Morgunblaðið - 11.02.1990, Side 8

Morgunblaðið - 11.02.1990, Side 8
MORGUNBLABIÐ DAGBOK SUNNUOAGUR 11. FEBRÚAR 1990 T n A y-^ersunnudagur 11. febrúar. Níuviknafasta. 42. 1 JJAvJ dagur ársins. Árdegisflóð í Reykjavík kl. 7.27, flóðhæðin 4,29 m. Síðdegisflóð kl. 19.48. Sólarupprás í Reykjavíkkl. 9.37 og sólarlag kl. 17.48. Myrkurkl. 18.41. Sólin er í hádegisstað í Reykjavík kl. 13.42 ogtunglið í suðri kl. 2.39. (Almanak Háskóla íslands.) Skapa í mér hreint hjarta. Ó Guð, og veit mér nýjan stöðugan anda. (Sálm 51.12-13.) ÁRNAÐ HEILLA p' A ára afmæli. Á morgun, OU mánudag 12. þ.m., er fimmtugur Baldur Bjart- marsson, Arahólum 2 hér í Reykjavík. Eiginkona hans er frú Kristín Kristjánsdóttir og reka þau fyrirtækið Stjömu- salat sf. Hann ætlar að taka á móti gestum á Hótel íslandi kl. 20-22 á afmælisdaginn. FRÉTTIR/ MANNAMÓT NÁMSSTJÓRI tónlistar- fræðslunnar. í nýlegu Lög- birtingablaði augl. mennta- málaráðuneytið laust nýtt starf á vegum ráðuneytisins en það er starf námsstjóra tónlistarfræðslunnar í landinu, sem nú verður ráðið í, og starfíð veitt til næstu fjögurra ára í senn. Þetta er hálf staða. Þess er vænst að námsstjórinn taki sem fyrst til starfa, en umsóknarfrest setur ráðuneytið til 20. þ.m. í augl. er gerð grein fyrir umfangsmiklu starfssviði námsstjórans, sem jafnframt skal sinna ráðgjafar- og leið- beiningarstörfum fyrir kenn- ara og skólastjóra tónlistar- skóla. Hann skal skipa for- mannssæti í samstarfsnefnd tónlistarfræðslunnar. Þessi skipan mála er samkv. lögum nr. 87 frá árinu 1989. KVENNADEILD Rauða krossins heldur hádegisverð- arfund í Hallargarðinum, Húsi verslunarinnar, á mið- vikudag 14. þ.m. kl. 12 á hádegi. í DAG hefst Níuviknafasta. Um það segir i Stjömu- fræði/Rímfræði: Páskafasta, sem hófst níu vikum fyrir páska og fólst í tveggja vikna viðbót við sjöviknaföstuna. Aukafsfastan var tekin upp sem sérstök yfirbót. Ýmist af fijálsum vilja eða skylduð af kirkjunnar mönnum. Á morg- un, mánudag, hefst 6. við- skiptavika hins nýja árs. ÁRBÆJARKIRKJA. Æsku- lýðsfundur í kvöld kl. 20. VESTURGATA 7. Þjón- ustumiðstöð. Nk. fimmtudag fer fram fræðsludagskrá um lyfjanotkun og verkanir lyfja fyrir aldraða. Sagt frá notkun og verkun svefnlyfja sem Ólöf Briem og Einar Magnússon lyfjafræðingur í Reykjavíkur Apóteki annast. Svefnvanda- mál/truflanir — of mikill svefn, of lítill svefn m.m. Um það fjallar Þórarinn Gisla- son læknir. Þá talar Hjördís Magnúsdóttir sjúkraþjálfi um hreyfingu, þjálfun og hvfld. Á eftir kaffiveitingar og fyrirspumum svarað. MÁLSTOFA í lyflafræði. Á morgun, mánudag, verður málstofa í lyfjafræði. Dr. Atli Dagbjartsson læknir, sérfræðingur á bamadeild Landspítalans, flytur fyrir- lestur sem hann nefnir: Áhrif hömlunar og örvunar betavið- taka í súrefnissnauðum fóstr- um. Fyrirlesturinn verður fluttur kl. 20 í Raunvísinda- húsi Háskólans, stofu 101. KR-konur halda fund nk. þriðjudagskvöld kl. 20.30 í félagsheimili KR. FÉL. eldri borgara. í dag er opið hús í Goðheimum kl. 14, spil og tafl. Dansað kl. 20. Skáldakynning nk. þriðju- dag kl. 15-17 á Hótel Lind, Rauðarárstíg 18. Rætt verður um Halldóru B. Björnsson og lesið úr verkum hennar. LÁRÉTT: - 1 ijörmikil, 5 grá hár, 8 reikar, 9 maður, 10 staurs, 14 lærði, 15 deila, 16 fiskar, 17 lítilfjörlegur, 19 óp^ 21 karlar, 22 nothæf, 25 húsdýra, 26 strá, 27 spil. LOÐRÉTT: - 2 blása, 3 heiðurs, 4 versnar, 5 syrgir, 6 trylla, 7 blóm, 9 kaupstaður, 10 skapið, 12 fagurt, 13 sigla á grunn, 18 ygglir, 20 fullt tungl, 21 dýrahljóð, 23 guð, 24 tónn. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: LÁRÉTT: - 1 afana, 5 kaðal, 8 Aðils, 9 sálmi, 11 eklan, 14 les, 15 angra, 16 sonum, 17 róa, 19 næði, 21 áðan, 22 iðjunni, 25 rýr, 26 áma, 27 róm. LÓÐRÉTT: - 2 flá, 3 nam, 4 aðilar, 5 klessa, 6 ask, 7 aka, 9 staðnar, 10 lagaðir, 12 lánaðir, 13 námunum, 18 ólum, 20 ið, 21 án, 23 já, 24 Na. Þetta er allt mér að þakka, Einar Oddur. Það hefði enginn skrifað undir þetta, ef ég hefði ekki verið búinn .að skapa þessi skilyrði... ÞETTA GERÐIST 11. febrúar FELLA- og Hólakirkja. Annað kvöld, mánudag kl. 20.30, er æskulýðsfundur. KVENFÉL. Hringurinn heldur aðalfundinn í Átthaga- sal Hótels Sögu fimmtudag- inn 15. þ.m. og hefst með borðhaldi kl. 19. BRÆÐRAFÉL. Bústaða- kirkju heldur fund annað kvöld, mánudag, í safnaðar- heimilinu kl. 20.30. — Kaffi- veitingar verða. NESKIRKJA. Á morgun, barnastarf, 12 ára böm kl. 17.30. Æskulýðsstarf 13 ára og eldri kl. 19.30. HJALLAPRESTAKALL. í kvöld er opið hús á Lyngheiði 21 fyrir fermingarböm úr Digranes- og Snælandsskól- um kl. 20-22. KVENFÉL. Grensássóknar heldur aðalfundinn annað kvöld, mánudag, í safnaðar- heimilinu og hefst kl. 19.30 með borðhaldi. SELJAKIRKJA. Barna- og æskulýðsstarf. Fundur yngri KFUM-stúlkna á morgun, mánudag, kl. 17.30 og eldri stúlkna 18.30 og æskulýðs- félagsfundur kl. 20. HRAUNPRÝÐI. Slysa- vamadeildin í Hafnarfirði heldur aðalfundinn nk. þriðju- dagskvöld kl. 20.30 í húsi félaganna í Hjallahrauni. Að fundarstörfum loknum verður rætt um fyrirhugaða leikhús- ferð og kaffiveitingar. SELTJARNARNES- KIRKJA. Æskulýðsfundur annað kvöld kl. 20. ITC-deildin Kvistur heldur fund annað kvöl^I í Holiday Inn-veitingahúsinu kl. 20. Á dagskrá er ræðukeppni. Nán- ari uppl. veitir Þóra, s. 627718. KVENFÉL. Fríkirkjunnar Rvík. Félagið heldur góugleði sunnudaginn 18. þ.m. fyrir safnaðarfólk og gesti þeirra í Templarahöllinni við Eiríks- götu og hefst með borðhaldi kl. 19.30. Þessar konur skrá þátttakendur: Málfríður, s. 19111, AnnaEygló, s. 36787' eða Sigurborg, s. 685573. ISLEN SK-ítalska félagið heldur aðalfund í dag í veit- ingastofunni Punktur og pasta í Torfunni við Banka- stræti, kl. 17. SAMTÖK um sorg og sorg- arviðbrögð hafa opið hús í safnaðarheimili Laugames- kirkju nk. þriðjudagskvöld kl. 20-22. LAUGARNESKIRKJA. Fundur með foreldmm og forráðamönnum fermingar- barna vorsins í safnaðar- heimili kirkjunnar annað kvöld kl. 20.30. KÁRSNESPRESTAKALL. Fræðslufundur í Borgum nk. miðvikudagskvöld kl. 20.30. Magnús Torfi Ólafsson fv. ráðherra talar um stöðu kirkj- unnar í A-Evrópu á breyt- ingatímum. Fundurinn er öll- um opinn. AFLAGRANDI 40, félags- og þjónustumiðstöð. Opið hús á mánudag kl. 13-16.30. SAMTÖK Svarfdælinga í Reykjavík og riágrenni halda fund í dag í safnaðarheimili Langholtskirkju kl. 15.30. SKIPIN ________________ RE YKJ A VÍ KURHÖFN: Á morgun er Skógafoss vænt- anlegur að utan og togarinn Ásgeir er þá væntanlegur inn til löndunar. HAFNARFJARÐARHÖFN: í gær var Selfoss væntanleg- ur af ströndinni og á morgun er grænlenskur togari vænt- anlegur til löndunar. ERLENDIS: 1744: Sjóorrusta Breta við Spánveija og Frakka við Toulon hefst. 1798: Frakkar taka Róm. 1810: Napoleon kvænist Marie-Louise af Austurríki. 1858: Fyrstu undrin í Lourdes byija. 1888: Konungur Mabele- manna, Rhódesíu, fellst á brezka vernd. 1922: Níu ríkja samningur um sjálfstæði Kína gerður í Washington. — Flotasamn- ingur Bandaríkjanna og Jap- ans. 1929: Páfagarður verður sjálfstætt ríki. 1945: Jalta-samningurinn undirritaður. 1958: Afnot Frakka af flota- stöðinni í Bizerta, Túnis, bönnuð. 1968: Fjöldamorðin í Hue, Suður-Víetnam. 1971: 63 ríki undirrita samn- ing um bann við kjarnorku- vopnum á hafsbotni. 1972: Samkomulag Rússa og Bandaríkjamanna um sam- starf í læknavísindum og umhverfismálum. 1973: Gjaldeyrismörkuðum lokað í Vestur-Evrópu. 1975: Margaret Thatcher kosin leiðtogi brezka íhalds- flokksins. 1978: Herútboð í Sómalíu og fastaherinn sækir inn í Ogad- en. HÉRLENDIS: 1273: Ketill Þorláksson lög- sögumaður látinn. 1876: Konungur staðfestir lög um læknaskóla. 1903: Guðlaugur Rósenkranz fæddur. 1943: Orlofslöggjöf sett á. ORÐABÓKIN Aö fara og vera erlendis Nokkuð oft hefur því verið hreyft við mig að minnast í þessu horni á orðalagið að fara erlendis og þá af því, að mönnum hefur ekki þótt það eðlilegt mál. Menn vilja ekki nota það um hreyfíngu til útlanda, heldur um dvöl á erlendri grund. Hann er erlendis eða hefur vcrið nokkur ár erlendis o.s.frv. Ég neita því ekki heldur, að ég er í þessum hópi. Hér fínnst mér betra að tala um að fara utan. Hann fór utan í morgun. Þess vegna hnaut ég um eftirfarandi, sem ég heyrði í nóv. sl.-á Rás 2: „Hafíð þið sent einhvern erlendisV‘ Þá talaði ráðherra um að fiytja afla erlendis í samtali í Sjónvarpinu. Og í Mbl. 4. febr. víkur blm. ein- mitt að þessu sama og tekur sem dæmi útgerðarmann, sem „lét bátana sína ekki einasta sigla með aflann heldur „sigia með afiann eriendis“. Er blm. lítt hrifinn af þessu orðalagi og bætir þessu við og hæðist að: „eða með öðrum orðum að hring- sóla með hann þarna ytra og þá vísast til eilífðar ein- sog hveijir aðrir heijans fljúgandi Hollendingar". Ég er hér sammála blm. um, að miklu betra er að segja einungis að sigla með af- lann. En málið þarf nánari athugunar. Það bíður næsta sunnudags. — JAJ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.