Morgunblaðið - 11.02.1990, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. FEBRUAR 1990
17
íslenskalandsliðið, með
Þorgils Óttar Mathiesen
í fararbroddi, á erfitt
verkefni fyrir höndum.
Gera má ráð fyrir að lið-
ið þurfi að vinna a.m.k.
fjóra leiki til að tryggja
sér sæti á ólympiuleikun-
um í Barcelona 1992.
Fjórir markverðir beij-
ast um þijár stöður í lið-
inu. Bergsveinn Berg-
sveinson, Leifur Dagf-
innsson og Guðmundur
Hrafnkelsson, auk Einars
Þorvarðarson, sem hefur
verið aðalmarkvörður
liðsins.
langbesta landslið heims og nær allir
telja þá örugga um sigur.
íslendingar þurfa að sigra í fjórum
af sjö leikjum sínum til að vera nokk-
uð öruggir áfram í A-keppni en það
er þó ekki öruggt. Þeir gætu þó kom-
ist af með þijá sigra, líkt og í Sviss,
en til þess þurfa úrslitin í hinum leikj-
unum að vera afar hagstæð.
„Það er í raun ekkert hægt að spá
um svona mót. Eitt mark getur skor-
ið úr um hvort lið leikur um tólfa
sæti eða fimmta sæti. Það eina sem
ég tel víst er að Sovétmenn lendi í
fyrsta eða þriðja sæti,“ segir Bogdan
Kowalczyk, landsliðsþjálfari. „Til að
einfalda þetta getum við gert ráð
fyrir því að í keppninni verði þijú lið
mjög ánægð, fjögur lið nokkuð án-
ægð og hin óánægð,“ segir Bogdan
og hlær.
Miklar framfarir
íslenska landsliðið hefur tekið
miklum framförum undanfarin ár og
leikmenn á borð við Júlíus Jónasson,
Héðin Gilsson, Valdimar Grímsson
og Guðmund Hrafnkelsson hafa tek-
ið stórstígum framförum. Breiddin
hefur aukist og meiðsli lykilmanna
ættu ekki að hafa jafn mikil áhrif
og fyrir nokkrum árum. Hinsvegar
eru í liðinu leikmenn sem íslenska
liðið má illa við að missa, til dæmis
Einar Þorvarðarson, Kristján Arason
og Sigurð Gunnarsson.
Ungir leikmenn hafa smám saman
fengið fleiri tækifæri, þ. á m. Héðinn
Gilsson og Óskar Ármannsson. Héð-
inn kom skemmtilega á óvart í
Frakklandi er hann tók við hlutverki
Alfreðs Gíslasonar í leiknum gegn
V estur-Þjóðveijum. „Við höfum
fengið fleiri tækifæri sem færa okk-
ur aukna reynslu," segir Héðinn Gils-
son. „Ég held að það sé engin ástæða
til hræðslu. Við erum með gott lið
en þetta verður erfitt. Ég geri mér
vonir um sigur á Kúbumönnum,
Spánveijum, Pólveijum og hugsan-
lega Austur-Þjóðveijum og það ætti
að skila okkur sjötta sæti,“ segir
Héðinn.
Af 20 leikmönnum sem eru í lands-
liðshópnum fara aðeins 16 til Tékkó-
slóvakíu. Líklegt verður að telja að
Sigurður Bjarnason, Gunnar Bein-
teinsson og Konráð Olavsson verði
eftir heima, auk eins af fjórum mark-
vörðum og þar má ætla að valið
standi á milli Leifs Dagfinnssonar
og Bergsveins Bergsveinssonar.
Frískari sókn og þéttari vörn
Alfreð Gíslason segir að ýmislegt
þurfi að laga fyrir keppnina. „Það
sem okkur vantar er ferskleiki í sókn-
ina, eins og í Frakklandi. Auk þess
þurfum við að þétta vörnina. Þrátt
fyrir að við séum með breiðan hóp
eigum við fáa varamenn í vörn gegn
Iiðum á borð við Sovétmenn og Júgó-
slava. Ef við ætlum að reyna að
skipta inná þá ganga þeir einfaldlega
yfir okkur í hraðaupphlaupum," seg-
ir Alfreð.
Reynslan vegur þungt
Islenska landsliðið býr yfir gífur-
legri reynslu og flestir leikmenn liðs-
ins hafa leikið á annað hundrað
landsleiki. Stór hluti hópsins hefur
tekið þátt í þremur stórmótum,
heimsmeistarakeppni og Ólympíu-
leikum og veit því útá hvað þetta
gengur. „Við þekkjum hver annan
og vitum við hveiju er að búast en
það er langt frá því öruggt að við
náum góðum leikjum í keppninni.
En reynslan er ekki allt, við þurfum
líka að geta eitthvað," segir Alfreð
Gíslason.
BESTA HVAÐ?
íbesiaí er fyrirtæki sem sérhæíir sig í hreinlætisvörum.
(bestaí býður öll efni og áhöld til ræstinga og hreinlætis.
íbístá! VERÐIÐ ÍbestáI ÞJÓNUSTAN
Öll hreinsiefni, bón, sápur, hand-
þvottakrem og sérefni til hreinsunar.
Jani-Jack Moppuvagnar.
Mako gólfþvottavélar, vélsópar.
Handþurrku- og WC pappír.
iBESTAl
Nýbýlavegi 18, Kóp.
Sími 91-641988
opið 9-18.
(bísta)
Hafnargötu 61
Ketlavik,
sími 92-14313
opið 13-18.