Morgunblaðið - 04.02.1990, Page 13
p
i§r
er hún gifti sig 17 ára gömul. Börn-
in.urðu brátt þijú talsins og því
lítill tími aflögu fyrir tónlistina ...
„Eg vann sem þjónustustúlka á
veitingastöðum og börum, í skó-
verksmiðju um tíma og fataverk-
smiðju,“ segir hún. „I smábæ í
Suðurríkjunum eins og Birmingham
var lítil .von fyrir stúlku eins og
mig að ná langt í almennum störf-
um eins og ég vann svo ég skellti
mér í iðnskóla og lærði hár-
greiðslu." Hún segir að hún haldi
enn leyfi sínu til að starfa sem
hárgreiðslukona og hafi ávallt gert
frá því hún fékk það. „Ég lagði svo
hart að mér að ná þessu leyfi og
þar að auki veitti það mér öryggis-
kennd fyrstu árin mín í Nashville
þegar ég óttaðist að þurfa að taka
upp þennan starfa aftur ef mér
gengi ekki vel í tónlistinni."
Til Nashville 1965
Tammy flutti til Nashville árið
1965. Hún bar þá enn upprunalegt
nafn sitt en umboðsmaður hennar
í Nashvilie vildi breyta því... „Þá
var nýbúið að gera kvikmyndina
Tammy með Debbie Reynolds í að-
alhlutverki. Umboðsmaðurinn minn
spurði mig hvort ég hefði séð þá
mynd og ég kvað svo ekki vera.
Jæja, sagði hann, þú lítur út aiveg
eins og Tammy og það nafn skulum
við nota.“ Tammy hlær tógt er hún
rifjar þetta upp.
Fyrsta plata Tammy kom út árið
eftir að hún flutti til Nashville ...
„Ég segi áheyrendum mínum alltaf
núorðið áð við munum koma víða
við á sjöunda, áttunda og níunda
áratugnum,“ segir hún. „En það
þýðir ekki að ég sé orðin gömul,
það þýðir að ég er orðin sjóuð tón-
listarkona."
Fyrsti smellur Tammy í Nashville
kom út árið 1967 en það var lagið
Your Good Girl Is Gonna Go Bad.
Lagið var samið af útsetjara henn-
ar, Billy Sherill. Eftir að þetta lag
kom út var framtíð Tammy í Nash-
ville trygg og hver smellurinn á
fætur öðrum kom frá henni á næstu
árum.
í tygjum við Burt Reynolds
Eftir. að frægðin -féll-Tammy í
skaut á þessum tíma átti hún í
nokkrum ástarsamböndum við
þekkta einstaklinga sem vöktu at-
hygli fjölmiðla. Meðal þessara
manna voru til dæmis söngvarinn
Rudy Gatlin úr The Gatlin Brothers
og leikarinn Burt Reynolds. Hún
minnist Burt með töluverðri vænt-
umþykju.
„Burt er mjög kær vinur minn
og við höldum ennþá sambandi,"
segir Tammy. „Raunar mun hann
framleiða cg leikstýra myndbandi
við næsta lag mitt og verður það
tekið upp í Flórída eftir tvo mán-
uði.“
Tammy kynntist Burt Reynolds
í g;egnum sameiginlegan kunningja
þeirra, söngvarann Jerry Reid.
Jerry var að taka upp sjónvarps-
þátt í Nashville og bauð Burt að
koma í heimsókn. Þeir tveir höfðu
þá nýlega lokið við að gera kvik-
myndina W.W. and the Dixie Dance
Kings ... „Þetta var svona ein af
þessum „good ole boys“-myndum
en Burt lék síðan í fleiri slíkum
síðar, til dæmis Smokey and the
Bandit."
Lék í sápuóperu
Tammy hefur ætíð búið í Nash-
ville frá því hún flutti þangað fyrir
tuttugu og fimm árum. Eins og
fyrr segir hefur hún gefið þar út
yfir 60 plötur og komið fram í ótelj-
andi sjónvarps- og útvarpsþáttum.
Hún hefur verið fastagestur á stöð-
um eins og Grand Old Opry og
Opryland sem eru helstu helgidóm-
ar kántrýtónlistarinnar þar í borg.
Á seinni árum hefur hún ferðast
mikið um heiminn og gerir enn. Frá
íslandi mun hún t.d. fara beint til
Ástralíu í tónleikaferðalag. Sjálfs-
ævisaga hennar, Stand By Your
Man, kom út í upphafi síðasta ára-
tugar og upp úr henni var gerð
vinsæl sjónvarpskvikmynd með
sama nafni árið 1982. Hún lætur
þess getið, með þessum smitandi
hlátri sínum, að hún hafi um eins
árs skeið leikið í sápuóperu í sjón-
varpi. Þættirnir voru gerðir í Los
Angeles og hétu Capitol. Meðal leik-
ara, auk Tammy, voru Richard
Eagan og Rory Calhoun.
Aðspurð um myndina Stand By
Your Man segir Tammy að hún
hafi ekki komið nálægt gerð hennar
en er ánægð með árangurinn.
Anette O’Toole lék hana í myndinni
sem gerð var af John Peters.
Á síðasta ári vann Tammy mikið
með söngvaranum Randy Travis og
hún býst við því að svo verði áfram
í ár ... „Ætli við vinnum ekki sam-
an um ríflega tveggja mánaða skeið
í ár,“ segir hún.
Sex börn á heimilinu
Sem fyrr segir er Tammy nú gift
George Richey framkvæmdastjóra
sínum og hefur það verið hamingju-
samt hjónaband sh 12 ár. Hún á
fjórar dætur og hann son og dótt-
ur. Barnabörn þeirra eru nú fjögur.
Þau búa í stóru húsi skammt fyrir
utan Nashville og segir Tammy að
um 10 ekra land fylgi húsinu. Það
sé því mjög rólegt og hljóðlátt í
kringum heimili þeirra.
Þegar Tammy er ekki að syngja
stússar hún í ýmsu. Hún segist
hafa yndi af matseld og raunar mun
matreiðslubók eftir hana koma á
markaðinn í ár. Ber bókin heitið
Tammy’s Country Cooking. „Af
öðru tómstundagamni get ég nefnt
að ég hef gaman af þvf að fara í
keilu, sauma, horfa á sjónvarp og
leika mér með barnabörnunum,"
segir hún.
Aðspurð um álit á Nashville seg-
ir Tammy að sér finnist hún huggu-
leg borg. „í mínum huga er stærð
Nashville alveg fullkomin. Ég
myndi ekki vilja búa í borg sem
væri stærri. Það er fullt af ávölum
tijávöxnum hæðum í borginni og
að sjálfsögðu er tónlistin alls stað-
ar,“ segir hún. „Þegar þú gengur
um göturnar geturðu séð á einu
horni minjagripabúð Barböru
Mandrell, á næsta horni samskonar
búð á vegum Hank Willimans Jr.
og Randy Travis er á þriðja horn-
inu,“ segir Tammy. „Það er því
mikið gert út á ferðamenn hér.“
Tammyminnist þess er hún kom
fyrst fram á sviðið i Grand Old
Opry. „Þetta hefur verið árið 1966.
Mér þótti það mjög spennandi því
ég hafði hlustað á The Opry í fjölda
ára þegar ég var að alast upp sem
lítil stúlka. Mig hafði aldrei dreymt
um að ég ætti eftir að koma þar
fram sjálf," segir Tammy.
Tammy segir að henni hafi aldr-
ei dottið í hug að syngja aðra tón-
list en kántrý enda elski hún þá
tónlist... „Ég get hlustað á góða
tónlist hveiju nafni sem hún nefnist
svo lengi sem það er ekki sýru-
rokk,“ segir hún. „Ég hef sérstakt
dálæti á svartri tónlist, hvort sem
það er gospel, Aretha Fránklin,
Gladys Knight eða Ray Charles.”
í máli hennar kemur fram að hún
hafi aldrei hljóðritað lag sem ekki
flokkast undir kántrý. „Ég hef
fengið tilboð um að gera slíkt með
ungri rokktónlistarkonu, Patti
Smyth, en enn hefur ekkert komið
út úr því.“
Þekkir lítið til íslands
Tammy segir að hún þekki mjög
lítið til íslands, raunar ekki annað
en að fundur þeirra Reagans og
Gorbatsjovs var haldinn hér um
árið. En hún hlakkar til að koma
hingað og sjá sig um, segir að allur
hópurinn sem kemur með henni sé
mjög spenntur fyrir þessari ferð.
Hljómsveitin sem fylgir henni heitir
Young Country og bakraddahópur-
inn ber nafnið Sunshine.
Segja má að saga Tammy Wyn-
ette sé bandaríski draumurinn í
hnotskurn en sá draumur hefur
aldrei stigið henni til höfuðs. Hún
er einlæg og þægileg, vinsæl og
virt meðal tónlistarmannanna
sjálfra í Nashville. Margir þeirra
hafa látið góð orð falla í hennar
garð og sem dæmi má taka setn-
ingu sem Patti Smyth lét falla um
Tammy eftir að þær hittust í fyrsta
sinn: „Heiðarleikinn tollir alltaf í
tísku."
TILBOÐ OSKAST
í MMC Lancer GLX S/W 4 W/D 1800 árgerð ’88,
Chevrolet Blazer S-10 Tahoe 4x4 árgerð '84,
Caterpillar veghefil 12-E árgerð '72, ásamt öðrum bifreiðum
er verða sýndar á Grensásvegi 9, þriðiudaginn 6. febrúar kl. 12-15
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.00
Sala varnarliðseigna.
VERÐLÆKKUN
í V E T U R
MÁNUD. / MIÐVIKUD. ÞRIÐJUD. / FIMMTUD. FÖSTUDAGAR LAUGARDAGAR
09:30 I íkamqrppkt 1 mnn Prr\ hÍL'L'
10:30 uirxaiHOicciH Líkamsrækt 1 u.uu 10:00 tllUUIKK Jazz 4-5 ára
11:00 Líkamsrækt
11:00 Jazz 6-7 ára
13:30 Líkamsrækt
16:30 Jazz 10-12 ára
17:10 Líkamsrækt 17:10 Jazz 8-9 ára
17:20 Líkamsrækt
17:30 Jazz13-15ára
18:10 Átak 18:10 Líkamsrækt
18:20 Eróbikk
18:30 Barnshafandi 18:30 Start
19:10 Líkamsrækt 19:10 Átak
19:30 Eróbikk 75 mín 19:30 Eróbikk 75 mín
20:10 Start 20:10 Líkamsrækt
20:45 Líkamsrækt
21:10 Líkamsrækt
Allir tímar eru 55 mínútur nema annað sé tekið fram.
START: Fyrir þá sem hafa ekki verið í leikfimi
lengi og þurfa að losna við nokkur kíló. Áhersla
lögð á maga, rass og læri. Góðar teygjur og
slökun.
LÍKAMSRÆKT: Skemmtileg leikfimi með
áherslu á maga, rass og læri. Fjör, hvatning,
aðhald og hress tónlist. Engin hopp. Teygjur
og slökun. Æfingar með teygjum og lóðum
sem gefa frábæran árangur.
ERÓBIKK: Mikil hreyfing og meiri fitubrennsla.
Stuð, puð og púl. Fjörug tónlist og mikill sviti,
einföld spor.
BARNAGÆSLA MÁNUDAGA OG
MIÐVIKUDAGA FRÁ KL. 10-16.
ÁTAK í MEGRUN: Fyrir þá sem vilja grennast
um 5-15 kg. Æfingar fyrir maga, rass, læri og
upphandleggi. Engin hopp, hægari æfingar,
teygjur og slökun. Vigtun, gott aðhald, mikill
árangur og góður mórall.
FYRIR BARNSHAFANDI: Öruggar,
uppbyggjandi og styrkjandi æfingar. Teygjur,
öndunar- og slökunaræfingar. Styrkjandi
æfingar fyrir viðkvæma líkamshluta. Áhersla
lögð á bak, maga og handleggi.
JAZZBALLETT: Á laugardögum fyrir 4-7 ára
á sama tíma geta foreldrar farið í leikfimi eða
Ijós. Eldri hópar æfa tvisvar í viku,
nemendasýning haldin í vor.
SKRÁÐU ÞIG STRAX l SÍMA 65 22 12.
HRFSS
UKAMSRÆKT (Xi U()S
a^JARHRAUNI H/VIÐ KERAVKURVECINN/SIMI 6S2212
FLJÓTT AUGLÝSINGASMIDJA