Morgunblaðið - 11.02.1990, Page 10

Morgunblaðið - 11.02.1990, Page 10
tí oeei HAUflai'H n sun jymng (jKiAjímnaaQM 10 ---------------------........ ...........MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. FEBRUAR 1990 koma til íslands. En auk dr. Was- hington fluttu svo erindi á ráðstefn- unni menn frá ýmsum stofnunum á íslandi. Alls voru flutt 12 stutt erindi. Fram undir þetta hafa spár um væntanlega hitahækkun gengið út frá meðalhitahækkun á jörðinni. En myndir af hitastigshækkun, sem vísindamenn hafa verið að skoða, hafa oft verið rifnar úr samhengi, eins og Trausti bentir á, og sýna hversu mikil óvissa er í reiknilíkön- unum. Likanið sem dr. Warren M. Washington kynnti hér á ráðstefn- unni og sem flestir töldu vera af bestu gerð slíkra reiknilíkana, er að því leyti frábrugðið að þótt það geri ráð fyrir hitun á jörðinni f'yrir áhrif vaxandi koltvísýrnings i and- rúmsloftnu, þá er hitnunin hægari fyrir þetta tímabil, þ.e. næstu 20-30 árin, en hingað til hefur verið spáð, og hún hún legst ekki jafnt yfir jörðina. Ekki mun alls staðar hlýna. Á vissum stöðum byijar með því að kólna og nær sú kólnun a.m.k. út þetta 30 ára tímabil. Einn af þessum blettum, þar sem kólnar, er norðaustanvert Atlantshafið, sem fyrr er sagt. Og annar slíkur blettur er á tilsvarandi svæði kring um Alutaeyjar á norðanverðu Kyrrahafí. Kólnunin, sem dr. Washington gerir ráð fyrir á Atlantshafssvæð- inu kring um ísland er ekki svo lítil, nálægt heilli gráðu að meðal- tali yfir árið eða nánar til tekið 0,7 gráður á 30 árum. Og á línurit- um má sjá að hitastigið að vetri frá desember til febrúar yrði þá komið niður í mínus fjórar gráður. Vísindamaðurinn tók fram að ekki sé til þess ætlast að þetta sé tekið eftir Elínu Pólmadóttur ÞÓTT JÖRÐIN taki að hitna vegna auknins koltvísýrings í andrúmsloftinu og fari að gæta svonefhdra gróðurhúsaáhrifa, eins og vísindamenn spá, þá gæti það þvert á móti valdið kólnun fyrstu áratugina á norð- austanverðu Atlantshafi, áður en ef til vill tæki að hlýna þar líka. Þetta kom m.a. fram í er- indi sem bandariski vísindamað- urinn dr. Warren Washington flutti nýlega á ráðstefhu í Reykjavík, en hann stjórnar rannsóknum og gerð veður- farslíkans við bandarísku loft- hjúpsrannsóknastöðina í Bould- er í Colorado. Islenska vatna- fræðinefhdin efndi til ráðstefh- unnar og fékk hann til að kynna nýstárlegar niðurstöður sem þar koma fram í reiknilíkani, en það gerir ráð fyrir því að á næstu 30 árum komi ekki til með að hitna jaftit á öllum hnett- inum heldur byrji þetta tímabil með því að kólni á nokkrum blettum, allt niður i mínus 4 gráður á vetrum í Atlantshafinu kring um Island. Af hverju sem það kann að stafa, þá vill svo til að einmitt hefiir kólnað nokk- uð á Islandi síðan 1965 miðað við tímabilið á undan. Þessar nýju niðurstöður verðurfarslíkansins þótti nokkrum íslend- ingum, þeim Trausta Jónssyni, veðurfræð- ingi, Helga Bjömssyni, jöklafræðingi og Kristni Einarssyni, líffræðingi, sem kynntust þeim á Alþjóðaveðurfræð- iráðstefnu í Helsinki, einkar athygl- isverðar fyrir Islendinga. Frásagnir þeirra eftir heimkomuna urðu til þess að íslenska vatnafræðinefndin ákvað að efna til ráðstefnu um þetta efni. Sagði Trausti i samtali við Mbl. að í Helsinki hefði komið berlega í ljós hve alvarlega spám um væntanleg gróðurhúsaáhrif er tekið og að vísindamenn í öllum greinum vinna orðið að rannsóknum í sambandi við það fyrirbæri. Þótti því mikill fengur að því að fá dr. Warren M. Washington hingað, því bæði vakti reiknilíkanið frá Boulder mikla athygli á ráðstefn- unni í Helsinki og í greinum í er- lendum fræðitímaritum er mikið í hann vitnað. Reyndist hann vera laus þessa tilteknu daga og vildi Þessi kort sýna frávik frá upphafsástandi reiknilíkansins sem dr. Washington sýndi hér, en það ætti að vera hitinn í dag. Ágústhitinn yrði því svipaður og nú 9-10 stig C, en mínus 3-4 stig á vetrum, þegar hiti er nú um frostmark.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.