Morgunblaðið - 04.02.1990, Page 25
fMtrgmtlifaMfe
ATVINNU/RAÐ-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
Aðstoðarhótelstj óri
í blaðinu f dag er auglýst eftir aðstoðarhótelstjóra til
starfa í Reykjavík. Staðan er laus samkvæmt samkomu-
lagi, en menntunar á. sviði hótel- og veitingareksturs er
krafist.
Hver kemur í staðinn
fyrir Guðrúnu?
Hún Guðrún er að hætta, segir í auglýsingu í blaðinu í
dag, og því er fyrirtækið að leita að manneskju til að
færa bókhald, passa upp á heftið, gera tollskýrslur og
annað sem Guðrún hefur annast. Samstarfsaðilar hennar
þrír eru að leita að sjálfstæðri, samvinnuþýðri og bros-
mildri manneskju.
Lausar stöður sölu-
manna
Traust og öflugt framleiðslu- og innflutningsfyrirtæki í
Reykjavík auglýsir eftir sérhæfðum sölumanni. Felst
starfið m.a. í sölu og layoutráðgjöf á innréttingum sem
framleiddar eru í eigin verksmiðju, markaðsathugun,
auglýsinga- og þjónustustjórnun o.fl. Skilyrði er að sölu-
maðurinn hafi rekstrar- eða tæknimenntun með góða
reynslur úr hönnunar-, þjónustu- eða sölustörfum. Einnig
auglýsir annað fyrirtækið eftir vönum sölumanni á sviði
hárgreiðslu- og snyrtivöru í 65% starf. Æskilegt er að
umsækjandi hafi menntun á sviði hárgreiðslu eða snyrt-
ingu.
Fyrirtæki í plast-
iðnaði vill kaupa
Lítið og traust fyrirtæki í plastiðnaði óskar eftir kaupum
á öðru fyrirtæki með svipaða starfsemi til aukningar
núverandi reksturs, segir í auglýsingu í blaðinu í dag.
Tekið er fram að til greina komi að kaupa eingöngu
vélarnar.
Fundur um lífeyris-
mál nk. miðvikudag
Verkalýðsráð Sjálfstæðisflokksins og Málfundafélagið
Óðinn halda sameiginlegan fund um lífeyrismál miðviku-
daginn 7. febrúar í Valhöll, Háaleitisbraut 1 og hefst
fundurinn kl. 18. Framsögumenn verða þeir Guðmundur
H. Garðarsson alþingismaður, Guðmundur Hallvarðsson
formaður Sjómannafélags Reykjavíkur og verkalýðsráðs,
Pétur H. Blöndal, formaður Landssambands lífeyrissjóða
og Þórarinn V. Þórarinsson framkvæmdastjóri VSÍ. Kl.
19.30 verður borinn fram léttur kvöldverður. Síðan verða
umræður og fyrirspurnir.
Barnasamkomur
Hjálpræðisherinn vill vekja athygli foreldra á því að barna-
samkomur verða á hveijum degi kl. 17 frá og með næst-
komandi miðvikudegi.
Fundur vegna ferðar
til Himalaya
og Nepal
Útivist heldur kynningarfund fyrir væntanlegrar ferðar
félagsins til Nepal. Verður fundurinn haldinn þriðjudag-
inn 6. febrúar kl. 20.30 á skrifstofu Útivistar, Grófinni 1.
Morgunblaðið/Júlíus
Frá bladamannafundi, sem haldinn var í tilefiii af 60 ára afinæli Skipaskoðunar
rikisins. Talið frá vinstri: Þórður Þórðarson deildarsjóri firæðsludeildar, Páll Guð-
inundsson deildarstjóri eftirlitsdeildar, Páll Iljartarson deildarstjóri tæknideildar,
Magnús Jóhannesson siglingamálastjóri, Ólafur Steinar Valdimarsson ráðuneytis-
syóri í samgöngumálaráðuneytinu og Gunnar Ágústsson deildarstjóri mengunar-
deildar.
Siglingamálastofiiun ríkisins:
Banaslysum á fískiskip-
um hefíir fækkað mjög
BANASLYSUM á islenskum fiskiskipum hefi-.r
fækkað mikið síðastliðin 20 ár, svo og hefiir
tjón af völdum eldsvoða í skipum minnkað veru-
lega undanfarin 5 ár. Þetta kom meðal annars
fram á blaðamannafimdi, sem nýlega var hald-
inn í tilefni af 60 ára afmæli Skipaskoðunar
ríkisins en hún var stofiiuð 1. janúar 1930.
Skipaskoðunin myndar nú kjarnann í starfsemi
Siglingamálastofiiunar rikisins, sem formlega
tók við verkefhum Skipaskoðunarinnar 14. maí
1970, og öryggismál sjómanna hafa verið eitt
af helstu verkefiium stofnunarinnar.
A
Ablaðamannafundinum kom
fram að dauðaslys á íslenskum
fiskiskipum hefðu verið samtals 82
árin 1971-1974, 59 á árunum
1975-’79, 58 á tímabilinu 1980-’84
og 37 árin 1985-’89. Ef miðað er
við 10 þúsund ársverk urðu 40,6
dauðaslys á skipunum á fyrsta
tímabilinu en 12 á því síðasta. Sjó-
hæfni skipanna hefur aukist, svo
og hefur vinnuaðstaða og aðbúnað-
ur um borð í skipunum batnað.
Á árunum 1978-1984 urðu sam-
tals 103 eldsvoðar í íslenskum skip-
um, eða 14,7 að meðaltali á ári, en
árin 1985-1988 urðu þeir samtals
52, eða 13 að meðaltali á ári. Á
verðlagi ársins 1989 voru tjónabæt-
ur vegna eldsvoðanna 86,9 milljónir
króna á fyrra tímabilinu en 23,9
milljónir króna á því seinna. Þrír
létust vegna eldsvoðanna á fyrra
tímabilinu en enginn á því seinna.
Á árinu 1985 voru, í kjölfar al-
varlegra eldsvoða í skipum, settar
reglur um auknar eldvarnir í fiski-
skipum, til dæmis brunaviðvörunar-
kerfi, innbyggð slökkvikerfi í véla-
rúmi og reykköfunartæki. Þá hafa
sjómenn verið þjálfaðir í meðferð
slökkvibúnaðar í Slysavarnaskóla
sjómanna.
Tryggingastofnun ríkisins var til-
kynnt um 415 bótaskyld slys á sjó-
mönnum árið 1984 en 619 árið
1988. Slys, sem Siglingamálastofn-
un hefur athugað, má flest rekja
til mistaka við hífingar. Hins vegar
hefur skráning vinnuslysa um borð
í skipum batnað síðustu ár með
breyttum reglum.
Securitas:
Rúmlega tvö hundruð um-
sóknir um tvær stöður
SECURITAS, öryggisgæslufyrirtækið, auglýsti
eftir tveimur öryggisvörðumí Morgunblaðinu
siðastliðinn sunnudag og bárust á þriðja hundr-
að umsóknir. Eru það miklu fleiri umsóknir en
áður hafa borist.
Hannes Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri sagði í samtali
við Morgunblaðið að umsækjendur
hefðu verið mun fleiri nú en nokkru
sinni áður. Algengt væri að um
30-50 umsóknir bærust í 1-2 aug-
lýstar stöður. „Við krefjumst ekki
, sérstakrar menntunar, einungis
þess að fólk hafi hreint sakavott-
orð. Við þjálfum sjálfir allt okkar
fólk,“ sagði Hannes. Ekki sagði
hann áberandi að umsækjendur
hefðu verið úr einni stétt frekar en
annarri, þó mætti kannski nefna
sjómenn og iðnaðarmenn, s.s. raf-
virkja og smiði. Erfitt væri að velja
þegar umsækjendur væru svona
margir, en þó værl búið að ráða í
stöðurnar.
Höfii:
Lítið um
að vera
í atvinnu-
málum
MJOG rólegt hefur verið yfir
útgerð og fiskvinnslu í janúar.
Tíðarfar hefúr vereið afleitt og
afli eftir því. Komið hefiir fyrir
að fólk hafi verið sent heim úr
fískvinnslufyrirtækjunum vegna
hráefnisskorts og vinnutiminn
óveiyu stuttur á þeim bæjunum.
Fyrri part janúar bárust hingað
um 450 tonn af síld sem fór í
frystingu, flökun og beitu. Fiski-
mjölsverksmiðja Hornafjarðar hef-
ur fengið tvo loðnufarma og ein-
hvern hluta þeirrar síldar er barst.
Tveir togarar hafa heldur ekki bo-
rið mikið úr býtum og annar þeirra,
Stokksnes SF, kom úr slipp fyrir
viku og hefur ekki landað enn á
árinu. Hrellir hf. hefur selt í Hull
um 60 tonn og selur eitthvað í vik-
unni.
í byggingariðnaði hafa fram-
kvæmdir verið miklar til þessa.
Trévirki vinnur að gerð vatnstanks
á Höfn og má segja að þeir séu
komnir upp úr jörð. Á Stokksnesi
er Smíðastofa Sveins Sighvatssonar
að skila af sér verki fyrir Ratsjár-
stofnun og nú styttist í að Húsanes
skili af sér nokkrum kaupleiguíbúð-
um.
En allt horfir vonandi til betri
vegar. Skinney SF kom inn með
um 16 tonn sl. miðvikudag og all-
festir bátar eru ný. byrjaðir. Þeir
róa með línu, troll og net.
JGG
Patreksfj örður:
Næg atvinna
frááramótum
FULL atvinna hefur verið frá
áramótum og gott fiskerí, þar til
síðustu tíu daga að gæftaleysi
hefur verið mikið.
Bátar fóru á sjó síðastliðinn
fimmtudag og höfðu þá ekki
róið í tíu daga vegna veðurs. Ein-
göngu hefur verið unnið í saltfiski,
en engin frysting hefur verið enn-
þá. Vonast er til að frystihúsin kom-
ist í gagnið eftir fjórar til sex vik-
ur. Örfáir útlendingar eru að vinna
í saltfiskinum og eru þeir færri nú
en oft áður.
Enginn er á atvinnuleysisskrá
eftir því sem ég best veit. Iðnaðar-
menn hafa haft nóg að gera bæði
við endurbætur og það sem til fell-
ur. Við horfum því áfram björtum
augum til framtíðarinnar.
— Jónas