Morgunblaðið - 04.02.1990, Síða 12

Morgunblaðið - 04.02.1990, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1990 Bandaríska kántrý- söngkonan Tammy Wynette segir frá lífinu í sveitinni, sambandinu vit Burt Reynnlds, Nashville ng tleira en hún held- nr hrenna tónleika á Hátel íslandi um næstu helgi eftir Friðrik Indriðason MIKILL SVIÐSSKREKKUR kvelur hina 23 ára gömlu ein- stæðu móður þar sem hún stendur á sviðinu í The Play- room Club í Atlanta við upjp- haf fyrstu tónleika sinna. Arið er 1965 og síðustu mánuðir hafa verið henni erfiðir. Hún er nýskilin eftir fyrsta hjóna- band sitt og hefiir þrjú ung börn, 1-4 ára, á framfæri. Þau bíða raunar móður sinnar baksviðs því hún hefúr ekki eftii á barnfóstru. Það er fremur hlýtt vorkvöld og um 150 manns bíða þess í reyk- mettuðum salnum að hún hefli söng sinn. Hún er ekki með öllu óþekkt í sönglistinni því hún er nýbúin að hljóðrita sitt fyrsta lag, Apartment No. 9, á vegum Epic, dótturfyrir- tækis CBS. Hún er kántrý- söngkona og heitir Virgina Wynette Pugh. Hún byijar kvöldið á laginu „Komdu ekki drukkinn heim“ eftir Lorettu Lynn. Sviðsskrekkurinn hverfúr um leið. í lok tónleik- ana kemur maður frá Epic upp á sviðið og færir henni 12 rauðar rósir. Og hann ger- ir það á hverju kvöldi sem hún kemur fram í þessum klúbb. Það virðist því sem Epic bindi miklar vonir við þetta nýstirni sitt. \ remur árum seinna hef- ur hún breytt nafni sínu í Tammy Wynette og sem slík er hún kosin kántrýsöngkona ársins í háborg kántrýtónlistar- innar, Nashville, og heldur þeim titli næstu tvö árin. Hún hlýtur tvenn Grammy-verðlaun og er orðin eitt af stærstu nöfnunum í kántrýtón- listinni í Bandaríkjunum. Á að baki fjölda af vinsælum lögum eins og Stand By Your Man, Divorce, Take Me to Your World og My Élusive Dreams. Hún.er á leið í hnappheld- una í annað sinn, nú með söngvar- anum George Jones sem er einn af hinum stóru í Nashville. En hjónabandið gengur ekki upp. Drykkja Jones og framavonir Tammy fara ekki saman og þau skilja nokkrum árum seinna. Yfir 60 plötum og óteljandi ferða- lögum um heiminn síðar liggur leið Tammy Wynette til íslands. Hún kemur hingað til lands í þessum mánuði og mun halda þrenna tón- leika á Hótel íslandi, þá fyrstu þann 8. febrúar. Með henni í för er sex- tán manna hópur, hljómsveit henn- ar, bakraddir og aðstoðarfólk. Auk þess mun George Richey fram- kvæmdastjóri Tammy fylgja henni en hann er fimmti eiginmaður söng- konunnar. Morgunblaðið hafði samband vestur til Nashville og ræddi stutt- lega við Tammy þar sem hún var stödd á skrifstofu eiginmanns síns og framkvæmdastjóra. Rödd henn- ar er eins og hjá ekta Suðurríkja- mey, dragmælið áberandi. Einkum þegar hún hrópar upp „ó, guð minn góður“, en það gerir hún nokkrum sinnum í kjölfar spurninga um hvemig veðurlag hafi verið hérlend- is undanfarnar vikur. Fædd í Mississippi Tammy Wynette, eða Virgina Wyn- ette Pugh, fæddist í grennd við Tupelo í Mississippi 5. maí 1942. Faðir hennar lést er hún var aðeins nokkurra mánaða gömul og flutti móðir hennar þá til Birmingham í Alabama þar sem hún fékk vinnu í hergagnaverksmiðju. Tammy var aftur á móti komið fyrir í sveit hjá afa sínum og ömmu og þar ólst hún upp fram á unglingsárin. Tammy minnist þessara tíma með trega- blandinni eftirsjá. „Jörðin okkar náði yfir 450 ekrur og við ræktuðum á henni baðmull og maís auk þess að vera með naut- gripi og kjúklinga," segir Tammy í samtali við Morgunblaðið. „Mér var haldið stíft að vinnu á bænum allt frá því að ég fór að geta geng- ið og það hefur gagnast mér æ síðan. Vinnan nú er mér léttbærari fyrir vikið og ég er þakklát fyrir það tækifæri að geta lifað um stund úti í sveitinni." Meðan á dvöl hennar hjá afa sínum og ömmu stóð lærði Tammy á píanó. Hún segir að hún hafi ætíð átt létt með að spila eftir eyr- anu á píanó. Hún fluttíst frá þeim- ■

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.