Morgunblaðið - 04.02.1990, Qupperneq 1
96 SIÐUR B/C
29. tbl. 77. árg.
SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1990 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Miðstjórnarfundur sovéska kommúnistaflokksins í vikunni:
Réttmæti valdaeinokunar
flokksins tekið til umræðu
Dómsdagnr
eftir 40 ár?
Washington. Reuter.
Grænmeti í flest
mál, húsin kynt
með sólarorku og
reiðhjól á hvert
mannsbarn eru
meðal þess, sem
koma skal, vilji
mennirnir bjarga
sjálfum sér frá stór-
kostlegum óförum
af völdum mengun-
ar. Kemur þetta fram í ársskýrslu banda-
rísku umhverfisverndarstofhunarinnar
Worldwatch Institute en þar segir, að
mannkynið hafi 40 ár til að breyta háttum
sínum. Tákist það ekki muni hrörnun
umhverfisins leiða af sér efnahagslegt
hrun og þar með upplausn mannlegs sam-
félags.
Dýr lækna-
handvömm
Haag. Reuter.
HOLLENSKUR dómstóll úrskurðaði á
miðvikudag að Radboud-spítalanum í Nij-
megen bæri að greiða 31.000 gyllini (um
933.000 ísl. kr.) vegna framfærslu barns
af því að læknar spítalans, sem gerðu ófrjó-
semisaðgerð á móðurinni árið 1979, hefðu
aðeins lokað fyrir annan eggjaleiðarann
en ekki báða. Konan uppgötvaði árið 1984
að hún var komin fimm mánuði á leið og
átti þá ekki kost á fóstureyðingu sam-
kvæmt hollenskum lögum. Dómurinn hafn-
aði þeirri röksemd spítalans að skaðabóta-
skyldu væri ekki til að dreifa í málinu af
því að sú gleði sem fylgdi því að eignast
börn vægi fyllilega upp á móti kostnaðin-
um og áhyggjunum vegna uppeldis þeirra.
Aratugur lág-
launamannsins
HVAÐ tekjur áhrærir hefur sá áratugur
sem nú er brátt á enda verið norsku lág-
launafólki sérlega hagstæður samkvæmt
útreikningum norska tímaritsins Ec-
onomic Report. Kaupmáttur launa skrif-
stofufólks hefur hækkað um 12% undanfar-
in tíu ár og starfsmanna hótela og veit-
ingahúsa um 9%. Launum hagfræðinga
og verkfræðinga í einkageiranum hefiir
verið haldið I horfinu á sama tímabili.
Prestar, prófessorar og liðsforingjar í
hernum hafa orðið verst úti, kaupmáttur
launa þeirra hefiir rýrnað um 17-19% und-
anfarin tíu ár.
Moskvu. Reuter.
Á MIKILVÆGUM miðstjórnarfundi sov-
éska kommúnistaflokksins nú í vikunni
verður rætt hvort rétt sé að afnema valda-
einokun flokksins og ekki er útilokað, að
fjölflokkakerfi í Sovétríkjunum komi tii
umræðu. Sagði frá þessu í gær í Interfax,
fréttabréfi Moskvuútvarpsins, en það hef-
ur mjög góð sambönd um allt flokkskerf-
ið.
Ifréttabréfinu sagði einnig, að rætt yrði
um að breyta stjórnkerfmu innan flokksins
þannig, að formaður hans og tveir varafor-
menn yrðu kjörnir til embættanna og nýrri
stofnun komið á fót í stað hins valdamikla
stjórnmálaráðs. „Við stefnum að því að koma
á lýðræðislegum sósíalisma," segir í flokkstil-
lögunöm að sögn Interfax en Míkhaíl Gorb-
atsjov, forseti Sovétríkjanna, mun leggja þær
fyrir miðstjórnarfundinn. „I þeim er kveðið
á um róttækar umbætur innan flokksins, sem
skuli beijast fyrir forystuhlutverkinu en ekki
ganga að því sem gefnu eða bera fyrir sig
stjórnarskrárákvæði þar að lútandi," sagði í
Interfax.
Komið verður á fót nýrri miðstjórn, skip-
aðri 200 mönnum i stað 500 nú, og í stað
stjórnmálaráðsins komi framkvæmdaráð þar
sem sæti eigi fulltrúar allra kommúnista-
flokka í sovésku lýðveldunum. Sagði í Inter-
fax, að „hugmyndinni um fjölflokkakerfi er
ekki hafnað en hún er ekki heldur talin leysa
allan vanda“. Á haustfundi fulltrúaþingsins
sovéska hafnaði Gorbatsjov tillögum um, að
sjötta grein stjórnarskrárinnar, sem kveður
á um forræði kommúnistaflokksins, yrði af-
numin og sagði þá, að það væri ekki tíma-
bært.
Líklegt þykir, að þessar tillögur séu undir-
rót orðrómsins um að Gorbatsjov hafi haft í
hyggju að segja af sér sem leiðtogi flokksins
en fréttaskýrendur segja nú, að hann ætli
sér augljóslega að vera áfram við stjórnvöl-
inn. Segja þeir einnig, að nýju tillögurnar
um skipan forystunnar muni auðvelda honum
jafnvægislistina innan flokksins og skiptist
þá varaformennskan milli umbótasinna og
harðlínumanns.
Sjá Baksvið á bls. 4 og viðtal við Jegor
Lígatsjov á bls. 6 C.
SKYNSEMIN
OFAR SKRUMINU
Einar Oddur
Kristjánsson
foi~mabur Vinnu-
veitendasambands
íslands
10
T
A
M
M
Y