Morgunblaðið - 11.02.1990, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SONNDDAOUR 11. PEBRÚAR' 1990
Minning:
Robert Guttadaro
Fæddur 5. apríl 1947
Dáinn 26. desember 1989
Góður vinur minn og systursonur,
Robert Guttadaro, lést í sjúkrahúsi
í New York á annan dag jóla eftir
stutta en erfíða legu. Hann var lagð-
ur til hinstu hvílu í grafreit á Long
Island 30. desember. Robert fæddist
í New York, sonur hjónanna Svövu
Símonardóttur Guttadaro og Louis
Guttadaro. Hann hlaut gott uppeldi
í faðmi íjolskyldunnar og var hvers
manns hugljúfí. Fallegur ungur
drengur, brosmildur og lífsglaður,
sem horfði björtum augum til framt-
íðarinnar.
Robert gekk menntaveginn og
brautskráðist sem lyfjafræðingur frá
Brooklyn College of Pharmacy árið
1970. Að loknu námi starfaði hann
í nokkur ár hjá lyfsölum í New York.
Hugur Roberts hneigðist snemma
að tónlistinni. Hann sótti mikið tón-
leika og fylgdist vel með í tónlistar-
heiminum. Þá eignaðist hann óvenju
stórt safn af hljómplötum. Svo fór,
að Robert tók tónlistina fram yfír
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út-
för móður okkar,
HALLFRÍÐAR GÍSLADÓTTUR.
Kolbrún Karlsdóttir,
Hrafnhildur Björk Ólafsdóttir,
Steinunn Inga Ólafsdóttir.
t
Kæru þið, sem hafið sýnt okkur samúö og vináttu vegna andláts
EGGERTS SÆMUNDSSONAR,
Akranesi,
innilegustu þakkir.
Unnur Leifsdóttir,
Hrönn Eggertsdóttir, .
Hlynur Eggertsson, Jóhanna Lýðsdóttir
og barnabörn.
t
Innilegar þakklr til allra sem auðsýndu okkur vináttu og samúð
vegna fráfalls
SIGFÚSAR B. SIGMUNDSSONAR -
kennara,
og heiðruðu minningu hans. Sérstakar þakkir einnig til allra sem
önnuðust hann í veikindum hans.
Anna G. Frimannsdóttir,
Baldur F. Sigfússon, Halldóra Þ. Halldórsdóttir,
Sigmundur Sigfússon, Ingibjörg Benediktsdóttir,
Rúnar I. Sigfússon, Björg Östrup Hauksdóttir
og barnabörn.
lyíjafræðina og sneri sér gagngert
að tónlistarflutningi. Hann varð
fljótt eftirsóttur plötusnúður og
starfaði sem slíkur á ýmsum þekkt-
um skemmtistöðum New York-
borgar. Robert var þrisvar kjörinn
„plötusnúður ársins" í Bandaríkjun-
um og var því vel þekktur og vin-
sæll meðal yngri kynslóðarinnar,
sérstaklega á „disco“-tímabilinu.
Nokkur hljómplötufyrirtæki leituðu
til Roberts í sambandi við hljóðupp-
töku. Hann fékk gullplötu frá Casa-
blanca Record and Film Works, Inc.
fyrir upptöku með Donnu Summer,
sem var góður vinur Roberts. Enn-
fremur hlaut Robert gullplötur frá
20th Century Records fyrir störf sín
hjá því fyrirtæki. Þá sá hann um
stjóm hljóðupptöku á tónlfst í kvik-
myndinni „Thank God it is Friday",
sem hér var sýnd á sínum tíma, og
fékk Robert mikið hrós fyrir störf
sín frá framleiðendum myndarinnar.
Robert heimsótti ísland þrisvar
sinnum, og átti hann góðar endur-
minningar frá þeim heimsóknum.
Hann fylgdist með íslenskum tónlist-
armönnum og því sem var að gerast
í tónlistarlífi hér heima. Það fór aldr-
ei á milli mála, að íslenskt blóð rann
í æðum Roberts. Mikill og sár sökn-
uður er að Robert systursyni mínum.
Háttprúður, fjörmikill og trygglynd-
ur ungur maður er nú kvaddur hinsta
sinni, langt um aldur fram. Minning-
in um góðan dreng lifír í huga okk-
ar, björt og fögur. Blessuð sé minn-
ing hans.
Njáll Símonarson
Siguijón Bjamason
frá Látmm — Kveðja
Fæddur 29. júlí 1911
Dáinn 26. janúar 1990
Móðurbróðir minn Siguijón
Bjarnason er látinn. Nonni frændi á
það sannarlega inni hjá mér að ég
birti öðrum kveðju mína, því að hann
var fyrsta mannveran sem ég leit
augum, þá hann tók á móti mér er
ég fæddist til þessa heims. Eins var
þá og raunar meðan bæði lifðu að
hann var móður minni góður eldri
bróðir.
Afí og amma, foreldrar Nonna,
voru Bjargey Gísladóttir og Bjarni
Dósoþeusson er bjuggu að Látrum
í Aðalvík, þar kallaði Nonni alltaf
heima þó að byggðin þar hafí verið
í eyði um áratuga skeið. Til marks
um tryggðina við æskustöðvarnar
er það að hann reisti þar myndar-
legt hús fyrir nokkrum árum og
dvaldi þar á sumrin, meðan heilsan
leyfði. Var þar oft gestkvæmt og
allir sem þangað komu fá seint lofað
móttökurnar og minnast ætíð dýrðar
sveitarinnar.
Siguijón stundaði framan af sjó-
mennsku og verkamannastörf á
Vestíjörðum, en það er fyrir mitt
minni, síðar flutti hann til Keflavíkur
eins og margir úr byggðunum fýrir
vestan. Hann hóf störf á Keflavíkur-
flugvelli fyrst í eldhúsi mötuneyta
erlendra verktaka og síðar hjá Vam-
arliðinu við áþekk störf nánast óslit-
ið þar til starfsævi lauk.
Siguijón var alla tíð einhleypur,
því kom hann oftast inn til
Reykjavíkur á frídögum sínum og
hafði gjarnan þvottinn sinn með sér
til hennar Ingu systur, móður
minnar, sem ekki taldi eftir sér að
sinna kærum bróður sínum þó heim-
ili hennar væri stórt. Alltaf var mik-
il tilhlökkun meðal okkar systkin-
anna þegar von var á frænda, bæði
var að hann var einstaklega glað-
lyndur og hlýr en það kunnum við
vel að meta, búandi í úthverfí bæjar-
ins sem þá var nánast sveit og fátt
um gestakomur, og einnig hitt að
alltaf kom frændi með einhvem
glaðning. Inn á milli fataplagga í
töskunni hans vora gjarnan nokkur
epli og appelsínur sem ekki fengust
í búðum í þann tíð og einnig posi
með aivöru kaffi. Mér verður alla
tíð minnisstæð lyktin af þessum fá-
gæta vamingi sem í mínum huga
er dýrðlegasti ilmur sem hugsast
getur og tengist engum öðram en
Nonna frænda.
Frænda datt aldrei í hug, held ég,
að eignast bíl þó að öll efni væra
til þess, hann fór helst allra sinna
ferða fótgangandi enda léttur á sér
og tók stundum dansspor ef svoleið-
is lá á honum. Ég man aldrei eftir
því að Nonni frændi legðist út af
eða slappaði af í stól og skrafaði í
þeim stellingum, heldur stóð hann,
tyllti sér eins og fugl augnablik og
vappaði síðan um. Þrátt fyrir þetta
var hann, að ég held, ekki stressað-
ur eins og nú er sagt heldur var
þetta bara hans háttur.
Ekki átti Siguijón afkomendur en
þau eru mörg bömin, sum hver full-
orðin núna, sem nutu umhyggju
hans og athygli oft ekki minni en
foreldri væri. Sem eitt þessara barna
minnist ég með þakklæti og ljúfum
huga Nonna frænda er ég kveð hann
þá leiðir skilja.
Ingibergur Elíasson
Wélagslíf
□ GIMLI 599012027 = 4
I.O.O.F. 10=1712128'/2 = SP.
I.O.O.F. 3 = 1712128 = S.p.
□ MÍMIR 59902127 - Afm. H&V
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma i kvöld
kl. 20.00.
Útivist
Þórsmerkurgangan
3. ferð sunnud. 11. feb.
Miðdalur - Kolviðarhóll. Gengin
gömul þjóðleið frá Miðdal yfir
Miðdalsheiði og Bolaöldur að
Kolviðarhól. Brottförkl. 10.30frá
BSÍ-bensínsölu. Stoppað við Ár-
bæjarsafn. Verð kr. 600,-. Munið
góða gönguskó.
Litlafell - Kolviðarhóll. Samein-
ast morgungöngunni við Kleinu-
kot. Brottför kl. 13.00 frá BSf-
bensínsölu. Stoppað við Árbæj-
arsafn. Verð kr. 600,-.
Létt skíðaganga
Sunnud. 11.feb.
Miðast við getu þeirra sem tóku
þátt I skíðagöngunámskeiðinu.
Byrjendur geta bæst í hópinn
og fá sérstaka tilsögn.
Farið frá BSÍ-bensínsölu kl.
13.00. Stoppað við Árbæjarsafn.
Verð kr. 600,-.
Sfmi/sfmsvari 14606.
Sjáumst!
Útivist.
\T=T7
KFUMAKFUK U9»-B«9
90 Ar fyrir eesbu islands
KFUM og KFUK
Almenn samkoma I kvöld kl.
20.30 á Amtmannsstíg 2b.
Guðsrfkið og vöxtur þess II,
Matth. 13,24-30. Upphafsorð:
Anna Hugadóttir. Ræðumaður:
Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson. Kór
Laugarneskirkju syngur.
Ath.: Lofgjörðar og bænastund
kl. 19.30. Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan
Völvufelli
Sunnudagaskóli kl. 16.00.
Allir krakkar velkomnir.
Almenn samkoma kl. 16.30.
Barnagæsla. Allir hjartanlega
velkomnir.
Stórsvigsmót fyrir konur
og karla 30 ára og eldri
Laugardaginn 24. feb. nk. getur
allt skíðaáhugafólk 30 ára og
eldra tekið þátt í skemmtilegu
stórsvigsmóti, sem haldið verð-
ur í Bláfjöllum. Keppt verður í
flokkunum 30-34 ára, 35-39
ára, 40-44 ára, 45-49 ára,
50-54 ára, 55-59 ára, 60-64
ára og 65 ára og eldri.
Sigurvegari I hverjum flokki fær
sæmdarheitið Reykjavikurmeist-
ari I stórsvigi 1990.
Um kvöldið verður sameiginlegt
borðhald og verðlaunaafhending.
Þátttaka tilkynnist til Arnórs í
sima 82922.
Dagskrá verður auglýst síðar.
Nefndin.
Hjálpræðis-
herinn
) Kirkjustræti 2
Sunnudagaskóli í dag kl. 14.00
Hilde og Anna Marít.
Kl. 19.30 Bæn. Kl. 20.00 Sam-
koma. Hilde Dagfinnrud talar og
syngur. Ungt fólk tekur þátt.
Fórn til æskulýðsstarfsins.
Verið velkomin.
FERDAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR11796 og 19533.
Sunnudagsferðir
11. febrúar
1. Kl. 10 Fljótshlíð f vetrarbún-
ingi - Seljalandsfoss. Ferðinni
er frestað vegna verkfalls
rútubílstjóra, en ferðirnar kl. 13
verða örugglega farnar.
2. Kl. 13 Undir Brimnesi á stór-
straumsfjöru. Áhugaverð
strandganga. Gengið fyrir Brim-
nesið, frá Saltvík í Þaravík óg
áfram með Hofsvíkinni. Verð 800,-
kr., frítt f. böm m. fullorðnum.
3. Kl. 13 Skíðaganga á Mos-
feilsheiði. Gönguskíðaferð fyrir
alla. Verð 800.- kr. Kynnist
næsta nágrenni okkar og góðum
félagsskap i Ferðafélagsferðum.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin.
Skíðagöngunámskeið verða I
tengslum við gönguskiðaferðir í
Bláfjöll og Hveradali 18. og 25.
febrúar. Leiðbeinandi: Halldór
Matthíasson. Einstakt tækifæri.
Ferðafélag Islands.
Skyggnilýsingafundur
Þórhallur Guðmundsson heldur
skyggnilýsingafund á vegum
Ljósgeislans þriðjudaginn 13.
febrúar kl. 20.30 í Siðumúla 25.
Ljósgeislinn.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR11798 Ofl 19533.
Myndakvöld
Næsta myndakvöld Ferðafé-
lagsins verður miðvikudaginn
14. febrúar í Sóknarsalnum,
Skipholti 50a og hefst stundvís-
lega kl. 20.30.
Efni: 1) Fyrir hlé verður mynda-
sýning í umsjá Grétars Eiríks-
sonar, og hefst með sýningu á
myndum frá fjalllendinu út með
Eyjafirði og norðan Öxnadals-
heiðar. Stefnt verður að þvi að
Bjarni Guðleifsson á Möðruvöll-
um skýri myndirnar. Þar á eftir
fer Grétar þjóðleiðina frá Siglu-
firði til Reykjavfkur og vekur
athygli á nokkrum merktum
stöðum í máli og myndum.
2) Eftir kaffihlé verða sýndar
myndir teknar í dagsferðum það
sem af er þessu ári. Fjölmenni
hefur verið í ferðunum og veður
hagstætt. Góðar kaffiveitingar í
hléi. Aðgangur kr. 200.-
Ath.: Myndir Grétars tengjast
efni árbókar F.í. 1990.
Myndakvöld Ferðafélagsins eru
til fróðleiks og skemmtunar. All-
ir velkomnir, félagar og aðrir.
Munið skfðagöngunámskeiðin
næstu sunnudaga.
Ferðafélag Islands.
Krossinn
Auðbrekku 2.200 Kópávogur
Almenn samkoma i dag kl.
14.00. Allir velkomnir.
Skipholti 50B, 2. hæð
Almenn samkoma kl. 11.00.
Sunnudagaskóli á sama tíma.
Allir velkomnir!
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Safnaðarguðsþjónusta kl. 11.00.
Ræðumaöur Guðni Einarsson.
Almenn samkoma kl. 20.00.
Ræðumaður Hallgrímur Guð-
mannsson. Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Systrafundur
verður mánudagskvöldið 12.
febrúar kl. 20.30 í umsjá Esterar
Árnadóttur o.fl. Mætum allar.
Stjórnin.
{ítmhjólp
í dag kl. 16.00 er almenn sam-
koma í Þribúöum, Hverfisgötu
42. Fjölbreyttur söngur. Barna-
gæsla. Vitnisburður. Ræðumaö-
ur verður Óli Ágústsson.
Allir velkomnir.
Samhjálp.
KRkonur!
Munið fundinn þriðjudaginn 13.
febrúar kl. 20.30.
Gestir fundarins verða hjónin:
Erla Stefándóttir og Örn Á. Guð-
mundsson, sem munu fjalla um
dulræn efni og orkubrautir.
Stjórnin
t*JÓNUSTA
Nudd!
Vertu góð(ur) við sjálfa(n) þig og
farðu í nudd. Veldu á milli:
Létt nudd,
djúpt nudd,
innsæis heilunarnudd,
Shiatsu (svæðanudd),
austurlenskt pulsíng.
Gitte, heimasimi 38936 eftir kl. 18.
HlENNSLA
Vélritunarkennsla
Ný námskeið eru að hefjast.
Vélritunarskólinn, s. 28040.