Morgunblaðið - 11.02.1990, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMÁ «3
li. PEBRÚAR 1990
31
Tilboð
Tilboð óskast í bifreiðir skemmdar eftir um-
ferðaróhöpp. Bifreiðarnar verða til sýnis nk.
mánudag kl. 9.00-18.00.
Ljósmyndir af bjfreiðunum liggja frammi hjá
umboðsmönnum SJÓVÁ-ALMENNRA á Ak-
ureyri, Akranesi, Borgarnesi, Bolungarvík,
Keflavík, Selfossi, Hellu, ísafirði, Vestmanna-
eyjum, Sauðárkróki, Ólafsfirði og á Egilsstöð-
um hjá Brynjólfi Vignissyni.
Upplýsingar á símsvara 642124.
Tilboðum sé skilað sama dag.
jjónasfiqðynarslin
• ■* SMIÐJUVEGI1, 200 KÓPAVOGUR, SlMI 641120, TELEFAX 642003
ATVINNUHÚSNÆÐI
Iðnaðarhúsnæði
Salur, ca 1000 fm í Reykjavík eða nágrenni,
óskast á leigu fyrir iðnfyrirtæki.
Svör sendist á auglýsingadeild Mbl. fyrir 15.
febrúar merkt: „Húsn. - 506.“
Verslunarhúsnæði óskast
Óska eftir að kaupa verslunarhúsnæði við
Laugaveg.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„B - 12002“.
Skrifstofuhúsnæði -
Reykjavík og nágrenni
Traust fyrirtæki óskar eftir 100-120 fm hús-
næði til langtímaleigu.
Upplýsingar um staðsetningu, stærð, verð
og fleira sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
15. febrúar merktar: „Mars - 90“.
Til leigu nú þegar
nýleg 140 fm skrifstofuhæð með sérinn-
gangi, 3 herbergjum og sal. Húsnæðið er
við Súðavog nálægt Húsasmiðjunni. Hentar
vel fyrir teiknistofur eða annað í sambandi
við byggingastarfsemi.
Þeir, sem hafa áhuga, sendi tilboð til auglýs-
ingadeildar Mbl. fyrir 15. febrúar merkt:
„Leiga - 9948“.
Tilleigu
Verslunarhúsnæði: 330 m2 við Borgartún,
300 m2við Suðurlandsbraut, 260 m2við Skeif-
una, 600 m2við Síðumúla.
Skrifstofuhúsnæði: 30, 60 og 100 m2 við
Borgartún, 900 m2 við Smiðjuveg, skiptan-
legt, 130 m2við Stangarhyl.
Iðnaðarhúsnæði: Ýmsar stærðir fyrir iðnað,
fisvinnslu o.fl.
Vantar ýmsar gerðir atvinnuhúsnæðis.
Höfum leigjendur að 30-150 m2 húsnæði.
Hafnfirðingar - ferðamál
Hvernig aukum við ferðamanna-
straum til Hafnarfjarðar
Sjálfstæðiskvennafélagið Vorboði heldur
fund um Hafnarfjörð sem ferðamannabae
f Sjálfstæðishúsinu við Strandgötu, þriðju-
daginn 13. febrúar kl. 20.30.
Fundarstjóri: Magnús Gunnarsson.
Frummælendur: Lovfsa Christiansen, leið-
sögumaður, Júlíus Hafstein, formaður
ferðamálanefndar Reykjavfkur og Þórunn
Gestsdóttir, ritstjóri.
Kaffiveitingar.
Allir velkomnir.
íslenska leigumiðlunin,
sérhæft þjónustufyrirtæki,
símar 622240 og 622467.
Kópavogur
Höfum til leigu 1100 fm húsnæði í Kópavogi
undir líkams- og heilsurækt. Húsnæðið er
fullfrágengið með tveimur stórum sölum,
sturtum, gufu, heitum potti og öðrum innrétt-
ingum er tilheyra slíkum rekstri. Hagstæð leigu-
kjör. Upplýsingar einungis á skrifstofunni.
Viðskiptaþjónustan,
Skipholti 50C,
sími 689299.
SJÁLFSTJEÐISFLOKKURINN
F É L A G S S T A R F
w
Arnessýsla
Sjálfstæðiskvenna-
félag Árnessýslu
heldur kvöldverðar-
fund mánudaginn
12. febrúar nk. kl.
19.30 í Hótel Sel-
fossi. Gestir fundar-
ins verða Magnús
L. Sveinsson, for-
seti borgarstjórnar
Reykjavíkur, Bryndís
Brynjólfsdóttir, bæjarfulltrúi á Selfossi, og
iðnráðgjafi Suðurlands.
Oddur Már Gunnarsson,
Stjórnin.
Hvöt - félagsfundur
Fundur verður haldinn í Valhöll miðvikudaginn 14. febrúar nk. kl
17-19.
Kópavogur - spilakvöld
Fundarefni: Staða fjölskyldunnar - er vegið að hjónabandinu?
Frummælendur: Ásdis Rafnar, lögmaður, Inga Jóna Þórðardóttir,
viðskiptafræðingur og séra Árni Pálsson, sóknarprestur.
Spilakvöld sjálfstæðisfélaganna i Kópavogi verður I Sjálfstæðishús-
inu, Hamraborg 1, þriðjudaginn 13. febrúar kl. 21.00 stundvíslega.
Mætum öll.
Stjórnin.
Borgarmála
fundur Heimdallar
Fundur verður hjá
borgarmálahópi
Heimdallar í Valhöll,
Háaleitisbraut 1,
mánudaginn 12.
febrúar kl. 21.00.
Gestir fundarins
verða borgarfulltrú-
arnir Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson og
Hilmar Guðlaugs-
son.
Stjórnin.
Stjórnin.
Vestmannaeyjar
Aðalfundur
Sjálfstæðisfélagsins
Sjálfstæðisfélag Vestmannaeyja heldur aðalfund þriðjudaginn 13.
febrúar nk., kl. 21.00, í Ásgarði.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Bæjarmálin.
3. Undirbúningur bæjarstjórnarkosninga.
4. Önnur mál.
Félagar fjölmennið.
Stjórnin.
Stjórnmálaskóli
Sjálfstæðis-
flokksins
Kvöld- og helgarskóli
27. febrúar - 9. mars 1990
Staður: Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Tími: Mánudaga - föstudaga kl. 17.30-22.00. Um helgar kl. 10.00-
17.00.
Innritun og upplýsingar daglega í síma 82900 (Þórdís).
Akranes
Fundur um bæjar-
mál verður haldinn í
Sjálfstæöishúsinu
við Heiðargerði,
sunnudaginn 11.
febr. kl. 10.30.
Bæjarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins
mæta á fundinn.
- bæjarmál
Nefndin.
Stjórn Fulltrúaráðs.
Tekjukönnun Þjóðhagsstofiiunar:
Kvæntir karlar með nær þre-
faldar tekjur giflfcra kvenna
KVÆNTIR karlar höfðu að jafnaði um 120 þúsund krónur á mánuði
í atvinnutekjur árið 1988, samanborið við um 47 þúsund króna atvinnu-
tekjur giftra kvenna á mánuði sama ár. Þetta kemur fram í niðurstöð-
um Þjóðhagsstofhunar. Heildartekjur hjóna voru að meðaltali 1.967
þúsund krónur. Einhleypir hafa mun minni tekjur sem skýrist af því að
í þeim hópi er tiltölulega hátt hlutfall skólafólks og lífeyrisþega.
jóðhagsstofnun kannaði skatt-
framtöl einstaklinga og eru at-
vinnutekjur þær tekjur sem eru
myndaðar af launum og hlunnindum,
en í heildartekjum reiknast einnig
tilfærslutekjur eins og trygginga-
bætur og lífeyrisgreiðslur.
Heildartekjur kvæntra karlmanna
1988 voru 1.390 þúsund krónur að
meðaltali og heildartekjur giftra
kvenna voru 577 þúsund krónur að
meðaltali. Meðalheildartekjur hjóna
voru því 1.967 þúsund krónur.
Atvinnutekjur kvæntra karlmanna
voru að meðaltali 1.445 þúsund krón-
ur, sem svarar til 120 þúsund króna
á mánuði. Giftar konur öfluðu at-
vinnutekna að fjárhæð 565 þúsund
krónur, sem eru um 47 þúsund krón-
ur á mánuði til jafnaðar.
Tekjur einhleypra framteljenda
eru mun lægri, en ástæða þess er
sögð einkum sú, að meira er um
yngra fólk í skólum og ellilífeyris-
þega í þeim hópi. Að meðaltali voru
heildartekjur einhleypra karla 820
þúsund krónur en einhleypra kvenna
608 þúsund krónur.
Atvinnutekjur einhleypra karla
voru 779 þúsund krónur, en ein-
hleypar konurtöldu fram 554 þúsund
króna atvinnutekjur að jafnaði.
Þjóðhagsstofnun bendir á, að um
sé að ræða mismunandi mikla at-
vinnuþátttöku bæði í starfshlutfalli
og fjölda unninna klukkustunda, en
bendir um Ieið á að úr skattafram-
tölum fæst einvörðungu mæling á
árstekjum en ekki mæling á launum
fyrir hveija unna klukkustund.
Þjóðhagsstofnun segirþessartölur
sýna all gott samræmi við aðrar
heimildir um tekjur og laun. Félags-
vísindastofnun kannaði tekjur tvisvar
á árinu 1988, í maí og í nóvember.
Heildartekjur fullvinnandi karla
reyndust samkvæmt þeim vera 101
þúsund krónur í maí og 112 þúsund
í nóvember og- tekjur fullvinnandi
kvenna 57 þúsund í maí og 7l þús-
und krónur í nóvember. Athuganir
Kjararannsóknamefndar sýna að at-
vinnutekjur landverkafólks í félögum
sem aðild eiga að Alþýðusambandi
íslands hækkuðu að meðaltali um
22,7%.