Morgunblaðið - 23.12.1989, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1989
Leiðtogar andófsmanna:
Malinescu var send-
ur í útlegð fyrir að
gagnrýna forsetann
Vín. Reuter og Daily Telegraph.
SAMKVÆMT fregnum austur-þýsku fréttastofunnar ADN er Cornel-
iu Manescu, fyrrum utanríkisráðherra, nú helsti forystumaður þeirra
aila sem reyna að fylla valdatómið eftir fall Ceausescu. Ungt skáld,
Mircea Dinescu, er einnig þekkt fyrir andstöðu við harðlínusinnana.
Hann sendi í síðustu viku frá sér yfirlýsingu þar sem hann hvatti alla
menntamenn „sem ekki hafa kropið fyrir harðstjóranum" til að grípa
til vopna gegn stjórninni. Yfirlýsingin var lesin upp í rúmenskri útsend-
ingu breska útvarpsins, BBC. Nokkrir rithöfúndar í Rúmeníu hafa lýst
stuðningi við Dinescu og hvatt kommúnista til þess að hætta að of-
sækja fjölskyldu hans.
Manescu er 73 ára gamall, frá
borginni Ploesti, og las lög og hag-
fræði við háskólann í Búkarest. Hann
varð fé’.agi í kommúnistaflokknum
1936 og tók virkan þátt í neðanjarð-
arstarfsemi hans á stríðsárunum. Á
sjöunda áratugnum, er Georghe Ghe-
orgiu-Dej var valdamestur í Rúm-
eníu, komst Manescu til mikilla met-
orða og varð utanríkisráðherra 1961.
Sex árum síðar var hann kjörinn
forseti Allsheijarþings Sameinuðu
þjóðanna, fyrstur ráðamanna frá
kommúnistaríki. Hlaut hann lof fyrir
þátt sinn í að koma á vopnahléi milli
araba og ísraela í sex daga stríðinu
sama ár. Árið 1972 var honum vikið
úr ríkisstjórninni án nokkurra út-
skýringa og bar lítið á honum næstu
ár en síðar var hann sendiherra í
Frakklandi árin 1977 - 1982.
í mars síðastliðnum sendi Malines-
cu ásamt fimm öðrum þekktum, fyrr-
verandi embættismönnum frá sér
opið bréf til forsetans þar sem stjórn-
arfar Ceausescu var gagnrýnt harð-
lega, einkum fyrir að brjóta gegn
mannréttindaákvæðum Helsinki-
sáttmálans frá 1975. Þeir sem rituðu
undir með Malinescu voru Silviu
Brucan, fyrrum sendiherra í Banda-
ríkjunum og hjá SÞ, Georghe Apo-
stol, áður verkalýðsleiðtogi og félagi
í stjómmálaráðinu, helstu valda-
stofnun í kommúnistaríkjum, Alex-
andru Barladeanu, einnig fyrrum
stjómmálaráðsmaður, Constantin
Pirvulescu, einn af stofnendum
kommúnistaflokksins, og Grigore
Raceanu, sem aðeins er lýst sem
þekktum flokksleiðtoga.
Lýst var áætlun Ceausescu um að
leggja í rúst mörg hundruð eða þús-
undir sveitaþorpa og flytja bændurna
í ný hverfi íbúðarblokka. Sexmenn-
ingamir sögðu þessar ráðagerðir
stangast á við ákvæði stjórnarskrár-
innar um einkaeignarrétt. Ceausescu
var einnig sagður hafa spillt efnahag
landsins og lýst því harðræði sem
almenningur yrði að búa við vegna
ægilegs skorts á mat, rafmagni og
eldsneyti vegna þeirrar ákvörðunar
stjómvalda að greiða upp allar er-
lendar skuldir á fáeinum áram.
í apríl var skýrt frá því að Malines-
cu væri við slæma heilsu, þjáðist af
æðaþrengslum og magasári sem
hann hefði fengið eftir að honum var
vísað í útlegð úti á landsbyggðinni
vegna gagnrýninnar á stjómvöld.
35 farast í bílslysi í Ástralíu
Reuter
Tveir langferðabílar á leið milli Brisbane og Sydney
í Ástralíu rákust á í gær og minnst 35 týndu lífi.
í bílunum var aðallega fólk á leið í jólaleyfi, þ. á
m. fimm úr sömu fjölskyldunni. Ekki er vitað með
vissu hver orsök slyssins var en lögregla segir að
rigning hafi verið á svæðinu. Báðir bílstjórarnir lét-
ust. Framhluti hvors bíls gekk allt að fimm metra
inn í skrokk hins og var sem þeir hefðu verið soðn-
ir saman. 12 stundir tók að finna líkamsleifar fólks-
ins. Yfir 40 manns slösuðust, margir þeirra
lífshættulega.
Mitterrand ræðir sameiningu Þýskalands:
Frakkar ætla ekki
að standa í veginum
Austur-Berlín. Reuter. "> *
FRANCOIS Mitterrand Frakk-
landsforseti sagðist í gær bera
traust til stjórnvalda í Austur-
Aðfangadagur: Lokað
Júladagur: Lokað
2. jóladagur: Opnað kl. 18.00
Jólamatseðill
InnbakaÖir sjávarréttir i brauðaeigsjley
Kampavínssorbct
Gljáð appelsínuönd
Jólavöfflur
Verð aðeins kr. 2.900,-
Dansað til kl. 03.00. Rúllugjald kr. 500,- íyrír aðra en matargestl
Gamlárskvöld: Einkasamkvæmi
Hýárskvöld: Opnum kl. 19.00.
Þýskalandi undir lok heimsóknar
sinnar þangað. Mitterrand sem
lagst hefur gegn sameiningu
þýsku ríkjanna sagðist ekki telja
hættu á að hún yrði í bráð.
Mitterrand er fyrsti þjóðarleið-
togi bandamanna sem heimsækir
Austur-Þýskaland. Á fréttamanna-
fundi skömmu áður en Mitterrand
hélt heim frá Austur-Berlín sagði
hann að þeir aðilar að samsteypu-
stjórn landsins sem hann hefði rætt
við væru ekki fylgjandi tafarlausri
sameiningu.
Margir bandamenn Vestur-Þjóð-
veija, þár á meðal Frakkar, hafa
undanfarið látið í Ijós áhyggjur yfir
því að þjóðernisást og sú trú margra
Austur-Þjóðveija að einungis sam-
eining geti bjargað efnahag lands-
ins myndu leggja austur-þýska ríkið
í rúst.
Mitterrands tók fram að engin
vildi skipa Þjóðveijum í austri og
vestri hvernig þeir ættu að haga
sínum málum. Þar væri um eina
þjóð að ræða sem heyrði saman.
„Ég er ekki á meðal þeirra sem
vilja taka í taumana,“ sagði Mitterr-
and én bætti við að allar breytingar
yrðu að vera afíeiðing þess að al-
menningur léti vilja sinn í ljós í
fijálsum kosningum. Mitterrand
sagði að í ljósi sögunnar gætu Evr-
ópubúar ekki horft fram hjá þeirri
ógn sem stafaði af óstöðugleika
einkum hvað varðaði virðingarleysi
við gildandi landamæri. En þegar
Þjóðveijar hafa gert upp hug sinn
þá munu Frakkar ekki standa í
veginum, sagði Mitterrand.
ERLENT
Syðri-Straumfjörður:
Herstöðin
ekki lögð af
Kaupmannahöfn. Frá N. J. Bruun, frétta-
ritara Morgunblaðsins.
UFFE Ellemann-Jensen, utanrík-
isráðherra Dana, og James Bak-
er, starfsbróðir lians banda-
rískur, hafa náð um það sam-
komulagi, að Bandaríkjaher reki
áfram herstöðina í Syðra-
Straumfírði.
Bandaríkjastjórn hafði í hyggju
að loka herstöðinni í árslok 1991
en nú hefur hún orðið við eindregn-
um óskum grsénlenskra og danskra
stjórnvalda um áframhaldandi
rekstur hennar. Þá hefur hún einn-
ig fallið frá því skilyrði fyrir rekstr-
inum, að Danir og Grænlendingar
axli kostnaðinn að sínu leyti en
Jonathan Motzfeldt, formaður
grænlensku landstjórnarinnar, hef-
ur ekki viljað ljá máls á því.
Nýársmatseðill
In n bakað ir sjá va rrétt ir
i brauðdeigsflev
<5
Kampavinssorbet
<S
Gljáð appelsínuönd
<5
Nýársvöfjlur
Verð aðeins kr. 3.500,-
Rúllugjald kr. 1.000,- íyrir aöra en matargestl
o Sa’UtrkonJí’kt iimiíalitV jífckrG
Dunsad til kl. 03.00.
IÓLATRÉSSKEMMTUN 1989
fyrir börn félagsmanna
og gesti þeirra verður í
Vetrarbrautinni,
Þórscafé, annan dag jóla
kl. 15.00-18.00
Fólag járniðnaðarmanna
Félag bifvélavirkja
Félag bifreiðasmiða .
Iðja, félag verksmiðjufólks *
Nót, sveinafélag netagerðamanna
Fólag blikksmiða
JÓLASVEINAR
KOMA í HEIMSÓKN
VerÖ kr. 500,-
Miðar seldir við innganginn