Morgunblaðið - 11.02.1990, Page 11

Morgunblaðið - 11.02.1990, Page 11
JÓN ÓLAFSSON, HAFFRÆÐINGUR HEFUR UNNIÐ MEÐ LDGO-RANNSÓKNASTOFNUNINNI í BANDARÍKJUNUM AÐ RANNSÓKNUM Á ÁRSTÍDABUNDNU FLÆÐI KOLTVÉSÝR- INGS MILLILOFTS OG SJÁVAR í NORÐUR-ATLANTSHAFI. Ein helsta leið koltvísýrings niður í hafdjúpið er við íslands, en þaðan dreifist hann svo um heimsins höf. Hlýr sjór Golfstraumsins kólnar hér og þar sem þessi salti kaldi sjór er eðlisþungur, sekkur hann og djúpsjórinn berst síðan með straum- um suður eftir Atlantsálum og þaðan um Indlandshaf allt. til Kyrrahafs. of bókstaflega. Heildarniðurstaðan er sú að við getum ekki reiknað með samfelldri hlýju hér næstu ára- tugina á þessu svæði þótt hlýni annars staðar. Þetta reiknilíkan nær ekki nema 30 ár fram í tímann og er þá ekki farið að hlýna hér um slóðir. En til er samsvarandi reiknilíkan á Bretlandseyjum, sem gerir líka ráð fyrir að kólni hér í Norður-Atlantshafi. Það nær lengra fram í tímann og er þá farið að hlýna hér í lokin. Nokkuð óvenjulegur áratugur „Megingallinn er sá að illa geng- ur að ná hafstraumunum inn í þetta“, segir Trausti Jónsson. „í byijun líkansins ætti svæðið milli Noregs og íslands að vera ísi lagt, sem það er auðvitað ekki. Golf- straumurinn verkar ekki í iíkaninu eins sterkt og hann gerir í raun og veru. En kjarni málsins er sá að dr. Washington heldur því fram að hér gæti byijað á að kólna og það hefur einmitt gerst síðan 1965. Svo velta menn vöngum yfír því hvort það sé sú kólnun sem þar er spáð.“ Þegar gengið er nánar á Trausta um hvernig honum lítist sjálfum á þessar kenningar, segir hann fulla ástæðu til að vera á varðbergi. Veðurfræðingar á Norð- urlöndum hafi haft tilhneigingu til þess að vera mjög varkárir.„Fyrir fimm árum trúði ég engum þessum tölum, sem var verið að birta. En þessi nýju reiknilíkön hafa gert það að verkum að ég er orðinn ofurlítið meira trúaður á þær, því í þessu reiknilíkani kemur fram að þetta svæði ætti að vera tregt í taumi um breytingar og það er það Trausti Jónsson, veðurfræðingur í raun. Þar við bætist að síðasti áratugur hefur verið nokkuð óvenj- ulegur. Á árunum 1979- 1989 hafa verið fimm raunverulegir snjóavet- ur í Reykjavík, en áratuginn á undan 1969-1978 var aðeins einn snjóavetur." Árangur ráðstefnunnar telur Trausti þann, að flestir gerðu sér grein fyrir því hve þarna er flókið mál á ferðinni. Ekki sé hægt að taka hráar niðurstöður utan úr heimi, án þess að bera þær saman við raunveruleikann hér. Og hann kvaðst vona að ráðstefnan hafi orðið til þess að ýta við þátttakend- um. Þegar rætt hefur verið um hækk- un hitastigs á jörðinni hafa menn gjarnan haft áhyggjur af því hvaða áhrif það muni hafa á sjóinn og hækkun sjávarmáls þegar hitni svo að jöklar bráðni og leysi vatn úr böndum heimsskautaíssins. Sjá þá fyrir sér mismunandi breytingu á sjávarmáli við strendur landa, allt frá 7 sm lækkun upp í hálfs Ijórða meters hækkun fyrir lok næstu aldar. Trausti benti á að þarna kæmu margir þættir við sögu og kvaðst ekki sammála þeirri kenn- ingu að heimsskautaísinn muni bráðna. En við yrðum auðvitað að gera ráð fyrir því í mannvirkjagerð við ströndina. Helsti óvissuþáttur- inn er samt viðbrögð hafsins. Hve miklu það getur tekið við af koltv- ísýringi og losnað við. Um þann þátt er rætt annars staðar hér á síðunni í viðtali við Jón Olafsson, haffræðing, sem hefur í sambandi við bandaríska vísindastofnun verið að rannsaka árstíðabundið flæði koltvisýring milli lofts og sjávar hér í Norður Atlantshafi og gerði í stuttu erindi grein fyrir þeim rann- sóknum. ÞEGAR MENN hafa áhyggjur af vaxandi koltvísýringi í and- rúmsloftinu og afleiðingum þess í hækkandi hitastigi á jörðinni og svonefndum gróður- húsaáhrifum, hlýtur hafið að koma verulega inn í þá mynd. Enda er helsti óvissuþátturinn í þeim spám viðbrögð hafsins. Vitað er hve mikið af koltvísýr- ingi heftir verið framleiddur á jörðinni síðan um 1850. Og hafið hefiir gleypt nær helming- inn af honum, meðan ríflega helmingur varð eftir í lofti og á landi. Þá vaknar spurningin hvernig sjónum takist að vinna úr þessum koltvísýringi og hve miklu magni getur hann fyrir- komið. I hafínu er 60 sinnum meira af koltvísýringi en í andrúmsloftinu. Jón Ólafsson, hafifræðingur, hefur síðan 1983 unnið með LDGO-rannsókna- stoftiuninni í Bandaríkjunum að rannsóknum á árstíða- bundnu flæði koltvísýrings milli lofts og sjávar hér í Norður- Atlantshafi, sem hefur verið talið eitt mikilvægasta svæði jarðar í þessu sambandi. Jón sagði að aukningin í hafínu væri ekki mikil og það gæti þessvegna tekið við miklu magni, en mikilvægara er hvernig það dreyfist. Og hann útskýrði hvað gerist: Frá upphafi iðnbylting- ar hefur koltvísýring- ur aukist um 25% í andrúmsloftinu. Nú á tímum er viðbótin í andrúmsloftinu 55% af því sem mannskepnan er að sleppa frá sér, en 45 % af því binst á tvennan hátt: við tillífun á þurrlendi og í höfunum. En eins og ljóstilífun plantna bindur koltvísýring á landi, þá fer svipað fram meðal þörunga í sjónum. Það sem skiptir miklu máli í hugleiðingum um hugsanleg gróðurhúsaáhrif og hvernig koltvísýringur eykst í loft- inu, er að vita hvernig og hversu mikið hann binst í höfunum ann- ars vegar og á landi hins vegar. í sjónum binst koltvísýringurinn á tvennan hátt. Annars vegar hreint efnafræðilega og leysist þá gastegundin koltvísýringur upp í sjó og myndar kolsýru í vatninu. Hins vegar við öndun og tillífun í lífrfldnu. Við frumframléiðni binst koltvísýringurinn í lífrænu efni. Á hinn bóginn losnar kolefni úr lífrænu efni sem koltvísýringur við rotnun. Þetta gerist alls stað- ar, í sjónum og á þurru landi. Rétt er að taka fram að koltvísýr- ingur er ekki eiturefni. Það er jafn mikilvægt lífinu á jörðinni og t.d. súrefni. Straumamynstrið afdrifaríkt „Það er talsverð tregða á flæði koltvísýrings milli lofts og sjávar", segir Jón Ólafsson. „Yfirborð heimshafanna er nær mettað. Spurningin er hvernig koltvísýr- ingurinn geti borist niður í djúpin. Það gerist einkum á þeim svæðum þar sem lóðrétt blöndun er mikil, nyrst í Norður- Atlantshafinu og umhverfis Suðurheimsskauts- landið. Hlýr Golfstraumurinn berst hingað norður eftir og kólnar, og þar sem þessi salti kaldi sjór er eðlisþungur sekkur hann. Djúp- sjór, sem myndast á þennan hátt í norðanverðu Atlantshafí, berst síðan suður eftir Atlantsálum og þaðan um Indlandshaf, allt til Kyrrahafs. Dreifist semsagt um jörðina. Þarna er því leið fyrir koltvísýring og fleiri efni í lofti, svo sem freon, til að berast niður í djúpið hér norður í Atlantshafinu. Stóra spurningin er hvernig sjórinn taki við koltvísýringi úr andrúms- loftinu og hver er þáttur strauma í því magni sem hann getur tekið við og flutt. Ef djúpsjávarmyndun til dæmis breyttist af einhveijum ástæðum, þá er líklegt að heildar- flæði koltvísýrings til sjávar breyttist verulega." „Tengingin milli lofts og sjávar og flutningur koltvísýrings á slíkum svæðum er talinn mikilvæg- ur þáttur í veðurfarsbreytingum. Það hefur t.d. komið fram í jöklum Grænlands og Suðurskautsins að samtímis veðurfarsbreytingum þá hafa líka orðið breytingar á koltví- sýringsmagni í andrúmslofinu. Það hefur hitnað við meiri koltv- ísýring. Þær breytingar á koltv- ísýringi eru taldar standa í sam- bandi við höfín, lífríki sjávar og hvernig loftegundin berst milli lofts og sjávar. Þau svæði í hei- mshöfunum sem taka við koltví- sýringi skifta því miklu og mikil- vægt er að afla sem gleggstra upplýsinga um þau atriði er ráða flæði koltvísýrings milli lofts og sjávar. Mest flæði hér á sumrin Og þá komum við að rannsókn- unum, sem Jón Ólafsson á Ha- frannsóknastofnun hefur verið að vinna undanfarin ár í samvinnu við Lamont- Dohorty Geological Observatory í Bandaríkjunum. „Þegar við hófum 1983 rannsókn á árstíðabundu- flæði koltvísýrings milli lofts og sjávar, var almennt álitið að sjórinn hér í Norður- Atlantshafi tæki við mjög miklu af koltvísýringi, einkum á vetrum. Þá væri mikil kæling á heitum sjó úr Golfstraumnum og mikil lóðrétt blöndun. Þær rannsóknir, sem við liöfum unnið hér, hafa breytt þess- ari mynd á þá lund, að komið hefur í ljós að tillífun þörunga ræður ekki síður en lóðrétt blöndun miklu um flæði koltvísýrings úr lofti í sjó. Þetta flæði er ákaflega tengt framleiðniferli þörunga og myndun lífræns efnis í yfirborðs- lögum sjávar. Rannsóknirnar sýndu ennfremur að á vetrum þegar lóðrétt blöndun er mikil, þá rís einnig til yfírborðs djúpsjór, sem er ríkur að koltvísýringi. Svo mjög að sjórinn við yfírborð er um það bil mettaður og lítið sem ekkert flæði er hér á vetrum, miklu meira á surnrum." „Niðurstöður þessara rannsókna í heild eru semsagt þær að vægi þessa svæðis hér í koltvísýrings- bindingu hafsins sé minna en áður var talið. En svona rannsókn er ekki eingöngu bundin við okkar svæði", segir Jón ennfremur. Lamont stofnunin aflar gagna víðar að. Þeir hafa nýlega lagt mat á það hversu mikið höfin og lífríki meginlanda bindi af þeim 5 gígatonnum af kolefni sem mannkynið sleppir árlega út í andrúmsloftið. Þetta mat bendir til þess að lífríki meginlanda bindi 0,6 gígatonn, heimshöfin 1,6 gíga- tonn og að aukningin í andrúms- lofti nemi 2,8 gígatonnum á ári. Aukinn skilningur á hlutverki hafsins í þessu dæmi er ein af forsendum fyrir betri spám um framtíðar styrk koltvísýrings í lofthjúpnum.“ „Til þessa hefur verkefnið hér á Hafrannsóknastofnun verið að meta þennan flutning hér í Norð- ur-Atlantshafí“, segir Jón Ólafsson ennfremur.,, I ljósi þessara niður- staðna er svo hugsanlegt að við breytum áherslum. Ýmsar spum- ingar vakna í sambandi við koltví- sýring hafsins og breytingu á hita- stiginu, sérstaklega breytingu á djúpsjávarmyndun. Enda hefur straumakerfi Norður-Atlantshafs- ins og djúpsjávarmyndun hér mjög miklu hlutverki að gegna. Sjórinn hér á eftir að fara djúpt niðri suður í höf og bera með sér efnin sem hann inniheldur. Það skiptir ekki aðeins máli fyrir okkur, held- ur líka veðurfar á öllum hnettinum. Uppi eru hugmyndir um að fylgj- ast með því t.d. í áratug hvort einhveijar breytingar eru að verða á djúpsjá varmyndun og hvaða efni djúpsjórinn flytur með sér.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.