Morgunblaðið - 11.02.1990, Blaðsíða 23
Útibússtjórar
Þijár stöður útibússtjóra eru auglýstar lausar til umsókn-
ar hjá íslandsbanka á Akureyri, Húsavík og í Keflavík.
nHlutverk útibússtjóra er að hafa yfirumsjón með rekstri
útibúsins, markaðsuppbyggingu þess, arðsemi, inn- og
útlánum og fleiru er snertir rekstur þess. Starfið felur
þannig í sér náin samskipti við viðskiptavini útibúsins
og starfsfólk stoðdeilda bankans, að því er segir í auglýs-
ingunni.
Flugmenn
Flugleiðir hf. auglýsa eftir flugmönnum til starfa. Sett
eru þau skilyrði að umsækjendur séu órðnir 21 árs að
aldri og hafi atvinnuflugmannsskírteini með blindflugs-
réttindum og stúdentspróf.
Framkvæmdastjórar
Fjölmargir aðilar auglýsa eftir framkvæmdastjórum.
Þannig óska landssamtök með umsvif bæði innanlands
og utan eftir að ráða framkvæmdastjóra. Fijálsíþrótta-
samband íslands leitar að framkvæmdastjóra til að sjá
um daglegan rekstur skrifstofu sambandsins, innlend og
erlend samskipti, fjármál og fjáröflun, skipulagningu
mótahalds og tölvuvinnslu. Lögmannafélag íslands óskar
að ráða löglærðan framkvæmdastjóra sem fyrst. Loks
má benda á auglýsingar þar sem óskað er eftir fram-
kvæmdastjórum til starfa hjá Kristjáni Ó. Skagfjörð og
meðalstóru framleiðslufyrirtæki í Reykjavík.
Markaðstjóri
Staða markaðstjóra Ferðamálaráðs er laus til umsóknar.
Starfíð felst m.a. í að sinna landkynningar- og markaðs-
málum innanlands og erlendis, erlendum ferðasýningum
og almennri ráðgjöf á sviði ferðamála. Markaðsstjóri er
staðgengill ferðamálastjóram, segir í auglýsingu í blaðinu
í dag.
Tilboð í skautasvell
Innkaupastofnun Reykjavíkur f.h. byggingadeildar borg-
arverkfræðings óskar eftir tilboðum í framkvæmdir við
1. áfanga skautasvells í Laugardal. Þar er um að ræða
byggingu þjónustuhúss og svellplötu ásamt lögnum fyrir
frystikerfi.
Sunnudagsferðir
Þriðja ferð í Þórsmerkurgöngu Útivistar verður farin í
dag. Gengin verður gömul þjóðleið frá Miðdal, yfir Mið-
dalsheiði og Bolaöldur að Kolviðarhóli. Lagt verður af
stað kl. 10.30 frá BSÍ. Einnig er ferð frá BSÍ kl. 13.00
og er gert ráð fyrir að hóparnir sameinist við Litlafell
þaðan sem gengið verður að Kolviðarhóli. Útivist gengst
ennfremur fyrir léttri skíðagöngu í dag og verður lagt
af stað frá BSÍ kl. 13.00. Byijendur munu fá sérstaka
tilsögn. Ferðafélagið efnir til ferðar kl. 10.00. í Fljótshlíð
og að Seljalandsfossi. Kl. 13.00. verður efnt til strand-
göngu undir Brimnesi og á sama tíma gefst skíðafólki
kostur á að skella sér í skíðagöngu á Mosfellsheiði.
TEKJUR LANDSMANNA eftir ALDR11988
1.200
-20 21-25 26-30 31-35 36-41 41-45 46-50 51-55 56-60 61-65 66-70 71-75 76+ára
ára
Þjóðhagsstofiiun kannar tekjur á árinu 1988:
Hækkun írá fyrra ári
um 24 % að meðaltali
HEILDARTEKJUR einstaklinga voru að meðal-
tali 879 þúsund krónur árið 1988, 24,2% hærri
en árið 1987 og atvinnutekjur að meðaltali 845
þúsund krónur, 23,3% hærri en árið áður, sam-
kvæmt athugun Þjóðhagsstofnunar. Atvinnutekj-
ur 20 til 65 ára einstaklinga eru hærri eða að
jaftiaði 934 þúsund krónur, hæstar í Reykjanes-
umdæmi og lægstar á Norðurlandi vestra.
Niðurstöðurnar eru fengnar með
athugunum á skattframtölum
einstaklinga. Framtöl ársins 1989
eiga við um tekjur 1988 og framtöl
1988 eiga við um tekjur 1987.
Meðaltal heildartekna 1988 var
171 þúsund krónum hærra en 1987,
þegar það var 708 þúsund krónur.
Meðaltal atvinnutekna 1988 var 154
þúsund krónum hærra en 1987, þeg-
ar það var 691 þúsund krónur.
Atvinnutekjur eru launatekjur, þó
ekki reiknuð laun, ökutækjastyrkir,
dagpeningar og önnur starfstengd
hlunnindi, en á móti hlunnindum eru
dregnir frá heimilaðir frádráttarliðir.
Heildartekjur eru atvinnutekjur að
viðbættum tilfærslutekjum, sem eru
einkum greiðslur frá almannatrygg-
ingum og lífeyrissjóðum, og fram-
töldum eigna- og rekstrartekjum,
auk ýmissa smærri tekjuliða.
Nokkur munur reyndist vera á
atvinnutekjum 20-65 ára einstakl-
inga eftir skattumdæmum. Meðalat-
vinnutekjur voru hæstar í Reykja-
nesi, 987 þúsund krónur, sem er 6%
yfir landsmeðaltali, og lægstar á
Norðurlandi vestra, 884 þúsund
krónur, en það er 7,5% undir lands-
meðaltali. Hækkun milli ára var
mest á Suðurlandi, 26,5%, en minnst
á Vestfjörðum, 16,5%, en atvinnu-
tekjur hafa verið hvað lægstar á
Suðurlandi og hvað hæstar á Vest-
fjörðum.
Fáskrúðsfjörður:
Netaveiðar
að hefjast
EFTIR miðjan janúar fóru togar-
arnir HofFell og Ljósafell á veiðar
og hófst þá vinna í Hraðfrystihúsi
Fáskrúðsfjarðar. Afli hjá togurun-
um hefúr verið sæmilegur, en
þrátt fyrir það vantar hráefiii í
frystihúsið.
Gerðir eru út þrír bátar og eru
tveir að búa sig á net en einn
er farinn. Guðmundur var á línu og
landaði í gáma, en eftir að þessir
bátar hefja netaveiðar verður hluti
aflans unninn í salt. Sama er að segja
um Sólborgu sem hefur verið á trolli.
Á atvinnuleysisskrá eru 17 manns.
— Albert
Rif:
Góður afli
þegar gefur
MJÖG rysjótt tíðarfar hefúr verið
hér á Rifi í janúar og gæftir léleg-
ar. Hafa bátar verið í landi þegar
veðrið hefúr verið verst. Stærri
bátar hafa róið þegar norðaustan-
áttin minnkaði, sem hefúr verið
nýög ríkjandi í janúar. Afli stærri
bátanna hefúr verið ágætur, 12-18
tonn á tvöfalda. línu, þegar vel
viðrar. Einnig hefúr verið góður
afli hjá smærri bátum þegar gefið
hefúr á sjó.
Atvinnuástand hér hefur verið
með besta móti að undanskilinni
síðustu viku janúarmánaðar, sem var
mjög erfíð vegna tíðarfars. Nýr 170
tonna bátur, Kópanes SH 702, kom
hingað í janúar, sem Fiskverkun
Kristjáns Guðmundssonar keypti frá
Hrísey og fór hann strax á línuveið-
ar. Var hann áður gerður út hjá
Þorbiminum hf. í Grindavík og hét
þá Sigurður Þorleifsson GK. Skip-
stjóri á Kópanesi er Jóhann Rúnar
Kristinsson og var hann áður skip-
stjóri á Tjaidi SH 270 í eigu sömu
útgerðar.
Aflahæstu bátar frá áramótum eru
Rifsnes SH 44 með 153 tonn í tólf
sjóferðum, Tjaldur SH 270 með 130
tonn í tólf sjóferðum og Hamrasvan-
ur SH 201 með 124 tonn í ellefu4
sjóferðum.
— Ólafúr
Tekjukönnun Þjóðhagsstofiiunar:
Tekjur 18 þúsund manns hækk-
uðu um 20% til 30% milli ára
ALGENGASTA hækkun atvinnutekna á milli ár-
anna 1987 og 1988 er 20% til 30%, samkvæmt
niðurstöðum Þjóðhagsstofiiunar á athugun skatt-
framtala einstaklinga. Atvinnutekjur tæplega 18
þúsund framteljenda hækkuðu áþessu bili, en
athugunin náði til alls um 120 þúsund framtelj-
enda. Meðalhækkun milli þessara ára var 23,3%.
Athuguð voru framtöl þeirra
framteljenda sem töldu fram
atvinnutekjur árin 1987 og 1988, en
þeir voru um 120 þúsund talsins.
í niðurstöðum Þjóðhagsstofnunar
er bent á að atvinnutekjur sýni laun
og starfstengdar greiðslur á ári og
ekki sé tekið tillit til vinnuframlags.
Þannig geti atvinnutekjur þeirra,
sem voru í skóla fyrra árið og unnu
í sumarleyfi, en komu inn á vinnu-
markað síðara árið, hækkað um
hundruð prósenta. Með sama hætti
lækki atvinnutekjur þeirra, sem urðu
lífeyrisþegar á árinu 1988. „Sú mynd
sem fæst af þessu bendir eindregið
til þess að meðaltalshækkun gefi all-
góða mynd af tekjuþróuninni, segir
í niðurstöðum Þjóðhagsstofnunar. -