Morgunblaðið - 13.01.1990, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGMdAGUR 13. JANÚÁR 1Ö9Ö
7
Daggjaldaneftid sjúkrahúsa:
Daggjöld hækka um 4,8% og
slysastofutaxtarnir um 6,4%
Morgunblaðið/Þorkell
Birgir Björnsson, forstöðumaður, er hér í hinu nýja íþróttahúsi FH
i Kaplakrika.
Daggjaldanefiid sjúkrahúsa hef-
ur ákveðið að daggjöld sjúkrahúsa
sveitarfélaga, sjálfseignar- og
einkastofiiana iiækki um 4,8% 1.
desember 1989 og þjónusta
sjúkrahúsa fyrir slysahjálp og
röntgenrannsóknir hækki um
6,4% 1. janúar 1990. láxtarnir
höfðu ekki hækkað frá 1. júlí 1989,
að sögn Þóris Ólafssonar, starfs-
manns Daggjaldanefndar sjúkra-
húsa.
Iþróttahúsið í Kaplakrika
í Hafiiarfírði tilbúið í mars
FRAMKVÆMDIR við hið nýja
íþróttahús Hafiiarfjarðarbæjar í
Kaplakrika hafa gengið nokku vel
og verður húsið að öllu óbreyttu
tilbúið í mars, að sögn Birgirs
Björnssonar, forstöðumanns
Skipað í sljóm Lána-
sjóðs námsmanna
Menntamálaráðherra hefur
skipað nýja stjórn Lánasjóðs
íslenskra námsmanna, skv. lögum,
er samþykkt voru á Alþingi 18.
desember sl.
í stjórninni eru: Árni Þór Sigurðs-
son, hagfræðingur, skipaður formað-
ur, Guðrún Siguijónsdóttir, sjúkra-
þjálfari, skipuð án tilnefningar, Guð-
mundur Ólafsson, hagfræðingur, til-
nefndur af fjármálaráðherra, Viktor
B. Kjartansson, tilnefndur af SHI,
Arnór Þórir Sigfússon, tilnefndur af
SÍNE, og Arnar Már Ólafsson, til-
nefndur af BÍSN.
Varamenn: Einar Birgir Steinþórs-
son, kennari, skipaður án tilnefning-
ar, Elsa Þorkelsdóttir, lögfr., skipuð
án tilnefningar, Emil Bóasson,
landfr., tilnefndur af fjármálaráð-
herra, Inga Dóra Sigfúsdóttir, til-
nefnd af SHÍ, Hólmfríður Garðars-
dóttir, tilnefnd af SÍNE, og Atli Ge-
org Lýðsson, tilnefndur af BÍSN.
íþróttahússins. Þetta verður
stærsta íþróttahús landsins að
gólffleti, 44x44 metrar. „Stefnt er
að því að FH-liðið leiki sína síðustu
leiki í íslandsmótinu í handknatt-
leik í húsinu," sagði Birgir.
Nú er verið að koma upp lýsingu
í húsinu og unnið að undirbúningi
vegna trélagningar á gólf þess. „Það
tekur nokkrar vikur að leggja tré á
gólfið, enda er það vandasöm vinna,“
sagði Birgir. íþróttahúsið mun taka
um 3000 áhorfendur. Útdregnir
áhorfendabekkir taka 2.500 áhorf-
endur, en einnig verða laus sæti í
húsinu og stæði.
„Það er mikil lyftistöng fyrir
íþróttalíf í Hafnarfirði að fá þetta
glæsilega hús. Kaplakrikasvæðið er
orðið stórkostlegt,“ Sagði Birgir
Björnsson, fyrrum fyrirliði FH og
landsliðsins í handknattleik.
„Hagstofan reiknar þetta út fyrir
okkur og vísitölugrunnurinn sam-
anstendur af tólf liðum, til dæmis
launum, matvælum, rafmagni, hita,
hreinlætisvörum og viðgerðum,"
sagði Þórir Ólafsson í samtali við
Morgunblaðið.
Heildardaggjöld hjúkrunarheimila
sveitarfélaga eru frá 1. desember
1989 frá 1.267 krónum upp í 5.511
krónur. Daggjald Hornbrekku á Ól-
afsfirði er 5.511 krónur, hjúkruna-
rdeildar Garðvangs í Garði 5.433
krónur, Droplaugarstaða við Snorra-
braut 4.529 krónur, hjúkrunardeildar
Hlíðar á Akureyri 4.790 krónur og
hjúkrunardeildar Dalbæjar á Dalvík
3.858 kr.
Heildardaggjöld sjálfseignar- og
einkastofnana eru frá 1. desember
síðastiiðnum frá 1.267 krónum upp
í 8.285 krónur. Daggjald Vistheimil-
is Sjálfsbjargar við Hátún er 8.285
krónur, Vinnuheimilis SÍBS Reykja-
lundi 7.316 krónur, Skjóls í
Reykjavík 6.150 krónur, Vogs í
Reykjavík 5.463 krónur og Hrafnistu
í Hafnarfirði 5.047 krónur.
„Þetta er misjöfn þjónusta, sem
er veitt á mörgum stöðum," sagði
Þórir. „Ýmsir hafa fengið tíma-
bundnar hækkanir vegna viðgerða,
til dæmis Reykjalundur. En auðvitað
ættu hjúkrunarheimilin að vera á
svipuðu róli og við erum að skoða
það mál. Skjól er nýtt og er að fara
í gang, þánnig að daggjaldið þar var
ákveðið dálítið hátt.“
Osta og smjörsalan:
Eignarhluti Sambands-
ins metinn á 65 milljónir
GERÐARDÓMUR sem aðilar samþykktu að myndi meta verðgildi eign-
arhluta Sambands íslenskra samvinnufélaga í Osta og smjögsölunni
komst að þeirri niðurstöðu að eignarhluti Sambandsins væri 65 milljón
króna virði, en eins og kunnugt er hefur Sambandið viljað selja sinn
hlut fyrir 125 milljónir króna. „Ég er afskaplega óánægður með þetta
mat,“ sagði Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Sambandsins í samtali við
Morgunblaðið. Hann segir að það séu ákveðnir liðir sem Sambandið
geti óskað eftir endurskoðun á, og það muni verða gert.
Guðjón var spurður hvort aðilar
hefðu ekki skuldbundið sig til þess
að hlýta niðurstöðu gerðardómsins:
„Við töldum okkur hafa öll rök fyrir
því að verðleggja þetta á 125 milljón-
ir og teljum okkur enn hafa þau.
Við verðum náttúrlega að hlýta þess-
um gerðardómi, en það eru vissir
hlutir sem við getum væntanlega
vísað til endurskoðunar, eða áfiýjun-
ar, og það munum vjð gera,“ sagði
Guðjón.
Þeir sem skipuðu gerðardóminn
voru Guðmundur Skaftason, odda-
maður, Geir Geirsson, fyrir Sam-
bandið og Arnór Eggertsson, fyrir
Osta og smjörsöluna.
ÚTSALA-ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA
ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA