilsugæslustöðin á
Sauðárkróki:
Hjúkrunar-
ft’æðingarn-
ir segja upp
Sauðárkróki.
VEGNA nýrra laga um verka-
skiptingu ríkis og sveitarfélaga
mun ríkið yfirtaka rekstur bæði
sjúkrahúss og heilsugæslu á
Sauðárkróki, svo sem annars
staðar á landinu, um áramót.
Við heilsugæslu í Skagafirði
hafa starfað fimm hjúkrunarfræð-
ingar en fjórir þeirra hafa nú sagt
upp störfum i kjölfar þess að 1.
október sl. sagði stjórn heilsugæsl-
unnar upp kjarasamningi við þessa
starfsmenn sem kvað á um að
þeir fengju staðaruppbót greidda
á laun sín til samræmis við hjúk-
runarfræðinga á sjúkrahúsinu.
Að sögn Elísabetar Kemp, sem
er einn þeirra hjúkrunarfræðinga
sem sögðu upp störfum, hafa fjór-
ir af þeim fimm sem sögðu starfi
sínu lausu sótt um vinnu á sjúkra-
húsinu og munu væntanlega taka
þar til starfa 1. febrúar nk. en
hafa fallist á að vinna við heilsu-
gæsluna lausráðnir frá áramótum
og fram til þess tíma.
Jón Guðmundsson, einn af
stjórnarmönnum Sjúkrahúss
Skagfirðinga, sagði ekki neina
lausn í sjónmáli varðandi þá þætti
heilsugæslunnar sem þessir starfs-
menn önnuðust, og mundu þeir
ekki skýrast fyrr en hrein skil
yrðu á verksviði ríkis og sveitarfé-
laga, en það eru aðallega ung-
barnaeftirlit, skóla- og heima-
hjúkrun.
Munu bæjaryfirvöld svo og
stjórn héraðsnefndar og heilsu-
gæslu hafa af því nokkrar áhyggj-
ur að ófremdarástand geti skapast
í þessum málum þegar líða fer á
veturinn.
- BB
Siglufjörður:
Trausti vita-
vörður vann
milljón kr.
Siglufirði
IVausti vitavörður á Sauða-
nesi kom á fimmtudag inn í
verzlunina Tröð og keypti
fimm skafiniða í Háskóla-
happdrættinu á 100 krónur
hvern miða.
Andrés skóf stax af miðunum
og viti menn. Á einn miðann
vann hann eina milljón.
Trausti sagði að það kæmi
sér mjög vel að fá þessa pen-
inga. Tröð hefur umboð fyrir
Morgunblaðið hér í Sigluf irði.
Matthías