Morgunblaðið - 11.02.1990, Blaðsíða 28
1
(JS
28
oeei aAúnaa'? n
MmGUNBESÐIÐ'J
GinAjajiunaoM
i SUNNUDAGUR Hr. - FEBRÚAR J990 -
ATVINNUAUGí YSINGAR
Lögfræðiskrifstofa
Starfskraftur óskast til starfa á lögfræðiskrif-
stofu. Viðkomandi þarf að hafa reynslu af
skrifstofustörfum, einhverja þekkingu á bók-
haldi og tölvuvinnslu og vera röskur og
ábyggilegur. Þarf að geta hafið störf sem
fyrst. Farið verður með umsóknir og/eða fyr-
irspurnir sem trúnaðarmál.
Áhugaaðilar leggi umsóknir sínar inn á aug-
lýsingadeild Mbl. fyrir 17. febrúar merkt:
„L - 4125“.
0
Dagheimilið
Sólbrekka
auglýsir eftir fóstrum eða öðru uppeldis-
menntuðu fólki til almennra uppeldisstarfa
og til stuðnings fötluðu barni. Einnig vantar
starfsmann í fast afleysingastarf.
Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma
611961.
Sölumaður/
tölvubúnaður
Vegna aukinna umsvifa óskum við nú eftir
að ráða duglegan starfskraft í söludeild okkar.
Þú þarft að:
- Hafa mikinn áhuga á tölvum og tölvubúnaði.
- Almenn þekking og notkun á tölvum er
skilyrði.
- Hafa áhuga á sölumennsku.
- Geta unnið sjálfstætt og skipulega.
- Vera á aldrinum 25 til 40 ára.
- Hafa góða framkomu og eiga auðvelt með
að umgangast annað fólk.
Eingöngu er um að ræða framtíðarstarf.
Við bjóðum:
- Vinnu við það nýjasta á tölvusviðinu.
- Líflegt og krefjandi starf.
- Góðan starfsanda.
- Framtíðarstarf í ört vaxandi fyrirtæki.
Umsóknum með upplýsingum um menntun
og fyrri störf, skal skila skriflega til Tækni-
vals hf., Skeifunni 17, 128 Reykjavík, póst-
hólf 8294, fyrir fimmtudaginn 15. febrúar
1990. Farið verður með allar umsóknir sem
trúnaðarmál.
MTÆKNIVAL
Skeifunni 17.
SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA
REYKJAVlK
Þroskaþjálfar
Sambýli í Fossvogi óskar að ráða deildar-
þroskaþjálfa í 70-80% starf. Vaktavinna.
Aðrir með uppeldismenntun koma til greina.
Uppl. gefur Guðný í síma 678402 eða 53265.
[TJKRISTJÁN Ó
JSKAHRIÖRn HF
Hólmaslóð4,101 Reykjavíks. 24120
Framkvæmdastjóri
Óskum að ráða framkvæmdastjóra til starfa
hjá Kristjáni Ó. Skagfjörð.
Starfssvið framkvæmdastjóra: Stjórnun og
ábyrgð á daglegum rekstri. Stefnumótun og
markmiðasetning. Gerð viðskiptasamninga
fyrir hönd fyrirtækisins. Eftirlit með fjármála-
stýringu og samræming á starfsemi deilda.
Við leitum að hæfum manni til að stjórna
öflugu fyrirtæki með fjölþætta starfsemi.
Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi reynslu
á sviði fyrirtækjastjórnunar og geti axlað
ábyrgð.
Starfið er umfangsmikið og erilsamt ábyrgð-
ar- og stjórnunarstarf, sem krefst áræðni
og frumkvæðis.
Fyrirtækið var stofnað á Patreksfirði 1912.
Fyrirtækið starfar í fimm deildum: Matvöru-
deild, byggingavörudeild, veiðarfæradeild,
véladeild og töfvudeild. Fyrirtækið er um-
boðsaðili fyrir fjölda traustra fyrirtækja og
hefur þjónað sumum þeirra í þau 78 ár, sem
það hefur starfað. Starfsmenn eru 75 og
hluthafar eru 57. Kristján Ó. Skagfjörð hf.
er rótgróið en síungt og ört vaxandi þjónustu-
fyrirtæki.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Farið verður með allar fyrirspurnir og um-
sóknir sem trúnaðarmál.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar:
„Framkvæmdastjóri Skagfjörð", fyrir 1. mars
nk.
Hagvaneur h if
Grensásvegi 13 Reykjavík Sími 83666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
Sjúkrahúsið Blönduósi
Hjúkrunarfræðingar
Við leitum að hjúkrunarfræðingum til starfa
í lengri eða skemmri tíma og til
sumarafleysinga.
Hringið eða komið í heimsókn og kannið kjör
og aðbúnað. Allar uppl. veitir hjúkrunarfor-
stjóri í síma 95-24206.
Sjálfsbjörg - landssamband fatlaðra
Hátúni 12 - S!mi 29133 - P&thálf 5147 - 105 Reykjavík - fsland
Hjúkrunarfræðingar
Hefur þú áhuga á að vinna með fötluðum?'
Við leitum að áhugasömum hjúkrunarfræð-
ingi til 40% starfa á kvöldin og fjórðu hverja
helgi.
Upplýsingar gefur Guðrún Erla, hjúkrunarfor-
stjóri, í síma 29133.
SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA
NORÐl'RLANDI EYSTR.A
Stórholti 1
600 AKUREYRI
Ráðgjafa- og greiningardeild
Staða
við leikfangasafn
Laus er til umsóknar staða forstöðumanns
Leikfangasafns við ráðgjafa- og greiningar-
deild Svæðisstjórnar. I starfinu felst m.a.
eftirfarandi:
Vinna með sérþarfa börn á aldrinum 0-6
ára.
Að veita ráðgjöf til foreldra og annarra
sem sjá um uppeldi og þjálfun barna.
Samstarf við ýmsa fagaðila og stofnanir.
Umsækjendur skulu hafa menntun á uppeld-
issviði og reynslu á ofangreindum sviðum.
Skriflegar umsóknir er greini frá menntun
og starfsreynslu sendist til skrifstofu Svæð-
isstjórnar, Stórholti 1, 600 Akureyri fyrir 20.
febrúar nk.
Nánari upplýsingar um stöðuna eru veittar
á skrifstofunni og í síma 96-26960 alla virka
daga frá kl. 9-16.
Forstöðumaður ráðgjafa-
og greiningardeildar.
BÁTAR-SKIP
Æ
Utgerðarmenn
Viljum kaupa þorsk- og/eða ýsukvóta.
Hæsta verð - staðgreiðsla.
Upplýsingar í símum 92-13096 og 92-37633.
Heildverslun
Til sölu lítil heildverslun með hreinlætis- og
snyrtivöruumboð. Góð söluvara.
Tilboð leggist inn á auglýsingadeild Mbl. fyr-
ir 16. febr., merkt: „Góð - 7626“.
Búnaður til fiskvinnslu
Til sölu ýmiss búnaður til fiskvinnslu, t.d.
þvottakör, vogir, rekkar og fleira.
Laxasláturlína með öllum búnaði.
Upplýsingar í síma 622928.
Frystigámar
Tilboð óskast í 4 frysti- og kæligáma.
Upplýsingar veitir Ólafur Guðjónsson nk.
mánudag og þriðjudag í síma 686709 eða
985-28406.
HAGKAUP
Svfnabú - gott tækifæri
Til sölu er svínabú
í fullum rekstri á Suður-
nesjum. Um er að ræða bústofn, tæki og
fasteign. Föst og áreiðanleg
viðskiptasam-bönd. Arðbært og hentugt
tækifæri fyrir samhenta fjölskyldu sem
vill starfa við eigin atvinnurekstur.
Upplýsingar veitir Einar Páll
Svavarsson í
síma 689099.
Vogar Vatnsleysuströnd
Til sölu glæsilegt raðhús með bílskúr í Vogum
Vatnsleysuströnd.
Uppl. í símum 92-68294 og 985-29194.
Söluturn til sölu
Einn besti söluturninn í Reykjavík til sölu.
Um er að ræða söluturn með mikla veltu.
Söluturninn er vel búinn tækjum og áhöldum
og býður upp á mikla arðsemi fyrir rétta
aðila. Einungis traustir aðilar koma til greina.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„Toppgróði - 8919“.
ÝMISLEGT
Rakarastofa
Óska eftir að kaupa eða gerast meðeigandi
að rakarastofu.
Tilboð óskast send auglýsingadeild Mbl.
merkt: „ Rakarastofa - 8918“.